Morgunblaðið - 10.11.1987, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
i4
i>Álternatorar
jpV Startarar
Nýir og/eöa verksmiöjuuppgeröir.
Ötal gerðir og tilheyrandi varahlutir.
SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-8 47 88
'"m
m 9
'i
Mött áferð
með
Kópal
Dýrotóni
Kópal Dýrótón innimálningin hefur
gljástig 4, sem gefur matta áferð. Pessi
mjúka áferð heldur endurkasti í lágmarki
og hentar því vel þar sem veggirnir eru
baksvið í leik og starfi. Viljir þú meiri
gljáa á veggi sem meira mæðir á skaltu
velja Kópal innimálningu með hærra
gljástigi, s.s. Kópal Glitru, Kópal Flos eða
Kópal Geisla.
má/ning't
kópaf
DYROTON
AlTflNtTflÍ,MALM0.FL ^
**mPU8TMALNINe, VATN8MVN^ GUÁsr/G
Morgunblaðið/Bjami
Hluti af þeim listamönnum sem verða á hljómplötum frá Skífunni fyrir þessi jól, ásamt nokkrum starfs-
mönnum fyrirtækisins.
Jólaútgáfa Skífunnar:
Ellý Vilhjálms á nýrri hljómplötu
SONGKONAN Ellý Vilhjálms
verður í hópi söngvara sem koma
fram á nýrri jólaplötu, sem
Skífan sendir frá sér í lok þessa
mánaðar, en nokkuð langt er nú
um liðið síðan þessi vinsæla söng-
kona söng síðast inn á hljóm-
plötu. Platan ber heitið
„Jólagestir“, þar sem Björgvin
Halldórsson býður mörgum
þekktum tónlistarmönnum til
„mikillar tónlistarveislu" eins og
segir í fréttatilkynningu frá
Skifunni. Skifan mun standa að
útgáfu tiu hljómplatna fyrir
þessi jól og munu þær allar jafn-
framt verða gefnar út á geisla-
diski.
Þegar eru komnar út hljóm-
plötumar „Gaui“, með samnefndum
listamanni og „Nóttin flýgur“ með
lögum eftir Torfa Ólafsson við ljóð
ýmissa stórskálda. Um miðjan nóv-
ember er von á nýrri plötu með
vísnasöngkonunni Bergþóru Ámad-
óttur. Platan ber heitið „í seinna
lagi“ og innihledur lög úr sam-
nefndum sjónvarpsþætti, sem
sýndur var í ríkissjónvarpinu ný-
lega. í byijun desember kemur út
fyrsta sólóplata Ásgeirs Sæmunds-
sonar, sem var forsöngvari hljóm-
sveitarinnar Pax Vobis hér í eina
tíð.
í lok nóvember kemur út platan
„Kvöld við lækinn", en á henni
flytja söngvaramir Jóhann Helga-
son, Halla Margrét og Kristinn
Sigmundsson lög eftir Jóhann
Helgason við ljóð ýmissa stór-
skálda. Jakob Magnússon og
Ragnhildur Gísladóttir standa að
nýrri breiðskífu sem Skífan gefur
út undir nafni hljómsveitarinnar
„Strax" og mun Ragnhildur syngja
öll lögin á plötunni. Þá mun Skífan
gefa út safnplötu fyrir þessi jól og
verður stór hluti hennar íslensk tón-
list. Má þar nefna lagið „Ömmu-
bæn“, sem Alfreð Clausen gerði
ódauðlegt á sínum tíma, en á þess-
ari plötu er það sungið af Bjama
Arasyni, söngvaranum unga sem
„sló í gegn“ í látúnsbarkakeppni
Stuðmanna síðastliðið sumar.
í lok nóvember kemur út plata
til styrktar byggingu nýs tónlistar-
húss og er það stór tveggja laga
plata, sem inniheldur lagið „Söngur
um draum" eftir Gunnar Þórðarson
við ljóð Krisijáns frá Djúpalæk.
Söngvarar á plötunni eru Björgvin
Halldórsson, Egill Ólafsson, Eiríkur
Hauksson og Jóhanna Linnet. Þá
mun Skífan annast dreifingu á plötu
með lögum eftir Jón Múla Ámason,
sem gefin er út af Almenna bókafé-
laginu. Tónlistarumsjón á plötunni
annaðist Eyþór Gunnarsson og
meðal söngvara em Bjami Arason,
Bubbi Morthens og Ellen Kristjáns-
dóttir. Skífan mun einnig annast
dreifingu á plötunni „Hinsegin Blús,
með samnefndu tríói sem flytur lög
eftir Eyþór Gunnarsson og Tómas
R. Einarsson, en auk þeirra er í
tríóinu trommuleikarinn Gunnlaug-
ur Briem. Útgefandi er Almenna
bókafélagið.
Leiðrétting
í grein um Hvanndal í Morgun-
blaðinu á sunnudag varð meinleg
prentvilla. Föðumafn systranna
Guðrúnar og Sigríðar er rangt í
greininni. Þær em Þorláksdætur
en ekki Þorvaldsdætur. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
M-*
EINLITAR OG MUNSTRAÐAR
FLISAR
ÓDÝRÁR OG DÝRAR / VANDAÐAR
FLISAR
VEGG OG GÓLF
FUSAR
UTIOG INNl
FLISAR
W Rartek
Höganas
FYRIRMYND ANNARRA FLÍSA
HEÐINN
SEUAVEGI 2.SÍMI 624260