Morgunblaðið - 04.07.1987, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987
29
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
HaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, síml 83033.
Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakiö.
Opera - hluti menn-
ingarlegs fullveldis
Samkomulag hefur verið
undirritað milli mennta-
málaráðuneytis, fjarmála-
ráðuneytis og íslenzku
óperunnar, sem vonandi
tryggir starfsgrundvöll henn-
ar til langrar framtíðar. Að
sögn Sverris Hermannssonar,
menntamálaráðherra, mun
ríkið greiða laun fastra starfs-
manna óperunnar og rekstur
húsnæðis hennar. í annan
stað er samið um ógreidd gjöld
óperunnar til ríkisins frá fyrri
árum. Loks er í samkomulag-
inu ákvæði um fjármagn til
óperunnar, sem gerir henni
kleift að hefja störf með eðli-
legum hætti á hausti kom-
anda.
Viðbrögð Sverris Her-
mannssonar, menntamálaráð-
herra, og Þorsteins Pálssonar,
fjármálaráðherra, við rekstr-
arerfiðleikum íslenzku óper-
unnar eru fagnaðarefni.
Óperan hefur sannað fagleg-
an tilverurétt sinn. Hún hefur
á að skipa hæfu starfsfólki,
sem opnað hefur íslenzkum
almenningi leið til að njóta
margs hins bezta sem heimur-
inn hefur að bjóða í þessari
stórkostlegu listgrein, auk
þess sem stofnun af þessu
tagi færir í raun út íslenzka
menningarlandhelgi. Lokun
óperunnar, sem við blasti,
hefðu verið hryggileg mistök.
Við erum fámenn þjóð með
aðeins 120 þúsund vinnandi
einstaklinga, sem standa und-
ir fullvalda ríki, með öllum og
margvíslegum tilheyrandi
kostnaði. Sú staðreynd gerir
meiri kröfur til hvers einstakl-
ings en gengur og gerist með
milljóna- og tugmilljónaþjóð-
um — og jafnframt til aðhalds
og forsjálni í meðferð fjár-
muna. Við viljum hinsvegar
flestöll axla þessar fullveldis-
byrðar, einnig og ekki sízt í
menningarlegu tilliti. Að-
standendur Islenzku óperunn-
ar hafa lagt nótt við dag
næstliðin ár við að byggja upp
starfsemi hennar með góðum
árangri, sem raunar hefur
farið fram úr björtustu von-
um. Það er því eðlilegt að
samfélagið bregðist við með
þeim hætti, sem gert hefur
verið, til að tryggja framhald
þessa menningarstarfs.
Óperan býr að eigin húsi,
sem hún eignaðist fyrir arf
eftir heiðurshjónin Helgu
Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánsson, sem lengi ráku
verzlun hér í Reykjavík. Garð-
ar Cortes, óperustjóri, segir í
viðtali við Morgunblaðið í vik-
unni, að þetta hús megi gera
vel úr garði sem óperuhús
fyrir innan við 150 milljónir
króna. Það ætti að vera við-
ráðanlegt verkefni áður en
langir tímar líða með sam-
átaki áhuga- og opinberra
aðila.
Meginmálið er að viðbrögð
viðkomandi ráðherra mennta-
mála o g fjármála hafa
væntanlega tryggt rekstur
íslenzku óperunnar til næstu
framtíðar. Óperustjórinn segir
í viðtali við Morgunblaðið að
Sverrir Hermannsson,
menntamálaráðherra, hafi
ítrekað tekið málstað óper-
unnar, „á almannafæri, í
blöðum, í sjónvarpi og á um-
ræðufundum um framtíð
hennar“. Nú hafa ráðherrar
mennta- og fjármála tekið
málstað óperunnar í verki með
þeim hætti að rekstur hennar
getur væntanlega hafist með
eðlilegum hætti að hausti. Það
er ánægju- og fagnaðarefni.
Sverrir Hermannsson hefur
sem menntamálaráðherra
haft frumkvæði um sitthvað
til styrktar íslenzkri menn-
ingu. Hér verða aðeins nefnd
tvö dæmi af mörgum. Annars-
vegar Stofnun Sigurðar
Nordals, sem hefur það meg-
inhlutverk að efla og styrkja
rannsóknir og kynningu á
íslenzkri menningu heima og
heiman sem og stuðla að
tengslum fræðimanna á sviði
íslenzkra fræða hvar sem þeir
starfa í veröldinni. Hinsvegar
m-hátíðir svonefndar, sem
hafa þann höfuðtilgang að
gefa strjálbýlisfólki betri kost
á að kynnast hvers konar list
og menningarstarfi, bæði úr
heimahögum og utanað-
komnu.
Á liðnu starfsári tókst ís-
lenzka óperan á við viðamestu
óperusýningu á íslandi til
þessa, Aidu, sem sýnd hefur
verið fyrir fullu húsi rúmlega
þijátíu sinnum. Því ber að
fagna að óperan vaknar til
nýs starfs að hausti — á
traustari grundvelli en til
þessa. Megi sú starfsemi
auðga íslenzkt menningarlíf
um langa framtíð.
Hvers vegna sýkjast sumir
af alnæmi en aðrir ekki?
Uppgötvun breskra vísindamanna bendir til að fólk af evrópsk-
um uppruna sé ónæmara fyrir sjúkdómnum en Afríkumenn
Sérfræðingar um heim allan glíma
nú við að finna ráð gegn alnæmi. í
grein þeirri, sem hér birtist, er lýst
rannsóknum Breta á erfðavísunum. Á
myndinni sjáum við hins vegar fræga
sérfræðinga í alnæmi. Frá vinstri:
Flossie Wong Staal, Heilbrigðisstofn-
un Bandaríkjanna, dr. Robert Gallo,
sem greindi alnæmisveiruna einna
fyrstur, Dani Bolognese, Duke-
háskóla og William Jarrett, Glasgow-
háskóla. Þeir sitja þarna á þriðja
alþjóðlega þinginu í Washington um
alnæmi og hlýða á dr. Daniel Zagury
frá Frakklandi lýsa tilraun, sem hann
hefur gert á sjálfum sér með bóluefni
gegn hinum banvæna sjúkdómi.
Margir vísindamenn eru nú komnir á þá skoðun, að
takist þeim að ráða niðurlögum alnæmis, munu þeir geta
sigrast á næstum hvaða sjúkdómi sem er. Stafar það ekki
aðeins af því, að meiri rannsóknir fara fram á alnæmi
en nokkrum öðrum sjúkdómi fyrr og síðar, heldur einnig
af því hvað alnæmisveiran er fjölhæf. Skilningur á öllum
hennar lævísu brögðum mun líklega leiða til skilnings á
flestum öðrum sjúkdómum, allt frá krabbameini til kvefs.
Fyrsta vísbendingin um að þessi
spádómur sá á rökum reistur kom
í ljós snemma í maí sl. þegar skýrt
var frá einhverri merkustu upp-
götvuninni um sjúkdóminn síðan
menn fundu veiruna, sem veldur
honum. Breskir vísindamenn hafa
fundið eina af ástæðunum fyrir
því, að sumir smitast ekki af al-
næmi þótt þeir komist í tæri við
veiruna og hvers vegna svo marg-
ir af þeim, sem smitast, sýna engin
einkenni í langan tíma. Hér er
ekki aðeins um að ræða mesta
leyndardóminn við alnæmið, heldur
eina af mörgum óráðnu gátum
allra smitsjúkdóma. Hvers vegna
skyldu t.d. 20 milljónir manna hafa
fallið í valinn fyrir inflúensu strax
að lokinni fýrri heimsstyijöld þegar
fólk nú á dögum leggst aðeins í
rúmið í nokkra daga? Hvað er það,
sem stjómar sóttarþunganum og
smitnæminu?
Erfðavísarnir
ráða miklu
Það eru erfðavísarnir, sögðu
bresku vísindamennimir. Sumir
hafa blá augu og aðrir brún, sumir
hafa erfðavísa, sem hindra alnæm-
issmit, en aðrir ekki. Menn hafa
lengi vitað, að með kynslóðum á
sér stað lífeðlisfræðileg aðlögun hjá
skordýrum og fómarlömbum
þeirra; mótstöðuafl þeirra síðar-
nefndu eykst en krafturinn í þeim
fyrrnefndu dvínar. Til skamms tíma
héldu menn, að erfðavísar fómar-
lambsins skiptu mestu máli í þessu
sambandi, en bresku vísindamenn-
imir hafa sýnt fram á, að hvort
tveggja ræður miklu.
Það er auðvelt að láta sér detta
í hug, að erfðavísamir komi hér við
sögu, en að finna þá réttu er þraut-
in þyngri. Dr. Anthony Pinching,
dr. Keith Nye, dr. Lesley-Jane Eales
og samstarfsmenn þeirra við St.
Mary’s-sjúkrahúsið í London fundu
rétta erfðavísinn næstum fyrir til-
viljun. Þau voru að kanna hvort
einhveijir ákveðnir erfðavísar væru
algengari í alnæmissjúklingum, en
fólki almennt, en svo reyndist þó
ekki vera með þá erfðavísa, sem
þau beindu sjónum sínum að. Dr.
Nye tók hins vegar eftir því, að
annar erfðavisir, sem hann hafði
skoðað áður, var vissulega algeng-
ari í alnæmissjúklingum en ósýktu
fólki. Þessi vísir, sem er kallaður
„Gc“, getur verið þrenns konar: lf,
ls og 2. Þar sem menn hafa tvö
eintök af hveijum vísi geta sam-
setningamar verið sex: lf-lf, lf-ls,
ls-ls, 2-lf, 2-ls og 2-2. Dr. Pinc-
hing og menn hans komust að því,
að þeir, sem hafa lf-afbrigðið eru
líklegri en aðrir til að smitast af
alnæmi og að þeir, sem hafa 2-
afbrigðið ólíklegri en gerist og
gengur. Þeir, sem hafa samsetning-
una lf-lf eru í mestri hættu en
þeir, sem hafa 2-2, em tiltölulega
ömggastir.
Rannsókn bresku vísindamann-
anna náði aðeins til 375 manna og
því kann að vera, að hún gefi ekki
endanlega mynd. Tölfræðilegar nið-
urstöður hennar vom samt sem
áður mjög afdráttarlausar: Af hópi
samkynhneigðra karlmanna, sem
ekki höfðu sýkst þrátt fýrir að hafa
haft regluleg mök við sýkta karla
og án þess að gæta nokkurrar var-
úðar, hafði enginn Gc lf-lf-sam-
setninguna; 25% þeirra höfðu Gc
lf-lf. í samanburðarhópi heil-
brigðra og ósamkynhneigðra
manna höfðu 9% 2-2 og við 1%
lf-lf.
Sialic-sýra hjálpar
veirunum
Enginn veit nákvæmlega hvernig
á þessu stendur. Gc-erfðavísirinn
framleiðir eggjahvítuefni, sem
leggst á yfirborð fmmunnar og tek-
ur þátt í að flytja inn í hana
D-vítamín. Meginmunurinn á
eggjahvítuefnum lf, ls og 2 er sá,
að lf hefur meira af efni, sem kall-
ast sialic-sýra, á yfirborði fmmu-
himnunnar en Gc ls, en Gc 2 hefur
ekkert af því. Það er tilgáta dr.
Pinchings, að sialic-sýran hjálpi á
einhvem hátt alnæmisveimnni við
að komst í gegnum himnuna.
Við rannsóknina kom einnig
fram, að sömu erfðavísamir hafa
áhrif á hve þunglega alnæmið
leggst á sýkta einstaklinga. Þeir,
sem hafa Gc lf em líklegri en aðr-
ir til að fá full einkenni fljótlega
eftir smit, en þeir, sem hafa Gc 2
ólíklegri til þess. Það er því ekki
ósennilegt, að sialic-sýran auðveldi
veimnni að komast frá einni fmm-
unni til annarrar.
Alnæmissmit og adrar
veirusýkingar
Þetta síðastnefnda kemur ekki
síst á óvart því að vísindamenn
hafa lengi talið, að það eina, sem
veki sofandi veiruna — og þar með
alnæmið — væri tíminn og aðrir
smitsjúkdómar. Raunar virðist það
vera svo, að verði ónæmiskerfi
líkamans fyrir áreitni annarra sjúk-
dóma eykst hættan á að veiran
vakni. I nýbirtri skýrslu kemur
fram, að samkynhneigðir alnæmis-
sjúklingar í Bandaríkjunum og
ósamkynhneigðir alnæmissjúkling-
ar í Zaire í Afríku eiga eitt sameig-
inlegt, sem skilur þá frá ósýktu
fólki — miklar sýkingar af fjórum
öðmm veimm: cytomeglo-veim,
Epstein-batt-veim, herpes og hep-
atitis-B.
Nýlega kom það upp í bandaríska
hemum, að þar töldu menn, að
bólusóttarbólusetning hefði mmsk-
að við alnæmisveim í einum nýlið-
anna. Varð það aftur til að koma
því á kreik, að árangursrík herferð
WHO, Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar, á hendur bólusóttinni fram
til 1980 hefði hmndið af stað al-
næmisfaraldrinum. Þetta er að
sjálfsögðu út i hött. Eina vísbend-
ingin og hún ekki mikil er, að saman
fóm tíminn og landfræðileg upptök
sjúkdómsins. Hugsanlega getur
bóluefnið auðveldað alnæmisveir-
unni starfið, en það á engan þátt
í smitinu. Alnæminu veldur út-
breiðsla nýrrar veiru, ekki afdrifa-
rík breyting á annarri algengri. Sem
dæmi má nefna, að alnæmið barst
til Zambíu eftir 1980, löngu eftir
að bólusóttarherferðinni lauk.
Það em góðar fréttir, að Gc-
Kjarvalsstaðir:
Aður ósýnd
verk eftir Kjarval
SUMARSÝNING á verkiun Kjarv-
als verður opnuð i dag kl. 14 á
Kjarvalsstöðum. Sýnd verða um
100 verk og hefur um helmingur
myndanna ekki verið áður til sýn-
is.
í formála að sýningarskrá Kjarv-
alssýningarinnar segir að á þessari
sumarsýningu hafí verið leitast við
að draga fram myndir þar sem mynd-
skáldið Kjarval kemur fram. Þar
verða myndir sem hann málaði fyrir
sjálfan sig og sýndi aldrei. Verkin á
sýningunni em úrval úr því 5000
mynda safni sem Kjarval ánafnaði
Rey kj avíkurborg.
Myndimar völdu Einar Hákonar-
son, Sigurður Örlygsson og Daði
Guðbjömsson og nutu aðstoðar
Steinunnar Bjarman sem skrásett
hefur Kjarvalssafn Reykjavíkurborg-
ar. Að sögn þeirra þremenninga er
inntak þeirra mynda sem nú eru
sýndar allt annað en landslagsmynd-
anna, náskyldar hinu nýja málverki.
Töldu þeir því að sýningin ætti eftir
að koma mörgum á óvart.
Sýningunni á Kjarvalsstöðum er
þannig skipt að í Kjarvalssal eru
málverk, en á göngum hússins eru
sýnd áður ósýndar myndir. Sýningin
stendur til 30. ágúst.
erfðavísirinn skuli hafa áhrif á
alnæmisveiruna. í fyrsta sinn bend-
ir margt til, að núverandi mat á
útbreiðslu sjúkdómsins kunni að
vera ýkt. Það er erfðafræðilegur
munur á þeim, sem líklegir eru til
að veikjast fljótt, og þeim, sem
ekki gera það, og það gefur aftur
til kynna, að þeir, sem ekki fá sjúk-
dómseinkennin fljótlega eftir
smitun, fái þau ef til vill aldrei. Það
bendir einnig til, að dánartíðnin
verði mest á fyrstu árum faraldurs-
ins því að þeir, sem hættast er við
smiti, eru auk þess líklegastir til
að fá full einkenni.
Góð tíðindi fyrir suma
— verri fyrir aðra
Þessi uppgötvun boðar góð
tíðindi fyrir Evrópumenn og Norð-
ur-Ameríkumenn, en öllu verri fýrir
Afríkumenn. í fólki í Mið-Afríku
er Gc lf-erfðavísirinn miklu algeng-
ari og Gc 2 miklu fágætari, en í
fólki af evrópskum uppruna.
Afríkumenn eru því hugsanlega
erfðafræðilega næmari fýrir al-
næmisveirunni, en Evrópumenn og
skýrir það e.t.v. að nokkru þá stað-
reynd, að sjúkdómurinn virðist hafa
breiðst miklu hraðar út í Afríku, en
í Evrópu og Bandaríkjunum. Þetta
skýrir kannski einnig hvers vegna
alnæmið leggst með óeðlilegum
þunga á svertingja í áhættuhópun-
um í Bandaríkjunum. í svörtum
Bandaríkjamönnum er Gc lf-erfða-
vísirinn algengur eins og í kyn-
bræðrum þeirra í Afríku. Flestir
Asíumenn eru mitt á milli Evrópu-
manna og Afríkumanna hvað tíðni
þessa erfðavísis áhrærir.
Viðbúið er, að margir vilji nú
komast að því hvaða afbrigði af
erfðavísinum þeir hafa. Við það er
beitt tiltölulega einfaldri aðferð, en
þó nokkuð kostnaðarsamri. Dr.
Pinching vill þó vara fólk við og
segir, að enn séu niðurstöðumar
ekki svo áreiðanlegar, að þeir, sem
hafa Gc 2-2, geti þess vegna látið
alla aðgát lönd og leið og kastað
burt veijunum. Hugsanlegt er, að
í framtíðinni verði unnt að beijast
gegn alnæminu með því að fram-
leiða mótefni gegn Gc lf, en sem
stendur breytir þessi uppgötvun
engu um faraldurinn — hún eykur
aðeins þekkingu manna á hinum
veiku hliðum veirunnar.
(Heimild: The Economist.)
Morgunblaðið Einar Falur
Sumarsýning á verkum Kjarv-
als verður opnuð í dag. Á
myndinni er Alfreð Guðmunds-
son, forstöðumaður Kjarvals-
staða. Innfellda myndin er af
einu verka Kjarvals sem ekki
hefur áður verið til sýnis opin-
berlega.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ÓLAF Þ. STEPHENSEN
Sala hátæknibúnaðar til Sovétríkjanna:
Oryggi NATO-rílga í Norð-
urhöfum er í hættu stefnt
SALA norska fyrirtækisins Kongsberg Vápenfabrikk og jap-
önsku verksmiðjanna Toshiba Machine á hátæknibúnaði til
Sovétríkjanna hefur sannarlega dregið dilk á eftir sér. Búnaður-
inn hefur gert Sovétmönnum kleift að smíða afar lágværa
kafbáta, sem eiga mun auðveldara með að sleppa fram hjá kaf-
bátavarnarkerfi NATO en eldri gerðir. Sú staðreynd raskar
valdajafnvæginu á úthöfunum og það mun kosta Atlantshafs-
bandalagið stórfé að endurnýja kafbátavarnir sínar. Sala
búnaðarins brýtur einnig í bága við samþykktir Vesturlanda sín
á milli og gæti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir samskipti
Japana og Norðmanna við Bandarikin.
Það var á árunum 1982-1983
sem Kongsberg Vápenfa-
brikk seldi Sovétmönnum stýrit-
ölvur, sem notaðar voru til að
stjóma málmskurðarvélum í kaf-
bátasmíðastöðvum Rauða flotans.
Skurðarvélarnar voru keyptar frá
dótturfyrirtæki japanska stórfýr-
irtækisins Toshiba, Toshiba
Machine. Með þessum búnaði er
hægt að skera skutskrúfur kaf-
báta af slíkri nákvæmni, að
kafbátarnir verða miklu hljóðlát-
ari en ella.
Þetta mun valda Atlantshafs-
bandalaginu ómældum erfiðleik-
um og skapar ijölmörg ný
vandamál, sem þarf að leysa með
hraði. Fram til þessa hafa kaf-
bátar Vesturlanda verið miklu
lágværari en hinir sovésku og
Sovétmenn hafa ekki yfir nægi-
lega fullkomnum hlustunarbúnaði
að ráða til þess að hafa eftirlit
með kafbátum NATO. Herir
NATO hafa hins vegar einkum
treyst á hlustunarbúnað sinn til
þess að fýlgjast með ferðum sov-
éskra kafbáta.
Bandalagið hefur yfir að ráða
víðfeðmu neti hlustunarbúnaðar á
sjávarbotninum þar sem mikil-
vægast er að fýlgjast með umferð
sovéskra kafbáta, til dæmis í
GIUK-hliðinu milli Grænlands,
íslands og Skotlands. Einnig
fylgjast flugvélar, skip og aðrir
kafbátar með þeim með hlustun-
artækjum sínum.
Hlustunarkerfið úrelt
Nú er hætt við að NATO neyð-
ist til að hætta að leggja allt sitt
traust á hlustunarkerfið. Kafbátar
Sovétmanna, sem búnir eru nýju
skrúfunum, verða ekki uppgöt-
vaðir fyrr en í tíu mílna fjarlægð,
að áliti vestrænna sérfræðinga.
Þeir geta þannig komist óséðir inn
á Norður-Atlantshafið og athafn-
að sig þar að vild. Á stríðstímum
merkir það að kafbátar, sem í
reynd eru neðansjávarskotpallar
fyrir langdrægar kjarnorkuflaug-
ar, geta skotið á nánast hvaða
skotmark sem er í Norður-
Ameríku og Vestur-Evrópu.
Einnig ættu þeir hægt um vik að
ráðast á skipalestir á aðflutnings-
leiðum NATO frá Ameríku til
hersveita í Evrópu. Það er því
bráðnauðsynlegt fyrir Atlants-
hafsbandalagið að smíða sem allra
fyrst nýtt kafbátaleitarkerfi.
Varnarmálasérfræðingar banda-
lagsins telja að slík smíði muni
kosta um 30 milljarða Banda-
ríkjadala eða 1.200 milljarða
króna, sem er hvorki meira né
minna en fertugföld fjárlög
íslenska ríkisins.
Bandaríkjamenn
bregðast hart við
Samkvæmt svonefndu
COCOM-samkomulagi, sem
NATO-ríkin og Japan hafa með
sér, er bannað að selja vestrænan
hátæknibúnað til Sovétríkjanna.
Viðskipti norska og japanska fyr-
irtækisins eru talin skýlaust brot
á þessu samkomulagi og í lögreg-
lurannsókn á málum Kongsberg-
verksmiðjunnar kom fram að sala
allra hluta norska búnaðarins
braut í bága við COCOM-sam-
þykktina. Bandaríkjamenn hafa
brugðist mjög hart við þessum
samningsbrotum fyrirtækjanna
og skella skuldinni á opinbera
aðila í löndunum tveimur, sem
þeir segja að hafi brugðist þeirri
skyldu sinni að hafa nægilegt eft-
irlit með útflutningi til Sovétríkj-
anna.
Bandarískir fulltrúadeildar-
þingmenn og ýmsir fleiri embætt-
ismenn hafa viljað grípa til mjög
harðra aðgerða gegn Noregi og
Japan vegna þessa máls. Nú þeg-
Johan Jörgen Holst, varnar-
máiaráðherra Norðmanna,
hefur verið í Washington und-
anfarið að reyna að endurreisa
orðstír Norðmanna. Honum
tókst ekki að koma í veg fyrir
refsiaðgerðir gegn Kongsberg.
ar hefur bandaríska varnarmála-
ráðuneytið rift stórum hergagna-
samningi við Toshiba og
öldungadeild Bandaríkjaþings
hefur samþykkt bann við öllum
innflutningi á vörum frá fyrirtæk-
inu, þar með töldum sjónvarps-
og myndbandstækjum.
Mörgum Bandaríkjamönnum er
ekki of vel við Japani þessa dag-
ana vegna tregðu þeirra að jafna
viðskiptahalla Bandaríkjanna við
Japan og hafta, sem enn eru lögð
á bandarískan innflutning til Jap-
an. Einnig þykir þingmönnum
Japanir hafa tekið mjúklega á
Toshiba Machine-fyrirtækinu er
uppvíst varð um athæfi þess.
Þetta kann að eiga þátt í hörðum
viðbrögðum þingmanna, en sumir
hveijir hafa þeir gengið svo langt
að krefjast þess að Japanir bæti
Bandaríkjamönnum upp tapið,
sem hlotist hefur af hinum ólög-
legu viðskiptum og greiði hvorki
meira né minna en 1.200 milljarða
króna.
Ólíklegt þykir að gerð verði
alvara úr slíkum kröfum, en nú
hafa Japanir fallist á að ganga
til samvinnu við Bandaríkjamenn
um hönnun nýs kafbátaleitarbún-
aðar. Caspar Weinberger, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, hélt
til Japan í síðustu viku til þess
að ganga frá samkomulagi þjóð-
anna um samstarf á þessu sviði.
Kongsberg á barmi
glötunar
Afleiðingar þessa máls fýrir
Norðmenn eru einnig alvarlegar.
Þrátt fyrir að Gro Harlem Brundt-
land, forsætisráðherra Noregs,
hafi ritað Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseta formlegt afsökunar-
bréf vegna slælegs útflutningseft-
irlits og heitið því að hér ■ eftir
verði bætt þar úr, lagði öldunga-
deild þingsins bann við öllum
viðskiptum við Kongsberg um leið
og innflutningur frá Toshiba var
bannaður.
Kongsberg Vápenfabrikk er
fyrirtæki í ríkiseigu. Verksmiðj-
umar hafa átt í miklum fjár-
hagskröggum undanfarin ár og
hafa nýlega verið endurskipulagð-
ar í spamaðarskyni. Þær hafa
bundið einna mestar vonir við
samning um sölu „Mörgæsar"-
flugskeyta til Bandaríkjanna. Nú
lítur út fyrir að ekkert verði af
þeim viðskiptum og telja ýmsir
að það muni ríða fyrirtækinu að
fullu.
Undanfama daga hafa Johan
Jörgen Holst, varnarmálaráð-
herra Norðmanna, og Kari Stolt-
enberg, ráðuneytisstjóri í
viðskiptaráðuneytinu, verið í
Bandaríkjunum til þess að reyna
að blíðka þingmenn og aðra þá,
sem haft geta áhrif á aðgerðimar
gegn Noregi, en ekki haft árangur
sem erfiði í því að bjarga viðskipt-
um Kongsberg.
Aftur á móti hafa þau Holst
og Stoltenberg náð samkomulagi
við Bandaríkjamenn um að sam-
starf þjóðanna á sviði kafbáta-
vama verði aukið og Norðmenn
hafa lýst sig reiðubúna að veija
til þess allháum upphæðum til
þess að reyna að bæta tjónið.
Þeir hafa gripið til fleiri aðgerða
í því skyni að blíðka vini sína i
Vesturheimi, svo sem herts út-
flutningseftirlits og nýrra reglna
um útflutning ríkisfyrirtækja.
Hvemig svo sem Norðmönnum
og Japönum tekst að ávinna sér
traust Bandaríkjamanna á ný, er
ljóst að hinn ólöglegi útflutningur
þeirra hefur valdið vömum Vest-
urlanda gífurlegum skaða, sem
erfitt verður að bæta. Reyndar
hafa Sovétmenn verið smátt og
smátt að vinna upp forskot Vest-
urlanda á sviði kafbátahemaðar
á síðustu árum, en það er ljóst,
að tækin frá Kongsberg og Tos-
hiba Machine flýttu fyrir þeim um
nokkur ár, sem NATÖ-ríkin hefðu
getað notað til að bregðast við
tækniframförum Rauða flotans.
Sá tími verður ekki endurheimtur
með peningum, og Vesturveldin
mega hafa sig öll við, eigi valda-
jafnvægi austurs og vesturs ekki
að raskast verulega.
Heimildir: Aftenposten,
Newsweek, Reuter.