Morgunblaðið - 25.07.1987, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987
Minning:
Ásgeir Bjarnason
framkvæmdastjóri
Fæddur 8. maí 1926
Dáinn 19. júlí 1987
Asgeir Bjamason framkvæmda-
stjóri Yfírstjómar mannvirkjagerð-
ar á Landspítalalóð andaðist í
Landspítalanum þann 19. júlí sl.
Barátta Asgeirs við illvígan sjúk-
dóm stóð í raun frá febrúarmánuði
til dauðadags. Ásgeir háði baráttu
á tvennum vígstöðvum. Annars
vegar persónulega orrustu við einn
skæðasta andstæðing meðal sjúk-
dóma og hins vegar hélt hann allan
þennan tíma áfram að greiða fyrir
og skipuleggja framkvæmdir við
K-byggingu á Landspítalalóð. Var
þar með í raun í stríði við sjúk-
dóminn til lengri tíma litið, núlifandi
og komandi kynslóðum til hagsbóta.
Ásgeir var enginn venjulegur
maður. Hann setti svip á bæinn.
Hann var einn af þessum mönnum
sem geta glætt baráttuglóðir í okk-
ur hin og hrifið okkur með til að
beijast fyrir góðum málefnum. Það
eru nokkrar vikur síðan við Ásgeir
áttum okkar síðasta spjall. Hann
sýndi síst minna baráttuþrek en
ir'/enjulega. Bæjarlífíð og heilbrigðis-
þjónustan eru fátækari nú þegar
Ásgeir er horfínn frá okkur.
Hér eru færðar þakkir frá stjóm-
amefnd og starfsfólki Ríkisspítala
fyrir samfylgdina. Við hjónin send-
um Kristínu og bömum þeirra
Ásgeirs innilegar_ samúðarkveðjur.
Davíð Á. Gunnarsson
Aldrei hefði mig órað fyrir því,
að ég ætti eftir að rita minningar-
orð um góðvin minn, Ásgeir
Bjamason, en „enginn veit hver
annan grefur", segir gamall máls-
háttur. Ásgeir stóð hjarta mínu svo
nærri, að mér fínnst sem ég hafi
misst einn af mínum nánustu
vandamönnum. Við höfðum þekkst
síðan hann var um sjö ára gamall.
Fyrir röskum fjómm mánuðum
hafði hann samband við mig í síma
og ræddi við mig um smávægileg
óþægindi, sem hann hafði orðið var
við i stuttan tíma og fengið lyf við,
en lítið lagast. Ég réð honum þá
til að fara í rannsókn til sérfræð-
ings.
Nokkrum dögum síðar frétti ég
að gerður hefði verið á honum hol-
skurður á Borgarspítalanum og
meinsemd fundist, sem vonlítið
væri að ráða við.
Ég heimsótti Ásgeir litlu síðar á
spítalann og spjallaði við hann góða
stund. Hann var hress í máli og
alveg æðrulaus, þótt honum væri
ljóst hvað um var að vera og virtist
taka þessu með einstakri karl-
mennsku og ró. Hann fór fljótlega
heim og dvaldi þar að mestu, en
var fluttur í Landspítalann þ. 15.
júlí sl. þar sem hann lést 19. þ.m.
Ásgeir Bjamason fæddist 8. maí
1926 í Reykjavík. Foreldrar hans
voru þau Bjarni Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri, og kona hans,
Jóhanna Þorsteinsson.
Ástæða þess að ég kynntist þess-
um ágætu hjónum og bömum þeirra
var sú að Hulda Davíðsson, fyrri
kona mín, leigðu herbergi í húsi
þeirra á Ægisgötu 27, og bjó hún
þar þangað til við stofnuðum heim-
ili sjálf.
Bjami og Hanna (eins og frúin
kaus að nefna sig) vom mér og
okkur eins góð og þeirra eigin böm-
um, en það vom tveir drengir.
Bjami var mjög ljúfur maður og
jafnframt harðduglegur. Hann byrj-
aði sem verkstjóri í Vélsmiðjunni
Hamri að loknu smíða- og vélfræði-
námi. Eftir tveggja ára starf þar
keypti hann ásamt Markúsi ívars-
syni Vélsmiðju Bjamhéðins Jóns-
sonar. Þeir breyttu henni, bættu
og byggðu við og varð úr þessu
stórfyrirtækið Vélsmiðjan Héðinn
hf. er fram liðu stundir.
Bjami átti ekki langt að sækja
það að vera hagleiksmaður því Þor-
steinn Jónsson faðir hans var einn
þekktasti járnsmiður bæjarins og
hafði aðsetur á Vesturgötunni.
Annars urðu það mest störf við
stjóm mikils fyrirtækis, sem hann
hafði með höndum, og leysti þau
af hendi með miklum ágætum.
Frú Hanna, móðir Ásgeirs, var
indælis kona, glaðvær og góð hús-
móðir. Hún var dóttir Guðmundar
Olsen, kaupmanns og slökkviliðs-
stjóra í Reykjavík og konu hans,
Francisku dóttur Bemhöfts bakara.
Ég kom oft á heimili þeirra hjóna
og urðu þau góðir vinir mínir. Þar
ríkti jafnan glaðværð og mikil
gestrisni og var það eitt fegursta
heimili, sem ég hafði séð.
Árið 1937 for ég í framhaldsnám
til Danmerkur, en rúmu ári síðar
barst mér fregnin um, að Bjami
Þorsteinsson, faðir Ásgeirs, hefði
látist af lungnabólgu, rúmlega fer-
tugur. Súlfalyfjagjöf hafði verið
reynd, en án árangurs.
Mér hefur ekki verið grátgjamt
um dagana, en þegar mér barst
fregnin um lát Bjama, táraðist ég
þó. Svo vænt þótti mér um hann.
Þegar ég kom aftur til landsins
að námi loknu árið 1945 vom frú
Hanna og Ásgeir með þeim fyrstu,
sem ég heimsótti. Heimsstyrjöldin
hafði rofíð svo fréttaflutning landa
á milli, að ég vissi ekki fyrr en þau
sögðu mér það að Guðmundur,
bróðir Ásgeirs, hefði dáið 18 ára
gamall á hæli í Danmörku, þar sem
hann hafði dvalið til lækninga frá
því rétt fyrir stríðsbyijun. Hann
hafði verið vanheill frá fæðingu.
Sjálf hafði móðirin ekkert frétt fyrr
en löngu eftir andlátið.
Ásgeir var þá langt kominn í
Menntaskóla Reykjavíkur og árið
1946 lauk hann stúdentsprófí það-
an. Skömmu síðar hóf hann nám í
vélaverkfræði í Sviss.
Árið 1951 kvæntist hann eftirlif-
andi konu sinni, Kristínu Vilhjálms-
dóttur, og dvaldist hún með honum
síðasta námsár hans í Sviss.
Eftir heimkomuna, árið 1952,
starfaði Ásgeir í Vélsmiðjunni
Héðni þar til hann seldi eignarhluta
sinn í því fyrirtæki.
Síðan hefur hann sinnt svo mörg-
um störfum að með ólíkindum er,
og mun ég ekki tíunda það hér, það
munu sjálfsagt aðrir gera, en vil
aðeins nefna störf hans fyrir geð-
vemdarmál og stjómun fram-
kvæmda við byggingar og
mannvirki á lóð Landspítalans, sem
voru aðalstörf hans á síðari ámm.
Ásgeir var einn af mínum traust-
ustu og bestu vinum og er ég
forsjóninni þakklátur fyrir að hafa
eignast hann fyrir vin. Það var allt-
af hægt að reiða sig á orð hans og
loforð og sjálfsagt engin tilviljun
hve mörgum vandasömum og mikil-
vægum störfum honum var trúað
fyrir, ekki síst í þágu þjóðfélagsins.
Það hefur ekki ósjaldan komið
fyrir, að ég hefí leitað til hans með
ráðleggingar eða aðstoð, þegar
vandamál hafa borið að höndum.
Alltaf hefur hann bmgðist fljótt og
vel við og leyst málin eftir bestu
getu og með ánægju.
Ég hef ekki kynnst mörgum á
ævinni sem hafa verið eins fjölfróð-
ir og hann um flesta hluti. Varla
var hægt að ræða um nokkuð við
Ásgeir, sem hann ekki vissi einhver
deili á og hafði ráð undir rifí hveiju,
eins og sagt er.
Hann vissi svo margt í læknis-
fræði og ekki síst um lyf, að ég
sagði stundum við hann, að hann
hefði átt að verða læknir. Annars
má segja, að hann hafi verið svo
fjölhæfur, að hann hefði getað tek-
ið sér flest störf fyrir hendur.
Ekki hef ég þekkt öllu nákvæm-
ari og betri heimilisföður og föður
bömum sínum.
Varla ræddi ég svo við Ásgeir,
að hann segði mér ekki allítarlega
hvemig það gengi með bömin, eink-
um eftir að þau fóm að eldast og
þroskast. Hann lét sér mjög annt
um þau, leiðbeindi þeim án þess að
vera mjög strangur og var ekki í
rónni fyrr en þau vom komin á þá
braut, er hann taldi þeim fyrir
bestu, og þau valið sjálf.
Ég man er hann sagði mér, að
þegar bömin hafí verið lítil hafí
hann alls ekki viljað að þau hefðu
mikla peninga milli handa, enda
þótt hann hefði rúm fjárráð. Það
gæti verið óhollt fyrir þau. Oft hefi
ég minnst þessara orða hans.
Það var mikið lán í lífi Ásgeirs
að eignast eins góða og dugmikla
eiginkonu og frú Kristínu Vil-
hjálmsdóttur, sem búið hefur
honum indælt og fagurt heimili og
verið honum mjög samhent í upp-
eldi barnanna og er kennari að
mennt.
Við Þórdís, kona mín, höfum
umgengist og haldið sambandi við
þau hjónin um langt árabil.
Frú Kristín er af góðu bergi brot-
in. Foreldmm hennar, Vilhjálmi
Árnasyni, skipstjóra, og konu hans,
frú Guðríði Sigurðardóttur, kynnt-
umst við vel og kunnum að meta
þau. Bæði em þau nú látin.
Börn Ásgeirs og frú Kristínar em
fjögur, uppkomið myndarfólk. Elst-
ur er Bjami, lífefnafræðingur;
kvæntur Vigdísi Valsdóttur tann-
smið, næstelst er Hanna, sjúkra-
þjálfari, þá Guðríður, iðnverkfræð-
ingur; gift Inga Þorleifí Bjamasyni,
jarðeðlisfræðingi, og yngstur er
Vilhjálmur Ámi, verkfræðinemi við
Tækniháskólann í Kaupmannahöfn.
Það er sárt að sjá á bak svo
gáfuðum og duglegum manni eins
og Ásgeiri Bjarnasyni, bæði fyrir
vini, vandamenn og íslenskt þjóð-
félag. Hann fór langt um aldur fram
og verður saknað mikið.
Ég óska honum velfamaðar og
guðsblessunar á þeim leiðum, sem
hann nú hefur lagt út á. Blessuð
veri minning hans.
Við Þórdís og fjölskylda okkar
sendum frú Kristínu, börnunum og
öðmm vandamönnum innilegar
samúðarkveðjur.
Erlingur Þorsteinsson
Það var á Túngötunni einhvern
tíma sumarið 1940 að í veg fyrir
mig gekk drengur á mínu reki og
spurði formálalaust hvort ég væri
ekki eins og hann, í hópi þeirra, sem
setjast mundu í fyrsta bekk
menntaskólans þá um haustið.
Þannig hófust kynni okkar Ásgeirs
Bjarnasonar, og næstu sex vetumar
umgekkst ég engan skólabræðra
minna jafnmikið og hann.
Tvennt var það í fari Ásgeirs,
sem fljótt vakti athygli og verður
trúlega minnisstætt þeim, sem hon-
um kynntust. Var það annars vegar
glettni og gamansemi og hins vegar
atorka hans í hveiju því máli, sem
hann vildi leggja lið. Varla gerðist
á skólaárunum neitt það svo hvers-
dagslegt eða hvimleitt, að hann
kæmi ekki auga á broslega hlið,
og enginn var skjótráðari en hann
þegar unnið var að félagsmálum
nemenda eða leysa þurfti annan
vanda, sem gat verið margvíslegur
á þessum ámm styijaldar og alls
kyns hafta. En þótt oft væri til
Ásgeirs leitað og hann gengi af
áhuga og atorku beint til verks, var
hann að minni hyggju hvorki þá
né síðar á ævinni beinlínis félags-
lyndur. Hann skorti þolinmæði til
að hlusta á það málþóf, japl og jaml
sem félagsstarfmu fylgjr að jafnaði
og margir una sér við, og fyrir
kom, að mönnum sámaði þessi óþol-
inmæði hans og hispursleysi.
Að stúdentsprófi loknu skildu
leiðir, og við héldum utan hvor í
sína áttina. Eftir það varð hvorki
starfsvettvangur né tómstundaiðja
til að binda ný bönd, og hefði því
mátt ætla, að með tímanum yrðu
fundir okkar fátíðari. Aldrei var þó
langt á milli þess að við ræddumst
viðpg án þess að eiga brýnt erindi.
Ásgeir missti föður sinn skömmu
áður en við kynntumst. Bjó hann
þá með móður sinni, sem jafnan tók
skólafélögunum með alúð og sem
aufúsugestum. Móðir mín hafði á
orði hve foreldrar Ásgeirs hefðu
þótt glæsileg hjón, og enn man ég
þann hlýhug í garð Bjarna heitins,
sem ég varð var hjá starfsmönnum
Vélsmiðjunnar Héðins, þegar ég
vann þar eitt sumar á skólaárunum.
Frá æskuheimili sínu hlaut Ás-
geir gott veganesti, en það voru
líka samhent hjón sem stofnuðu
eigið heimili þegar Kristín Vil-
hjálmsdóttir varð lífsförunautur
hans. Auðfundið var líka hver gleði-
gjafi fjögur dugmikil böm vom
honum.
Að leiðarlokum þakka ég Ásgeiri
langa samfylgd, trygglyndi hans,
hjálpfysi og horfnar ánægjustundir,
og fjölskyldu hans votta ég samúð
mína.
Guðjón Hansen
Ásgeir Bjarnason, framkvæmda-
stjóri í Reykjavík, er látinn, rúmlega
sextugur að aldri.
Við Ásgeir vomm samstúdentar
frá Menntaskólanum í Reykjavík
1946. Á þeim ámm gerðu allir ráð
fyrir að hans ævistarf yrði tengt
vélsmiðjunni Héðni, sem faðir hans
hafði stofnað. En örlögin ætluðu
honum önnur hlutverk og um eitt
þeirra ætla ég að ræða lítillega í
þessum kveðjuorðum.
Á ámnum 1971 kom ný ríkis-
stjóm til valda í landinu. Eitt af
stefnumálum þessarar ríkisstjómar
var það, að átak skyldi gert í mál-
efnum geðsjúkra, en á þeim ámm
höfðu orðið nokkrar umræður um
hve málefni geðsjúkra hefðu dregist
aftur úr öðmm þáttum heilbrigðis-
mála.
Eitt fyrsta hlutverk þáverandi
heilbrigðisráðherra, Magnúsar
Kjartanssonar, var að skipa nefnd
til að gera tillögur um og sjá um
hönnun geðdeildar við Landspítal-
ann.
Ásgeir var skipaður í þessa nefnd
og varð fljótlega sjálfskipaður
framkvæmdastjóri hennar.
Nokkmm ámm áður hafði hann
sýnt málefnum geðsjúkra áhuga er
hann varð framkvæmdastjóri Geð-
vemdar á árinu 1966 og síðar í
stjóm þess félagsskapar.
Bygging geðdeildar Landspítal-
ans, sem varð árangur þessa
hönnunar- og nefndarstarfs, varð á
sínum tíma mikið deilumál og inn
í það blönduðust allskonar óskyldir
hlutir svo sem valdastreita á Land-
spítala og ýmislegt fleira.
Nú eftir á er ljóst að með þessu
átaki var meðferðarmálum geð-
sjúkra lyft á sama svið og tíðkast
um meðferð anarra sjúkdóma og
sjúklinga, þannig að hér var mikið
framfaraspor stigið og til sóma öll-
um þeim sem að því stóðu.
Svo sem ég sagði fyrr lét Ásgeir
sér ekki nægja að vera aðeins
nefndarmaður sem mætti á fundum
í hönnunamefnd geðdeildarinnar.
Hann tók að sér að koma á sam-
vinnu hönnunaraðila innbyrðis og
þeirra við hina ýmsu eftirlits- og
skipulagsaðila í borginni.
Störf Ásgeirs í Reykjavík og
Hafnarfirði áratugina áður höfðu
aflað honum reynslu, tengsla og
kunningsskapar, sem opnuðu hon-
um greiðar leiðir um völundarhús
skriffínnsku sem viðkom bygging-
armálum, miklu auðveldar en
flestum öðrum og þessa reynslu
nýtti hann sér út í æsar í starfí sínu
í hönnunamefnd geðdeildar.
Þegar að því kom að byija bygg-
ingu á lóð Landspítala að nýju varð
það að ráði að heilbrigðisráðuneytið
fyrir hönd ríkisspítala og mennta-
málaráðuneytið fyrir hönd lækna-
deildar Háskóla íslands gerðu með
sér samkomulag um eina sameigin-
lega byggingarstjóm. Þetta var
gert á árinu 1973 og tók þessi bygg-
ingamefnd til starfa í ársbyijun
1974 og var nefnd yfirstjóm mann-
virkjagerðar á Landspítalalóð, síðar
stytt í Y-mál.
Það kom eins og af sjálfu sér
að Ásgeir yrði beðinn um að taka
að sér framkvæmdastjóm þessarar
yfírstjómar þegar ráða þurfti mann
til þess að sjá um framkvæmd bygg-
inga á Landspítalalóð.
Menn höfðu kynnst árvekni hans,
ötulleik og ýtni í starfí við að koma
hönnun geðdeildar áfram og treystu
honum vel til þessa nýja verks.
Síðasta áratug hefur þetta fram-
kvæmdastjórastarf verið aðalstarf
Ásgeirs.
Á þessum tíma hefur margt gerst
á ríkisspítölum. Lóð spítalans hefur
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURVINS BREIÐFJÖRÐ PÁLSSONAR
frá Höskuldsey,
Vatnsnesvegi 24, Keflavfk.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Sjúkrahúss Keflavíkur
og Landspítalans, sóknarprests og starfsfólks Keflavíkurkirkju.
Júlfa Guðmundsdóttir,
Guðfinnur Sigurvinsson, Gfslfna Jóhannesdóttir,
Agnar Breiðfjörð Sigurvinsson, Helga Jónfna Walsh,
Bergljót Hulda Sigurvinsdóttir, Sigurþór Hjartarson,
Ævar Þór Sigurvinsson,
Ástríður Helga Sigurvinsdóttir, Júlfus Gunnarsson,
Páll Breiðfjörð Sigurvinsson, Valdfs Skarphóðlnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og
útför konu minnar,
HULDU EINARSDÓTTUR,
Digranesvegi 123.
Sérstakar þakkar vil ég færa samstarfsfólki hennar við Digranes-
skóla og hjúkrunarfólki deiidar 21 a á Landspítalanum.
Björgvin Björnsson
og vandamenn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
HAFLIÐA HALLDÓRSSONAR
frá Hvallátrum.
Anna Hafliðadóttir, Árni Helgason,
Erla Hafliðadóttir,
Ólöf Hafliðadóttír, Þórður Guðlaugsson
og aðrir vandamenn.