Morgunblaðið - 10.11.1987, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
21
Nokkrir fundarmanna Nordjazz, talið frá hægri: Lasse Milller frá Eskilstuna, Timo Váhásilta frá Hels-
inki, Jan Ole Otnæs frá Osló, Poul Jörgensen frá Odense, Kjell Áke Svensson frá Stokkhóhni og Hans
Peter Joensen frá Þórshöfn.
NORDJAZZ 1987
eftirHrafn
Pálsson
Nordjazz er heiti á samvinnuhópi
fyrir jazzfélög á Norðurlöndum og
hefur til starfsemi sinnar fjárstuðn-
ing frá Norðurlandaráði. Peningun-
um er varið til að efla jazzleik á
Norðurlöndum.
Aðalfundur Nordjazz var haldinn
í Kaupmannahöfn 9.—11. október
sl., en í tengslum við þann fund
voru haldnir jazztónleikar í Mont-
martre hinn 10. október, þar sem
leikin voru frumsamin verk eftir
tónskáld frá hvetju Norðurland-
anna. Því miður voru hljómleikamir
aðeins teknir upp á hljómbönd, en
tillaga íslands á fundinum var ein-
mitt sú, að beina því til ríkisfjöl-
miðla, að vægi jazzleiks yrði aukið
í sjpnvarpi og útvarpi.
Á hljómleikunum var fullt hús,
enda stórsveitajazz að verða vinsæl-
asta tónlistarefni um allan heim á
ný, eftir langa og rafmagnaða bið.
Kari Komppa var fulltrúi Finna,
Peter Gullin fyrir Svía. en hann er
sonur Lasse Gullin, barritónsaxa-
fónleikara, sem lést aðeins 48 að
aldri, Vidar Johansen kom frá Nor-
egi og Kim Kristensen frá Dan-
mörku. Tónsmiður íslands var
Stefán Stefánsson, yfírkennari
jazzdeildar FÍH-skólans og stór-
sveitarmaður. Næst á eftir verki
Stefáns þótti undirrituðum verk
Gullins og Komppa athyglisverðust,
en þegar allri byggingu sleppir, þá
sveiflaði smíð Stefáns best og mest.
Big band danska útvarpsins lék
þessi verk með mikilli prýði.
Á Nordjazz-fundinum var síðan
ákveðið að næsta ár skyldi haldið
til Færeyja, en þar mun mikil jazz-
hátíð verða og hugsa frændur vorir
Stefán Stefánsson reis úr sæti er hljómleikagestir klöppuðu honum
lof i lófa.
í Færeyjum mjög til liðveislu héðan
frá íslandi.
Það sem eftir er árs, þá er, hvað
okkur varðar, von á Mikael Roberg,
hljómsveitarstjóra, útsetjara, kenn-
ara og básúnuleikara, hingað til
lands tvær fyrstu vikumar í nóvem-
ber. Mun hann halda fyrirlestra í
jazzdeild Tónlistarskóla FÍH, æfa
með stórsveit ríkisútvarpsins, jazz-
sveit Kópavogs og jazzhljómsveit á
Akureyri.
Er það von jazzáhugamanna, að
í kringum heimsókn Robergs verði
mikið um jazzleik í landinu og von-
andi sér útvarpið sér fært að senda
þeim, sem afskekktir em, þann jazz
á öldum ljósvakans. Það veitir ekki
af sveiflu í skammdeginu.
Höfundur er hfjóðfæraleikari og
deildarsijóri í heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytinu.
Kringlumýrarbraut;
••
Okumaður grípinn á 142 km hraða
UNGUR maður, 21 árs gamall,
var sviptur ökuréttindum sam-
stundis vegna hraðaksturs eftir
Kringlumýrarbraut aðfaranótt
laugardags. Maðurinn, sem ók
brautina til norðurs og upp á
Bústaðaveg, mældist á 142 kiló-
inetra hraða á klukkustund.
Á föstudagskvöld var annar
ökumaður sviptur réttindum á
staðnum fyrir að aka með 118
kílómetra hraða vestur Sætún.
Þar missti annar ökumaður
skírteinið, en hann ók Sætúnið á
107 kflómetra hraða. Leyfilegur
hámarkshraði um götuna er 50
km/klst. Þá vom tveir tvítugir
piltar kærðir fyrir að aka Sætúnið
á 95 km hraða og Suðurgötu á
81 km hraða.
IÐNTÆKNISTOFNUN
VERND HUGMYNDA -
EINKALEYFI
Markmið: Að gera grein fyrir mikilvægi réttarverndar
hugmynda og framleiðsluvöru og hvernig að því er stað-
ið.
Efni:
- Hvers vegna einkaleyfi?
- Sögulegt yfirlit.
- Fyrir hverju er hægt að fá einkaleyfi.
- Eignaréttur á uppfinningum.
- Vörumerkjavernd.
- Framleiðsluleyfi.
Markhópur: Hugvitsmenn og fyrirtæki, auk annarra,
sem hafa áhuga á verndun hugmynda.
Leiðbeinendur: Árni Vilhjálmsson, lögfræðingur,
Gunnar Örn Harðarson, tæknifræðingur.
Bókanir í síma (91) 687000.
Tími: 16.-17. nóvember kl. 18.00-22.00.
Staður: Iðntæknistofnun, Keldnaholti.
Frekari upplýsingar veitir Emil Thoroddsen í síma
(91) 687000.
Hekstrartæknideild.
AS E A Cylinda
þvottavélar*sænskar og sérstakar
Fá frábæra dóma í neytendaprófunum fyrir
þvott, skolun, vindingu (fjölhraða lotuvind-
ing upp í 1200 snúninga), taumeðferð, sápu-
og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi ein-
kenna ASEA. Gerðar til að endast.
í 3ár JFO niX
Hátúni 6A SiMI (91)24420
/rOniX
ábyrgð
SÉRTILBOD
ASEA Cylinda 11000
Verð áður kr. 44.990
Afsláttur kr. 7.000
Nú staðgr. kr. 37.990
Ath. tilboðið gildir
aðeins í stuttan tíma.