Morgunblaðið - 25.07.1987, Side 23

Morgunblaðið - 25.07.1987, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987 23 AfVopnunarmálin: Yiðbrögð Breta- stjórnar einkenn- ast af varkárni Lundúnum, frá Valdimar Unnari Valdimarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. BRESKA ríkisstjórnin hefur fagnað nýjasta tilboði Sovét- manna í afvopnunarmálum en jafnframt varað við of mikilli bjartsýni. Nýjustu hugmyndir Sovétmanna í afvopnunarmálum hafa verið helsta fréttaefni breskra fjölmiðla undanfarna daga og á fimmtudag- inn lét breska þingið málið til sín taka. I fyrirspurnartíma í neðri málstofunni var Margaret Thateher forsætisráðherra meðal annars Átökí Bangladesh Dacca, Bangladesh. Reuter. TIL ÁTAKA kom víða í Bangla- desh i fyrradag annan daginn í röð. Lögregla skaut a.m.k. átta inanns til bana og um 200 særð- ust. Stjórnarandstaðan boðaði til alls- heijarverkfalls á miðvikudag og fimmtudag til þess að mótmæla stefnu ríkisstjórnarinnar. Til átaka hefur komið milli stuðningsmanna stjórnarinnar og andstæðinga henn- ar. Segja sjónarvottar að fimm manns hafi verið drepnir í höfuð- borginni, Dacea, í fyrradag þegar lögreglan reyndi að stilla til friðar í átökum milli slíkra hópa. Þrír voru drepnir úti á landsbyggðinni er lög- regla reyndi að dreifa mótmælahóp- um. spurð að því hverjum augum ríkis- stjórnin lítur tilboð Sovétmanna, sem felur í sér bann við öllum með- aldrægum kjarnaflaugum, bæði í Asíu og Evrópu. Thatcher sagðist fagna þessari tillögu Sovétmanna, en benti á að ekki væri sopið kálið þó í ausuna væri komið. Ganga yrði þannig frá öllum samningum að tryggt væri fullkomið eftirlit með því að öll ákvæði væru haldin. Thateher lagði ennfremur áherslu á að samningar um afvopnun fælu einnig í sér ákvæði um hefðbundinn vopnabún- að og efnavopn. Töluverðar umræður spruttu í framhaldi af þessu um almenna stefnu Bretastjórnar í afvopnunar- málum. Fullyrtu stjórnarsinnar að staðfesta stjómarinnar í þessum málum ætti sinn þátt í því að Sovét- menn hefðu nú ákveðið að gefa eftir og setja fram þetta nýja tilboð sitt. Hældu þingmenn Ihaldsflokks- ins leiðtoga sínum, Margaret Thatcher, á hvert reipi í þessu sam- bandi. Stjórnarandstæðingar bentu hins vegar á þau gamalgrónu sannindi að dramb sé falli næst, stefna Bretastjórnar í utanríkismálum væri síður en svo til þess fallin að draga úr viðsjám milli austurs og vesturs. Stífni og þrákelkni Thatc- her og góðvinar hennar, Reagans, hefði þvert á móti lengi staðið í vegi fyrir árangri í afvopnunarmál- um. Reuter. Smitaðist ímóður- kviði Ronald Reagan, Bandaríkja- forseti, sem lýst hefúr eyðnisjúkdóminn helsta vá- gest 20 aldarinnar, tilkynnti í gær að hann hefði skipað í sérstaka nefnd er hafa mun það hlutverk að móta stefhu um það hvernig beij- ast megi gegn eyðni. Forset- inn heimsótti síðan sjúkrahús í Washington þar sem börn sem smituð eru af eyðni dveljast. Á þessari mynd lieldur hann á barni er smitaðist í móðurkviði, en móðirin var eiturlyQa- neytandi. Sprengingar í S-Afríku Höfðaborg. Reuter. SPRENGJA sprakk i Höfðaborg í Suður-Afríku i gær og olli skemmdum á járnbrautarteinum. Enginn slasaðist í þessari fjórðu sprengingu í borginni á skömm- um tíma. Fyrr í þessari viku sprungu sprengjur á hinum alþjóðlega flug- velli í borginni, á bensínstöð og við fjölbýlishús þar sem yfirmenn í hernum búa. Lögreglan sakar Afríska þjóðarráðið (ANC) um að bera ábyrgð á sprengingunum. Hópur unglinga réðst í gær á par á götu í Pietermaritzburg, sem er skammt frá Durban í austur hluta landsins. Var karlmaðurinn stung- inn til bana og konan stórslösuð. Á undanförnum þremur árum hafa 2.500 manns látið lífið í átökum í Suður-Afríku. Stjórnvöld tilkynntu í gær að dregið hefði úr ofbeldis- verkum á fyrri hluta þessa árs, miðað við árið í fyrrá. Aðstoðarupp- lýsingamálaráðherra landsins sagði í gær að ríkisstjómin hefði þó ekki í hyggju að aflétta neyðarástands- lögum þeim er gilt hafa í landinu síðan í Júní í fyrra, af ótta við að ofbeldisverkum muni þá fjölga. TIL EYJA UM VERSLUNARMANNAHELGINA Samfelld skemmtidagskrá frá föstudegi til mánudags Miðaverð kr. 2.500. ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ Grelfarnir Halli og Laddi Hljómsvelt Magnúsar Kjartanssonar Pálmi Gunnarsson Björgvln Halldórsson Eymenn Magnús Ólafsson Flosi Ólafsson Jóhannes Kristjánsson frá Ingjaldssandí ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ Hjörtur Már Benedlktsson eftlrherma Wolfman Jack og Stjarnan, Guðmundur Rúnar Brúðubílllnn Knattspyrna: íslenska unglingalandsliðið, ÍBV BJargslg Flugeldasýning Brenna Og fleira og flelra og fleira og flelra og fleira Midasölustadir á fasta landinu: Grindavi'k................................................Fraktarinn, c/o Björn Brigisson Reykjavil<..............................................................B.S.I, c/oGunnar Hvolsvöllur.............................................................Björk, c/o Finnur Hella..................................................Umboðsskrifstofan, c/o Aðalheiður Selfoss...................................................Sérleyfisbilar Selfoss, c/o Þörir Njarðvík...........................................Steindór Sigurðsson se'rl.- og hópferðir. FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu félagi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.