Morgunblaðið - 10.11.1987, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
Nicaragua:
Lengra er ekki
hægtaðganga
- segir Ortega forseti um tilboð
stjórnarinnar um vopnahlésviðræður
New York, Reuter.
DANIEL Ortega forseti Nic-
aragiia hefur sagt, að með
þvi að bjóða kontra-skærulið-
um viðræður um vopnahlé
með hjálp milligöngumanns
hafi hann og stjórn hans
gengið eins langt og hægt sé
í undanlátssemi við kontra-
skæruliða.
í viðtali sem birtist í síðasta
tölublaði fréttatímaritsins Time
er haft eftir Ortega að beinar
samningaviðræður séu útilokað-
ar. „Hingað og ekki lengra,“
sagði Ortega í samtalinu. Við-
talið í Time var birt sem hluti
af umfjöllun tímaritsins um
ástandið í Nicaragua, nú þegar
vopnahlé milli stríðandi afla í
landinu átti að vera gengið í
gildi samkvæmt samkomulagi
sem fimm leiðtogar Mið-
Ameríkuríkja undirrituðu að
undirlagi Oscars Arias forseta
Costa Rica í ágústmánuði
síðastliðnum. í Time kemur
fram að ástand í Nicaragua
hafa versnað mjög síðan sandin-
ista-stjómin tók við völdum
1979.
Miguel Obando y Bravo erki-
biskup, sem hefur verið beðinn
um að vera milligöngumaður í
vopnahlésviðræðunum, sagði í
kirkju sinni í Managua um helg-
Markaðurinn:
Seðlabanka-
stjórar ráða
ráðumsínum
Basel, Reuter.
BANKASTJÓRAR nok-
kurra helstu seðlabanka
heims hittust i gær í Basel
til þess að ræða þá erfið-
leika, sem steðja að fjár-
hagsmörkuðum heimsins.
Talið er að þeir muni mest
fjalla um fall Bandaríkja-
dals, en gengi hans hefur
farið hríðlækkandi frá þvi
að verðbréf hrundu í verði
fyrir þremur vikum.
Talið er að bankastjóramir
kunni að gefa út einhveija yfir-
lýsingu að loknum fundi, sem
væntanlega yrði þá til þess
ætluð að slá á ótta manna um
frekara fall dalsins. Flestir
embættismenn hafa þó verið
þöglir sem gröfín um gang
fundarins.
„Þetta er einkafundur seðla-
bankastjóra," sagði Robin
Leigh-Pemberton, bankastjóri
Englandsbanka við frétta-
menn. „Nærvera ykkar er ekki
til gagns." Satoshi Sumita,
seðlabankastjóri Japans, sagði
á hinn bóginn að hann hefði
rætt við Alan Greenspan, seðla-
bankastjóra Bandaríkjanna, og
að þeir hefðu verið ásáttir um
að reyna að stuðla að stöðugra
gengi jens og Bandaríkjadals.
Jóhannes Norðdal, seðla-
bankastjóri, situr fundinn fyrir
íslands hönd.
ina að slíkar viðræður væm
ævinlega erfíðar en „við verðum
að reyna og ef aðilar em ekki
sveigjanlegir geta slíkar viðræð-
ur staðið mánuðum saman og
kostað miklar blóðsúthellingar“.
Obando y Bravo gefur í vikulok
endanlegt svar um hvort hann
annast milligöngu í viðræðun-
um.
Sem sjá má var sprengingin gifurleg, en til vinstri á myndinni er minnismerki um þá
i heimsstyijöldunum báðum.
Reuter
Breta, sem létust
Hryðjuverkið í Enniskillen á N-írlandi:
Formælandi IRA-sveita
gengst við ódæðinu
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ELLEFU manns létust og 65
særðust i sprengjutilræði í Enn-
iskillen á Norður-írlandi á
sunnudag, er minningarathöfn
um látna í heimsstyijöldunum
tveimur var að hefjast. Þetta er
versta hryðjuverk á Norður-írl-
andi síðan 1982. Formælendur
írska iýðveldishersins, IRA, sögðu
síðdegis i gær, að samtökin bæru
ábyrgð á ódæðinu. Sprengjan
hefði sprungið of snemma. Hún
hafi verið ætluð breskum öryggis-
sveitum. Stjórnmálamenn á
Bretlandi og írlandi hafa for-
dæmt verknaðinn. Margaret
Thatcher forsætisráðherra kall-
aði hann vanhelgun á hinum
látnu.
Sprengjunni var komið fyrir inni
í samkomusal í miðbæ Enniskillen,
um 15 metra frá minnismerki um
fómarlömb styijaldanna. Hún
sprakk 15 mínútum fyrir ellefu á
sunnudag án þess að nokkur viðvör-
un væri gefin. Þá var fólk í bænum
að safnast þar saman til að taka
þátt í minningarathöfninni, eins og
gert var annars staðar í landinu.
Nokkur hópur fólks hafði safnast
saman við vegg samkomusalarins til
þess að bíða þess, að athöfnin byij-
aði, en henni hafði seinkað nokkuð.
Hefði athöfnin byijað á réttum tíma,
hefðu miklu fleiri látist.
Ellefu manns létu lífið í spreng-
ingunni, 65 særðust, 20 eru enn á
sjúkrahúsi og fímm þeirra þungt
haldnir. Þrettán þeirra, sem særð-
ust, voru böm, sem hugðust leggja
blómsveig á fyrrgreint minnismerki.
Næstum allir, sem létust, voru
óbreyttir borgarar. Sammy Foster,
bæjarstjómarmaður í Enniskillen,
segir, að eftir sprenginguna hafi
verið þykkur rykmökkur yfir öllu og
hann hafi hlaupið í gegnum kófíð
til að athuga, hvað hann gæti gert.
„Ég reyndi að hjálpa einum manni,
en hann var illa á sig kominn, fastur
upp við grindverk og blóðið spýttist
úr honum. Það kom læknir og sagði
mér, að þetta væri ekki til neins.“
Einróma fordæming
Elizabeth Englandsdrottning
sagði í yfirlýsingu, að sig hefði
hryllt við að heyra af grinimdarverk-
inu í Enniskillen og saklausum
fómarlömbum, sem tóku þátt í minn-
ingarathöfn þjóðarinnar. Thatcher
forsætisráðherra sagði, að allar þjóð-
ir sýndu látnum virðingu og byggjust
við, að aðrir gerðu slíkt hið sama.
„Það er vanhelgun á hinum látnu
að nota sér það að fólk safnist sam-
an í þessum tilgangi." Neil Kinnock,
leiðtogi Verkamannaflokksins,
sagði, að þetta væri grimmdarverk
gegr. venjulegu fólki, sem hefði ver-
ið að heiðra þá, sem börðust fyrir
því frelsi, sem hryðjuverkamenn vilja
eyða. David Steel, leiðtogi fijáls-
lyndra, og Charles Haughey, forsæt-
isráðherra írlands, hafa fordæmt
verknaðinn. Það sama gerði sovéska
fréttastofan Tass, en venjulega skýr-
ir hún _ þannig frá atburðum á
Norður-írlandi, að sterkrar andúðar
gætir á breskum yfirvöldum.
Síðdegis í gær sagði Gerry Ad-
ams, forseti Sinn Fein, sem er
piólitískur armur IRA: „Ég ætla ekki
að reyna að réttlæta verknaðinn.
Ég harma hann mjög.“ Skömmu
síðar gekkst IRA við sprengingunni.
Talsmenn mótmælenda á Irlandi
hafa haft uppi stór orð um hefndir
vegna þessarar árásar að undirlagi
katólskra.
Vopn frá Líbýu
Búist hefur verið við um nokkurt
skeið, að IRA gripi til hryðjuverka.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein,
stjómmálaarms IRA, varaði við því
á aðalfundi flokksins í Dublin fyrir
rúmri viku, að slíkt væri yfirvof-
andi. Ástaeðan er áföll, sem IRA
hefur orðið fyrir á þessu ári. Þrettán
félagar úr IRA hafa látið lífið í átök-
um við yfirvöld. Um síðustu helgi
tóku yfirvöld í Frakklandi bátinn
Eksund í franskri landhelgi, en hann
var drekkhlaðinn vopnum og
sprengiefni. Nú er talið alveg ör-
uggt, að það hafi allt átt að fara til
IRA og allur farmurinn hafi verið
frá Líbýu. Um borð var einn af leið-
togum IRA. Einnig hefur yfírvöldum
hér í Bretlandi tekist í samvinnu við
bandarísk yfírvöld að draga úr
vopnasendingum þaðan til IRA.
Embætti dómara í hæstarétti Bandaríkjanna:
Ginsburg dregur sig í hlé
sökum marij uananeyslu
Waahington, Reuter.
DOUGLAS Ginsburg, sem Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hafði
útnefnt til embættis dómara í hæstarétti Bandarikjanna, hefur ákveð-
ið að draga sig i hlé. Ginsburg sagði í siðustu viku að hann hefði
neytt fíkniefnisins marijuana stöku sinnum á sjöunda og áttunda ára-
tugnum. Almennt er litið svo á að þetta sé mikið áfall fyrir Reagan.
Tveir menn sem hann hafði tilnefnt til starfans hafa nú neyðst til
að draga sig í hlé. Dómsmálanefnd öldungadeildar Bandarikjaþings
neitaði i siðasta mánuði að leggja blessun sína yfir tilnefningu Ro-
berts Bork og nú hefur Ginsburg orðið að draga sig í hlé fyrir syndir
sem almenningur telur fremur léttvægar ef marka má skoðanakannan-
Ginsburg lýsti yfir því í Hvfta
húsinu á laugardag að hann hefði
ákveðið að fara þesss á leit við Reag-
an að hann hætti við tilnefninguna
þar sem athyglinni hefði um of verið
beint að einkalífi sínu. „Því miður
hefur athyglin beinst að einkalffí
mínu og atburðum sem áttu sér stað
á árum áður. Skoðanir mínar á túlk-
un laga og hæfni mín til að gegna
embætti hæstaréttardómara hafa
fallið í skuggann," sagði Ginsburg.
Hann hrósaði mjög framgöngu
Nancy og Ronalds Reagan en þau
hafa leitt herferð gegn fíkniefna- og
eiturlyflaneyslu í Bandaríkjunum.
„Ég styð þau í hvívetna og vona að
ungt fóik, þar með taldar dætur
mínar, geti lært af mistökum mínum
og hlusti á vamaðarorð þeirra
hjóna," sagði Ginsburg. Reagan for-
seti sagðist vera hryggur vegna
þessara málaloka og lofaði fram-
göngu Ginsburgs sem hann sagði
hafa einkennst af „óeigingimi" og
„skýrri hugsun". Kvaðst forsetinn
ætla að tilnefna annan mann til starf-
ans mjög fljótlega og sagði ónefndur
bandarískur embættismaður að nýr
maður yrði að lfkindum útnefndur á
næstu dögum.
Nýttnafn
Bandaríska dagblaðið The Wash-
ington Post skýrði frá því í gær að
aðstoðarmenn forsetans hefðu lagt
til að hann útnefndi Anthony
Kennedy. til embættis hæstaréttar-
dómara. Kenndy er 51 árs gamall
og hefur gegnt embætti dómara í
Sacramento í Kalifomíu. Hann var
kallaður til fundar við ráðamenn í
Hvíta húsinu á laugardag. Níu dóm-
arar sitja i hæstarétti Bandaríkjanna
en fimm mánuðir eru nú liðnir frá
því að Lewis Powell lét af störfum.
Miklu er talið skipta fyrir Reagan
og Repúblikanaflokkinn að íhaldsam-
ur dómari fylli skarð Powells og
hefur verið sagt að með þessu móti
geti íhaldsmenn tryggt áhrif sín inn-
an hæstaréttar um ókomin ár.
Repúblikanar, flokksmenn Reag-
ans forseta, hafa aðstoðarmenn
foreetans vegna þess hvemig staðið
hefur verið að tilnefningum þeirra
Borks og Ginsburgs. „Mér sýnist
þetta dapurlegur vitnisburður um
hæfni starfsliðs Hvíta hússins," sagði
Newt Gingrich, þingmaður Repúblik-
anaflokksins. „Ég er ósáttur við
hvemig starfslið Hvíta hússins tók á
málinu og hvemig Ginsburg brást
við,“ sagði Larry Pressler, þingmað-
ur frá Suður-Dakóta. Þá gagnrýndu
menn einnig Howard Baker, starfs-
mannastjóra Hvíta hússins, fyrir að
hafa ekki stutt við bakið á Ginsburg.
Þetta er í fyrsta skipti frá árinu
1970 sem tvívegis mistekst að tiln-
efna mann til embættis hæstaréttar-
dómara.
Erf iðleikar Ginsburgs
Reagan útnefndi Ginsburg þann
29. október eftir að dómsmálanefnd
öldungadeildarinnar hafði hafnað
Robert Bork í atkvæðagreiðslu. And-
stæðingar Borks töldu hann fram
úr hófi íhaldssaman í tilteknum mál-
um. Athygli flölmiðla beindist strax
að einkalífi Ginsburgs. Fullyrt var