Morgunblaðið - 10.11.1987, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
Noregur:
Talin af í stríð-
inu en fundust
á lífi í Malmö
- bók um málsatvik væntanleg
Ósló. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÉRKENNILEGT mál frá því í stríðinu hefur skotið
upp kollinum í Noregi. Atvik málsins eru þau að áríð
1943 hurfu fjórar persónur á fiskibátnum Brenning
útaf vesturströnd Noregs. Allir sem um borð voru tald-
ir af. Tveir farþegar í bátnum, norsk kona og aust-
urrískur hermaður, hafa nú fundist á lífi í Malmö í
Sviþjóð. Þetta mál hefur oftsinnis veríð til umfjöllunar
í norskum dagblöðum og nú er væntanleg bók um at-
burðina.
Haft hefur verið uppá norsku
konunni og austurríska her-
manninum þar sem þau búa í
Malmö. Konan, sem var gift og
átti þrjú böm, flýði ásamt her-
manninum austurríska, sem
hafði verið sendur nauðugur af
Þjóðveijum til Noregs. Flóttapa-
rið fékk tvo bræður, sem áttu
fískibát, til að flytja sig milli
staða við vesturströndina. Bátur-
inn sást síðast á siglingu í firði
á vesturströnd Noregs en síðan
spurðist ekkert til hans eða far-
þeganna.
Foreldrar bræðranna héldu að
þeir hefðu freistað þess að sigla
til Englands og farist á leiðinni.
Fjölskyldur hinna töldu þau látin,
allt fram til ársins 1964 að kon-
an þekktist á mynd sem birtist
í sænsku tímariti. Reynt var að
hafa samband við hana en hún
faldi sig. Árið 1976 fannst flak
bátsins, í flakinu fundust þýsk
vopn og tóm skothylki.
Höfundur bókarinnar „Tveir
lifandi, tveir látnir", hefur nú
haft upp á norsku konunni og
austurríska hermanninum í
Malmö. Þar búa þau rólegu lífi
og eiga tvö uppkomin böm. Þau
giftu sig á löglegan hátt í Svíþjóð
undir fölskum nöfnum. Hermað-
urinn fyrrverandi segir í samtali
við norska blaðið Verdens gang
að hann muni ekki hvað gerðist
á bátnum. Hann brast í grát
þegar hann var spurður um af-
drif bræðranna.
>
„Við höldum að þeir hafi verið
skotnir og bátnum sökkt. Daginn
sern báturinn hvarf var veður
gott og óhugsandi að hann hafi
farist af slysfömm," segja ætt-
ingjar bræðranna. Norska lög-
reglan mun grandskoða bókina,
sem væntanleg er á markaðinn
í Noregi. Hafí eitthvað brotlegt
átt sér stað er það fyrir löngu
fymt.
Frakkland:
Dæmdur fyrir njósnir
í þágn Sovétríkjanna
Rennes, Frakklandi. Reuter.
FRANSKUR maður, Bernard
Sourisseau, sem njósnaði fyrir
Sovétríkin um ferðir kjarn-
orkukafbáta Frakka, var
dæmdur í sex ára fangelsi á
laugardag.
Sourisseau, sem er 43 ára að
aldri, neitaði ákæmnni. Hann var
fundinn sekur um að hafa fengið
sovéskum borgara í Frakklandi í
hendur hemaðarleyndarmál um
franskar flotastöðvar, þar sem
kafbátar, sem bera kjamorkueld-
flaugar, hafa samastað.
Sourisseau sagði fyrir rétti í
Rennes í Vestur-Frakklandi, að
hann hefði samþykkt að vinna
fyrir Sovétríkin, en aðeins vegna
þess að franska leyniþjónustan
hefði lagt blessun sína yfir gjörðir
hans.
Leyniþjónustan hefur vísað
þessum fullyrðingum hans á bug
■ ■■
ERLEN1V
með þeim ummælum, að hann
hafi aldrei fengið leyfi hennar til
að njósna.
Vmnuborð
og vognor
Iðnaðarborð, öll sterk og
stillanleg. Með og án hjóla. Hafðu
hvern hlutvið hendina, það léttir
vinnuna og sparar tímann.
Leitið upplýsinga.
UMBODS OG HEILDVERSLUN
BÍLDSHÖFDA W SIMI 67 24 44
33
Reuter
Ritvél
Adolfs Hitler
ÓÞEKKTUR maður greiddi á laugardag
tæpa tvær og hálfa milljón króna fyrir
ritvél, sem Adolf Hitler átti og áritað
eintak af bók hans „Mein Kampf". Mun-
ir þessir vom boðnir upp ásamt nokkram
bréfum Hitlers í Miinchen í Vestur-
Þýskalandi. Hitler gaf ritara sínum
Emil Maurice ritvélina, sem er af Rem-
ington-gerð, árið 1925 í þakklætisskyni
við þá aðstoð sem Maurice hafði veitt
honum er hann vann að „Mein Kampf".
í þeirri bók lýsir Hitler stjórmálakenn-
ingum sínum og áætlunum um heims-
yfírráð. Hitler gaf einkaritaranum einnig
áritað eintak af bókinni er hún kom út
í Miinchen. Gripir þessir hafa verið í eigu
fjölskyldu Emils Maurice og segja sér-
fræðingar að enginn vafi leiki á að Hitler
hafi ritað „Mein kampf" á Remington-
vélina.
LÍKAM5RÆKT OG MEGRUH
Fyrir konur é öllum aldri. Ftokkar sem hæfa öllum.
2.KERFI
FRAMHALDSFLOKKAR
Lokaðir flokkar. tyngri tímar, aðeins fyrir vanar.
3.HERFI
RÓLEGIR TÍMAR
Fyrir eldri konur, eða þær sem þurfa að fara varlega.
4.KERFI
MEGRUHARFLOKKAR
Fjórum sinnum í viku fyrir þær sem þurfa og vilja missa
aukakitomVJRé. "" ~v~*~ —~—
'5.RERFI
FYRIR UHGAR OG HRE55AR
Teygju — þrek — jazz.
Eldfjörugir tímar með
léttri jazz-sveiflu.
Mýjar perur / öllum lömþum.
Morgun-, dag-MgJsyöJdtjnTar
Suðurveri, sími 83730 Hraunbergi, simi 79988
Suðurveri og Hraunbergi
Síöasta aaaskeii
'm ™ )Éwm
Ertu í góðu formi?
Þarftu að fara í megrun?
SSETTASEM TREYSTERÁ
&TDK