Morgunblaðið - 10.11.1987, Side 14
f-
14______________MORGUNBLASIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987_
Eíns konar kveðjuskál
Leiklist
Jóhanna Kristjónsdóttir
Alþýðuleikhúsið frumsýndi i
Hlaðvarpanum:
Eins konar Alaska og Kveðjuskál
eftir Harold Pinter
Lýsing: Sveinn Benediktsson
Leikmynd og búningar: Guðrún
Svava Svavarsdóttir
Aðstoðarmaður leikstjóra: Ingi-
björg Björnsdóttir
Þýðandi Eins konar Alaskaulón
Viðar Jónsson
Þýðandi Kveðjuskálar: Sverrir
Hólmarsson
Leikstjóri: Inga Bjarnason
Hvemig er að vakna eftir „svefn"
í tuttugu og níu ár? Svefn sem var
kannski ekki svefn, þegar allt kemur
til alls. Deborah í Eins konar Alaska
hafði liðið inn í óminnisheiminn 16
ára gömul. Hvað hún skildi og skynj-
aði hefur ekki verið á hreinu. En svo
mikið er víst, að um svefn hennar
hefur líf §ölskyldu hennar snúizt í
29 ár. Systir hennar giftist læknin-
um sem sinnir henni, en hún talar
um sig sem ekkju.því að smátt og
smátt hefur læknirinn fært sig með
lífíð sitt til konunnar í óminnis-
heiminum. Það sem hugsanlega er
læknisfræðilegur áhugi í upphafi,
hefur fyrir löngu orðið að nánu til-
finningasambandi - að vísu aðeins
frá hans hendi.
Það líður að því að lyf fínnst til
að vekja Deboruh, og enginn veit
hver viðbrögð hennar verða. Hvemig
er líka hægt að vænta ákveðinna
viðbragða, þegar 16 ára stúlka vakn-
ar upp í líkama 29 árum eldri. Og
ekki nóg með það. Með því að vakna
hlýtur Deborah að raska þeirri föstu
ijölskyldumynd, sem hefur verið öll
þessi ár. Þau hafa þrátt fyrir allt
átt hana sofandi sem ákveðinn
fastan púnkt í tilverunni. Og sá
púnktur færist til, hver svo sem við-
brögð hennar verða við sjálfri sér,
þeim, umhverfinu.
Þessi listilega skrifaði þáttur
styðst við bók eftir Oliver Sachs um
svefnsjúkdóm sem gekk yfir á Bret-
landi fyrir æði löngu. Höfundurinn
heldur sig blessunarlega fjarri öllu
læknisfræðilegum vangaveltum á
fyrirbrigðum, hér er velt fyrir sér
mannlega þættinum.
María Sigurðardóttir vann óum-
deilanlegan sigur í hlutverki De-
borah, fínn, blæbrigðaríkur leikur,
þar sem fímlega var leikið á öllum
nótum. Ákaflega eftirtektarvert,
hvemig María hefur unnið hlutverk-
ið í samvinnu við leikstjóra. Margrét
Ákadóttir var systirin Pauline.
Margrét vex sem leikkona með
hvetju hlutverki og verður minnis-
stæð. Þröstur Guðbjartsson var í
hlutverki læknisins/ eiginmannsins.
Framsögn hans var of þvinguð og
hrejrfingar og svipbrigði lánuðust
ekki, svo að læknirinn yrði sú per-
sóna, sem höfundur leggur upp með.
Leikmynd Guðrúnar Svövu var hug-
kvæmnisleg hvort sem umgerðin
átti að vera feminísk eða ekki. Snjallt
verk og leiddi hugann að ævintýr-
inu. Það er sagt í jákvæðri merkingu.
Enda hljótum við stundum einmitt
að liafa v elt því fyrir okkur: hvem-
ig brást Þymirós við. Leikstjóm Ingu
Bjamason er unnin af miklu innsæi
og virðist fyrir flestu hugsað þótt
allt komi út einkar áreynslulaust.
Þýðing Jóns Viðars Jónssonar hljóm-
aði ágætlega og hæfði frumtextanum.
Seinni þátturinn Kveðjuskál segir
frá pyndingunni. Þegar einstakling-
ar eru beittir líkamlegum og andleg-
um kúgunum vegna skoðana sinna.
Taka má undir orð formanns ís-
landsdeildar Amnesty í leikskrá, að
Kveðjuskál, Arnar Jónsson sá sem tjr Eins konar Alaska, Margrét Ákadóttir, María Sigurðardóttir og Þröstur Guðbjartsson í hlut-
pyndar og hinn pyndaði Þór Tuliníus. verkum «Innm.
Jógúrt með
brómberjum og
hindberjum
Berjabragðið er betra
þegar maður
sleppur við
bakverkinn af
tínslunni.
Rjóma/jarðar-
berjaskyr
minnir á sunnudag í
sveitinni.
S unn udagsjógúrt
með banönum og
kókos
Pað liggur við að
maður drífí sig í
sólfötin.
Sunnudags-
a"vjTnonum °9 kókos
%RDS*
vTOmaBj-víUmín 2,4
•y®lJ'SBr\temín 6.4
7.1
****** 62
% 1.9
2J>
grinum út »f
1
4
I