Morgunblaðið - 10.11.1987, Side 12
12
reimskífur
pE«
XlNG
REVI
NS^
pjÓN'
US^
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
75 ára afmæli skátastarfs á íslandi:
Fjölmenni á hátíðardag-
skrá í Háskólabíói
ÍSLENSKIR skátar minntust
viða um land 75 ára afmælis
skátastarfs á íslandi í síðustu
viku og á sunnudag var hátíðar-
dagskrá í Háskólabíói. Vigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands
og verndari skátahreyfingarinn-
ar á íslandi, var viðstödd hátíð-
ardagskránna og fjöldi annarra
gesta.
Páll Gíslason, fyrrverandi skáta-
höfðingi, setti hátíðina og í máli
hans kom meðal annars fram _að
nú séu um 16 þúsund skátar á ís-
landi og um 100 þúsund íslendingar
hefðu einhvem tíma tekið þátt í
skátastarfi. Síðan flutti Davíð
Oddsson, borgarstjóri, hátíðar-
ávarp.
Inga Jóna Þórðardóttir, sem var
í skátasveit Páls Gíslasonar á Akra-
nesi, kynnti Gunnar Eyjólfsson en
hann söng Grettisromju sem hann
samdi á sínum yngri árum sem
skáti ásamt Helga S. Jónssyni, fyrr-
um félagsforingja skátafélagsins í
Keflavík. Síðan flutti hópur skáta
söngleik um undirbúning ferðar á
alheimsskátamót í Ástralíu, sem
haldið verður um næstu áramót.
117 íslendingar fara á mótið og er
áætlað að um 20 þúsund skátar
safnist þar saman. Tuttugu manna
afmælishljómsveit skipuð skátum
úr Reykjavík og nágrenni flutti
nokkur lög, en hljómsveitin lék
einnig undir fjöldasöng á milli at-
riða. Þá kynnti Pétur Steinn
Guðmundsson, fyrrum skátaforingi
Garðbúa í Reykjavík, söngleik sem
Auður Gunnarsdóttir og Guðrún
Hólmgeirsdóttir, skátar úr Árbæj-
arhverfí, fluttu. Guðmundur Jóns-
son, sem var í stjóm Skátafélags
Páll Gíslason, fyrrverandi skáta-
höfðingi, býður Davíð Oddson,
borgarstjóra, velkominn á hátíð-
ina.
Morgunblaðið/Sverrir
Meðal gesta i fremstu röð eru Páll Gíslason fyrrverandi skátahöfð-
ingi, Davið Oddsson borgarstjóri, Ágúst Þorsteinsson skátahöfðingi,
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands, María R. Gunnarsdóttir aðstoð-
arskátahöfðingi kvenskáta og Hilmar Bjartmarz aðstoðarskátahöfð-
ingi drengjaskáta.
miklum breytingum á skátastarf-
inu. Ennfremur þakkaði hann öllum
þeim sem lögðu hátíðardagskránni
lið.
Mikill fyöldi gesta var á hátíð-
inni, öll sæti setin og þurftu sumir
að standa í göngum bíósins.
Reykjavíkur, söng tvö lög við píanó-
undirleik Ólafs Vignis Albertssonar
og 40 skátar frá Akranesi á aldrin-
um 7-11 ára fluttu Iátbragðsleik.
Bræðrabandið, skipað bræðrum úr
skátafélögunum Dalbúum í
Reykjavík og Hraunbúum í Hafnar-
firði, flutti lagasyrpu og Halla
Margrét Ámadóttir, fymim skáti í
Landnemum í Reykjavík söng tvö
skátalög við undirleik Ingimars
Eydal, sem var skáti á Akureyri.
Að lokum ávarpaði Ágúst Þor-
steinsson, skátahöfðingi, gesti og
hvatti skáta til dáða á þessum tíma-
mótum, þegar skátahreyfingin
standi að stórum verkefnum og
Tuttugu manna afmælishljómsveit lék á hátiðinni.
Vestmannaeyjar:
Þrefalt afmæli
hjá Ingólfi Te
Vestmannaeyjum.
INGÓLFUR Theódórsson neta-
gerðameistari, i daglegu tali
kallaður Ingólfur Te, er sjötiu og
fimm ára í dag. Og i ár eru fjör-
utíu ár liðin frá þvi að hann
stofnaði fyrirtæki sitt, Netagerð-
ina Ingólf og sextíu ár frá því að
hann byijaði að vinna við þá iðn,
sem varð ævistarf hans. Þvi má
með sanni segja að Ingólfur Te
eigi þrefalt merkisafmæli i ár.
Ingólfur Theódórsson er mörgum
sjómönnum og útgerðarmönnum að
góðu kunnur því að í fjörutíu ár
hefur fyrirtæki hans þjónað Eyja-
flotanum og bátum alls staðar að
af landinu.
Hann kom til Eyja fyrir flörutíu
árum, með tvær hendur tómar, en
með hörkudugnaði og ósérhlífni
byggði hann upp fyrirtæki sitt í það
að vera eina stærstu netagerð lands-
ins, þekkta fyrir að vera framarlega
á sínu sviði og innleiða nýjungar.
Ingólfur er fæddur á Siglufírði
10. nóvember 1912. Foreldrar hans
voru Theódór Pálsson og Guðrún
Ólafsdóttir. Á fimmtánda ári flutti
hann með móður sinni, þremur
systkinum og ömmu til Reykjavíkur.
Þar byijaði hann fljótlega að vinna
hjá Bimi Benediktsyni netagerða-
meistara og endaði hjá honum sem
verkstjóri. Ingólfur kom til Eyja árið
1947 og stofnaði þá fyrirtæki sitt,
netagerðina Ingólf.
í þá daga var vinnudagurinn ekki
mældur í átta tímum og oft vildu
sólarhringamir renna saman án þess
að tími gæfist til svefns þegar mest
var að gera. Þá vom net og nætur
lituð og tjörguð í stómm pottum og
var það ekki aukvisaverk, gjama.i
unnið á nóttunni, þegar tími féll til.
Og þrátt fyrir mikla vinnu hefur
hann gefið sér tíma til að sinna fé-
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Mynd sem var tekin fyrir nokkrum árum. Ingólfur, lengst til vinstri,
með starfsmönnum sinum.
lagsmálum,. meðal annars með
íþróttafélaginu Tý og Oddfellow.
Ingólfur hefur nú nýlega, eftir
fjömtíu ára giftudrjúgan starfa, selt
fyrirtæki sitt til Hraðfrystistöðvar
Vestmannaeyja. En hann mætir þó
ennþá til vinnu á hveijum degi, þó
ekki séu nú handtökin jafnsnörp og
á ámm áður. Það gustar þó enn af
Ingólfi. Virðulegur, fastur fyrir eins
og klettur í sjónum og röddin djúp
og sterk eins og brimalda. Við hlið
Ingólfs hefur í áratugi staðið kona
hans, Sigríður Inga Sigurðardóttir,
ættuð frá Skuld hér í Eyjum, kona
hress og með afbrigðum gestrisin.
Þeim hefur orðið sex bama auðið.
Ingólfur verður að heiman í dag
en Eyjamenn óska honum til ham-
ingju með daginn.
- Bjarni