Morgunblaðið - 10.11.1987, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
55
Kennarasamband Islands:
Auknum launa-
kostnaði sveitar-
félaga mótmælt
FULLTRÚARÁÐ Kennarasam-
bands íslands samþykkti á fundi
sínum fyrir skömmu mótmæli
gegn álagTiingn söluskatts á öll
matvæli og tilfærslu hluta af
launum kennara yfir á sveitarfé-
lögin. Ályktanir fundarins eru
þannig:
„Fundur í fulltrúaráði Kennara-
sambands íslands, haldinn á Grett-
isgötu 89, 23.-24. október 1987,
skorar á fjármálaráðherra að falla
frá hugmyndum um að leggja 10%
söluskatt á öll matvæli. Slíkur
skattur, ef lagður yrði á, hlyti óhjá-
kvæmilega að leggjast þyngst á
bammargar fjölskyldur sem síst
mega við auknum skattbyrðum.
Hjá þorra þeirra landsmanna,
sem teljast til lágtekjuhópa í þjóð-
félaginu, fer stærstur hluti tekn-
anna til kaupa á nauðþurftum.
Auknar álögur á þessa þjóðfélags-
þegna eru óviðunandi og leiða
aðeins til aukins misréttis.
Á þessu hausti hefur skólunum
gengið illa að ráða grunnskólakenn-
ara og framhaldsskólakennara til
starfa, einkum í dreifbýli. Mörg
sveitarfélög hafa gert sér grein fyr-
ir mikilvægi þess að kennarar fáist
til starfa og hafa því gripið til þess
ráðs að greiða launauppbætur í
einni eða annarri mynd.
Fulltrúaráð Kennarasambands
íslands mótmælir því að nkið skuli
með þessum hætti velta launakostn-
aði, í auknum mæli, yfir á herðar
sveitarfélaganna.
Fulltrúaráðið minnir á að í skóla-
stefnu KÍ er lögð áhersla á að
ríkissjóður standi undir öllum
kostnaði við skólastarf til þess að
tryggja.ja.fna aðstöðu allra til náms.
Það er óviðunandi að nemendur eigi
það undir fjárhag sveitarfélaganna
hvemig til tekst um menntun
þeirra."
Verksljórar frystihúsa
í Samvmnuskólanum
Námskeið fyrir verkstjóra í hf. á Hofsósi, Guðjón Vilhjálms-
frystihúsum var haldið í Sam- son Hraðfrystihúsi Drangsness,
vinnuskólanum á Bifröst fyrir Edda Símonardóttir lögfræð-
skömmu. Er námskeiðið hluti ingur, kennari við Samvinnu-
af starfsfræðslu Samvinnuskól- skólann, Sveinbjörg Halldórs-
ans fyrir stjórnendur, verk- dóttir Meitlinum hf. i
stjóra og deildarstjóra. _ Á Þorlákshöfn og Helena Hann-
myndinni eru frá vinstri: Ás- esdóttir Hraðfrystihúsi Stöðv-
geir Jónsson Hraðfrystihúsinu arfjarðar.
Plastvörur
til heimilisnota
Heildsölubirgðir
JÓHANN ÓLAFSSON & CO. HF.
«SSUMMaO<tO 104BEYKJAV1K SMUIUI
XI
1
UKKULAÐI
4 MISMUNANDl GERÐIR
2 STÆRÐIR
• BELNUGA • FRUTTIMANDA
• BELMANDA • MOCCAMANDA
Heildsölubirgöir:
P. Marelsson
Hjalhregi 27, 104 Reykiank
g 91-37390 - 985-20676_
/I.YIIS VORIR liRIR VANDLÁIA
Heilsugormurinn
GETUR GERT KRAFTAVERK!
STÆLIR
MJAÐMIR OG LÆRI, BRJÓST OG ARMA, MAGA OG MITTI - OG ALLT HITT
Á AÐEINS 5 MÍNÚTUM Á DAG.
Þú gerir æfingarnar heima - sparar tíma og peninga. 5 minútur á dag með heilsugorm-
inum jafnast á við að hjóla 6 km! Svo getur þú aftur farið i þröngu gallabuxurnar,
stuttbuxurnar og sundbolinn með fullu sjálfstrausti.
PANTIÐ í TÍMA í PÓSTHÓLF 8600
128 Reykjavík KLIPPIÐ
Vinsamlegast sendiö mór.. stk. heilsugorm
Nafn
Póstnúmer ..Staður