Morgunblaðið - 04.07.1987, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987
53
IÞROTTIR UNGLINGA
Lið FH sem lenti í 3. sœti f Tommamótinu.
Hressir Blikastrákar við hliðarlfnuna.
Knattþrautirnar voru mjög vinsælar eins og sóst á fjöldanum sem
fylgist með.
Tveir af aðalskipuleggjendum Tommamótsins. Ómar Jóhannsson og Lárus Jakobsson ásamt lukkutrölli
þeirra Týrara. Til nánari skýringar er Ómar lengst til vinstri og Lárus lengst til hægri.
„Má alltaf gera betur“
- segir Týrarinn Lárus Jakobsson um Tommamótið
ÞÓTT á engan sé hallað er óhætt
að segja að Lárus Jakobsson
hafi borið hitann og þungann af
allri skipulagningu Tommaham-
borgaramótsins í knattspyrnu
sfðustu árin. Menn eru á einu
máli um að hann hafi unnið stór-
kostlegt starf f allri skipulagningu
og framkvæmd.
Við hittum Lárus að kvöldi
síðasta keppnisdagsins og spurð-
um hann hvort hann væri ánægður
með mótið í ár.
„Ég get ekki annað en verið
ánægður því mótið hefur runnið
mjög vel í gegn og allar tímaáætl-
anir hafa staðist fullkomlega. Það
má hins vegar alltaf gera betur og
við viljum endilega heyra frá þátt-
takendum um hvort eitthvað megi
betur fara.
Það er auðvitað óhjákvæmilegt
að eitthvað smávægilegt komi
uppá í stóru móti sem þessu en
það er svo lítið að það tekur því
ekki að nefna það. Við erum komn-
ir með töluverða reynslu nú eftir
að hafa haldið þetta í fjögur ár,
en við viijum alls ekki lenda í
„rútínu". Á næsta ári stefnum við
að því að gera meira fyrir foreldra
sem heimsækja keppendur á með-
an á keppninni stendur. Einnig
komu fram óskir um að skipulögð
yrði dagskrá fyrir fararstjóra og
foreldra sem fylgja hópnum allan
tímann. Þetta ætlum við að taka
til athugunar fyrir næsta ár."
Að sögn Lárusar er ekki líklegt
að liðum verið fjölgað í keppninni
því keppendur eru það margir og
erfitt að ráða við stærri hóp. Við
óskum Lárusi og öllum Týrurum
til hamingju með gott mót og von-
um að keppendur og fararastjórar
eigi góðar minningar frá Tomma-
hamborgaramótinu 1987.
• Eldri flokkurinn hjá sunddeild ÍBV. Morgunbiaðiö/Andrés
2. Guðný Halldórsdóttir 1:41,2
200 m fjórsund karla: mín.
1. Óskar Ragnarsson 2:34,7
2. Logi Kristjánsson 2:52,1
200 m fjórsund kvenna: mín.
1. Radinka Hadzic 2:46,6
V.met telpna, stúlkna og kvenna
2. Anna Lilja Sigurðardóttir 2:47,4
50 m flugsund sveina: Bikarsund
sek.
1. Pétur Eyjólfsson 47,4
2. EmilHadzic 51,9
50 m flugsund meyja: Bikarsund
sek.
1. Elísa Sigurðardóttir 37,5
2. Guðný Hermannsdóttir 42,3
Oddur Júlíusson gaf bikara sem
keppt er um í flugsundi og er al-
þjóða stigatafla notuð til stigaút-
reikninga. Bikarhafi sveina varð
Pétur Eyjólfsson, hlaut 143,5 stig.
Bikarhafi meyja varð Elísa Sigurð-
ardóttir, hlaut 393 stig.
100 m bringusund karla mín.
1. Óskar Ragnarsson 1:22,2
2. Logi Kristjánsson 1:24,0
100 m bringusund kvenna: mín.
1. Anna Lilja Sigurðardóttir 1:23,2
V.met stúlkna og kvenna
2. Ingibjörg Amarsdóttir 1:27,0
50 m baksund sveina: sek.
1. EmilHadzic 54,3
2. Guðjón Ólafsson 54,9
50 m baksund meyja: sek.
1. Elísa Sigurðardóttir 41,2
2. Guðný Hermannsdóttir 44,9
100 m skriðsund karla: mín.
1. Logi Kristjánsson 1:02,1
2. Óskar Ragnarsson 1:03,1
100 m skriðsund kvenna: mín.
1. Ingibjörg Arnarsdóttir 1:06,5
V.met stúlkna og kvenna
2. Radinka Hadzic 1:06,5
sjónarmun á eftir
MiKIÐ hefur verið skýrt frá
Tommamótinu i knattspyrnu í
fjölmiðlum að undanförnu. En
það eru stundaðar aðrar íþróttir
í Vestmannaeyjum en knatt-
spyrna. Golf er vinsæl íþrótt hjá
unglingum og þess má m.a. geta
að nýkrýndur drengjameistari ís-
iands í golfi, Sindri Óskarsson,
er frá Vestmannaeyjum. Félagar
hans úr GV, þeir Birgir Ágústsson
og Þorsteinn Hallgrímsson, eru í
drengjalandsliði íslands í golfi.
Blaðamaður Morgunblaðsins
fylgdist hinsvegar með sundmóti
í hinni glæsilegu sundhöll þeirra
Vestmanneyinga. Að sögn Magn-
úsar Tryggvasonar þjálfara, ÍBV,
er töluverður áhugi hjá unglingum
á sundi íVestmannaeyjum. Hjá ÍBV
æfa um 40 unglingar reglulega og
hefur víst áhugi á sundíþróttinni
aukist til muna eftir að Eðvarð Þ.
Eðvarðsson var kosinn íþrótta-
maður ársins. Magnús tjáði okkur
að sundið væri í sífelldri keppni
við fótboltann og golfið um hylli
unglinganna og stundum hefðu
þeir betur um efnilega íþrótta-
menn.
Stúlkurnar náðu
bestum árangri
Sumarmót ÍBV hefur verið árleg-
ur atburður i starfsemi sunddeildar
ÍBV undanfarin ár og oft hafa náðst
ágætir tímar. i þetta skiptið voru
það stúlkurnar sem náðu bestum
tíma. Anna Lilja Sigurðardóttir
setti Vestmannaeyjamet í 100 m
bringusundi kvenna, Ingibjörg Arn-
arsdóttir setti Vestmannaeyjamet
í 100 m skriðsundi og 100 m flug-
sundi kvenna. Einnig setti Radinka
Hadzic Vestmannaeyjamet í 200 m
fjórsundi kvenna. En látum mynd-
irnar tala sínu máli.
100 m flugsund karla: mín.
1. Logi Kristjánsson 1:12,6
2. Óskar Ragnarsson 1:13,9
100mflugsundkvenna: mín.
1. Ingibjörg Arnarsdóttir 1:17,1
V.met kvenna og stúlkna
2. Radinka Hadzic 1:18,1
100 m bringusund sveina: mín.
1. Pétur Eyjólfsson 1:52,8
2. EmilHadzic 1:53.8
100 m bringusund meyja: mín.
1. Elísa Sigurðardóttir 1:36,1
Elísa Sigurðardóttir tekur við hamingjuóskum fyrir sigur í bikar-
keppni meyja.
SUNDIVESTMANNAEYJUM