Morgunblaðið - 11.09.1987, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1987
Kontrabassatónleikar í
Reykjavík og á Isafirði
HÁVARÐUR Tryggvason
kontrabassaleikari og Brynja
Guttormsdóttir píanóleikari
halda tónleika í Norræna hús-
inu í Reykjavík föstudaginn 11.
september kl. 20.30 og í sal
frímúrara I Hafnarhúsinu á
ísafirði þriðjudaginn 15. sept-
ember kl. 20.30.
Á efnisskrá tónleikanna eru
einleiksverk fyrir kontrabassa eft-
ir Fauré, Bottesini, Massenet,
Koussevitzky, Popper og Zbar.
Hávarður Tryggvason er fædd-
ur í Reykjavík 17. júní 1961.
Hann byijaði á unglingsaldri að
spila á rafbassa í ýmsum popp-
hljómsveitum. Árið 1980 hóf hann
nám á kontrabassa í Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar hjá
Jennifer Ann King og Páli Hann-
essyni. í janúar 1984 hóf hann
nám við „Ecole Normale de
Musique de Paris“ hjá Jean
Francois-Jenny Clarke. Um
haustið sama ár hóf hann nám í
„Conservatoire Nationale Sup-
erieur de Musique de Paris" hjá
Jena Marc Rollez. í júní 1986 lauk
Hávarður námi frá konservatorí-
inu með „Premier Prix, a l’unan-
imité du jury“. Nú stundar hann
framhaldsnám við sama skóla.
Sfðastliðinn vetur starfaði hann í
„Orchestre des Prix“ sem er sin-
fóníuhljómsveit á vegum konserv-
atorísins.
Brynja Guttormsdóttir er fædd
í Reykjavík 10. júlí 1947. Hún
stundaði nám f einkatímum hjá
Helgu Laxness og Jórunni Viðar.
í Tónlistarskólanum í Reykjavík
voru kennarar hennar Rögnvaldur
Siguijónsson og Ami Kristjánsson
Hávarður Tryggvason og Brynja Guttormsdóttir halda tónleika
í Reykjavík og á ísafirði nú í september.
og lauk hún píanókennaraprófi frá
skólanum vorið 1969. Árið 1970
hóf Brynja nám við Tónlistar-
háskólann í Stokkhólmi og lauk
þaðan prófi vorið 1973. Hún
stundaði einkanám hjá prófessor
Gunnar Hallhagen 1976-1978.
Brynja hefur stundað kennslu um
árabii, lengst af hjá Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar. Hún
hefur haldið tónleika á íslandi og
í Stokkhólmi.
MARKAÐSÞEKKING
ÚTFLUTNINGSKUNNÁTTA
VILTU VERDA
KUNNÁTTUMADUR
í ÚTFLUTNINGIOG
MARKADSSÓKN?
Þér gefst færi á eins vetrar námi til aö ná
-án þess aö þaö komi niður á vinnunni.
Sjálf skólasóknin takmarkast viö
fjögur tímabil:
14.-16 september
26.-28. nóvember
23.-25. mars
1.-3. júní
Þess utan felst námiö í heima-
verkefnum. Próf veröa þreytt pann 4.
júní 1988.
Flestir leiöbeinenda
veröa nú íslenskir.
SÍDUSTU INNRITUNARDAGAR
Nánari upplýsingar veitir skólastjórinn:
Hámarksfjöldi þátttakenda er 24. _ Pétur B. Pétursson í síma (91) 62-10-66
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
UTFLUTNINGS
OG MARKAÐSSKÓLI ÍSLANDS
Ánanaustum 15-101 Revkiavík-Sími (91) 62-10-66
Enrique de la Mata
Yfirmað-
urRauða
krossins
látinn
Átti að koma til
Islands 10. sept-
ember
ENRIQUE de la Mata formaður
Alþjóðasambands landsfélaga
Rauða krossins og Rauða hálf-
mánans andaðist í Róm 6. sept-
ember. Hann var Spánveiji að
uppruna, 53 ára gamall og lætur
eftir sig eiginkonu og 7 börn.
De la Mata var kosinn formaður
Alþjóðasambandsins á fundi félag-
anna í Manilla á Filipseyjum 1981
og endurkosinn til 4 ára 1985.
Hann var lögfræðingur að mennt,
sat 15 ár á þingi, gegndi ýmsum
opinberum störfum og embætti ráð-
herra á árunum 1976—77.
De la Mata var mikilvirkur í
starfi sínu fyrir Rauða krossinn.
Meðal stærstu verkefna sem Al-
þjóðsambandið hefur unnið að á
þeim árum sem hann gegndi for-
mennsku má nefna hungursneyðina
í Eþfópfu, jarðskjálftana í Mexíkó
og eldgosið í Kólumbíu.
De la Mata skrifaði fjölda greina
á sviði mannréttinda- og friðarmála
og auk þess lét hann sig miklu
varða vandamál æskufólks.
Stjóm Rauða kross íslands hafði
boðið De la Mata í heimsókn hingað
til lands í þessari viku, dagana
10.—13. september.
Þú svalar kstrarþörf dagsins
WIIO
Miðstöðvardœlur
Þróuð þýsk
framleiðsla.
Hagstœtt verð.
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun Ármula 23 - S. (91)20680
Skákþing
Islands
1987
KEPPNI í drengja- og telpna-
flokki (14 ára og yngri) verður
dagana 11.—13. september nk.
Tefldar verða 9 umferðir eftir
Monrad-kerfi, og er umhugsun-
artími 40 mín. á skák fyrir
keppanda.
Ef næg þátttaka fæst, verður
sérstakur teípnaflokkur.
Umferðartaflan er þannig:
Föstudagur 11. sept. kl. 19.00—23.
00 1., 2. og 3. umferð.
Laugardagur 12. sept. kl. 13.00—
18.00 4., 5. og 6. umferð.
Sunnudagur 13. sept. kl. 13.00—
18.00 7., 8. og 9. umferð.
Teflt verður í félagsheimili TR á
Grensásvegi 46, Reykjavík. Innrit-
un fer fram á skákstað föstudaginn
11. september kl. 18.30—18.55.
Skákstjóri verður Ólafur H. Ól-
afsson.
Patreksfj örður:
Mengnn
frá fiski-
mjölsverk-
smiðju
veldur
óþægindum
Áskorun til
hreppsnefndar
og Hollustu-
verndar ríkisins
um úrbætur
TVÖHUNDRUÐ íbúar Patreks-
hrepps hafa skrifað undir
áskorun um að hreppsnefndin
beiti sér fyrir að Fiskimjölsverk-
smiðjan Svalbarði hf. útiloki alla
mengun frá verksmiðjunni, ella
verði henni lokað. Undirskriftir
íbúanna hafa verið sendar Holl-
ustuvernd rikisins með áskorun
um að verksmiðjan verði skoðuð
með hollustuvernd í huga. Hefur
verið ákveði að slík skoðun fari
fram um næstu mánaðarmót.
Að sögn Úlfars Thoroddssen
sveitarstjóra, fauk skorsteinn verk-
smiðjunnar í vetur og fór hrepps-
nefndin þegar fram á lagfæringu.
í vor voru áform um byggingu og
endurbætur á verksmiðjunni lagðar
fyrir byggingamefnd en ekkert ból-
ar á framkvæmdum. „Ekki hefur
verið hirt um að endurreisa skor-
steininn til að lyfta reiknum yfir
verksmiðjuhúsin og koma honum
frá byggðinni," sagði Úlfar. „Reyk-
urinn kemur frá húshliðinni og í
vissum áttum blæs hann inn yfir
byggðina. Það sem fer í taugamar
á íbúunum er að þessu skuli ekki
hafa verið sinnt.“
Þegar hreppsnefnd kom saman
að loknu sumarieyfi var málið tekið
fyrir og enn ftrekað við forráða-
menn verksmiðjunnar að endurbæt-
ur yrðu gerðar og skorsteininn
endurreistur. Jafnframt var óskað
eftir upplýsingum um væntanlegar
framkvæmdir og hvenær þeim yrði
lokið. Veittur er frestur til 19. sept-
ember.
Úlfar sagið að von væri á starfs-
manni frá Hollustuvemd ríkisins til
að yfirfara mál verksmiðjunnar og
taka það út.