Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 9 Síðasta útsöluvika Karlmannaföt kr. 4.975,- 6.500,- og 2.995,- Stakir jakkar kr. 3.975,- Terylenebuxur kr. 1.195,- og 1.395,- Gallabuxur kr. 745,- og 795,- Flauelsbuxur kr. 795,- Skyrtur, peysur, nærföt o.fl. ódýrt. Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250. ÍSítLamatkadutínn Pontiac Firebird m/T-topp 1984 Rauöur, 69 þ.km. 5 gíra, bein innspýting o.fl. Fallegur sportbíll. Verö 750 þ. Chev. Suburban Scottsdale 1980 Brúnn og hvítur, ekinn aöeins 20 þ.km. Beinsk., 4 gíra (8 cyl.). Sórst. jeppi. Verö .690 þ. Chevrolet Cavalier Type-10 '85 Blásans., beinsk., 4 gíra, aflstýri, útvarp + segulb. Ekinn 51 þ.km. Verö 520 þús. Volvo 740 GLE 1984 Rauöbrúnn, 4 gíra m/overdrive, ekinn aöeins 35 þ.km. Sóllúga, litaö gler o.fl. Úrvalsbfll. Verö 740 þús. Mazda 929 Coupé 1983 hvrtur, 2000 vél, sjálfsk., ekinn 74 þ.km. Sóll- úga, rafm. í rúðum o.fl. Fallegur sportbíll. Verð 430 þús. Mazda 626 GLX 1985 Gullsans., 2000 vél, 5 gíra, ekinn 53 þ.km. Útvarp + segulb. 2 dekkjagangar, rafm. ( rúðum. Verð 460 þús. Honda Civic Schuttle 1986 Grásans., ekinn 16 þ.km. Sjálfsk., 2 dekkja- gangar, útvarp + segulb. Verð 490 þús. Dekurbfll: M. Benz 190 E 1986 Gullsans., 55 þ.km. Sjélfsk., litaö gler, sóll- úga, 2 dekkjagangar, útvarp + segulb. o.fl. Verð 1.050 þús. Ford Bronco II XL '84 55 þ.km. 6 cyl., beinsk. V. 740 þ. Honda Civic GTI '86 22 þ.km. Sóllúga o.fl. V. 750 þ. Subaru 1800 4x4 ’87 20 þ.km. 2 dekkjagangar o.fl. V. 690 þ. Ford Sierra 2000 Laser st. '87 Sjálfsk., 14 þ.km. V. 720 þ. Viljir Þú Sameina Gæði «fe Glæsileik ! 'o' •AUSTURSTRÆTI 14- S=12345- 2 P. cc < 2 ÖafeðáiIHíP Alþýðubandalagiðr Ólafur Ragnar kosinn for- maður með 60% atkvæða Gamalkunn leikflétta Frásagnir af landsfundi Alþýðubandalagsins benda til þess, að þar hafi verið beitt gamalkunnum leikfléttum af hálfu þeirra, sem áttu undir högg að sækja, vegna þess, hve stuðningsmenn Ól- afs Ragnars Grímssonar voru fjölmennir á fundinum. Hefur lokaniðurstaða fundarins einnig verið skýrð þannig af þeim, sem leggia stund á snöggsoðnar sögutúlkanir á öldum Ijósvakans, að Ólafur og hans menn hafi orðið undir alls staðar nema i formannskjörinu. í Staksteinum í dag er litið til landsfundarins. Að sitja sem lengst Þeir, sem áttu í átök- um við Kommúnistaflokk íslands á sinum tima, kynntust nœsta sérkenni- legri baráttuaðferð, til dœmis á fundum i verka- lýðsfélögum. Hún fólst i stuttu máli í þvi að sitja sem lengst og haga fund- arstörfum á þann veg, að liinir þaulsetnu fengju að segja síðasta orðið. ÖU þeklgum við það úr félagsstarfí, að sé boðað tíl fundar um eitthvert sérstakt málefni, sem vekur áhuga margra, sœkir oft fjöldi fólks fundinn og situr hann, þar til afgreiðslu þess málefnis lýkur. Hverfur siðan þorri manna af fundinum, þótt honum sé ekki formlega lokið, og geta þá hinir, sem sitja eftír ályktað i nafni hans eða tekið aðrar ákvarð- anir, sem eru á valdsviði fnndftmiannn. I tilefni af formanns- kjöri i Alþýðubandalag- inu var hart barist um hvert sætí á landsfundi flokksins. Var harkalega deilt um það fyrir fund- inn, hvaða aðferðum var beitt við val á mönnum og beindist gagnrýnin ekki síst að flokksfélag- inu i Reykjavík, þar sem stuðningsmenn Ólafs Ragnars Grimssonar höfðu undirtökin. Þegar á reyndi á landsfundin- um sjálfum sást að menn Ólafs höfðu einnig getað komið ár sinni vel fyrir borð utan höfuðborgar- innar og hann hlaut þá kosningu í formannssæt- ið, sem hann gat vel við unað. Flestír áttu von á því eftir formannskjörið á laugardaginn, að þann sama dag yrði haldið áfram að kjósa í aðrar trúnaðarstöður svo sem framkvæmdastjórn. Kjömefnd náði hins veg- ar ekki samkomulagi fyrr en siðla kvölds þann dag og létu Ólafsmenn það berast, að þeir teldu samkomulagið viðunandi fyrir hinn nýlgöraa formann. Þegar komið var tíl fundar á sunnu- dagsmorgun sóttu Ólafs- menn úr Reykjavík fundinn illa. Var sagt, að vantað hefði 21 atkvæði frá stuðningsmönnum Ólafs í Reykjavík og þeir, sem áttu harma að hefna eftír átökin miklu á Reykjavíkurfundinum, hafi verið tíl staðar og getað fyllt skörðin á svip- stundu. Voru Ólafsmenn þannig teknir í rúminu. Hinir þaulsetnu unnu sig- ur við val á mönnum f framkvæmdastjóra. Eitt elsta bragðið úr baráttu- sögu kommúnista reynd- ist enn einu sinni duga vel gagnvart andstæð- ingum arftaka gömlu klfkunnar. Nýr öxull? Þeir, sem lengst hafa staðið við merki Alþýðu- bandalagsins og málstað- ar þess, eru vanastír þvi að starfa f minnihluta. Stjóramálastarf þeirra hefur einkennst nyög af þeirri staðreynd, að þeir tejja sig jafnan eiga und- ir högg að sækja gagn- vart fjölmennari andstæðingi, þess vegna kunna þeir vel að beita þeim aðferðum, sem oft dugar minnihluta vel til að setja meirihlutanum stólinn fyrir dyrnar. ÓI- afur Ragnar Grímsson á nú opinberlega f höggi við þennan Iiðssafnað innan þess flokks, þar sem hann hefur með lög- mætum hættí verið valinn til formennsku. Athyglisvert er, að sá hópur vinstrisinna, sem helst sækist eftír að vera f minnihluta, trotskyist- arnir f Fylkingunni, Birna Þórðardóttir og Ragnar Stefánsson, gat komið sfnum baráttumál- um gegn verkalýðshreyf- ingunni inn f stjóra- málaályktun landsfundar Alþýðubandalagsins. Og hver var sá boðskapun að stéttasamvinnan, sem Svavar Gestsson, Ragnar Arnalds og Hjörleifur Guttormsson stunduðu, þegar þeir sátu f rfkis- stjórn Gunnars Thor- oddsen frá 1980 til 1983 hefði getíð af sér óhæfa forystu í verkalýðshreyf- ingunni og var þá spjót- unum sérstaklega beint að Ásmundi Stefánssyni, forseta Alþýðusam- bandsins (og Þrestí Ólafssyni?), sem sat landsfundinn. Er helst að skilja frásagnir á þann veg, að ályktun trotsky- istanna um þetta efni hafi verið rituð með ósýnilegu bleld á skjöl fundarins, þar til menn ráku allt f einu augun f hana eftír að ályktunin hafði verið samþykkL Biraa Þórðardóttir náði einnig lgöri f fram- kvæmdastjóra Alþýðu- bandalagsins. Hinir vönu minnihluta- menn beita ekki aðeins þeim aðferðum að sitja fundi, þar til meirihlut- inn hefur yfirgefið þá, þeir gera einnig banda- lög við ftllft, sem geta orðið þeim að liði. Þannig virðast trotskyistar hafa gert bandalag við and- stæðinga Ólafs við kjör f framkvæmdastjórnina, en við stuðningsmenn Ólafs við afgreiðslu ályktunarinnar um verkalýðshreyfinguna. Það er þvf lfldega kom- inn nýr og öflugur öxull f Alþýðubandalagið, sem sækir hugsjónir sínar tíl Leons Trotsky; er það svo eftir öðru á 70 ára afmæli byltingarinnar. Tíminn er dýimætur við ávöxtun peninga. Kynnið ykkur Eftirlaunasjóði einstaklinga hjá VIB. Veröbréfamarkaður Iðnaðarbankans býður þjónustu sem hentar sérstaklega þeim sem vilja leggja fyrir reglulega og ávaxta til eftir- launaáranna. SJÓÐSBRÉFUM VIB en þau bera nú 11,5- 12% ávöxtun umfram verðbólgu. Þannig geta peningarnir tvöfaldast að raun- virði á 7 árum og 15-faldast á 25 árum. Þeir eru margir sem hafa ágætar tekjur nú en eiga lítil réttindi í lífeyrissjóðum. Reglulegur sparnaður sem ávaxtaður er í eigin eftirlauna- sjóði getur því drýgt tekjurnar til muna á eftirlaunaárunum. Peningar sem eru greiddir mánaðarlega í eftirlaunasjóði einstaklinga eru ávaxtaðir í Síminn að Ármúla 7 er 68-15-30. Heiðdís, Ingibjörg, Sigurður B. eða Vilborg eru jafnan reiðubúin að veita allar nánari upplýsingar. VIB VERÐBREFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.