Morgunblaðið - 25.07.1987, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987
47
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Bragi skoraði tvö
- er ÍR sigraði Þrótt í 2. deild
Bragl BJörnsson skoraðl
tvívegis fyrir ÍR í gœrkvöldl.
ÍR sigraði Þrótt 4:2 í fjörugum
og skemmtilegum leik á Val-
bjarnarvelli í Laugardal í
gærkvöldi. Eftir sigurinn er ÍR
í þriðja sæti, en Þróttarar
misstu af tækifæri til að kom-
ast upp að hlið Leiftri og
Víkingi í efsta sætiinu.
Íbyrjun voru ÍR-ingar mun
sprækari og Einar Ólafsson skor-
aði fyrsta mark leiksins fyrir þá
strax á þriðju mínútu með glæsilegu
langskoti. Bragi
Frostí Bjömsson bætti
Eiðsson öðru marki við rúm-
skrifar um tuttugu mín.
síðar, en Atli Helga-
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA
KR burstaði Þór
TVEIR leikir fóru fram í 1 .deild
kvenna í gærkvöldi. ÍA vann
ÍBK 2:0 og KR burstaði Þórsara
6:0
Það var ekkert skorað í fyrri
hálfleik á KR-vellinum.
Ifyrsta mark KR kom svo þegar um
10 mínútur voru liðnar af síðari
■HRHIH hálfleik. Ama
Ema Steinsen skoraði úr
Lúðviksdóttir víti eftir að ein Þórs-
skrítar stúlkan hafði hand-
leikið boltann.
Kolbrún Jóhannsdóttir skoraði ann-
að markið, stökk hæst allra og
skallaði boltann glæsilega í netið
eftir hom Ömu. Pimm mín. síðar
var Kolbrún aftur á ferðinni og
aftur skoraði hún með skalla, eftir
aukaspymu Ömu. Fjórða mark KR
skoraði Helena Olafsdóttir með
skoti af stuttu KR, Ama Steinsen
skoraði fímmta markið og Helena
gulltryggði stórsigur KR rétt fyrir
leikslok.
IA náði í þrjú dýrmæt stig til
Keflavíkur í gærkvöldi í ágætum
leik. Endaði leikurinn með tveimur
mörkum gegn engu og var það
Halldóra Gylfadóttir besta mann-
eskja IA í leiknum sem skoraði
mörk IA og bæði í fyrri hálfleik.
IA byijaði leikinn mun betur og var
sterkara liðið í fyrri hálfleik. Fyrra
markið kom ekki fyrr á 30. mínútu.
Eftir fyrirgjöf myndaðist mikil
þvaga en Halldóra náði að pota í
boltann og inn fór hann. Hún var
svo aftur á ferðinni aðeins þremur
mínútum seinna. Hún hugðist þá
gefa háa fyrirgjöf fyrir mark IBK
en öllum að óvörum flaug boltinn
yfír alla, einnig Guðnýu markvörð
IBK og í markið. Odýrt mark og
staðan orðin 2:0. Rétt áður fékk
Kristín Blöndal gott tækifæri að
jafna leikinn er hún komst í gott
færi en skot hennar fór naumlega
fram hjá marki IA.
Síðari hálfleikur var jafn. Sóknir
IA voru þó öllu beittari.
I.deild kv.
ÍBK - ÍA
KR - ÞÓRAK.
0:2
6 : 0
Fj.lelkja u j T Mörk Stlg
VALUR 9 7 2 0 24: 3 23
ÍA 9 7 1 1 19: 5 22
STJARNAN 8 5 0 3 11: 12 15
KR 9 4 2 3 13: 4 14
KA 9 2 2 5 8: 15 8
ÍBK 8 2 2 4 5: 14 8
UBK 8 1 1 6 5: 16 4
ÞÓRAK. 8 1 0 7 5: 21 3
son minnkaði muninn úr vítaspyrnu.
Heimir Karlsson, þjálfari ÍR, tók
vítaspyrnu fyrir lið sitt í fyrri hálf-
leiknum en Guðmundur Erlingsson
í Þróttarmarkinu varði.
Þróttur var betri fyrri hluta síðari
hálfleiks og fljótlega jafnaði Kristj-
án Svavarsson með skoti utan úr
teig. En ÍR-ingar voru ekki af baki
dottnir og á 65. mín. náðu þeir for-
ystunni á ný. Bragi Bjömsson
skoraði þá sitt annað mark — skaut
að marki úr vítateigshorninu, bolt-
inn breytti um stefnu á vamar-
manni og fór í homið. Þróttarar
urðu fyrir þeirri blóðtöku að Sigfús
Kárason fékk að líta rauða spjaldið
fímmtán mín. fyrir leikslok fyrir að
STAÐAN
hrinda Einari Ólafssjmi, sem stóð
fyrir boltanum er Sigfús ætlaði að
taka aukaspymuna. Sigurfinnur
Siguijónsson gulltryggði IR-sigur-
inn skömmu áður en leikurinn var
úti með skoti af stuttu færi.
Tveir leikmenn voru bomir út af í
lok fyrri hálfleiks, Theódór Jó-
hannsson fékk skurð á enni eftir
samstuð við Halldór Halldórsson,
sem fékk heilahristing. Þeir voru
báðir fluttir á slysavarðstofuna.
Dómari var Guðmundur Sigurðsson
og var ekki sannfærandi.
Maður leiksins: Bragi Bjömsson.
2. deild
ÞRÓTTUR - ÍR
2:4
HEIMALEIKIR
UTILEIKIR
SAMTALS
Leikir
LEIFTUR
VÍKINGUR
ÍR
ÞRÓTTUR
SELFOSS
EINHERJI
KS
ÍBV
UBK
ÍBÍ
10
10
11
11
10
10
10
10
10
10
U J T
Mörk
11 : 1
12 : 6
11 : 6
13: 12
10: 5
7 :
11 :
12 :
6 :
7: 12
U J T
Mörk
4 :
7 :
11 :
10 :
9: 14
4: 11
7 : 12
3: 10
4: 7
5: 11
Mörk Stig
15: 7 19
19: 15 19
17 17
21 16
19 15
14 15
18: 19 14
15: 17 13
10 : 12 13
12 : 23 3
3. deild A
STJARNAN - AFTURELDING
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS
Leikir u J T Mörk U J T Mörk Mörk Stig
STJARNAN 11 5 0 2 22 : 8 4 0 0 15 : 2 37: 10 27
FYLKIR 10 5 0 0 20: 2 3 2 0 7 : 4 27 : 6 26
REYNIRS. 10 3 1 1 14 : 6 3 0 2 10 : 9 24: 15 19
ÍK 10 3 1 2 11 : 9 3 0 1 9 : 6 20: 15 19
AFTURELDING 11 3 2 0 14 : 6 2 0 4 8 : 13 22: 19 17
GRINDAVÍK 10 1 1 3 7 : 8 3 1 1 11 : 6 18: 14 15
HAUKAR 10 3 0 4 11 : 11 0 0 3 1 9 12 : 20 9
UMFN 10 0 1 4 4: 10 2 1 2 6 6 10: 16 8
LEIKNIR 10 1 2 2 6 : 9 0 2 3 5 12 11 : 21 7
SKALLAGRÍMUR 10 0 0 5 2 : 22 0 1 4 3 25 5 : 47 1
SUND
Glæsilegt
íslandsmet
Elvars
NÚ UM helgina ferfram
stærsta sundmót landsins í
Vestmannaeyjum. Þarer
um að ræða AÍdursflokka-
meistaramót íslands.
Keppendur eru rúmlega 400
hundruð frá 20 liðum.
Keppt er í 44 greinum í öllum
aldursflokkum 17 ára og
yngriá mótinu, sem hófst í gær-
morgun og stendur fram á
sunnudag.
Frá Gunnarí Má Guðfínnur Ólafs-
Sigurtinnssyni son formaður
i Eyjum SSÍ sagði í stuttu
spjalli við Morg-
unblaðið, að undirbúningur fyrir
mótið hefði gengið vel. Sagði
hann gífurlega vinnu liggja að
baki enda að mörgu að hyggja
við undirbúning svo stórra móta.
Hann kvað árangur sundfólks-
ins á fyrsta keppnisdegi lofa
góðu og væri greinilega komin
mikil breidd af úrvals góðum
sundmönnum allsstaðar að af
landinu, meiri en nokkru sinni
áður. Sem dæmi nefndi hann
að 18 lið af 20 hefðu fengið
stig á mótinu fyrsta daginn.
Hann sagðist búast við góðum
árangri í bestu keppnislaug
landsins sem Eyjamenn eiga.
Hvammstangabúar, (USVH),
hafa komið mest á óvart þar sem
af er. Þeir skipa íjórða sæti á
stigalistanum eftir fyrsta dag
og eiga auk þess eina methafann
á mótinu til þessa. Er þar Elvar
Daníelsson sem setti met í 50 m
skriðsundi 10 ára og yngri.
Nýja metið er 32,92 sekúndur,
og bætti hann gamla metið um
nærri tvær sekúndur. Er það
stórglæsilegur árangur og er
greinilga mikið efni þar á ferð.
Að afloknum 14 greinum eftir
fyrsta keppnisdag er staðan
þessi:
l.Ægir...........91 stig
2. Bolungarvík. 79 stig
3. UMFN........ 63 stig
4. USVH..........49 stig
5. HSK...........42 stig
6. Ódinn.........40 stig
GOLF / LANDSMOT
Landsmótið hefst á
Akureyri á mánudag
LANDSMÓT kylfinga, það 46.
í röðinni verður sett á Jaðars-
velli á Akureyri á mánudag.
Mótinu lýkur síðan á laugar-
dagskvöld eins og venja er með
verðlaunaafhendingu. Kepp-
endur er 244 talsins frá 14
klúbbum, tveimur kylfingum
færra en á síðasta landsmóti
sem haldið var í Leirunni.
Talsvert er af keppendum á
þessu móti sem ekki hafa áður
tekið þátt { Landsmóti enda hefur
endurnýjun í golfínu verið nokkur
að undanfömu og margir ungir og
bráðefnilegir leikmenn sem sækja
hart að þeim „gömlu".
Flestir keppendur eru að þessu sinni
í 1. flokki karla en þar keppa 63
kylfíngar. í 2. flokki karla em 56
keppendur og einum færri í 3.
flokki. Meistaraflokksmenn karla
em 39 talsins að þessu sinni. Hjá
konunum er skiptingin þannig að
12 konur leika í öðmm flokki, sex
í fyrsta flokki og ellefu í meistara-
flokki. Konurnar em því alls 29 en
karlarnir 215 og þar af tveir at-
vinnumenn sem leika sem gestir á
mótinu. Þetta em þeir John
Dmmmond og David Bamwell en
þeir félagar kenna golf hjá GR og
GA. Þetta er í fyrsta sinn sem at-
vinnukylfingar taka þátt í Lands-
móti.
Það er nokkuð athyglisvert að at-
huga hvemig skiptingin er milli
golfklúbbanna. Flestir keppendur
koma frá Golfklúbbi Reykjavíkur,
rúmlega sjötíu, og síðan koma
heimamenn og Keilismenn úr Hafn-
arfirði. Þar mæta 45 kylfingar til
leiks fyrir hvora sveit. Margir furða
sig ef til vill á því hvers vegna
heimamenn séu ekki fjölmennari.
Skýringin er að þó svo margir séu
í GA hefur uppbyggingin verið
mest undanfarin ár og því ekki svo
margir sem hafa nógu lága forgjöf
til að taka þátt í Landsmóti.
Úr Nesklúbbi mæta 25 kylfingar
og er það vel að verki verið hjá
þeim NK-mönnum en Grindvíkingar
gera þó enn betur. Úr GG mæta
14 kylfingar til leiks og er það
mjög gott ef miðað er við höfða-
töluna margfrægu.
Ein úr Eyjum
Það vekur mikla furðu að aðeins
einn keppandi kemur frá Vest-
mannaeyjum. Það er aðeins Sjöfn
Sigurbjömsdóttir sem lætur sig
hafa það frá Eyjum þó svo þeir eigi
nokkra meistaraflokksmenn og
stráka sem verið hafa í unglinga-
landsliðum íslands. Það hlýtur að
vera umhugsunarefni hvort velja
eigi menn í landslið sem síðan
hundsa Landsmót. Menn sem taka
Þjóðhátíð fram yfír stærsta mót
sumarsins geta varla verið ómiss-
andi í hópi þeirra kylfinga sem
leggja hart að sér til að ná langt í
íþrótt sinni.
Steinunn ekkl meó
íslandsmeistari kvenna frá því í
fyrra, Steinunn Sæmundsdóttir úr
Golfklúbbi Reykjavíkur, verður ekki
meðal keppenda á Landsmótinu á
Akureyri. Nokkuð óvenjulegt að
íslandsmeistari freysti þess ekki
einu sinni að veija titil sinn. Stein-
unn hefur lítið sem ekkert æft í
sumar og er ekki á landinu að því
er best er vitað. Það er því ljóst að
í meistaramlokki kvenna verður
ekki sama nafnið ritað á bikarinn
og í fyrra.
Ómar slær fyrstur
Það fer vel á því að Ómar Jóhanns-
son úr GS slái fyrsta höggið á
Landsmótinu. Ómar var í fram-
kvæmdanefnd síðasta landsmóts og
vann þá mjög gott starf ásamt öðr-
um sem gerðu mótið þar svo eftir-
minnilegt. Nú er Ómar
framkvæmdastjóri GS og má því
segja að hann sé fulltrúi þeirra
Suðurnesjamanna sem héldu mótið
í fyrra „með stæl“, eins og þeir
segja sjálfir.
Það er þó algjör tilviljun að Ómar
skuli slá fyrsta höggið. Tölva var
látin draga um rásröð fyrsta daginn
hjá hveijum flokki og kom nafn
Omars fyrst upp.
Mótið verður sett á mánudag klukk-
an 9.30 árdegis og tíu mínútum
síðar slær Ómar fyrsta höggið.
Skorið verður niður í 1., 2. og 3.
flokki karla eftir 36 holur vegna
þess hve margir keppendur eru.
Eftir 36 holur verða 42 keppendur
í hveijum flokki sem halda áfram.