Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 Jómfrúræða Péturs Bjarnasonar: Samræmt skipulag ferðamála nauðsynlegt Pétur Bjarnason í ræðustól. Hér fer á eftir jómfrúræða Pét- urs Bjarnasonar (F.-Vf.) sem flutt var á Alþingj 15. október sl. Herra forseti. Ég mæli fyrir til- lögu til þingsályktunar um ráðstaf- anir í ferðamálum. Þessi tillaga er flutt af mér ásamt hv. þm. Guðna Ágústssyni, Jóni Kristjánssyni, Stefáni Guðmundssyni og Valgerði Sverrisdóttur. Tillagan er svohljóð- andi: „Alþingi ályktar að skora á ríkis- stjómina að beita sér fyrir eftirfar- andi ráðstöfunum í ferðamálum: 1. Stofnað verði til embætta ferða- málafulltrúa í landsbyggðarkjör- dæmunum, tvö stöðugildi á árinu 1988, tvö stöðugildi til viðbótar 1989 og tvö stöðugildi árið 1990. Laun ferðamálafulltrúa greiðast úr ríkissjóði én rekstrarkostnað- ur embættanna af viðkomandi ferðamálasamtökum. Ferða- málaráð ákveði forgangsröðun starfanna. 2. Að 10% sérstöku gjaldi á vöru- sölu Fríhafnarinnar í Keflavík verði ráðstafað til ferðamála samkvæmt gildandi lögum. 3. Hraðað verði endurskoðun laga um skipulag ferðamála, nr. 79/1985.“ Tilgangur með þessari tillögu er einkum tvíþættur. Annars vegar að vekja athygli á nauðsyn þess að koma á samræmdu skipulagi í ferðamálum á íslandi með stofnun embætta ferðamálafulltrúa úti um landið og koma þannig til móts við ferðamálasamtök landshlutanna. Hins vegar að vekja athygli á því að þrátt fyrir að markaður tekju- stofn hafi verið lögboðinn til ferðamála undanfarin 11 ár, þ.e. 10% af vörusölu Fríhafnar í Keflavík, hefur stöðugt verið geng- ið á hann með heimild í lánsfjárlög- um og er svo enn gert í núverandi frv. til lánsflárlaga. Er því vert að huga að því við endurskoðun laga um skipulag ferðamála hvort halda eigi þessum tekjustofni óbreyttum og ganga síðan á hann svo sem verið hefur eða leita annarra leiða ^til að fjármagna Ferðamálaráð og starfsemi þess. _ Ferðalög um ísland hafa stórauk- ist á síðustu árum. Þannig jókst straumur erlendra ferðamanna til íslands úr 29 þúsund árið 1966 í 112 þúsund árið 1986 eða á 20 ára bili. Athyglisvert er að á sama tíma fjölgar utanferðum íslendinga í sama mæli eða úr 18 þúsund í 110 þúsund. Á þessum tíma hafa orðið straumhvörf í samgöngum ásamt áhuga og möguleikum fólks til ferðalaga. Hafa ber í huga þegar nefndar eru tölur um ferðalög útlendinga um ísland og þörf fyrir þjónustu við þá hér að ferðalög íslendinga um eigið land eru síst minni og fara stöðugt vaxandi. Gjaldeyristekjur af þjónustu við erlenda ferðamenn eru orðnar veru- legar, voru taldar um 4,6 milljarðar kr. árið 1986. Til samanburðar má geta þess að þetta eru 10,3% af heildarvöruútflutningi landsmanna og um 13% af heildarverðmæti út- flutts sjávarfangs sama árs. Þegar þetta er haft í huga verður ljós nauðsyn þess að gefa þessari starf- semi meiri gaum og veita henni meiri stuðning en verið hefur þó vissulega hafi þokast verulega í rétta átt hvað þessi mál varðar. Þróun ferðalaga í heiminum er einkum með þrennu móti. í fyrsta lagi ferðast fólk í auknum mæli á eigin vegum í stað hópferða sem hafa verið ríkjandi fyrirkomulag, á eigin bfl, með flugi og bfl eða á annan hátt sjálfstætt. Þessa verður og vart hérlendis hin síðustu ár. í öðru lagi eykst í sífellu leit fólks að betri útivistarmöguleikum, hreinu lofti, óspilltri náttúru og heilbrigðum lífsháttum. Á þessu sviði virðist land okkar hafa mjög mikla möguleika verði þess gætt að skipuleggja ferðamál á réttan hátt með umhverfís- og náttúru- vemdarsjónarmið ríkt í huga. í þriðja lagi eru ferðalög eldri borgara í skipulögðum orlofsferð- um. Ferðamálasamtök hafa verið stofnuð í öllum kjördæmum lands- ins utan Reykjavíkur. Ein samtök eru þó fyrir Norðurland allt og í Reykjaneskjördæmi er starfssvæðið bundið við Suðumesin. Tilgangur með stofnun samtakanna var m.a. þessi: Að vinna að sameiginlegri og skipulegri uppbyggingu í öllum greinum ferðaþjónustunnar, að gefa hlutlausar upplýsingar um ferðaþjónustu í kjördæmunum, að veita aðstoð og ráðleggja þeim sem hyggjast fjárfesta í ferðaþjón- ustunni, að koma á samvinnu allra sem að ferðamálum starfa í kjör- dæmunum, að efla þessa þjónustu- grein á landsbyggðinni. Ferðamálasamtökin hafa stofnað með sér Félag íslenskra ferðamála- samtaka og eru aðalmarkmið þeirra mjög í sama anda og hér var fyrr upp talið. Til viðbótar er rætt um að koma fræðslu í ferðaþjónustu- greinum inn í skólakerfið og aukin áhersla er lögð á þátt umhverfis- vemdar. Með stofnun Upplýsingamið- stöðvar ferðamála, sem opnuð var á síðasta sumri, opnuðust nýir möguleikar fyrir þá sem að ferða- málum standa. Með tölvutengingu er fyrirhugað að miðla upplýsingum samstundis út í umdæmin og fá nýjar til baka. Upplýsingamiðstöð sem þessi getur komið ýmsum nýj- um möguleikum í ferðaþjónustunni á markað, kynnt áður lítt þekkta staði, stuðlað að lengingu ferða- mannatímans, haft heildaryfirsýn yfir ferðamöguleika hverju sinni á hveijum stað og þannig stuðlað að betri nýtingu fjárfestingar í ferða- þjónustunni. Hlutverk ferðamálafulltrúa væri m.a. eftirfarandi: 1. Að vinna að uppbyggingu ferða- þjónustu á starfssvæði sínu. í því felst að gera úttekt á þeirri þjónustu sem fyrir er, möguleik- um umdæmisins og vinna að tillögugerð og skipulagningu ferðamála þar í samráði við sveitarstjómarmenn og aðra hagsmunaaðila. 2. Að vera tengiliður við önnur ferðamálasamtök og skipuleggja samstarf við þau um ferðamál. 3. Að vinna ákveðin verkefni fyrir opinbera aðila. Má þar nefna úttekir af ýmsu tagi ásamt áætlanagerð og upplýsingaöfl- un. Enn fremur að vinna með náttúru- og umhverfisvemdar- mönnum og heilbrigðisfulltrúum og nefndum vegna ferðamanna og ráðstafana sem gera þarf á þjónusstustöðum. Það er alkunna að mjög skortir á að aðstaða sé alls staðar fyrir hendi úti á landsbyggðinni til að taka á móti ferðamönnum og veita þeim lágmarksþjónustu. Það er hægt að aka hundmð kflómetra án þess að eiga kost á tjaldstæði með lágmarkshreinlætisaðstöðu. Ferða- maður, sem er svo óheppinn að þurfa að komast í síma að nætur- lagi, verður annaðhvort að vekja upp í heimahúsum eða leita uppi næsta kaupstað til að komast í al- menningssíma og þó undir hælinn lagt að slíkur sími fínnist ef hann er þá til. Ferðaþjónusta bænda ásamt því neti þjónustustaða sem er að smá- þéttast bætir þó verulega úr þessu jrfir hásumarið. Hér þarf þó að ráða verulega bót á hið fyrsta. Þá má nefna merkingar, hvort heldur sem er á íslensku eða með alþjóðlegum táknum. Semja þarf frið um gerð leiðbeiningarskilta sem gætu orðið ferðamanninum að gagni og forðað honum frá villu, jafnvel þó slíkt gæti gagnast þjón- ustuaðilum jafnframt. Þannig mætti lengi telja en verð- ur ekki gert hér. Sveitarstjómir þurfa að gera átak til að bæta úr þessu með bættum merkingum og fjölgun vel búinna tjaldstæða. Þróun ferðamála héfur þó verið ör hér á landi og svo er einnig um allan heim. Ferðaþjónusta sem at- vinnugrein er í dag stærsti atvinnu- vegur heimsins hvað veltu áhrærir og má að óbreyttu vænta áfram- haldandi streymis ferðamanna hingað til lands. Þar er þó margt sem getur haft áhrif og breytingar geta orðið skjótar á einstökum svæðum. Um það má nefna dæmi eins og Tsjemóbfl-slysið sem hafði í för með sér geigvænlegar sveiflur í ferðamálum Evrópu, auk þess sem olíuverð hefur veruleg áhrif á ferða- kostnað. Þá má nefna gengismál og ótal margt annað sem áhrif get- ur haft svo sem flugrán og hryðju- verk. Flest bendir þó til að framundan sé aukning á ferðalögum um ís- land, bæði erlendra og innlendra ferðamanna. Skiptir því miklu að við höldum vöku okkar, fyrst og fremst hvað það varðar að halda náttúm landsins, ogumhverfi okkar hreinu og óspilltu, en einnig að því er varðar skipulag ferðamála innan- lands. Herra forseti. Hugmynd sú sem sett er fram í tillögu þessari til þingsályktunar um ráðningu ferða- málafulltrúa er ekki ný af nálinni. Með bréfí í nóvember 1984 og öðru í maí 1985 frá ferðamálasamtökum í landshlutum til fyrrverandi sam- gönguráðherra er sett fram hlið- stæð beiðni um ráðningu ferða- málafulltrúa í áföngum, svipað og gert er hér, með þriggja ára áætlun. Að umræðu lokinni leyfi ég mér að leggja til að þessu máli verði vísað til allshn. . Skólasaga Akraness í 100 ár komin út Akranesi. HÖRPUÚTGÁFAN á Akranesi hefur gefið út bókina „Skóli í 100 ár“ — saga skólahalds á Akranesi 1880 til 1980. Unnið hefur verið að gerð bók- arinnar um nokkurra ára skeið og er höfundur hennar Stefán Hjálmarsson, sagnfræðingur og kennari á Akranesi. Á síðasta ári skipaði bæjarstjóm Akraness útgáfunefnd bókarinnar og áttu í henni sæti þau Bragi Þórðarson, Gígja Gunnlaugsdóttir og Ólína Jónsdóttir. Nefndin starfaði með höfundi við lokafrágang verksins m.a við öflun mynda en um 130 myndir prýða bókina. í bókinni, Skóli í 100 ár, er sagt frá brautryðjendum í skólamálum á Akranesi. Sagt er frá skóla- byggingum og margþættu öðm sicólastarfí. Þá em eins og áður segir fjöldi mynda frá ýmsum til- efnum svo og myndir af öllum útskriftamemendum gagnfræða- skólans og iðnskólans, sem til em á skólaspjöldum. Þá er og eínnig ítarlegt kennaratal allra skól- anna. Bókin er prentuð í Prentverki Akraness og er 170 blaðsíður. Forsíðumynd er eftir Bjama Þór Bjamason kennara. - JG Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson Höfundur og útgáfunefnd Skólasögu Akraness í 100 ár. Talið frá vinstri: Stefán Hjálmarsson, Gígja Gunnlaugsdóttir, Ólína Jónsdóttir og Bragi Þórðarson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.