Morgunblaðið - 10.11.1987, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 10.11.1987, Qupperneq 57
57 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 Afmæliskveðja: Gunnar Eggerts- son tollvörður Viðurkennt skal að ég hrökk dálí- tið við þegar konan mín sagði fyrir nokkrum kvöldum: „Hann Gunnar frændi þinn verður áttræður á þriðju- daginn." Auðvitað hafði Gunnar safnað árum eins og við hin, en ein- hvemveginn þannig, að maður varð þess varla var. Maðurinn hefir verið svo lifandi alla tfð — hress og kvikur í hreyfingum, alltaf til í skemmtileg- heit og umfram allt sístarfandi að hugðarefnum eða lesandi góðar bæk- ur. Jú, auðvitað var Gunnar Eggerts- son ekkert öðruvísi en við hin að því leyti að árin söfnuðust og urðu að tugum, nú í dag verða þeir átta! Ég minnist þess oft þegar Gunnar kom með kærustuna sína, hana Þrúði Guðmundsdóttur — sem við vinimir vöndumst fljótlega á að kalla Dúddu — upp að Leirárgörðum, þar sem ég var lítill gutti í sveit hjá afa mínum og ömmu, nefnilega foreldmm Gunn- ars. Ekki veit ég hvar þau höfðu kynnst en við komu þeirra fannst mér heimurinn verða litríkari, grasið grænna og ilmurinn af bliknandi töð- unni áfengari. Því þetta var, á slættinum þegar mest er gaman í sveitinni og jafnvel liðléttingar eins og sá er þetta skrifar gátu orðið að liði við heyskapinn. Svo giftu þau sig Gunnar og Dúdda og ég hefi fyrir satt að þau hafi farið til fógetans mánudaginn 13. einhvers mánaðar og ef einhver heldur að mánudagur 13. einhvers mánaðar sé slæmur dagur til slíkra athafna, þá get ég staðfest að svo er ekki; þvert á móti einhver sá besti og því til sönnunar er frábært hjónaband þeirra áratug- ina sfðan þessi heillaatburður gerðist. Þau hófu búskap í kjallaraíbúð við Eiríksgötuna og á þessum fyrir- stríðsámm vom flutningar fólks tíðir. Nokkur ár á Freyjugötunni síðan á Þórsgötunni en svo hófst landnámið á utanverðu Kársnesi í Kópavogi. Gunnar og Dúdda urðu eins og aðrir frumbyggjar þessa bæjar — sem þá átti langt í land að verða bær — að yfírstíga ótal farartálma, svo sem vegaleysi, vatnsleysi, símaleysi og er þó fátt eitt talið. En upp komst húsið og lóðin, sem var grýttari en orð fá lýst, varð fyrr en varði hinn fegursti gróðurreitur. Grjótgarðamir umhverfis lóðina tala hinsvegar sínu máli um elju, dugnað og þennan eig- inleika að gefast aldrei upp. Á þessum ámm hafði fjölskyldan stækkað, bömin komið hvert af öðm, Hrafnhildur, Hugrún, Eggert Gautur og Gerður. En þó bömin séu talin er þó að- eins hálf sagan sögð um þá sem sátu til borðs á þessu gestrisnar heimili. Sagt er að skemmtilegt og gott fólk laði að sér annað gott og skemmtilegt fólk og þama var það orð að sönnu. Ég minnist alltaf ann- ars frænda, Stefáns Jónssonar rithöfundar og kennara, sem leigði hjá þeim Gunnari og Dúddu áður en hann og Anna stofnuðu sitt eigið heimili. Og það vom fleiri en undirrit- aður sem um árabil vom heimagang- ar á Freyjugötunni og Þórsgötunni: Þar vom tíðir gestir Guðmundur Hjálmarsson, Steinn Steinarr, Leifur Haraldsson og Ragnar H. Ragnar og svo hún Sigríður eftir að þau kynntust. Og svo komu Anna Bjöms og Svanhildur systir hennar og Anna Odds, stundum með soninn Flosa, sem var aðsópsmikill þá sem nú. Ekki var minna um að vera þegar frændfólkið úr Borgarfirðinum eða norðar úr Skagafirði kom f heim- sókn, systkini, tengdafólk og aðrir vinir sem gistu og borðuðu og það var sannarlega nóg að gera hjá hús- móðurinni á slíku heimili. Þama var skeggrætt um pólitík og skáldskap og skáldverkin kmfin til mergjar og það var ort: Ekki að sökum að spyija, sagði einn kunnug- ur: „Afkomendur Margrétar Þorláks- dóttur hafa aldrei getað séð bók f friði án þess að glugga f hana.“ Það er mikið til í þessu. Bókelskari maður en Gunnar er vandfundinn. Bækur hafa alla tíð verið honum kærkomnar. Hann á vandað bókasafn og ég leyfí mér að Vinsamlegast sendið mér bæklinginn BTH Nafn: _______________________________________ Menntið ykkur í B YGGIN G AT ÆKNIFRÆÐI B Y GGING A YERKFRÆÐI Kennsla hefst 11. janúar 1988. Skráning fer fram í skólanum. Hringið í síma 5-62 50 88 og fáið sendan bæklinginn „In- formation Byggetekniker - Byggekonstruktor". BYGGETEKNISK H0JSKOLE SLOTSGADE 11 - 8700 HORSENS Heimili: Póstnúmer:. Borg/Land:. segja eitt hið fegursta hér á landi. Maðurinn er, auk þess að lesa mikið, snilldar bókbindari. Þrátt fyrir það að Gunnar hafí lengst af starfað við skrifstofustörf sem tollvörður í Reykjavík, þá er hann líka listasmið- ur. Og í dag fyllir Gunnar áttunda tuginn. Það er löng leið frá Leirár- görðum þar sem Gunnar fæddist, yngstur sex bama hjónanna Benóníu Jónsdóttur og Eggerts Gíslasonar, en eldri vom Sæmundur, Magnús, Lára, Áslaug og Kláus. Margt hefír á dagana drifið en stutt grein í dag- blaði nægði skammt til þess að segja þá sögu. En það em fleiri í fjölskyldunni en Gunnar sem em á virðulega aldr- inum. Þau hjónin Gunnar og Dúdda em svo jafnaldra að hún hélt upp á sitt áttræðisafmæli fyrir nokkmm mánuðum. Þannig hafa þau Gunnar og Dúdda samtals eitthundrað og sextíu ár að baki. Merkur maður sagði eitt sinn að miðað við þær þjóð- félagsbreytingar sem hann hefði upplifað á sinni ævi gæti hann verið þúsund ára gamall. Ég býst við að þau sem em fædd árið 1907 geti sagt eitthvað svipað — svo stórfelld- um breytingum hefir þjóðlíf á íslandi tekið á síðustu áratugum. Það skemmtilega við það að ná háum aldri við góða heilsu er auðvitað að sjá árangur verka sinna og verða þeirrar gæfu aðnjótandi að sjá böm- in sín og þeirra afkomendur vaxa úr grasi, njóta þess að sinna hugðar- efnum eftir að almennum starfsdegi lauk og eins og í dæmi þeirra Gunn- ars og Dúddu, viðhalda og varðveita léttleika og góðvild æskuáranna í hug og hjarta. Eg lýk þessari fátæklegu afmælis- kveðju með bestu hamingjuóskum með þökkum frá okkur Mæzý fyrir hjálpsemi og elskulegheit alla tíð. Ifyrir frábært frændskaparþel fyrr og síðar. Sveinn Sæmundsson Afmælisbamið og kona hans ætla að taka á móti gestum á heimili sínu, Kópavogsbraut 65, milli kl. 17 og 20 í dag. n IÐNTÆKNISTOFNUN 690523 000011 Strikamerki á umbúðir Auglýsingateiknarar, prentarar framleiðslustjórar umbúðafram- ieiðendur og verslunarmenn! HÁLFS OAGS MÁMSKEIÐ í NOTK- UN STRIKAMERKJAÁ JMBÚÐIR. Efni: Hvað er strikamerki, notkun, stað- setning á umbúðum, stærðir, prentun, kostir strikamerkja, eftirlit. Staður/tími: Iðntæknistofnun íslands, Keldnaholti, fimmtudaginn 12, nóvember, kl. 13.00-18.00. Skráning í síma 687000. Takmarkaður fjöldi. Verð kr. 3900. Leiðbeinandi: Haukur Alfreðsson. Fylgstu með - Kynntu þér strikamerki. ITÍ REKSTRARTÆKNIDEILD„ HAFÐUALLTÁ HREINU FÁÐU ÞÉR OTDK Ploslkossar ogskúffur Fyrir skrúfur, rær og aðra smáhluti. Einnig vagnarog verkfærastatíf. Hentugt á verkstæðum og vörugeymslum. Ávallt fyrirliggjandi. Leitið upplýsinga. UMBOOS OGHEILDVERSLUN BILDSHÖFÐA 16 SÍMI 6724 44 UOSASTILLINGA- VERKSTÆÐI OSRAM bílperur WAGNER Ijósa samlokur Eigum fyrirliggjandi Ijósastillingatæki JL [1] JOHANN ÓLAFSSON & CO. HF. Sundaborg 13, sími 688588.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.