Morgunblaðið - 04.07.1987, Side 18

Morgunblaðið - 04.07.1987, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987 4 Fyrsti íslenski hlj ómdiskurinn ÚT er komin fyrsti íslenski hljómdiskurinn með íslenskum flytjanda. Grammið og Japis standa sam- eiginlega að útgáfu hljómdisksins. Á hljómdisknum er að finna hljóm- plötu Bubba Morthens Frelsi til sölu, að viðbættum fjórum aukalög- um, en Frelsi til sölu hefur verið ein af vinsælustu plötum á Islandi undanfama mánuði og hefur selst í fimmtán þúsund eintökum. Hljóm- diskurinn er gefinn út í þúsund eintökum og hefur Frelsi til sölu því verið gefín út í yfír sextán þús- und eintökum sem er með því besta sem þekkist í sögu hljómplötuútg- áfu á íslandi. Aukalögin á plötunni em Blind- sker, Leyndarmál frægðarinnar, Þjóðlag og Skyttan, en Þjóðlag, sem samið er við ljóð Snorra Hjartarson- ar, hefur ekki áður verið gefið út á plötu. Norræna veitinga- og gistihúsasambandið Einar Olgeirsson kjörinn formaður Einar Olgeirsson hótelstjóri. 13.—16. júni sl. var haldið hér á landi ársþing norræna veit- inga- og gistihúsasambandsins, en Samband veitinga- og gisti- húsa á aðild þar að. Eru ársþing norræna sambandsins haldin til skiptis í löndunum fimm. Rætt var um ástand og horfur á vinnumarkaði hvers lands um sig, almennt ástand í ferðaþjónustu og mögulega samvinnu varðandi markaðssetningu í öðrum löndum. ársávöxtun Bónusreikningur Iðnaðarbankans er þannig úr garði gerður, að allir geti nýtt sér hann til þess að ávaxta fé sitt á sem bestan, einfaldastan og öruggastan hátt. Hann er allt sem þú þarft. • Háirvextir • Laus hvenær sem er • Ekkert úttektargjald Síðustu 6 mánuði var ársávöxtunin 23,81 % Láttu Bónusreikning vinna fyrir þig iðnaðarbankinn -mtim kwnto Ennfremur voru rædd fjölmörg sameiginleg hagsmunamál og skipst á upplýsingum. Ferðaþjón- usta er þýðingarmikil atvinnugrein í öllum þessum löndum. „Meginkrafa er sú að ferðaþjón- usta fái að dafna við lífvænleg skilyrði og losað sé um alls kyns höft og bönn sem hvorki ferðamenn né þeir sem þjóna þeim skilja. Voru hinir norrænu gestir sam- mála um að geysimiklar framfarir hafí orðið hér á landi síðustu árin hvað varðar matargerð og almennt aðstöðu til móttöku ferðamanna," segir í frétt frá Sambandi veitinga- og gistihúsa. Aður en ársþingið hófst ferðuð- ust þingfulltrúar til Stykkishólms og sigldu m.a. út í Flatey. Á þinginu var Einar Ölgeirsson hótelstjóri á Hótel Loftleiðum og formaður Sambands veitinga- og gistihúsa kjörinn forseti norræna sambandsins til 2ja ára. Fyrirlestur um þátt greindar í störfum for- ystumanna BANDARÍSKI félagssálfræðing- urinn F.E. Fiedler er nú staddur hér á landi og mun halda fyrir- lestur á vegum félagsvísinda- deildar þann 6. júlí. Fyrirlestur- inn verður haldinn mánudaginn 6. júlí kl. 17.15 í stofu 206 í Odda við Sturlugötu. Fiedler var meðal brautryðjenda í rannsóknum á forystuhæfileikum og hefur verið bæði áhrifa- og af- kastamikill á því sviði og er meðal virtustu félagssálfræðinga nútím- ans. Hann er nú prófessor við Washington-háskóla í Seattle. Fyrirlestur hans mun íjalla um þátt greindar í störfum forystu- manna. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásídum Moggans! á £SSb KJÖTIONAÐARSTÖD KEA AKUREYRI SÍMI: 96~21400

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.