Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
39
Kasparov ættí að taka forystuna
Skýk
Margeir Pétursson
Það getur fátt komið í veg
fyrir sigur Gary Kasparovs
heimsmeistara í elleftu einvígis-
skák hans við Anatoly Karpov í
Sevilla. Þegar skákin fór í bið í
gærkvöldi hafði Kasparov
skiptamun yfir í endatafli og
ætti ekki að verða skotaskuld úr
að vinna skákina í kvöld þegar
hún verður tefld áfram. Staða
Karpovs var það slæm að það er
hugsanlegt að hann gefist upp
án frekari taflmennsku. Vinni
Kasparov hefur hann í fyrsta
sinn náð forystu i einvíginu, en
staðan er nú jöfn, báðir hafa
hlotið fimm vinninga.
Kasparov beitti Grunfelds-vöm í
skákinni í gær, eins og í öllum öðr-
um skákum sínum á svart í ein-
víginu til þessa. Vinni hann elleftu
skákina er hún mjög mikilvæg fyr-
ir heimsmeistarann að því leyti að
honum hefur aldrei áður tekist að
leggja Karpov að velli með þeirri
byijun, en mátt þola nokkur slæm
töp.
Karpov seildist enn einu sinni í
peð í tólfta leik, en sá leikmáti hef-
ur gefist honum vel fram að þessu.
Nú skipti Kasparov strax upp í
endatafl, sem reyndist vera örugg-
ara en það framhald sem hann
hefur valið f fyrri skákum. Karpov
var ætíð peði yfír, en það var tvípeð
og hafði lítið að segja. Hann þráað-
ist tvívegis við að taka jafntefli með
þráleik, en að lokum varð sigurvilj-
inn honum að falli. Hann lagði út
í mjög hæpnar sóknaraðgerðir sem
enduðu með því að hann varð að
láta af hendi skiptamun.
Annað hvort hefur Karpov orðið
á gróf yfírsjón, eða þá hann hefur'
fómað skiptamuninum, en gjörsam-
lega misreiknað afleiðingamar.
11. einvígisskákin:
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Gary Kasparov
Griinfelds-vöm
1. d4 - Rf6 2. c4 — g6 3. Rc3 -
d5 4. cxd5 — Rxd5 5. e4 — Rxc3
6. bxc3 — Bg7 7. Bc4 — c5 8.
Re2 - Rc6 9. Be3 - 0-0 10. 0-0
- Bg4 11. f3 - Ra5 12. Bxf7+
Það er með ólíkindum ef þetta
óásjálega peðsrán er orðið öflugasta
vopn hvíts gegn Griinfelds-vöm.
12. - Hxf7 13. fxg4 - Hxfl+
14. Kxfl - Dd6
Kasparov hefur nú horfíð aftur
til þeirrar leikaðferðar sem hann
beitti í fímmtu og sjöundu skák-
inni. í þeirri níundu lék hann hins
vegar 14. — cxd4 15. cxd4 — Db6
16. Kgl - De6 17. Dd3 - Dxg4,
en tókst ekki að jafna taflið fyrr en
í endatafli.
15. Kgl
í fimmtu og sjöundu skákunum
lék Karpov hér 15. e5!?, sem hefur
þann mikla ókost að svartur nær
yfírráðum á hvítu reitunum á mið-
borðinu. Þrátt fyrir þetta vann
Karpov fímmtu skákina og átti
mjög góða vinningsmöguleika í
þeirri sjöundu, en þessi ágæti
árangur var þó tæplega byrjuninni
að þakka.
15. - De6 16. D43 - Dc4!?
Kasparov beitir nú ólíkri leikað-
ferð en í níundu skákinni. Þá drap
hann á g4 í svipaðri stöðu.
17. Dxc4 - Rxc4 18. Bf2 - cxd4
19. cxd4 - e5! 20. d5 - Bh6 21. h4
Hvítur hefur aldrei tíma til að
leika a2-a4. T.d. 21. a4 — Rd2 22.
Rg3 — Bf4 með fullnægjandi mót-
spili.
21. - Bd2 22. Hdl - Ba5 23.
Hcl - b5 24. Hc2 - Rd6 25. Rg3
- Rc4 26. Rfl - Rd6 27. Rg3 -
Rc4 28. g5 - Kf7 29. Rfl - Rd6
30. Rg3 - Rc4 31. Kfl - Ke7!
Eftir mikinn þæfíng gefur Kasp-
arov andstæðingi sínum færi á að
vinna leiki með því að skáka. Aldr-
ei þessu vant bítur Karpov á agnið.
32. Bc5+ - Kf7 33. Hf2+ - Kg7
34. Hf6?
34. - Bb6!
Það er nú þegar orðið ljóst að
Karpov hefur teygt sig of langt
í tilraunum sínum til að bijótast
út úr þráteflinu. 35. Bxb6 — axb6
36. h5 - Ha3! 37. h6+ - Kg8 er
nú nokkuð hæpið fyrir hvít og
sömuleiðis 35. Be7 — He8 36. d6
- Bd8! 37. He6 - Rxd6. Þessir
kostir eru þó mun betri en að
láta af hendi skiptamun, eins og
Karpov gerir. Með nokkrum ein-
földum millileikjum nær Kasp-
arov að kæfa allt spil hvíts í
fæðingu.
35. Hc6? - Ra5
Það er hugsanlegt að Karpov
hafi yfirsést þessi leikur þegar hann
lék 34. Hf6. Það er reyndar alþekkt
að bestu mönnum geta yfírsést ridd-
arahopp afturábak, sbr. Petrosjan
á áskorendamótinu 1956, er hann
skildi sjálfa drottninguna eftir í
dauðanum gegn Bronstein.
36. Bxb6 - Rxc6 37. Bxc7 -
Hf8+ 38. Ke2 - Hf7! 39. Bd6 -
Hd7 40. Bc5 - Ra5 41. Rfl
Hér fór skákin í bið. Eftir 41. —
Rc4, er ekki að sjá að Karpov hafí
nokkrar bætur fyrir skiptamuninn.
Anne Bancroft i hlutverki sinu
sem Helene Hanff unnandi fag-
urbókmennta.
Óvenjulegt-
ástarsam-
band í
Stjörnubíói
STJÖRNUBÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á kvikmyndinni „Charing
Cross Road 84“ með Anne Banc-
roft og Antony Hopkins i aðal-
hlutverkum. Leikstjóri er David
Jones.
Myndin er byggð á bréfaskriftum
rithöfundarins bandaríska Helenar
Hanff og breska fombókasalans
Frank Doel. í yfír 20 ár skiptust
þau bréflega á skoðunum um bók-
menntir, ástina, lífíð og tilveruna
og telja má þetta óvenjulega ástar-
samband einstakt, segir í fréttatil-
kynningu frá kvikmyndahúsinu.
Aðrir leikarar í myndinni eru
Judy Dench, Jean De Baer, Maurice
Denham og Eleanor David.
Tregt á loðnuveiðunum
Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson
Björn Leifsson leiðbeinir nemendum tónlistarskólans.
Ólafsvík:
Þnðjungur bamanna
í tónlistarskólanum
RÚMLEGA 161.000 lestir af
loðnu hafa nú veiðzt frá upphafi
vertíðar. Veiðin hefur verið treg
að undanförnu. Loðan stendur
djúpt, á 140 til 160 föðum og
dreifir sér um of, þegar hún
grynnir á sér. Ennfremur hefur
ís hamlað veiðum, en spá um
VÉLBÁTURINN Grímsey ST II
frá Drangsnesi, sem strandaði
og sökk í Steingrímsfirði á föstu-
dagskvöldið, var bjargað af
strandstað á sunnudaginn, og er
nú kominn í slipp á Skagaströnd.
Báturinn er óbrotinn, en
skemmdir urðu á mörgum tælg-
um.
Björgunin fór þannig fram að
kafari frá ísafírði kom fyrir vírum
í Grímsey, sem lá á hliðinni, og síðan
drógu tvær jarðýtur og Payloader-
vinnuvél bátinn upp undir Qöruborð
eftir sandræmu fyrir framan skerið
sem Grímsey strandaði við. Síðan
var sjó dælt úr bátnum með tveim-
ur slökkvidælum frá Drangsnesi og
Hólmavík. Að sögn Friðgeirs Hös-
kuldssonar, skipstjóra á Grímsey,
gengu björgunarstörf mjög vel,
enda var gott veður á staðnum, og
allar aðstæður góðar.
Grímsey var síðan dregin aftur
á flot eftir að öllum sjó hafði verið
dælt úr henni. Báturinn Donna frá
Hólmavík dró Grímsey síðan til
hafnar á Skagaströnd, þar sem hún
var sett í slipp. Skrokkur Grímseyj-
ar, sem er 30 tonna bátur, er svo
austanátt eykur mönnum vonir
um að ísinn reki til vesturs af
veiðisvæðinu.
Á fimmtudag tilkynntu eftirtalin
skip um afla: Súlan EA 800 lestir,
Þórður Jónasson EA 690, Bergur
VE 480 og Gísli Árni RE 500, en
þau fóru öll til Siglufjarðar og Kap
til óskemmdur, en öll tæki og raf-
magnskerfí eru ónýt. Nú er verið
að athuga vélar bátsins og meta
skemmdir, og sagðist Friðgeir telja
að það tæki um 1-2 mánuði að
koma bátnum í rétt horf. Sjálfur
sagðist hann vera búinn að jafna
sig eftir volkið, en Friðgeir slapp
naumlega úr stýrishúsi Grímseyjar
þegar bátnum hvolfdi við björgun-
artilraunir á strandstað á föstu-
dagskvöldið.
AÐALFUNDUR Foreldrafélags
Breiðholtsskóla verður i bóka-
safni skólans á morgun, miðviku-
dag, klukkan 20.30. Á fundinum
verður rætt um starfsemi félags-
ins í vetur og í framtiðinni, og
verður það meðal annars gert í
umræðuhópum.
Hópur foreldra í neðra-Breiðholti
efndi nýlega til fundar í Breiðholts-
skóla og var þá ákveðið að tilnefna
II VE með 650 lestir til Eyja. Á
föstudag fór Öm IÍE með 650 lest-
ir til Krossaness.
Á laugardag voru eftirtalin skip
með afla: Albert GK 100 lestir og
bilað spil til Bolungarvíkur, Bjami
Ólafsson AK 1.070 til Akraness,
Þórður Jónasson EA 660 til Krossa-
ness, Börkur NK 1.200 til Neskaup-
staðar, Magnús- NK 200 til
Siglufjarðar og Jón Fjnnsson RE
850 til Siglufjarðar. Á sunnudag
fór Sighvatur Bjamason VE til
Eyja með 5.60 lestir og um miðjan
dag á mánudag fór Víkingur með
900 lestir til Akraness og Þórs-
hamar GK hafði tilkynnt um 530
lesta afla, en ákvörðunarstaður var
óákveðinn.
Ástráður Ingvarsson hjá Loðnu-
neflid sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að mörg skip væm á
miðunum með slatta og gæfi loðnan
sig, ættu þau að ná fullfermi strax.
Hann bætti því við, að það væri
eins gott að loðnan færi að veiðast
aftur, ella væri hætta á því að karl-
anir kæmu og brenndu utan af
honum „veiðigallann" eftir yfirlýs-
ingar sínar um að vel veiddist, þegar
hann klæddist honum. „Ég vil helzt
halda gallanum," sagði Astráður.
nokkra foreldra til að vinna að end-
urvakningu foreldraféiags við
Breiðholtsskóla. Þessir foreldrar
hafa síðan rætt við stjóm skólans
og kennara um hvemig best væri
að skipuleggja virkt foreldrafélag
sem byggði á samvinnu foreldra og
kennara. Undirbúningi er nú lokið
og verður aðalfundur á morgun,
miðvikudag, klukkan 20.30 í bóka-
safni skólans, sama dag og for-
eldrafundir skólans verða haldnir.
Ólmfavfk.
TÓNLISTARSKÓLINN í Ólafs-
vík hefur hafið starfsemi sína.
Mikill fjöldi nemenda er í skólan-
um, eða 80, sem er þriðjungur
allra nemenda grunnskólans.
Þá er mikill áhugi á að endur-
reisa lúðrasveitina. Um 20 áhuga-
samir nemendur em að læra á
blásturshljóðfæri undir leiðsögn
Bjöms Leifssonar, skólastjóra Tón-
listarskóla Borgarfjarðar. Hann
kennir hópnum til áramóta, en þá
er væntanlegur hingað enskur
kennari, Michael Jacques.
í hljómborðsdeild era 15 nemend-
ur, þar af 8 í píanóleik, einn á
pípuorgel og 6 læra á harmonikku.
Nokkrir bíða eftir að komast að í
harmonikkuleik. Þá er margs konar
fi-æðsla og æfíngar fyrir fullorðna
í skólanum.
Tónlistarskólinn hefir notið
myndarlegs fjárstyrks til hljóð-
færakaupa frá fyrirtækjum í
Ólafsvík og bæjarstjómin hefur
sýnt starfseminni góðan skilning
og stutt vel við bakið á þeim skóla- •
stjóram sem hér hafa starfað.
Núverandi skólastjóri er Elías
Davíðsson.
- Helgi
Djúpivogur:
Saltað í
6.272 tunnur
Djúpavogi.
SALTAÐ hefur verið i 6.272 tunn-
ur af síld hér á Djúpavogi.
Fiyst hafa verið 145 tonn af heil-
frystri sfld og 54 tonn af flökum.
Sunnutindur seldi á Bretlandsmark-
aði síðastliðinn miðvikudag 126 tonn
fyrir 8,5 milljónir. Meðalverð var 68
krónur á kflóið.
14 trillubátar lönduðu hér í síðustu
viku 20 tonnum af þorski og Stjömut-
indur landaði 15 tonnum en hann rær
með línu. Alls hafa borist á land á
þessu ári 3.865 tonn af fiski að verð-
mæti um 100 milljónir.
— Ingimar
Mb. Grímsey bjargað
af strandstað
- kominn í slipp á Skagaströnd
Aðalfimdur hjá Foreldra-
félagi Breiðholtsskóla