Morgunblaðið - 10.11.1987, Side 51

Morgunblaðið - 10.11.1987, Side 51
MORGUNBLAÐEÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 51 Nýja bamaheimilið: Bjamaborg. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Vestmannaeyjar: Nýtt einkarekið barnaheimiU opnað Kemur starfsfólki í fiskiðnaði til góða Vestmannaeyjum. NÝLEGA var opnað fyrsta bamaheimilið Eyjum sem rekið er af einkafyrirtæki. Hingað til hefur slíkur rekstur verið í hönd- um bæjarfélagsins. Baraaheimil- ið hlaut nafnið Bjaraaborg og er rekið af Vinnslustöðinni hf. í Eyjum. í ræðu, sem Stefán Runólfsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar, hélt við opnun bamaheimilis- ins, kom fram, að ástæðan fyrir því að fyrirtækið færi út í þennan rekst- ur væri að skortur hefði verið á bamaheimilisplássum f bænum. Fólk í fiskvinnslu hefði orðið að bíða langtímum saman eftir plássi fyrir böm sín. Því hefði verið farið út í það að setja á stofn bamaheim- ili til að auðvelda starfsfólki fyrir- tækisins að sækja vinnu sína. Hið nýja bamaheimili, Bjama- boig, er til húsa í fyrrverandi félagsheimili íþróttafélagsins Þórs, en það er tréeiningahús, sem flutt var til Eyja eftir gos. Hefur húsið verið innréttað upp á nýtt og sér- hæft þörfum bamaheimilis. Á heimilinu er pláss fyrir fimmt- án böm og þar munu starfa tvær fóstmr. Forstöðukona er Sigurlaug Eggertsdóttir, lærð fóstra. Bama- heimilið nýtur ekki styrkja frá bæjarfélaginu og verða daggjöld þau sömu og hjá bamaheimilum bæjarins. Vestmannaeyjabær lagði til öll útileiktæki við heimilið. Bjamaborg bámst bæði gjafír og góðar óskir á opnunardaginn. Menn vom á einu máli um að heimil- ið væri vandað og vel væri búið að bömunum. Framtak Vinnslustöðv- arinnar hf. hefur í flestu mælst vel fyrir hér í bæ og gæti þetta fram- tak orðið öðmm fyrirtækjum til eftirbreytni. — Bjami Guðriður Jónsdóttir (t.v.) og Sigurlaug Eggertsdóttir fóstra og for- stöðumaður Bjamaborgar ásamt tveimur eyjapeyjum. Hjólsagir 6 MISMUNANDI GERÐIR • KIWISULTA • BLÁBERJASULTA • JARÐABERJASULTA • APRIKÓSUSULTA • HINDBERJASULTA 1» ÁVAXTASULTA BLÖNDUÐ Hcildsölubirgdir: ■ Þ.Marelsson Hjjllavcgi 27, 104 Rcykjjvih rr 91-37390 - 985-20676_ ZENTIS VÖRUR FVRIR VANDLÁTA landex Skútuvogi 4. Sími 37100. Tandex. Danski tannburstinn er kominn til íslands. Danir, finnar, svíar og norðmenn nota Tandex tannbursta. Nú er einnig hægt að kaupa þá á íslandi. Tandex tannburstinn er orðinn „heimsfrægur á Norðurlöndum" fyrir lögun skaptsins, sem liggur frábærlega vel í hendi og fyrir koll- ótta lögun burstanna. Tandex framleiðir tannbursta með mjúkum, í meðallagi mjúkum og hörðum burstum, fyrir ungbörn, börn og unglinga og fyrirfullorðna. Tandex tannbursta getur þú fengið með lituðum sköptum og hvítum burstum og með hvítum sköptum og lituðum burstum. Þú getur líka fengið Tandex tannþráð og tann- stöngla. Líttu við í næstu búð og heilsaðu upp á nýju, sterku, dönsku tann- burstana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.