Morgunblaðið - 25.07.1987, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987
Vestmannaeyjar:
Tónleikar
á vígsluhátíð
í Bjarnarey
NÝTT veiðihús bjargveiðimanna
I Vestmannaeyjum verður vígt
með tilþrifúm í dag, laugardag
25. júlí ef veður verður hagstætt.
Bjamareyingar bjóða Vestmann-
eyingum að heimsækja eyjuna og
verða bátsferðir fram og til baka á
tímabilinu kl. 15.00 til 20.00.
Dagskráin hefst með vígslu húss-
ins sem séra Ólafur Jóhannsson
mun annast. Þá verður opnað bóka-
safn Bjamareyjar og skógrækt
hafín í Bjamarey. Síðan verður á
boðstólum kaffí, kleinur og pylsur
og aðrar veitingar. Einnig verður
varðeldur og fjöldasöngur. Sigurður
Reimarsson brennukóngur mun
kveikja í varðeldinum. Leiktæki
verða í hlíðum Bjamareyjar, renni-
brautir og hljómsveitin Sjöund
heldur tónleika á eyjunni. Þá verður
flugeldasýning. Reiknað er með
talsverðu Qölmenni en uppganga
er þægileg.
Flokkur mannsins:
Fordæmir
skattá
matvörur
FLOKKUR mannsins hefúr sent
frá sér eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu:
„Flokkur mannsins fordæmir harð-
lega ákvörðun ríkisstjómarinnar að
leggja skatt á matvöru.
Það er vægast sagt undarlegt að
ríkisstjóm með formann jafnaðar-
mannaflokks sem fjármálaráðherra
skuli standa að svo gerræðislegum
aðgerðum.
Það hefði vel mátt fá þessa pen-
inga með því að skattleggja banka-
stofnanir, tryggingarfélög og
verslunarhúsnæði.
Með þessari ákvörðun sýnir ríkis-
stjómin að hún er óvinur fólksins í
landinu og stórhættuleg.
Flokkur mannsins vekur einnig
athygli á því að allt sem þessi nýja
stjóm kemur fram með er þvert á
það sem lofað var fyrir kosningar.
Enn einu sinni hefur fólkið í
landinu látið gabba sig með fögrum
kosningaloforðum.
Þessi augljósu svik sanna best að
hinir svokölluðu „fulltrúar" þjóðar-
innar eru það ekki í alvöru heldur
fulltrúar peningavaldsins og hugsa
eingöngu um eigið skinn.
Flokkur mannsins fordæmir kosn-
ingasvik ríkisstjómarflokkanna."
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Kíktu
kvöld
ÓVERSKUR
HATUR
A EFRI HÆÐINNI
PÍNULÍTILL JASS,
PÍIMULÍTIÐ ROKK,
EN SVAKALEGT FJÖR
IABRA BRA BRA CAL BRABLABLA
EÐA EITTHVAÐ SVOLEIDIS
ÞAÐ ER NÚ SAMT SEM ÁÐUR OPIÐ
ZifíW-
BAR-DANS ORIENTAL MATUR. S 10312 Laugav 116. OPID ALLA DAGA- OLL KVOLD.
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
í fyrsta skipti á íslandi
og að sjálfsögðu
í BROADWAY
í kvöld
Beny Rehman og hljómsveit eru vin-
sælustu skemmtikraftarnir í Sviss og eru
með fasta sjónvarpsþætti í heimalandi
sínu. Þeir koma hingað sérstaklega til að
leika fyrir landann tónlist, sem er úr ýms-
um áttum, eins og Bandaríkjunum,
Mexíkó, Grikklandi, Týról og
fleiri löndum.
Allt frá slögurum upp í klassík
og að sjálfsögðu með léttu
ívafi.
Húsið opnað kl. 20.00. Skemmtunin byrjar kl. 10.00.
Hljómsveit Siggu Beinteins leikur fyrir dansi.
Miðasala í BROADWAY í síma 77500.
Þeir félagar bregða á leik í alls-
konar gervum og uppákomum.
Þetta eru svo sannarlega kvöld-
skemmtanir sem seint líða úr
minni.
Glæsilegur veislukvöldverður.
BENY REHMAN SHOW
frá Sviss
HÓTEL SÖGU
BORÐAPANTANIR j SÍMA 20221
HUOMSVEIT
Nú dönsum við lífsdansinn
med vaxandi þrá...!
leikur létta danstónlist
frá kl. 22.00.