Morgunblaðið - 11.09.1987, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1987
Austur-Þýskaland:
Bretar fylgjast
með heræfingnm
Austur-Berlín, Reuter.
EFTIRLITSNEFND á vegum
breska hersins flaug í gær til
Austur-Þýskalands til að gera
fyrstu skyndikönnunina á heræf-
ingum Austantjaldsríkja, sem fer
fram samkvæmt Stokkhólmssátt-
málannm nm Öryggi í Evrópu.
„Við sendum beiðni þann 8. sept-
ember tii austur-þýskra stjómvalda
í Lundúnum og í Austur-Berlín um
að fá að fylgjast með sameiginleg-
um heræfingum Sovétmanna og
Austur-Þjóðveija á Juterbog/Cott-
París:
Sprenging
við arabísk-
an banka
París, Reuter.
SPRENGJA sprakk árla í morg-
un við Kúvæsk-franska bankann
í París og oUi á honum nokkrum
skemmdum. Er þetta í annað sinn
í vikunni, að sprengja springur
við arabiskan banka i borginni.
Enginn meiddist í sprengingunni,
sem rauf gat á bygginguna, og
engir hafa enn orðið til að kenna
sér verknaðinn. Lögregluna grunar
þó, að hann kunni að tengjast
ástandinu á Persaflóa.
Snemma á þriðjudag sprakk lítil
sprengja við útibú annars arabísks
banka í París, Banque Saoudienne
et Europenne, en litlar skemmdir
hlutust af. Rétt ár er liðið síðan
margar sprengjur spmngu í París
með þeim afleiðingum, að 13 menn
létust og 250 slösuðust.
bus-svæðinu,“ sagði talsmaður
breska sendiráðsins í Austur-Berlín
í gær. Beiðnin var samþykkt daginn
eftir.
Eftirlitsnefndin er skipuð fjóram
mönnum undir forystu herdeildar-
foringja. í fylgd með henni em
einnig nokkrir ráðgjafar. Nefndin
mun fylgjast með æfíngum um
13.500 sovéskra hermanna af þeim
400.000 sem staðsettir em í Aust-
ur-Þýskalandi, og 500 austur-
þýskra hermanna.
Samkvæmt Stokkhólmssáttmál-
anum, sem næstum öll ríki í Evrópu
undirrituðu á síðasta ári, er hægt
að krefjast þess að fá að fylgjast
með heræfíngum annarra ríkja ef
gmnur leikur á að ekki sé farið að
reglum sáttmálans. Beiðni um slíkt
verður að svara innan sólarhrings
og eftirlitsmenn að fá aðgang innan
36 stunda frá því að beiðnin er lögð
fram. Þeir mega vera viðstaddir
æfíngamar í tvo sólarhringa.
Reuter
Opnunarhátíðin æfð
SYRLENSK ungmenni klædd þjóðbúningum og með
ijaðurskúfa í greipum sér æfa opnunarhátíð Miðjarð:
arhafsleikanna, sem hefjast í dag, föstudag. í
bakgmnni halda böm á máluðum pappaspjöldum
og galdra fram ásjónu Hafez-AI-Assad, foraseta
Sýrlands, sem virðist líta athafnarsemi hinna ungu
þegna sinna velþóknunaraugum.
Stuðningur Bandaríkjastjórnar við kontra-skæruliða:
Reagan forseti fer fram
á 270 milliónir dollara
Washinirton, Reuter.
Washington, Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkja-
forseti hyggst fara fram á 270
milljóna dollara aðstoð við
kontra-skæruliða í Nicaragua, að
þvi er George Shultz utanríkis-
Evrópubandalagið í vand-
ræðum með vínupp skemna
Brussel, Reuter.
Vínbændur og vínframleið-
endur í Evrópubandalaginu eru
nú að búa sig undir metuppskeru
annað árið i röð. Augljóst þykir,
að eima verði stóran hluta um-
framvínanna en það er mjög
fjárfrekt fyrirtæki.
„Þegar Spánveijar, sem eiga
mestu víngarða í heimi, gengu í
Evrópubandalagið varð þessi fram-
leiðslugrein að enn meira vandamáli
en áður,“ sagði einn embættismað-
ur EB í gær en talið er, að uppsker-
an á þessu hausti verði 200 milljónir
hektólítra, svipuð og í fyrra.
Til að minnka umframbirgðimar
verður leyft að eima ódýr borðvín
eftir miðjan september og er gert
ráð fyrir, að um 40 milljónum
hektólítra verði breytt í hreinan
vínanda. Er það sama magn og í
fyrra en þá nam kostnaðurinn við
eiminguna 550 milljónum dollara.
ráðherra sagði í gær. Lét Shultz
þess getið að þetta væri sú upp-
hæð sem skæruliðar þyrftu að
hafa til ráðstöfunar til að geta
haldið áfram bárattu gegn stjórn
sandinista í Nicaragua.
Shultz sagði að forsetinn myndi
fara þess á leit við bandaríska þing-
menn að þeir samþykktu fjárupp-
hæð þessa. Þingið hafði áður
samþykkt að veita 100 milljónum
dollara til skæruliða á þessu fjár-
lagaári en því lýkur þann þrítugasta
þessa mánaðar. „Við þurfum að
eyða þeirri óvissu sem ríkt hefur
um skuldbindingar stjómarinnar,"
sagði Shultz. „Þar sem nauðsynlegt
er að traust ríki milli stjómar og
þings tel ég það skyldu mína að
skýra frá því að forsetinn hyggst
fara fram á 270 milljón dollara
aðstoð á næstu 18 mánuðum,"
sagði Shultz er hann svaraði spum-
ingum utanríkismálanefndar öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings í gær.
Shultz kvaðst telja að friðarviðleitni
Mið-Ameríkuríkja og áætlun sú sem
Oscar Arias, forseti Costa Rica,
hefur lagt fram, væri „ágæt byij-
un“.
Reagan forseti hefur á ný hafíð
baráttu fyrir stuðningi Bandaríkja-
manna við_ kontra-skæruliða í
Nicaragua. Á þriðjudag sagði hann
að Bandaríkjastjóm myndi halda
áfram stuðningi við skæruliða þar
til lýðræði hefði verið komið á í
Nicaragua.
George Shultz lét þess einnig
getið að stjómin myndi gera hvað
hún gæti til að styðja friðaráætlun
Oscars Arias. Hins vegar benti hann
á að stjóminni væri skylt að láta
af stuðningi við skæruliða þegar
fjárlagaárinu lyki. Sagði hann að
friðaráætlunin myndi koma sér sér-
lega vel fyrir kommúnista ef ekki
væri tryggt að áframhald yrði á
stuðningi við skæruliða. Samkvæmt
áætluninni er gert ráð fyrir að er-
lend ríki láti af stuðningi við hinar
ýmsu skæruliðahrejrfingar í Mið-
Ameríku, lýðræði verði komið á og
hinar stríðandi fylkingar semji um
vopnahlé.
„Áætlun Arias mun taka gildi
þann 7. nóvember. Margir banda-
rískir embættismenn óttast að
verulega muni halla á kontrana ef
þeim berst engin aðstoð milli 30.
september og 7. nóvember," sagði
Shultz. „Andspymumenn munu
eiga í höggi við háþróaðan sovéskan
vopnabúnað og kúbanska hemaðar-
ráðgjafa. Fé þeirra verður á þrotum
og engin aðstoð mun hafa borist
frá okkur," bætti hann við.
Ingvar Carlsson í Bandaríkjunum:
Vel fer á með
leiðtogunum
Stokkhólmi, frá Erik Liden, fréttaritara Morgunbladsins.
INGVAR Carlsson forsætisráð-
Werra Svíþjóðar kom í opinbera
heimsókn til Bandaríkjanna á
miðvikudag. Er þetta i fyrsta
skipti í 26 ár sem sænskur ráð-
herra kemur í opinbera heim-
sókn til Bandaríkjanna.
Samskipti þessara þjóða hafa
verið stirð siðan Palme hélt ræðu
sína gegn hemaðaríhlutun
Bandaríkjamanna í Víetnam. Nú
var hins vegar léttara yfir mönn-
um og virtist fara vel á með
leiðtogunum.
Sænskir flölmiðlar gera ýtarlega
grein fyrir heimsókninni og hjuggu
sumir flölmiðlar eftir því að Reagan
forseti neftidi Olof Palme heitinn
ekki á nafn en varð tíðrætt um
Raul Wallenberg, Dag Hammar-
skjöld og Bjöm Borg. Reagan hafði
og á orði að þjóðimar hefðu ólíkar
skoðanir á vígbúnaðarmálum og
málefnum S-Ameríku og dást blöð
í Svíþjóð að þeirri hreinskilni forset-
ans. Forsætisráðherrann sænski
hóf meðal annars máls á alnæmis-
faraldrinum, sem nú ógnar Vesturl-
öndum og hét Bandaríkjaforseti því
að hann myndi heils hugar styrkja
ráðstefnu um sjúkdóminn sem fram
fer í Svíþjóð á næsta ári. Fjölmiðlar
í Svíþjóð, hvar í flokki sem þeir
standa, vom ánægðir með jákvæð-
an tón og framgang mála og
framgöngu forsætisráðherrans.
Ingvar og kona hans þágu kvöld-
verðarboð bandarísku forsetahjón-
anna í fyrrakvöld og vakti það
nokkra undmn sænskra Qölmiðla
að þar var staddur forsljóri Volvo
Pehr G. Gyllenhammar og við-
skiptajöfurinn Peder Wallenberg.
Reuter
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Svía, og frú Carlsson stilla sér
upp fyrir ljósmyndarana i upphafi hátíðakvöldverðar i Hvita húsinu
í fyrrakvöld.
Sovétríkin:
Rust fær
ekki sakar-
uppgjöf
Moskvu, Reuter.
VESTUR-þýski táningnrinn Matt-
hias Rust, sem i síðustu viku var
dæmdur i fjögurra ára þrælkunar-
vinnu fyrir lendingu sína á Rauða
torginu { Moskvu, mun ekki fá
uppgjöf saka á árinu, þótt nú sé
slík sakaruppgjöf veitt þúsundum
fanga i sovéskum fangelsum.
Talsmaður Kremlarstjómar,
Gennady Gerasimov, sagði á frétta-
mannafundi í gær að mál Rusts félli
ekki undir ákvæði tilskipunar stjóm-
valda um víðtæka sakamppgjöf i
tilefni sjötíu ára afmælis byltingar
bolsévika. Gerasimov sagði að sakar-
uppgjöfín næði aðeins til fanga sem
hefðu afplánað meira en þriðjung af
dómi sínum.
Rust var fundinn sekur um að
hafa brotið alþjóðaflugreglur, farið
inn í landið á ólöglegan hátt og haft
í frammi „illkvittnislegar óspektir“.
Búist er við hann muni fara fram á
náðun Kremlarstjómarinnar, og jafn-
vel er talið að hún verði veitt, þrátt
fyrir að Rust sé ekki gjaldgengur til
sakamppgjafarinnar.
Gerasimov sagði Rust enn ekki
hafa farið fram á náðun. Hann stað-
festi að ungi maðurinn biði enn
flutnings í vinnubúðimar úr Lef-
ortovo-fangelsinu í Moskvu, þar sem
hann er nú í haldi.