Morgunblaðið - 10.11.1987, Síða 43

Morgunblaðið - 10.11.1987, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 43 Svipmyndir úr borginni/ ólafur ormsson Hvað á að gera í skammdeginu? í önnum dagsins gefst lítill tími til að setjast niður og ræða málin. Það er helst að tækifæri sé til þess á biðstofum bankastjóra, lækna eða sálfræðinga þar sem nútímafólk er einna helst að fínna. Ég heyrði á tali tveggja miðaldra manna nú ný- lega á biðstofu bankastjóra að þeir voru að spjalla um veturinn og hvemig bæri að bregðast við skammdeginu. Þeir ræddu vítt og breitt um skemmtanalífið í borginni, leikhúsin og nýju matsölustaðina þar til annar þeirra sagði fréttir sem ekki eru beint hversdagslegar. Hann er búinn að gera allrótækar breyt- ingar á heimilishögum fjölskyldu sinnar. — Það hefur orðið að samkomu- lagi hjá flölskyldunni að vera án heimilisóvinarins, jafnvel fram að jólum, sagði hann. — Hver er þessi heimilisóvinur? spurði sá er hlustaði og undrunin í svipnum leyndi sér ekki. — Jú, sjónvarpið. — Sjónvarpið? — Já, sjónvarpið. Það er liðinn hálfur mánuður síðan ákvörðun var tekin um það innan fjölskyldunnar vera án sjónvarpsins einhvem tíma og merkilegt að hvorugt okkar hjónanna saknar sjónvarpsins og því síður táningamir á heimilinu, strák- ur og stelpa á fjórtánda og fímmt- ánda aldursári. — Og hvað kemur þá í staðinn? spurði sá er stöðugt varð meira undr- andi á svipinn. — Það er kannski ekki furða að þú spyijir. Hér áður fyrr dvaldi fjöl- skyldan fýrir framan sjónvarpstækið frá því fyrir kvöldmat og fram und- ir miðnætti og svaraði varla dyra- bjöllu eða síma. Nú em aðrir tímar. Eg legg nú kapal á kvöldin eftir að við urðum sammála um að hætta að horfa á sjónvarpið, í bili. Fletti líka stundum góðri bók og les valda kafla upphátt fyrir fjölskylduna og konan flytur hugvekju um lífið og tilveruna og heimilishundurinn, hann Kátur, rís nú loks undir nafni. Hann er nú lífsglaður, þetta grey, sem áður var miður sín vegna sjónvarps- ins. Við hjónin spjöllum við krakkana um nám þeirra og áhugamál og skiptumst á skoðunum um mál líðandi stundar. Og unglingamir meira að segja hættir að fara niður í miðborg um helgar að bijóta rúð- ur, sem ég hef nú grun um að strákurinn hafí tekið þátt í einhvem tímann fyrr í haust. Og nú em allir komnir í svefn upp úr klukkan tíu á kvöldin og við hjónin síðan farin að skokka um hverfíð í íþróttabún- ingum klukkan sjö á morgnana áður en haldið er í vinnu. — Og þið saknið þess þá ekki að hafa ekki fréttimar í sjónvarpinu? spurði sá sem varð eitt spumingar- merki í framan. — Nei. Við getum alveg án þeirra verið, hvað sem síðar verður, það kemur þá í ljós, sagði sá er skýrði frá viðureign fjölskyldunnar við heimilisóvininn. Hann sótti kaffí í tvö plastbox þama í biðstofu banka- stjóra og þeir félagamir héldu áfram að ræða um sjónvarpið. — Og þið hafíð þá líklega verið með myndlykil? — Myndlykil? Jú. Og með þeim fyrstu sem fengu myndlykil. Við horfðum lengi einna helst á Stöð 2. Að stómm hluta til er þetta ein- göngu bandarískt efni sem Stöð 2 sendir út. Mér fínnst eins og Stöð 2 sé beint framhald af Keflavíkursjón- varpinu. Ég horfði oft á Keflavíkur- sjónvarpið í gamla daga. Það gengur auðvitað ekki til lengdar að senda eingöngu út bandarískt sjónvarps- efni, þriðja flokks, ómerkilegar glæpamyndir og stríðsmyndir og margar þeirra búnar að vera á mynd- bandaleigunum ámm saman. Það verður einhvem tímann að koma að þvi að boðið sé upp á frambærilegt íslenskt efni. Við emm nú einu sinni íslendingar. Þá er ég nú sáttari við ríkissjónvarpið þó þeir megi gera mun betur, sagði sá sem einkum sat fyrir svömm þama á biðstofu banka- stjóra. Það var hafínn viðtalstími banka- stjóra og verið að kalla fólk inn í hið allra heilagasta, aðsetur þess sem hefur yfír peningum að ráða. Það kom í ljós að sá sem einkum spurði, sagði þeim sem skýrði frá viðureigninni við heimilisóvininn, rétt áður en hann fór inn til banka- stjóra að hann væri að reyna að slá lán vegna kaupa á sjónvarpstæki og myndbandstæki. — Þú ætlar þó ekki að fara að kalla yfir þig pláguna? spurði þá sá sem sat helst fyrir svömm. — Jú, kallaðu það bara plágu. En hvað á maður sem er einhíeypur að gera af sér þegar framundan er svartasta skammdegið? Skammdegið er einmitt sá tími ársins sem reynist ýmsum erfiður, þegar varla birtir nema tvo til þijá tíma, um miðjan dag. Aðrir kunna ljómandi vel við þann árstíma og kannski aldrei jafn sáttir við lífið og tilvemna og einmitt þá. Karl Jó- hann Lilliendahl klæðskerí er einn þeirra. Ég leigði honum herbergi einmitt þegar hann var í námi og í skammdeginu tók ég eftir því að sköpunargáfan var í hámarki. Þá var Karl að skapa mörg ódauðleg verk. Huga að nýju sniði á karl- mannafatnaði og fór fímum höndum um efnið. Drakk mikið af kaffí, reykti heilmikið af sígarettum, kveikti á kertum og stemmningin var ósvikin. Og um daginn hitti ég á laugar- dagseftirmiðdegi góðan vin á fömum vegi sem var uppáklæddur, kominn í sín bestu fot og brosti þegar ég spurði: — Hvað á að gera í skammdeg- inu? Nú þegar komið er fram í nóvembermánuð? Sigurður Ólafsson, sem er allra manna skemmtilegastur og oftast með húmorinn í góðu lagi, brosti og sagði: — Ég er að fara á jólatrés- skemmtun hjá BM Vallá í Þórskaffi í kvöld. Strax í októbermánuði byij- um við að fagna jólunum ... Það er ekkert erfitt að stíga fyrstu skrefin. . . SJÓÐSBRÉF VIB báru 11,9 % ávöxtun umfram verðbólgu fyrstu sex mánuðina. Sjóðsbréf VIB er hægt að kaupa fyrir hvaða fjárhæð sem er og selja aftur á auglýstu kaupgengi hjá Verðbréfamarkaði Iðnaðarbankans hf. SJÓÐSBRÉF 1 Sjóðsbréf 1 eru kjörin fyrir þá sem vilja leggja fyrir og fá háa ávöxtun. Kostir Sjóðsbréfa 1 eru m.a. að • þau er hægt að kaupa fyrir hvaða fjárhæð sem er • áhætta er minni en þegar keypt eru einstök skuldabréf með jafnhárri ávöxtun vegna áhættudreifingar sjóðsins • ekki þarf að hafa áhyggjur af endurfjárfest- ingu afborgana vaxta. Starfsfólk VIB sér um að ávaxta sjóðina og hefur áralanga reynslu að baki. SJÓÐSBRÉF 2 Sjóðsbréf 2 eru ætluð þeim sem eiga nokkum sparnað og þurfa að lifa af eignunum og láta þær jafnframt ávaxtast sem best. Kostir Sjóðsbréfa 2 eru m .a. að • vextir umfram verðbólgu eru greiddir eigendum á þriggja mánaða fresti • kostnaður við ávöxtun er hlutfallslega lítill og fé liggur ekki bundið á lágum vöxtum • þau er hægt að selja aftur á auglýstu kaupengi hjá Verðbréfamarkaði Iðnaðar- bankans. Heiödís, Ingibjörg, Sigurður B., Vilborg og Fórólfur munu leitast við að veita nánari upplýsingar um sparnað og ávöxtun. Verið velkomin í afgreiðslu VIB að Ármúla 7 eða hringið í síma 91-68 15 30. VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími681530

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.