Morgunblaðið - 25.07.1987, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987
Danska djassdúóið Friy Leide, sem leikur í Duus á sunnudag.
Danskur djass í
Heita pottinum
Hótel Húsavíkurrall um helgina:
Verður eins og að keyra
í kjötfarsi eða hveiti
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Gamall en mikið endurbættur Nissan heimamannsins Steingríms
Ingasonar og Ægis Ármannssonar gæti orðið skæður í Húsavíkurrall-
inu. Þeir fengu fyrir stuttu í bílinn öfluga 260 hestafla vél, sérsmíð-
aðan gírkassa og drif og ætla sér stóra hluti. Þeir náðu öðru sæti
í siðustu keppni og vilja meira ...
DANSKA djassdúóið Frit Leide
heldur tónleika í Heita pottinum
á morgun, sunnudag, í Heita
pottinum í Duus í Fischerssundi.
Dúóið, sem starfað hefur í þtjú
ár, skipa þeir Nils Rae, sem leikur
á píanó, og Ole Rasmussen, sem
leikur á kontrabassa.
Þeir félagar leika lýrískan djass
LAUGARDAGINN 25. júlí opn-
ar Torfi Harðarson myndlistar-
sýningu í húsi Listasafiis
Arnessýslu, Selfossi.
Sýnir hann þar 25 myndir og
og útsetja gjaman þjóðlög auk þess
sem þeir leika nýrri lög. Á efnis-
skránni í þetta sinn er að finna
íslensk þjóðlög sem útsett eru af
Nils og Ole í tilefni íslandsfararinn-
ar.
Tónleikamir hefjast kl. 21.30 og
em í Duus í Fiscerssundi, eins og
áður sagði.
eru þær allar til sölu.
Sýningin er opin frá kl. 14—22
og lýkur henni mánudaginn 3.
ágúst. Þetta er sjötta sýning Torfa.
(Fréttatilkynning)
- spjallað við
toppökumennina
MARGIR af fremstu ökumönnum
ársins eru Qarstaddir Húsaví-
kurrallið sem haldið er um
helgina. Bæði peningaskortur og
hræðsla við óhöpp stuttu fyrir
Ljómarallið, sem fram fer í
ágústlok veldur því. Heimamenn
eru því í vígamóð, telja sig eiga
góða möguleika á sigri, en kepp-
endur úr höfuðborginni eru þó
ekki á þeim buxunum að láta
norðanmenn slá sér við.
Bræðumir Þorsteinn og
Steingrímur Ingasynir em báðir
fæddir og uppaldir í nágrenni
Húsavíkur og ætla sér stóra hluti
í keppninni, en þeir aka þó ekki í
sama bíl. Steingrímur ekur Nissan
180, sem hefur verið tekinn ræki-
lega í gegn og fékk glænýja iífæð
nýverið - m.a. 260 hestafla vél og
sérsmíðaðan gírkassa og drif, sem
gerir bílinn einn þann öflugasta
hérlendis. „Það verður fróðlegt að
sjá hvort ég ræð við öll hestöflin í
fyrstu keppninni, ég reyni a.m.k.
að gera allt til að vinna. Bíllinn er
mjög góður og klár í slaginn, hversu
grimmur sem maður verður" sagði
Steingrímur. Bróðir hans var mun
áveðnari. „Eg ætla að vinna, kreista
allt útúr bflnum og þó hestöflin séu
í færra lagi vona ég að það komi
ekki að sök. Eg stefni á sigur eða
dett úr keppni, gef allt,“ sagði Þor-
steinn en hann vann rallið fyrir
tveimur ámm á Toyota, samskonar
bíl og hann ekur núna.
Sigurvegarar í fýrra urðu ís-
landsmeistararnir Jón Ragnarsson
og Rúnar Jónsson á Ford Escort
RS. Hann var í sumarfríi síðustu
dagana fyrir rallið og hvar annars
staðar en á heiðunum hjá Húsavík
að skoða keppnisleiðir? Þetta verður
spuming um ökuleikni, leiðirnar em
þannig að krafturinn skiptir ekki
öllu. Þetta em 2.-3. gírs leiðir að
mestu, mikill bamingur í mold og
á þröngum vegum. Þetta er öðm-
vísi keppni en til þessa í ár og
hraðinn minni. Bíll Steingríms gæti
hentað vel héma. Ég ætla að vinna
og spara ekki bílinn, vona að ég
verði í keyrslustuði. Keppnin verður
erfið og gæti orðið hættuleg ef það
rignir mikið. Ég vona að maður
fari ekki að hugsa um hve stutt er
í Ljómarallið og passi sig of mikið.
Rúnar rekur mig þá sjálfsagt
áfram ...“ sagði Jón.
Fyrmrn Íslandsmeistarabíll verð-
ur meðal keppnisbíla Peugeot
Talbot undir stjórn Birgis Braga-
sonar, sem fest hefur kaup á bílnum
af Þórhalli Kristjánssyni. Birgir
hefur oft náð góðum árangri í rall-
mótum og gæti orðið skæður, þó
hann hafi ekki ekið í langan tíma.
Hann hefur alla burði í toppsætið,
en gæti verið „ryðgaður“ í akstri
eftir fjarvemna. Daníel Gunnarsson
á Opel Kadett gæti vermt toppunum
undir uggum á mikið endurbættum
bíl, en hann varð þriðji í fyrsta ralli
ársins.
En það verður barist um fleira
en toppsætin. Flokkur óbreyttra
bíla eflist með hverri keppni. Nú
em fimm skráðir og fjórhjóladrifinn
Alfa Romeo Ara Amórssonar ætti
að standa vel að vígi, en Ámi Sæ-
mundsson í sinni annarri keppni á
Mazda 323 4X4 ætti að sækja fast
að honum. í þessum flokki verður
einnig óvenjulegur bíll, Porsche 924
Turbo, og verður fróðlegt að sjá
hveiju ökumaður hans, Ævar
Hjartar son, skilar. Gamalreynd
kempa, Ævar Sigdórsson á Subam,
gæti gert ofantöldum mönnum
skráveifu á nýkeyptum bíl.
Hótel Húsavíkurrallið hefst á
föstudag, en lýkur um miðjan dag
á Iaugardag. Munu keppendur
leggja 300 km að baki, 150 á sér-
leiðum, sem verða m.a. um Reykja-
heiði, Hvammsheiði og Vaðlaheiði.
Við skulum enda þetta á
skemmtilegum orðum Úlfars Ey-
steinssonar aðstoðarökumanns
Þorsteins Ingasonar um sérleiðirnar
í rallinu. „Þetta verður annaðhvort
eins og að keyra í hveiti eða kjöt-
farsi. Það er mikið ryk og ef rignir
þá breytast aðstæður stórlega. Við
beijumst til síðasta svitadropa og
ég veit að Þorsteini verður mikið
kappsmál að leggja bróður sinn að
velli. Okkur vantar vissulega hest-
öfl á móti toppbílunum, en setjum
bara lykkju á bensíngjöfína og fest-
um hana í botni. Það eru ekki nema
þijár beygjur sem þarf að varast,
hitt förum við á fullu ...“
Staðan í íslandsmeist-
arakeppninni
Okumenn
Jóhann Ragnarsson 55
Rúnar Jónsson 55
Ásgeir Sigurðsson 25
Bragi Guðmundsson 25
Ari Arnórsson 23
Ægir Armansson 20
Jón S. Halnldórsson 20
Guðbergur Guðbergsson 20
Birgir V. Halldórsson 17
Magnús Arnarsson 18
Steingrímur Ingason 15
Ágúst Guðmundsson 17
GENGIS-
SKRANING
Nr. 136 - 24. júlí 1987
Kr. Kr. Toll-
Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala Gengi
Dollari 39,210 39,330 39,310
St.jmud 62,756 62,948 62,550
Kan.dollari 29,420 29,510 29,338
Dönskkr. 5,5637 5,5807 5,5605
Norskkr. 5,7776 5,7953 5,8310
Sænskkr. 6,0640 6,0826 6,1228
Fi.mark 8,7201 8,7468 8,7806
Fr. franki 6,3436 6,3630 6,4167
Belg.franki 1,0179 1,0210 1,0319
Sv.franki 25,4776 25,5556 25,7746
Holl. gyllini 18,7455 18,8029 19,0157
V.-Þ. mark 21,1033 21,1679 21,4012
ít.lira 0,02917 0,02926 0,02952
AusUirr.sch. 3,0011 3,0103 3,0446
Port. escudo 0,2702 0,2711 0,2731
Sp.peseti 0,3082 0,3091 0,3094
Jap.yen 0,26002 0,26082 0,26749
írsktpund 56,555 56,728 57,299
SDR(Sérst.) 49,5775 49,7293 50,0442
Ecu, Evr. 43,8289 43,9631 44,3316
Belg. fr. Fin 1,0148 1,0179
Islensku vörusýn-
ingunni í Fær-
eyjum að ljúka
Morgunblaðið/Jóhann Viðar ívarsson
Færeyskir fiskimenn skeggræða kosti og galla báta og búnaðar
á hafnarbakkanum í Klaksvík, um fimm þúsund manna bæ á
Borðey.
SÓMA-bátarnir tveir, búnir
nýtísku tækjum til smábátaút-
gerðar, hafa nú sótt heim
þrettán bæi og þorp í Færeyj-
um og kynnt heimamönnum
þessa íslensku framleiðslu. í
dag verður smiðshöggið rekið
á hina frumlegu sýningarferð
Útflutningsráðs Islands og
fimm íslenskra fyrirtækja
með veglegri sýningu og
veislu á hafnarbakkanum í
Þórshöfh, þar sem boðið verð-
ur um eitt hundrað manns og
veittur íslenskuL- matur og
drykkur.
Frá því á miðvikudag hafa
bátamir siglt til Stranda og
Runavíkur á Austurey, Nólseyj-
ar, Vogs, Tvöreyrar og Hvalba
á Suðurey, Sands og Skopun á
Sandey og Sörvogs á eynni Vog-
um. Hefur þeim hvarvetna verið
vel tekið. Er ljóst að áhugi Fær-
eyinga fyrir sýningunni er
allnokkur og fer vaxandi eftir
því sem líður á hana. Færeyskir
fjölmiðlar gera henni góð skil og
skilar það sér í síaukinni eftir-
tekt. Dagblaðið Oyggjatíðindi sló
því til að mynda upp á forsíðu
að íslendingar gerðu innrás sjó-
vegis, eins og það var orðað, og
birti heilsíðugrein um sýninguna.
I dag munu bátarnir heim-
sækja bæinn Miðvog á eynni
Vogum fyrir hádegi, en klukkan
14.00 að staðartíma munu þeir
renna inn í höfnina í höfuðstaðn-
um Þórshöfn. Þórshöfn er
langfjölmennasti bær Færeyja
með um fímmtán þúsund íbúa
og umtalsverða smábátaútgerð,
eins og raunar flestir bæir í eyj-
unum. Síðdegis er svo ætlunin
að slá upp veislu sem yfir hund-
raði manns verður boðið til.
Hluta hafnarinnar verður lokað
af fyrir hana. I henni verður um
leið kynnt íslensk matvælafram-
leiðsla og sjá íslenskir mat-
reiðslumeistarar um matseldina.
Að kynningu þessari lokinni
segjast aðstandendur sýningar-
innar hafa sótt bæi með yfir 70%
íbúa Færeyja heim.
Torfi sýnir á Selfossi