Morgunblaðið - 25.07.1987, Side 4

Morgunblaðið - 25.07.1987, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987 Urskurður Héraðsdóms Húnaþings: Jón á Skarfshóli fær kjötið sitt „Kjötið fer til heimilisins og einn og einn skrokk ætla ég að gefa,“ segir Jón HÉRAÐSDÓMUR Húnaþings kvað í gær upp úrskurð í máli Jóns Jónssonar bónda á Skarfs- hóli gegn Verslun Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga og landbúnaðarráðuneytinu. Úr- skurðurinn kveður á um að Jóni sé heimilt að taka út kjöt sem hann lagði inn í Verslun Sigurðar Pálmasonar og var umfram fúll- virðisrétt hans. Þetta eru um 330 kíló af kindakjöti. Jón ísberg sýslumaður sagði að úrskurður þessi byggðist á því að ákvörðun landbúnaðarráðuneytis- ins um fullvirðisrétt var ekki kunngjörð sláturleyfishöfum fyrr en í lok sláturtíðar í fyrra, eða hinn 20. október 1986. Hins vegar væri engin efnisafstaða tekin til þess hvort það sé löglegt eða ólöglegt að taka út kjötið, eða hvort það brjóti í bága við samning Stéttar- sambands bænda og landbúnaðar- ráðuneytisins. Jón Jonsson bóndi á Skarfshóli sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann hefði alltaf reiknað með þessum úrskurði. Hann ætti að fá kjötið til baka og það sama myndi væntanlega gilda um alla sem svipað væri ástatt um ef úr- skurðurinn stenst fyrir Hæstarétti. „Það er hvorki hægt að afsala eignar- og umráðarétti bænda yfir eigin framleiðslu til nkisins né ann- arra, sagði Jón.“ „Ég bjóst alltaf við því að landbúnaðarráðuneytið myndi skjóta úrskurðinum til Hæstaréttar og ég fagna því. Ég tel að ég hafí það góðan málstað og er ekkert hræddur við úrskurð Jón Jónsson bóndi á Skarfshóli við heimilisbifreiðina. Hæstaréttar." Ekki taldi Jón að það yrði vandamál að losna við kjötið. Hluti af því færi til heimilisins en einn og einn skrokk ætlar hann að gefa vinum og kunningjum. „I haust vita bændur hver full- virðisréttur þeirra er. Ég held að þeir séu allir á einu máli um að leggja ekki inn umfram hann,“ sagði Jón. / DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) VEÐURHORFUR I DAG, 2S.07.87 YFIRLIT á hádagi f gær: Vestur af landinu er hæðarhryggur sem hreyfist hægt austur. Á Grænlandshafi er 1015 millibara djúp lægð sem fer yfir sunnanvert fsland í dag. SPÁ: Suðlæg eða breytileg átt á landinu, víðast gola eða kaldi (3-5 vindstig). Fram eftir degi verður bjart veður á norður- og austurlandi, en suðvestanlands fer að rigna með morgninum. Síðdegis fer einnig að þykkna upp norðaustanlands og fer líklega að rigna annað kvöld. Hiti á bilinu 10 til 15 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA SUNNUDAGUR og MÁNUDAGUR: Fremur hæg breytileg átt. Smá skúrir eða dálítil súld öðru hverju við norður- og vesturströndina en þurrt að mestu annars staðar. Hiti á bilinu 9 til 18 stig. x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * / * Slydda r * / * * * * * * * Snjókoma * * * 1 o Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur [~<^ Þrumuveður * w C 4 w % i r T } VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri 10 skýjað Reykjavlk 11 skýjað Bergon 12 skúr Helsinki 21 skýjað Jan Mayen 6 súld Kaupmannah. 18 skýjað Narssarssuaq 13 alskýjað Nuuk 7 skýjað Osló 18 þokumóða Stokkhólmur 20 skýjað Þórshöfn 10 alskýjað Algarve vantar Amsterdam 17 súld Aþena 34 heiðskírt Barcelona 24 hálfskýjað Beriín 21 hálfskýjað Chicago 24 mistur Feneyjar 29 skúr Frankfurt 21 skýjað Giaskow 18 hálfskýjað Hamborg 18 skýjaö Las Palmas vantar London 19 mlstur Los Angeies vantar Lúxemborg 18 skýjað Madríd 28 mistur Malaga 29 helðakfrt Mallorca 29 lóttskýjað Miami vantar Montrea! 28 mlstur NewYork 24 þokumóða París 20 hálfskýjaö Róm 36 moldrok Vfn 24 skúr Washington vantar Winnipeg 12 heiðskfrt Guðmundur Sigþórsson skrif- stofustjóri í landbúnaðarráðuneyt- inu sagði að ráðuneytið hefði ákveðið að áfrýja úrskurði þessum til Hæstaréttar. Erfítt væri að segja til um hvaða áhrif hann hefði, en skoðun ráðuneytisins væri sú að ef einstakir framleiðendur vilja ekki hlýta samningi ráðuneytisins og Stéttarsambands bænda og ætla að taka aftur kjöt sem lagt hefur verið inn, þá verði að draga það frá öðruvísi reiknuðum fullvirðisrétti. Stjóm Stéttarsambands bænda hefur lýst sig sammála afstöðu landbúnaðarráðuneytisins í þessu máli. Hákon Sigurgrímsson fram- kvæmdastjóri sagði að Stéttarsam- bandið og landbúnaðarráðuneytið leggðu þann skilning í samninginn að Stéttarsambandið hafí fyrir hönd allra innleggjenda sauðfjárafurða Morgunblaðið/Magnús Gíslason ráðstafað allir innlagðri framleiðslu sauðfjárafurða haustið 1986 til sölumeðferðar og uppgjörs. Það er jafnframt skilningur stjómar Stétt- arsambandsins að einstökum framleiðendum sé óheimilt að selja kindakjöt sem fellur utan fullvirðis- réttar á innlendum markaði í samkeppni við það kjöt sem ríkið ábyrgist bændum fullt verð fyrir samkvæmt búvörusamningnum. „Við teljum þennan samning ákaflega mikils virði fyrir bænda- stéttina. Allt sem getur stefnt honum í hættu er mjög slæmt að okkar mati. Með samningnum em bændur búnir að selja framleiðslu sína og vinnu fímm ár fram í tímann. Það eru ekki margar séttir sem hafa náð slíku í gegn í sínum kjarasamningum," sagði Hákon Sigurgrímsson. Ami Gíslason íramkvæmda- sijóri látinn ÁRNI Gíslason framkvæmda- stjóri lést á heimili sinu i Hafiiarfírði sl. fímmtudag, 66 ára að aldri. Ámi var fæddur 15. nóvember 1920 á Bíldudal, sonur hjónanna Kristínar Kristjánsdóttur og Gísla Ásgeirssonar frá Álftamýri í Amar- fírði. Árni var um árabil verksmiðju- stjóri í Lýsi og mjöl í Hafnarfirði. Einnig starfaði hann hjá Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna og vanrt þá brautryðjandastarf á sviði nýtingar loðnuhrogna. Árið 1972 gerðist hann framkvæmdastjóri Lýsis og mjöls og gegndi því starfi í u.þ.b. áratug. Undanfarin þijú ár hefur Ámi rekið eigið fyrirtæki, Vöm- bretti sf., í Hafnarfirði. Eftirlifandi eiginkona Árna er Árni Gíslason Ester Kláusdóttir. Þau eignuðust sex böm og em fimm þeirra á lífi. Nesjavallavirkjun: Þrjú tilboð í upp- setningu saftiæða ÞRJÚ tilboð bárust í safiiæðar, uppsetningu og einangrun, í væntanlega Nesjavallavirkjun. Lægsta tilboðið var rúmlega 11 milljónir og það hæsta rúmar 19 milljónir. I kostnaðaráætlun er gert ráð fyrir að verkið kosti rúmar 16 milljónir. Að sögn Sævars Sveinssonar, skrifstofustjóra hjá Innkaupastofn- un Reykjavíkurborgar, var tilboð Stálsmiðjunnar hf. lægst, krónur 11.481.000. Næst kom Vélsmiðjan Orri og bauð krónur 17.795.400 og þá Vélsmiðja Orms og Víglundar, krónur 19.318.500. Kostnaðaráætl- un er krónur 16.137.000.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.