Morgunblaðið - 10.11.1987, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
25
Galdrabrenn-
ur kaþólskra
Bréfkorn frá Vestfirðingi til Vestfirðings
eftir Torfa Ólafsson
Kæri Sveinbjöm Jónsson.
Þú trúir því ekki hvað það fer
fyrir bijóstið á mér þegar ég heyri
eða sé einhverjum Vestfírðingnum
verða eitthvað á fyrir allra augum.
Ekki svo að skilja að mér verði aldr-
ei neitt á (það verður mér oft) eða
ég telji Vestfírðinga vera einhveija
engla, heldur rennur mér blóðið til
skyldunnar þegar eitthvað fer á
skakk hjá þeim, ég tala nú ekki um
ef þeir fara skakkt með staðreynd-
ir. Og það varð þér á í grein þinni
„Kvótatrúin", sem birtist í Morgun-
blaðinu 5. nóvember sl. Guðs mildi
að hún skyldi ekki birtast 7. nóvem-
ber því þá hefði duft Jóns Arasonar
áreiðanlega tekið kipp í gröfinni.
Þú segir nefnilega að „óprúttnir
kerfískarlar kaþólskunnar" hafí
ekki vílað fyrir sér „að láta brenna
fólk fyrir galdra og villitrú" (sic)
og þekki „við Vestfirðingar" þá
sögu vel því af þeim 25 sem brennd-
ir voru á báli á íslandi hafí 17 verið
af Vestfjörðum.
Af þessu verður ekki annað skil-
ið en það hafi verið hinir vondu
kaþólikkar sem grilluðu þessa sak-
lausu sveitunga okkar. Nei, Svein-
bjöm minn góður, kaþólikkar
brenndu ekki einn einasta mann
fyrir galdra á þessu landi. Það voru
elsku blessaðir siðbótarmennimir
sem voru að reyna að tukta þjóðina
til með þessum uppeldisverkum.
Pyrsta galdrabrennan hér var fram-
in 1625 (Jón Arason biskup var
myrtur 1550.) Þá lét Magnús
Bjömsson, sýslumaður á Munka-
þverá í Eyjafirði, er hagnast hafði
vel á upptöku klaustureigna í þágu
Danakonungs, brenna fyrir galdur
Jón Rögnvaldsson frá Sauðanesi á
Upsaströnd. Og þar með hófst
galdraæðið á Islandi, þessi ljóti
blettur á sögu þjóðarinnar.
En ég skal vera alveg heiðarleg-
ur í þessu máli. Þó að kaþólikkar
hér á landi væm saklausir af þess-
um hermdarverkum, vom þeir það
ekki erlendis. Þar vom þeir vlða
jafn helteknir af galdrafárinu og
lúterskir menn hér á 17. öld og sú
saga er ljót og kaþólsku nútíma-
fólki harmsefni eins og fleira sem
aflaga fór hjá kirkjunni, sem átti
að þafa kærleikann að leiðarljósi.
Ég er ekki að benda á þennan
ljóta þátt í sögu evangeliskrar
kirkju hér á landi til þess að sverta
hennar fólk, heldur til að sýna fram
á að það vom fleiri kettir svartir
en kötturinn páfans.
„Það voru elsku bless-
aðir siðbótarmennirnir
sem voru að reyna að
tukta þjóðina til með
þessum uppeldisverk-
um.“
Í síðari hlutanum af grein þinni,
eftir þessar hárreisandi upplýsingar
um galdrabrennumar, heldurðu
áfram að líkja vissum mönnum við
gerræðismenn kaþólskunnar, sem
bmtu andstæðinga sína undir for-
ræði sitt. En það vom fleiri en þeir
sem það gerðu á þeim tímum. Og
auk þess þarftu ekki að fara alla
leið aftur í miðaldir til að fínna við-
miðun — maður, líttu þér nær.
Hvaða vitnisburð getum við gefíð
okkar öld í því efni? Hún einkennist
af hinu skelfilegasta einræði,
grimmd og blóðsúthellingum svo
að í samjöftiuði við það em hermd-
arverk miðalda hreinn hégómi. Og
nú var ekki aðeins verið að myrða
og limlesta þá eina, sem höfðu sett
sig upp á móti „kerfinu", heldur
virtist sums staðar stefnt að þvf að
slátra öllu sem anda dró, eyða lönd
og brenna, og víða var flest það
brotið til gmnna sem fyrri kynslóð-
ir höfðu byggt upp. Og hvemig er
ástatt núna, á „friðartímunum“?
Er ekki sama leiknum haldið áfram
út um allar jarðir? Og það þótt
búið sé að kyija fagnaðarerindið
um kærleikann yfír fólki síðan það
leit dagsins ljós og mikill fjöldi þess
kalli sig kristinn — og þrátt fyrir
allar „framfarimar“ sem eiga að
gera fólk svo gott og hamingju-
samt. Nei, við þurfum ekki aftur í
miðaldir til að fínna einræði,
grimmd, manndráp og pyndingar.
Þetta er allt við tæmar á okkur enn
í dag.
En annars er ég nú kominn langt
frá tilefni þessa bréfs sem var að
leiðrétta þá missögn að kaþólikkar
hafi brennt fólk hér á landi fyrir
galdra. Það gerðu þeir aldrei.
Vertu svo blessaður og sæll og
ég bið að heilsa frændum okkar
fyrir vestan.
Höfundur er formaður Félags
kaþólskra leikmanna á íslandi.
Torfi Ólafsson
Æfinga-
Siggu Guðjohnsen
LEIKFIMI PÚLTÍMAR
Furugrund 3 Kópavogi
4ra vikna námskeið hefst
16. nóvember
Núna hefst lokaspretturinn fyrir jól. Losum
okkur við aukakílóin og byggjum upp sterkan
skrokk.
Innritun stendur yfir í síma
46055.
SJÁUMST HRESS,
Sólskin, Furugrund.
TXISnR,
Verð frá kr. 9.850.-
Útsölustaðir:
Hinir heimsþekktu
sturtuklefar og
baðhurðir
Á, Bergmann,
Stapahrauni 2,
Hafnarfirði, s: 651550
Vald. Poulsen, Rvík
B.B. byggingavörur, Rvík
Húsiö, Rvík
Pensillinn, ísafiröi
Byggirsf., PatreksfirÖi
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi
Þ. Skagfjörö, Sauöárkróki KEA byggingavörur, Akureyri Kaupf: Rangæinga, Hvolsvelli
Skapti hf., Akureyri Kaupfélagið Þór, Hellu
Kaupf. Þingeyinga, Húsavík GÁ Böðvarsson, Selfossi
Kaupf. Héraösbúa, Egilsstöðum Kaupfélag Vestmannaeyja, byggingavd.
Kaupf. Fram, Neskaupstaö Jám og skip, Keflavík
Kaupf. A.-Skaftfellinga, Höfn Trésmiðjan Akur hf Akranesi.
1988 árgerðin af Skutlunni
frá Lancia kostar nú að-
eins 313 þúsund krónur.
Þú gerir vart betri bíla-
kaup!
Opið laugardaga
frá kl. 1-5.
BÍLABORG HF.
FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99.