Morgunblaðið - 10.11.1987, Page 26

Morgunblaðið - 10.11.1987, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 Hugleiðing1 um barnabók eftirRósuB. Blöndals Guðni Kolbeinsson er nú fyrir löngu þekktur um land allt fyrir bráðskemmtilega þætti, bæði í út- varpi og sjónvarpi, ýmist fyrir böm eða fullorðið fólk. Broslegir og skemmtilegir eru ýmsir kvikmyndatextar sem hann hefur þýtt, svo sem Ættarsetrið og „Já, ráðherra". Þá einnig fróðleiksþættir, m.a. þar sem Guðni hefur sagt skýringar mjög skilmerkilega. Bamasagan „Mömmu strákur" kom út 1982. Hún hlaut verðlaun, sem vom verðskulduð. Að vísu sömu verðlaun og veitt höfðu verið fyrir allt önnur vinnubrögð, þar sem orðfæðin tjóðraði bömin á snöggum bletti, ilmgrös og vatnslindir tung- unnar, rétt fyrir utan, þar sem tjóðrið náði ekki til. Einkum var þetta hjá Ríkisútgáfu námsbóka. Guðni las söguna fyrst í útvarp. Ég heyrði sagt að böm fylgdust vel með, því að skýrt og fallega var lesið. Loksins var þá skrifuð bama- bók, sem er listaverk frá upphafi til enda. Höfundur fer ekki eftir þeirri útlendu fyrirmynd sumra bama- bókahöfunda, að setja sig í asna- Austurgerði o.fl. Birkihlíð Lerkihlíð KÓPAVOGUR Holtagerði stellingar til þess að semja bók fyrir þessa litlu asna, sem ýmsir bama- bókahöfundar virðast halda að böm séu. Og skrifa svo eitthvað nógu heimskulegt og fátæklegt á sértil- búnu orðfæðarmáli, sem þeir ímynda sér að auðveldast sé fyrir böm að skilja, halda að þau skilji ekki auðugt mál. Þar skýtur þó heldur skökku við. Guðni Kolbeins- son hefur náð því sem ég held að engum bamabókahöfundi sem ég hefí lesið hafí nokkm sinni tekist jafn vel. Hann túlkar fjarskalega trútt, einfalda, hræsnislausa og skýra hugsun bamsins, og nær ákaflega vel viðhvörfum fullorðna fólksins við spumingum, hugsunum og svörum bamsins. Þrátt fyrir væntumþykju, umhyggju og náin kynni við bamið, litla drenginn Helga, koma spumingar og ýmsar athugasemdir litla, hugkvæma drengsins bæði móður hans og vina- fólki á óvart. Óspillt böm em nefnilega skörp og skýr í hugsún og því fremur sem þau em greindari. Þau em sjónnæm á ýmislegt sem á að halda leyndu fyrir þeim, sjá fullorðna fólkið furðu vel í gegn. Og kemur sér ekki allt vel það sem orð er haft á í full- komnu sakleysi. Bókin er öll á góðri íslensku. Stíllinn er aldeilis bráðlifandi. Guðni er ósmeykur við að skrifa auðugt mál fyrir bömin. Hann læt- ur drenginn t.d. taka eftir því að Steingrímur vinur hans kallar klein- umar hnossgæti. Fallegt orð, að mestu horfíð úr daglegu máli. Óþvingað kemst þetta prýðilega orð þannig inn í vitund bamsins sem les. Sem vænta mátti gerir Guðni Kolbeinsson sér ljósa grein fyrir því, að böm skilja orð af samhengi málsins eins og annað fólk. Orð skilst af orði, eins og ljós kveikist af ljósi. Einhver versti út- lendur, innfluttur draugur var það, þegar farið var að búa til sérstakt mál fyrir böm. Mál sem átti að miðast við þann orðaforða sem höf- undur ímyndaði sér að 5—8 ára bam hefði. Og markmið bókanna var að bæta engu við þann orða- forða. Auk þess var byijað á að miða við orðfæð útlendra bama í fátækrahverfum og verksmiðju- hverfum. Hver var orðaforði íslenskra bama, sem kunnu mörg vers og vísur og lög þegar þau vom 3, 4 eða 5 ára, sem algengt var á íslandi? Mikið ákaflega nær hann Guðni vel samtali bama, uppátækjum og Rósa B. Blöndals „Barnabók þarf að vera góð fyrirmynd að gerð og stíl. Vegna þess að „af því læra börnin málið, að það er fyrir þeim haft“. Og þess vegna ekki sama hvers konar mál það er.“ öllum hugsunarhætti. Málið er ein- falt, auðugt, létt aflestrar, mikill hraði, sískiptandi myndir, vekur alltaf löngun til að heyra meira. Hér er hin einfalda list. En ein- falt mál er ekki alltaf það sama og einföld list, síður en svo. Svo einf- alt er það nú ekki. Og það er nú ekki nema þegar drengurinn, sem aldrei hefur séð föður sinn, en veit að hann er í Reykjavík, heldur að hann hljóti að koma inn í strætisvagninn og spyr hvort þessi eða þessi sé ekki pabbi sinn. Hvað þetta er eðlilegt fyrir bam- ið og setur stúlkuna frænku hans í vandræði þegar fólkið fer að hlæja, sumt. Og náttúrulega skilur drengurinn ekki hvers vegna stúlk- an flýtir sér út úr vagninum áður en þau eru komin alla leið eða af hveiju hún er reið. Þannig nær höfundurinn sífellt ömggum tökum á viðskiptum þeirra sem búa í heimi bamsins og hinna sem komnir eru inn í heim fullorðna fólksins, ásamt því broslega. Þetta er hin fágæta snilld. Öll böm verða fegin að sagan endar vel, því þeim þykir orðið vænt um drenginn. Það út af fyrir sig er mjög mikils vert. Ljúfur, skilningsríkur, bamgóður maður verður stjúpfaðir drengsins. Hann hefur ekki lært í neinum skóla að umgangast böm, heldur er hann að eðlisfari bamgóður og hlýr. Það var þó ekki vandalaust að taka litla, gáfaða, hugkvæma drenginn að sér. Það sést meistara- lega vel, hvemig í þá hættu skín að litli drengurinn yrði úti, jafnvel þó að hann kæmi heim og gæfist upp á þeirri hugmynd sinni að verða útilegumaður. Sagan er án allrar prédikunar, lærdómsrík fyrir fullorðið fólk, ef það hugsar. Ef fullorðið fólk getur annars nokkuð lært. Og þótt það sjái eða læri eitthvað, ræður það ekki alltaf við örlögin. Ég las kaflann um það fyrir fjög- urra ára dreng þegar Steingrímur var að kenna Helga að telja. Og Helgi taldi 13, 14, 15, 16, 17, 18, 19 og títján. Drengurinn skellihló, þegar Helgi sagði títján. Þá kom það upp að drengurinn sem ég var að lesa fyrir kunni að telja. Annars hefði hann ekki skilið fyndnina í 18, 19, títján. Hann velt- ist alltaf um að hlæja ef ég fór að telja eins og drengurinn. Og upp kom að hann kunni sjálfur að telja upp að 100. Það er ekki lítið merki- leg bamabók sem leiðir mann í sannleikann um svona atriði varð- andi smábam, sem lesið er fyrir. Tíu ára drengur, sem las bókina, sagði að hún væri mjög skemmti- leg. Það tel ég mikilsverðan eða mest verðan dóm um bamabók, þegar smábam getur haft gaman af sumum köflunum og stálpað bam er hrifíð af bókinni. Þá langar mig að minna á að bókin „Mömmu strákur" er bók sem jafnvel 3 ára bam var hrifíð af. Mömmu strákur er jafn skemmtileg bók fyrir böm, unglinga og fullorð- ið folk. Ánægjuleg bók frá upphafí til enda. Bömin grípa það glettna, sniðuga og hlægilega, fullorðna fólkið fínnur um leið vandann, sem þama er tekir.n til meðferðar og alvarlegan undirtón, sem felst und- ir gamansemi. Þar fyrir utan hugljúfur, glaðvær blær, sem minnir á höfundinn sjálfan. Þessi bamabók er sérlega vel til valin gjöf. Bamabók þarf að vera góð fyrirmynd að gerð og stfl. Vegna þess að „af því læra bömin málið, að það er fyrir þeim haft“. Og þess vegna ekki sama hvers konar mál það er. í umræddri bók em bömin ekki tjóðmð við lágmarks orðaforða á snöggum bletti hjá grængresi og vatnslind, sem ekki næst í. Hér má segja að séu „niðandi vötn minnar tungu". Eðlilegt mál, lifandi blæ- brigði tungunnar. Svo góður bamabókahöfundur hefur ekki komið fram síðan „Ærokkur An- sen“ var skrifaður, þegar I.M. Bjamason og þeir Sigurbjöm Sveinsson, séra Friðrik og Nonni vom uppi. Sigurbjöm Sveinsson tekur þá held ég öllum fram. Hann byggir svo fallega upp í trú. Hann er mesta ævintýraskáldið. En Guðni Kolbeinsson nær öðm sviði meist- aralega vel. Mismuninum á heimi bams og hugarheimi fullorðins manns. Og hvemig það rekst á, fram sett með gamni og alvöru. Þeim tökum er ekki vandalaust að ná. Það er snilld. Ef Guðni hefði nefnt Guðs nafn, eða eitthvað í þá átt, þá held ég hefði nú „skriplað á skötu" hjá verðlaunanefndinni. Þeim til athugunar, sem halda að böm þurfí orðabók til þess að læra Jónasarsögu Jónssonar, ætla ég að segja að ég veit að Guðni Kolbeinsson las alla Sturlungu á einni viku þegar hann var 11 ára rall. Hann þurfti ekki orðabók. vona að böm, sem fá bókina hans í jólagjöf, geti lesið hana orða- bókarlaust. Þau munu samt læra þar mörg ný orð. Og þannig á bamabók að vera. Nú er mér spum: Hefur verið bent á bókina „Mömmu strákur" til þýðingar á önnur tungumál? Höfundur er ríthöfundur. Símar 35408 og 83033 AUSTURBÆR ■ UTHVERFI Lindargata 39-63 o.fl. VESTURBÆR Ægisíða 80-98 o.fl. Nýlendugata SELTJNES Sæbraut v GLIT Höfðabakka 9 Sími 68 54 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.