Morgunblaðið - 11.09.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1987
Heíldarafli
kominn yfir
milljón tonn
Aflinn í ágúst minni en í fyrra
Morgunblaðið/HBj.
Vegnrinn um Tófugjá, rétt eftir að vegagerðarmenn höfðu opnað hann eftir stóra skriðu sem þar féll
síðdegis i gær.
Ólafsfjörður:
Aurskriður og gijót-
hrun loka Mólanum
Akureyri.
VEGURINN um Ólafsfjarðar-
múla lokaðist um tíma f gær
vegna aurskriða sem féllu á veg-
inn.
Tvær aurskriður féllu á veginn
síðdegis í gær og lokaðist hann í
rúma klukkustund. Töluverð úr-
koma var í gær og auk aurskrið-
anna féll mikið af gijóti á veginn,
eins og alitaf í slíku veðri. Ekki er
vitað til þess að gijótið hafi lent á
bflum, en fólk var varað við því að
fara veginn fyrir Múlann í gær-
kvöldi.
Stærri aurskriðan féll úr Tófugjá
og á veginn rétt fyrir ofan staðinn
þar sem munninn verður Dalvíkur-
megin í fyrirhuguðum jarðgöngum
í Múlanum. Hin skriðan féll í Há-
múlanum, í svokölluðu Flagi, og þar
í kring féll mikið af stóru og smáu
gijóti á veginn.
HEILDARAFLI var um 40 þús-
und tonnum minni i ágústmánuði
i ár en i sama mánuði i fyrra,
en aflinn nú var 63.797 tonn á
móti 101.400 tonnum í fyrra,
samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands. Munar þar
mestu að i ágúst í fyrra voru
veidd rúm 45 þúsund tonn af
loðnu en engin loðna barst á land
í ágústmánuði í ár. Heildarafli
það sem af er árinu er hins veg-
ar um 100 þúsund tonnum meiri
nú en á sama tfma í fyrra, en
heildaraflinn í ágústlok þá var
rúm 900 þúsund tonn en er nú
kominn yfir milljón tonn.
Það sem af er þessu ári hefur
veiðst meira af öllum fisktegundum
að undanskilinni sfld og hörpudisk.
Heildarþorskafli í ár er rúm 300
þúsund tonn, en var í fyrra um 276
þúsund tonn. Af öðrum botnfíski
hafa nú veiðst tæp 206 þúsund tonn
á móti 199 þúsund tonnum í fyrra.
Af loðnu hafa veiðst um 492 þús-
und tonn það sem af er þessu ári
en á sama tíma í fyrra var loðnuafl-
inn tæp 395 þúsund tonn. Rækjuafl-
inn er í ár tæp 26 þúsund tonn en
var um 21 þúsund tonn á sama tíma
í fyrra. Aðeins 114 tonn af sfld
hafa borist á land á þessu ári en
var 234 tonn á sama tíma í fyrra.
Hörpudiskveiði í ár er um 5.900
tonn, en var um 6.400 tonn á sama
tíma í fyrra.
VMSÍ:
Þokast í
samkomu-
lagsátt
Von á að það
skýrist um helg-
ina, segir Guð-
mundur J.
Guðmundsson
Erindi samgönguráðherra:
Otímabær krafa á fram-
leiðanda símstöðvarmnar
- segir yfirverkfræðingur hjá Pósti og síma
SÆNSKA fyrirtækið L.M. Erics-
son, framleiðandi stafrænu
símstöðvarinnar í Reykjavík,
hefur unnið að þvi í samvinnu
við Póst og síma að finna orsök
endurtekinna bilana í kerfinu frá
því að þeirra varð fyrst vart.
Beiðni samgönguráðherra um að
stofnunin krefji Erícsson tafar-
lausra úrbóta og athugi hugsan-
lega bótaskyldu fyrírtækisins er
ótímabær að mati Hilmars Ragn-
arssonar yfirverkfræðings sjálf-
virkra símstöðva.
í ágústmánuði urðu nokkrar bil-
anir í stafrænu símstöðinni í
Ármúia, þar af tvær sem lömuðu
símstöðina í tvær klukkstundir í
hvort skipti. Símanúmer sem byija
á tölustafnum sex voru sambands-
laus þennan tíma. Hilmar sagði að
í fyrra skiptið hafi verið um vanda-
mál í hugbúnaði stöðvarinnar að
ræða, mistök hafí valdið síðari bil-
uninni.
Matthías Á. Mathiesen sam-
gönguráðherra sendi í byijun
vikunnar bréf til Pósts og síma þar
sem farið er fram á að Ericsson
verði krafið lagfæringa þegar í stað.
Ennfremur verði framleiðandanum
falið að tryggja rekstraröiyggi
kerfisins og gerð athugun á hugs-
anlegri bótaskyldu hans. Ólafur
Tómasson póst og símamálastjóri
er ekki væntanlegur til landsins
fyrr en um næstu helgi og bíður
afereiðsla erindis ráðherra fram að
því.
Að undanfömu hefur verið unnið
að umfangsmiklum athugunum á
biluninni í aðalstöðvum Ericsson í
Stokkhólmi og hjá framleiðanda
hugbúnaðarins á írlandi að sögn
Hilmars.
Úrbætur írskra forritara báru
þann árangur að stafræna stöðin
starfar eðlilega eins og stendur.
Tæknimaður Pósts og síma sem
tekið hefur þátt í þessum athugun-
um í Svíþjóð telur sig nú hafa
fundið lausn vandamálsins og er
væntanlegur heim með endurbætt-
an hugbúnað í þessari viku.
í stafrænum símstöðvum sér
hugbúnaður tölvu um að tengja
síma sem hringt er úr við þann sem
hringt er í. Bilanimar áttu rætur
að rekja til ruglings í minni tölvunn-
ar sem sér um að þýða og miðla
boðunum. Töivan hafði verið forrit-
uð til að hætta vinnslu undir þessum
kringumstæðum og hlaða hug-
búnaðinn að nýju. Það gerði hún
ekki. Tæknimönnum tókst ekki að
gangsetja tölvuna aftur fyrr en að
tveimur klukkustundum liðnum og
á meðan vom þúsundir símnotenda
sambandslausir, þeirra á meðal
Borgarspítalinn.
„ÞAÐ hefur þokast verulega í
samkomulagsátt og ég vonast til
þess að hægt verði að samræma
sjónarmiðin og Verkamannasam-
bandið gangi sameinað til kjara-
samninga, þó of snemmt sé að
fullyrða um það nú,“ sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson,
formaður VMSÍ, í gærkveldi í
samtali við Morgunblaðið.
Guðmundur fór í fyrradag til
Vestmannaeyja og í gær til Hafnar
á Homafírði ásamt fulltrúa frá
verkalýðsfélögunum í Vestmanna-
eyjum. Þar átti hann fund með Bimi
Grétari Sveinssyni, formanni verka-
Iýðsfélagsins á staðnum og Hrafn-
keli Jónssyni, formanni verkalýðs-
félagsins Árvakurs á Eskifírði, til
þess að reyna að sætta þann ágrein-
ing, sem kom upp á formannaráð-
stefnu VMSÍ á sunnudag vegna
kröfugerðar í kjarasamningum fyrir
næsta ár.
Auk þessa sagðist Guðmundur
hafa haft samband við fjölda fólks
símleiðis og að hann ætti von á að
það skýrðist um helgina hvort sætt-
ir tækjust.
Mál er að hvala-
blæstrmum linni
- segir Eyjólfur Konráð Jónsson um hvalveiðideiluna
Aðspurður hveiju hann spáði
um framhald hvaladeilunnar í
yósi tillögu Bandaríkjamanna
og umræðunnar í utanríkis-
málanefnd í gærmorgun sagði
Eyjólfur Konráð Jónsson form-
aður nefndarínnar: „Efni
málsins er að í Bandaríkjununi
er löggjöf sem fyrirskipar
refsiaðgerðir gegn þeim þjóð-
um sem taldar eru rányrkja
auðæfi hafsins, ekki aðeins
hvali heldur einnig aðrar
lífverur.
Við íslendingar höfum talið
okkur í fulium rétti en Bandaríkja-
menn segja að við veiðum of mikið
af hvölum til þess að flokka mætti
undir annað en veiðar í hagnaðar-
skyni. Nú eru tii umfjöllunar
tillögur af hálfu beggja aðila sem
miða að því að mæst sé á miðri
leið ef svo má að orði kveða. Þann-
ig eiga lýðræðisþjóðir að leysa sín
vandamál.
Frá mínu sjónarmiði er fárán-
legt allt tal um fjandskap
Bandaríkjamanna í okkar garð.
Þvert á móti hafa þeir mikilla
hagsmuna að gæta að viðhalda
farsælli vináttu ríkjanna. Á næstu
dögum verður fjallað um þau svör
sem borist hafa við tillögu íslend-
inga frá 27. ágúst síðastliðnum.
Ailan þann hvalablástur og
fímbulfamb sem verið hefur í
kringum þetta mál leiði ég hjá
mér. Síst af öllu má blanda ör-
yggi lands okkar við mál af
þessum toga. Auðvitað gleðst
enginn meira en ég ef lyktir eru
f sjónmáli enda hefur þetta mál
verið unnið í samráði við utanrík-
ismálanefnd Alþingis og þraut-
rætt á fundum hennar. Mál er að
linni."