Morgunblaðið - 11.09.1987, Page 32
.. scBMMgTg'flP„ r r mrr>AaiTT8Aw ma* TfluiTnanv
MORGUNBLABIÐ, FÓSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1987
Edda Sigrún Björns
dóttir — Minning
Fædd 1. desember 1936
Dáin 5. september 1987
Edda hefur háð sitt dauðastríð
af sömu reisn og æðruleysi og ein-
kenndi hana í fullu fjöri. Hún
stundaði stofu sína fram á sumar,
dreif sig í ferð með breskum starfs-
bróður sínum hingað austur í
Neskaupstað í júlíbyijun. Nú tveim-
ur mánuðum síðar er hún öll.
Við vorum stúdentar sama vorið
sitt úr hvorum skóla. Leiðir lágu
saman í læknadeild þar sem ég kom
við að nafninu til haustið eftir.
Fáar konur lögðu út í slíkt nám á
þeim árum. Þessi rauðhærða hnáta
lét slíkt ekki hindra sig og strákam-
ir máttu passa sig að standast henni
snúning. í gleðskap var hún hrókur
fagnaðar. Móðurhlutverkið rauf
samt námsferil hennar að loknu 1.
hluta prófi um sex ára skeið. A
þeim tíma fæddust Ámi Bjöm og
Helga, sem við nú höfum á meðal
okkar. Með þennan efnilega hóp
sneri hún heim frá Bandaríkjunum
einstæð móðir, bjó þeim heimili og
lauk sjálf læknanámi og sémámi í
augnlækningum heima og erlendis.
Dugnaður hennar og ósérplægni
var með fádæmum. Bræðmm
sínum yngri, læknunum Sigurði og
Jóhannesi, var hún til stuðnings og
fékk hann endurgoldinn er á reyndi.
Á námsámm og að loknu kandí-
datsprófi var Edda við störf á
sjúkrahúsum, m.a. hér á Austur-
landi. Þannig hljóp hún nokkmm
sinnum í skarðið fyrir Kristínu við
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaup-
stað. Með þeim tókst vinátta sem
hélst til loka. Þær sóttu saman
Iæknaþing í Bandaríkjunum fyrir
fáum ámm og ferðuðust þar um
borgir og þjóðgarða. Sumrinu
seinna lét hún eftir sér að koma
hingað austur í öræfaferð og hélt
svo ein með tjald sitt heim á leið
sunnan jökla. Hún naut landsins
og íslenskra bókmennta, var róttæk
í skoðunum eins og hún átti kyn
til og lá ekki á sínu.
Edda var veitandi í blíðu og
stríðu. Hún hélt veglegt boð í Dom-
us Medica á fimmtugsafmælinu í
fyrravetur við fjölmenni þrátt fyrir
magnaðan sjúkleika. Þeir sem ekki
vissu betur sáu ekki annað en hún
gengi heil til skógar með lífið fram-
undan. Þannig var hún, keik og
óbrotin fram í andlátið.
Hjörleifur Guttormsson
Þessi kveðjuorð um hina iátnu
áttu að fylgja öðmm greinum í blað-
inu í gær. Er greinarhöfundur
beðinn afsökunar á því að svo varð
ekki.
Ætt er nefnd Svaðastaðaætt og
er frá Svaðastöðum í Skagafirði.
Við Edda emm bæði af þessari ætt
móðurmegin, en auk þess em tengsl
okkar fólks nánari, þar sem Krist-
rún Jósefsdóttir, amma Eddu, var
alin upp hjá ömmu minni, Margréti
Símonardóttur í Brimnesi, og var
samband þeirra fjölskyldna þar af
leiðandi alltaf mjög náið.
Ég man vel eftir því, þegar ég
sá Eddu fyrst, nýkomna úr hinum
„stóra heimi". Hún var með foreldr-
um sínum í heimsókn í Laugarási
hjá foreldmm mínum. Lítil, rauð-
hærð „skotta", sem vildi stjóma
öllu og öllum Oddgrað frá, og við
systkinin, sveitabömin sex, létum
vel að stjóm. Ég man að hún setti
Himma bróður minn og jafnaldra
sinn við hlið sér í brekkunni sem
við sátum í. Hún sagði sögur frá
„úttlandinu" og heimtaði að við
lærðum „Red — white and blue“
með texta og tilheyrandi lagi. Eddu
varð ekki orða vant þá né síðar,
enda stjómsöm alla tíð sem ég
þekkti hana.
Ég kveð Eddu mína með miklum
söknuði. Þegar ég sá hana síðast
eftir sinfóníutónleika í febrúar,
sagði hún við mig: „Við Himmi
verðum fyrst," en Hilmar dó þann
28. desember 1986, og átti hún þá
við bamahópinn í Laugarási, sem
hún hafði meiri samskipti við eftir
þessi fyrstu kynni.
Ég kveð Eddu frænku mína með
söknuði.
Grétar
Enn get ég ekki hugsað mér
Eddu farna, þó ég vissi að hveiju
stefndi jafn vel og hún sjálf.
Við Grétar hittum Eddu síðast á
sinfóníutónleikum í byijun árs. Við
fóram út í hléi, þar sem við höfðum
ýmislegt að gera. Edda hitti okkur
í anddyrinu og bað mig að leiða sig
út — var slöpp enda nýkomin aif
Landakoti úr meðferð.
Við ókum henni heim í Bjarkar-
götu. Hún vildi að við kæmum inn
með sér, og við þáðum það, þótt
tímanaum væram, því þetta líktist
alltaf síðari kynnum okkar Eddu
að hittast í skyndi — hérlendis, er-
lendis eða á milli landa og alltaf
var nóg að ræða um þegar tími
gafst til.
Edda sýndi okkur afmælisgjafir
sínar og myndir úr fimmtugsaf-
mælinu frá 1. desember 1986 og
sagði: „Þetta sýnir að við eigum
að hittast oftar og hafa dansveislur
eins og þessa, en ekki nein smáboð."
Það var gaman að vera með
Eddu í þetta sinn, eins og alltaf
þegar við hittumst, nema ef til vill
þegar ég sá hana í fyrsta skipti.
Hún hringdi þá í Grétar frænda
sinn og bað hann að taka sig með
á 1. desemberball 1956. Þetta var
dálítið snúið, þar sem Grétar var í
stjóm stúdentaráðs og sat við há-
borðið og hafði þegar boðið mér
með sér. „En fjölskylda er fjöl-
skylda." Grétari tókst að koma
Eddu við háborðið með okkur, þótt
til hliðar væram öll. Síðan, eins og
áður er nefnt, tókust betri kynni
og samskipti okkur vora alltaf góð.
Við Grétar getum ekki fylgt
Eddu síðasta spölinn, því við eram
í útlöndum eins og á fimmtugsaf-
mælinu, en við bæði kveéjum hana
sem kollega og vin, þótt oft væri
vík þar á milli, en þegar við hitt-
umst var alltaf eins og við hefðum
sést í gær. Hún barðist vel og hetju-
lega af mikilli reisn.
Requisce in pace.
Fríða
Kveðjuorð:
Stefanía Eiríks-
dóttir bókavörður
Kveðja frá starfsfólki og
bókasafnsstjórn Bæjar- og
héraðsbókasafnsins á Akra-
nesi.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír deyr aldregi,
hveim sér góðan getur.
Stefanía Eiríksdóttir fyrrverandi
yfirbókavörður við Bæjar- og hér-
aðsbókasafnið á Akranesi er dáin,
aðeins 69 ára gömul.
Hún sem alitaf var svo full af
bjartsýni, lífsgleði og athafnaþörf.
Stefanía kom til Akraness á
haustmánuðum árið 1970 til þess
að taka við forstöðu bókasafnsins
þar við mikil tímamót í sögu þess.
Hún byijaði þegar að undirbúa
flutning safnsins í eigið húsnæði,
Bókhlöðuna, sem er ein af fáum
sérhönnuðum bókasafnsbyggingum
hér á landi. Ásamt starfsfólki bóka-
safnsins og bókasafnsstjóm vann
hún af einstakri ósérjtlægni, áhuga
og dugnaði mikið afrek við flokkun
og skráningu safnsins, ásamt mörg-
um öðram störfum. Þær vinnu-
stundir vora ekki allar taldar. Áhugi
hennar og eldmóður vora smitandi
og unnið var af kappi og ánægju.
Langþráðu marki var náð, þegar
flutt var í Bókhlöðuna og safnið
opnað fyrir almenning, 26. febrúar
1972.
Áfram var unnið og hvergi dreg-
ið af sér og 6. mars 1976 var opnuð
sérstök bamadeild í Bókhlöðunni
og lestrarsalur fyrir böm.
Starfsfólk og bókasafnsstjóm
minnast þessara tíma, sem oft vora
erfiðir, með söknuði og eftirsjá. Þó
fyrst og fremst með þökk og virð-
ingu fyrir allar ánægjulegu sam-
verastundimar.
Dóttur, dætrabömum, ættingjum
og vinum er vottuð einlæg samúð.
Drottinn minn, gef þú dánum ró,
en hinum líkn sem lifa.
t
Eiginmaður minn, faöir, tengdafaöir og afi,
AÐALSTEINN STEFÁNSSON
bifreiðastjóri,
Langholtsvegi 73,
sem lést 2. septmeber sl. veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju
í dag, föstudaginn 11. september, kl. 15.00.
Kristjana Steinunn Guðjónsdóttir,
Björn Aðalsteinsson,
Guðjón Aðalsteinsson,
Dagbjört Aðalsteinsdóttir,
Stefán Aðalsteinsson,
tengdabörn og barnabörn.
raöauglýsingar,
raöauglýsingar
raöauglýsingar
Aðalfundur
Heimdallar
HFIMDAIJ.UK
F ■ U • S
Sjálfstæðiskvennafélag
ísafjarðar 30 ára
Opið hús að Uppsöl-
um þann 12. sept-
ember nk. frá kl.
17.00-19.00. Allt
sjálfstæðisfólk vel-
komið. Gestir í til-
efni dagsins verða:
Þórunn Gestsdóttir
formaður landsam-
bands sjálfstæðis-
kvenna og Matthías
Bjarnason Alþingis-
maður.
Þórshöfn og nágrenni
Þingmaðurinn ykkar Halldór Blöndal og
Jónas Jóhannsson hreppsnefndarmaður á
Þórshöfn, verða með viðtalstíma sunnu-
daginn 13. september nk. á Sunnuvegi 3
á Þórshöfn. Viðtalstíminn verður frá
kl.16.00-18.00 e.h. Einnig er hægt að
hringja í síma 81184.
veröur haldinn i Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 14.00 laugardaginn 12.
september.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Heimdellingar eru hvattir til þess að mæta á fundinn.
Stjórn Heimdallar.
Haustferð Óðins
Sunnudaginn 13. september nk. fer málfundarfólagið Óðinn i sína
árlegu haustferð. Að þessu sinni er feröinni heitið i Hjörleifshöfða.
Lagt verður af stað frá Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 09.00 f.h. Félag-
ar fjölmennið og takið með ykkur gesti og nesti. Verðið er kr. 700
pr. mann og fritt fyrir börn.
Ferðanefnd.
Stjórnin.
Kópasker og nágrenni
Þingmaðurinn ykkar Halldór Blöndal og
Tryggvi Aðaisteinsson hreppsnefndarmað-
ur á Kópaskeri, verða með viðtalstfma
mánudaginn 14. september nk. á skrifstofu
hreppsins á Kópaskeri. Viðtalstíminn verð-
ur frá kl. 17.00-19.00 e.h. Einnig er hægt
að hringja i sima 52188.
Raufárhöfn og nágrenni
Þingmaðurinn ykkar Halldór Blöndal og
Helgi Ólafsson hreppsnefndarmaður á
Raufarhöfn, verða með viðtalstíma laugar-
daginn 12. september nk. í fundarher-
berginu á Hótel Norðurljósi á Raufarhöfn.
Viötalstiminn verður frá kl. 16.00-18.00.