Morgunblaðið - 11.09.1987, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1987
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Saga
Um daginn sat ég ásamt
kunningja mínum f lfkams-
ræktinni í Kjörgarði og
vorum við að spjalla saman
eins og gengur. Það er alveg
ótrúlegt hvað manni líður vel
eftir góða æfíngu. Slappar
vel af og fínnur vellíðunartil-
fínningu streyma um lfkam-
ann. Ég hugsa oft eftir
æfíngu að hér áður fyrr var
nautn og skemmtun tengt
þvf að ijúka á milli skemmti-
staða f mismunandi góðu
ástandi. Þá tengdi ég hug-
takið og tilfínninguna nautn
sjaldan við heilbrigði og þá
vellíðan sem góð líkams-
hreyfíng gefur. En þetta eb
í raun útúrdúr.
Tönlist
Það sem kom þessari hug-
leiðingu af stað var að lagið
Killing me softly with his
song með Robertu Flack var
spilað f útvarpinu. Það var
einmitt þá sem vinur minn
leit drejminum augum út í
loftið og sagði: „Ég man allt-
af eftir þessu lagi. Það var
stelpa með mér í bekk. Hún
var mjög falleg. Hún var allt-
af í sérstaklega þröngum
gallabuxum. Ég var hrifinn
af henni og ég held að hún
hafí verið hrifín af mér. Svo
vorum við eitt kvöld bæði f
Klúbbnum. Ég bauð henni {
dans. Þá var þetta lag spilað.
Hún sagði að þetta væri
uppáhaldslagið sitt. Við
dönsuðum þennan dans sam-
an en síðan gerðist ekkert
meira."
Feimni
„Það sem ég á við“, hélt
hann áfram, „er að þegar ég
hugsa aftur á bak, sé ég
hvað mörg tækifæri hafa
glatast, bara vegna feimni
og þess að þora ekki að tala
við fólk. Ég hitti þessa stelpu
seinna, en ekkert gerðist.
Síðan heyrði ég að hún hefði
dáið af slysförum. Þetta er
mjög sorglegt.
Tala saman
Það var þögn nokkra stund,
utan að lagið ómaði áfram.
„Það sem ég er f raun að
hugsa“, sagði vinur minn, „er
það hversu mörg mistök okk-
ur verður á, vegna hræðslu,
minnimáttarkenndar og ég
veit ekki hvað. Þú ert hrifínn
af stelpu, en þú þorir ekki
að segja orð. Ert með ein-
hveija stæla og læti og
hræðir hana í burtu. Svo var
hún kannski hrifín af þér all-
an tfmann, en þorði ekki
heldur að segja orð.“
Um tilfinningar
„Ég held“ sagði vinur minn,
„að við tölum alltof lftið sam-
an. Og þá sérstaklega um
tilfínningar og það hvemig
okkur líður og hvað okkur
langar virkilega til að gera.
Ástæðan er kannski sú að
við hugsum of mikið um eig-
in vandamál og gerum okkur
ekki grein fyrir því að við
erum öll mannleg."
Ogást
„Við erum útúr stressuð og
spáum ekki f það að hinn
aðilinn hefur líka tilfínningar,
er jafn feimin og við. Við
gleymum þvf að öll erum við
menn með sömu þarfír. Við
þurfum öll ást. Þegar maður
áttar sig á þessu og sleppir
því að vera með stæla og
reynir að kynnast hinum eins
og þeir virkilega eru, slappar
af og segir hvað manni
fínnst, þá fer margt öðruvísi.
Já þannig er það“. Hann
þagnar og lftur á klukkuna.
„Jæja, ætli maður verði ekki
að drífa sig.“ Hann stendur
á fætur, brosir til mín og
kveður. „Vertu blessaður".
„Blessaður", segi ég og horfí
á hann hverfa útum dymar.
T!!!!!!!!?!!?!?!!?????!i??!!?!?!!!!.l!?????!??!!!!!!!!!!!!!!!!!!!?!!!!l!!!!?!!!!!!!!!!!l!?!!!!!!!!!!
GARPUR
ORBIFOU ATHyGLI 1 rzéTT SEG/e þOJ
TFElU'V/D U£/ZÐO*11 BKJd S/C4L
AO FHELS/i GARPJ J STAHDA ‘A _
J /MéfZJ
TEELA, éc, EVESr strí'&r
þARFAÐ 51/NA /*&* 06 SvO
þéf? Jt/TT8RAG£> ULN-
L/ÐNUM h
NE/, m«, ÞÉF VERÐUR.
EKK/ fAPAN OR þvi KUE£>-
/Nu. ka kannast u/ð )
Þam LOSUM OKKUR l'lÞy
:::::::::::::::::::::::::::::::::::
GRETTIR
|7/ðP Ef? ER.FITT AE> TROA pVi AV
SJOHA /VMBSIR GETI FESTifUOblA
. l'VENlOLEGRJ RfJLLUÖARPÍNU
( HVERNIG ElöU/M VIP AP \ / 06 HVERKIIQ EIGUM \
(ý-—r /\ /-fflLOSA OKKUR OR ) '^VIP AE> STANPA A FÆTUR/
\/ ^
v^~yY~jf jl>h f
J7M pAvfö I
TOMMI OG JENNI
UKM 1 1 nMul DLYMIM 1 UKIIMIM
FERDINAND
:::::::::::::::::::::
SMAFOLK
'JJfvUý Aay thccb
OfiOAVÍAwiSrt&þ tiklL
6 Jtcr Apoit Ahtú/U
c^iojr^ijstxdobuuru.
S/rn-MttfLj-uAwv
JjjCZL CUl/Þ.
Kæra amma og afi.
Það er sagt að afar og
ömmur spiili barnabörn-
um sínum.
Til er ég þegar þið eruð
ta.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Ásgeir Ásbjörnsson og
Aðalsteinn Jörgensen
nota ekki aðeins yfir-
færslusagnir eftir opnun á
grandi, heldur líka yfir opn-
unum á einum í lit. Til-
gangurinn er sá að skapa
svigrúm til að gefa áskor-
un í geim. ísland græddi
óvænt á þessari sagnað-
ferð í spili 9 í leiknum við
Holland á EM:
Austur gefur; NS á
hættu.
Norður
♦ 743
♦ ÁDG643
Vestur ♦ KG ♦ 107 Austur
♦ Á865 ♦ KDG
♦ K7 llllll ¥ 10985
♦ 985 ♦ 10643
♦ 9832 ♦ G4
Suður
♦ 1092
V2
♦ ÁD72
♦ ÁKDG5
Ásgeir og Áðalsteinn voru í
NS gegn Westra og Leufkens:
Vestur Norður Austur Suður
Leufkens Aðalst. Westra Ásgeir
— — 1 tígull Pass
2tíglar Pass 2hjörtu Pass
3 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass
Pass Pass
Tveir tíglar Aðalsteins yfír-
færðu í hjarta og síðan skoraði
hann á Ásgeir í geim.
Þrátt fyrir einspilið tók Ás-
geir áskoruninni og var feginn
þegar Leufkens spilaði út tígli.
Ásgeir tók annan tígulslag, fór
heim á lauf og henti spaða niður
í tfgulás. Þar með gat vömin
ekki fengið fleiri en þijá slagi.
Hollendingamir á hinu borð-
inu fóru einnig í geimið, en í
þeirra tilfelli varð norður sagn-
hafí og austur átti ekki í neinum
vandræðum með að spila út
spaða. Spilið fór reyndar tvo
niður og ísland græddi 13
punkta.
Leiknum lauk með 16—14
sigri íslands.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á millisvæðamótinu í Zagreb í
Júgóslavfu um daginn kom þessi
staða upp í sfðustu umferð f viður-
eign þeirra Grunfeld, fsrael, sem
hafði hvítt og átti leik, og Ehlvest,
Sovétríkjunum.
35. Hxc5! - Hxc5, 36. Bf6+ og
svartur gafst upp. Þrátt fyrir
þetta og það slæma áfall að tapa
fyrir langneðsta keppandanum
komst Ehlvest áfram á áskorenda-
mótið. Það má því segja að þessi
24 ára gamli Éistlendingur hafí
getað leyft sér að gefa keppinaut-
um sfnum a.m.k. einn vinning í
forgjöf. Sem betur fór fyrir hann
tapaði Júgóslavinn Predrag Ni-
kolic lfka í síðustu umferðinni.
Lokastaðan á mótinu varð þessi:
1. Korchnoi 11 v. af 16 möguleg-
um. 2—3. Ehlvest og Seirawan
10 v. 4—6. Nikolic, Nogueiras og
Granda Zuniga 9*/2 v. 7—11.
Torre, Polugajevsky, Eingom,
Grunfeld og Pinter 8V2 v. o.s.frv.