Morgunblaðið - 10.11.1987, Síða 60

Morgunblaðið - 10.11.1987, Síða 60
*r*v MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 60 Kveðjuorð: Helgi J. HaJldórs- son cand. mag. Þegar ég frétti lát Helga J. Halld- órssonar, vorum við hjónin stödd erlendis og gátum því ekki verið við- stödd útför þessa vinar okkar og samstarfsmanns. Ég get þó ekki látið hjá líða að minnast Helga með nokkrum línum þó seint sé, þar sem við vorum samstarfsmenn við Stýri- mannaskólann í Reykjavík í nær 40 ár. Ég mun þó ekki rekja uppruna og æviferil hans, þar til hann hóf kennslu í Stýrimannaskólanum, né önnur störf sem hann vann jafnhliða kennslu. Það hefur verið ítarlega gert af öðrum sem skrifuðu minning- argreinar um hann. Andlátsfregnin kom mér þó ekki á óvart. Ég átti tal við hann skömmu áður en við fórum og fannst mér þá mjög af honum dregið. Hann hafði verið á sjúkrahúsi vegna upp- skurðar sem ég því miður frétti allt of seint af. Við samtal okkar varð ég var við að mikil breyting hafði átt sér stað. Helgi, sem jafnan var hressilegur í tali, virtist mjög miður sín og ég fann að hann var þungt haldinn. Hinsvegar hefði mér ekki dottið í hug í vor og fram eftir sumri að svo skjótt skipti um. Hann var alltaf hress og kátur og virtist ekki kenna sér neins meins. En enginn veit sína æfina fyrr en öll er. Ann- ars eiga þessar línur að vera til þess að þakka Helga samstarfið í tæpa fjóra áratugi, samstarf sem aldrei féll skuggi á. Kynni okkar hófust er Helgi kom sem stundakennari að Stýrimanna- skólanum snemma árs 1945. Skólinn var þá til húsa í gamla Stýrimanna- skólahúsinu við Öldugötu, en var fluttur um haustið í nýbyggingu á Vatnsgeymishæð. Þá var aðeins einn fastráðinn málakennari við skólann, Einar heitinn Jónsson, magister. Einar skrifaði sögu Stýrimannaskól- ans sem gefin var út á 50 ára afmæli skólans 1941. Mjög vandað rit, þar sem lýst er aðdraganda að stofnun hans og starfí í 50 ár. Þeg- ar Einar lést 1948, var Helgi fastráð- inn sem málakennari. Það var ekki vandalaust að taka við íslensku- kennslu af Einari. Hann var frábær kennari og tala ég þar af eigin reynslu, því hann var kennari minn, t Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJARNIINGVAR KJARTANSSON, Garðavegi 14, Keflavlk, lést í sjúkrahúsi Keflavíkur laugardaginn 7. nóvember. Jóhanna Veturliöadóttir, Óli Baldur Bjarnason, Gunnþórunn Gunnarsdóttir, Kjartan Bjarnason, Hrefna Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, ÚLFHILDUR ÓLAFSDÓTTIR frá Akranesi, lést á Hrafnistu í Reykjavík 9. nóvember. Kristófer Ásgrfmsson, Karl G. Ásgrfmsson, Leifur Ásgrfmsson. t Eiginmaður minn og faðir, ÓLAFUR ÓFEIGSSON fyrrverandi skipstjóri, andaðist í St. Jósefsspítala í Hafnarfiröi laugardaginn 7. nóvember. Danfelfna Sveinbjörnsdóttir, Hrafnhildur Ólafsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR ÞORKELSDÓTTIR, Snorrabraut 73, Reykjavfk, verður jarðsungin 11. nóvember kl. 13.30 frá Hallgrímskirkju. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hallgrímskirkju í Reykjavík. Elfn Ellertsdóttir, Guðrún Ellertsdóttir, Ásgeir B. Ellertsson, Þorkell Steinar Ellertsson, MagnýG. Ellertsdóttir, barnabörn og Paul Jóhannsson, Guðjón Guðmundsson, Erika Urbancic, Guðrún Bjartmarsdóttir, Jóhann Gfslason, barnabarnabörn. þegar ég var nemandi við skólann. Friðrik heitinn Ólafsson, skólastjóri, mun þó hafa séð að Helgi væri verð- ugur arftaki Einars, því mér er kunnugt um að hann átt sinn þátt í að Helgi var fastráðinn sem mála- kennari. íslenska hefur ætíð skipað háan sess við Stýrimannaskólann. Hún , hefur t.d. verið fallgrein frá upphafí og þar með hefur kunnátta í henni verið metin til jafns við kunnáttu í aðal sérgrein skólans, siglingafræð- inni. Til að ná prófí þurfti meðalein- kunn í báðum þessum greinum að vera 4 meðan hæsta einkunn var 8, en 5 eftir að einkunnastiganum var breytt í 10 sem hæsta einkunn. Friðrik heitinn Ólafsson var mik- ill mannþekkjari og hann hefði ekki mælt með Helga sem íslenskukenn- ara, ef hann hefði ekki álitið að þar væri mikið kennaraefni. Enda kom á daginn að hann hafði rétt fyrir sér í því sem öðru. Helgi var fæddur kennari. Hann var og prýðilega menntaður, sem að vísu er ekki einhlítt til að verða góður kennari. En hann hreif nemendur með sér og átti afar auðvelt með að umgang- ast þá. Helgi fór nokkur sumur til sjós, bæði á togara og síldveiðiskipi. Grunar mig að það hafi ekki ein- göngu verið vegna þénustunnar, heldur líka til að kynnast andrúms- lofti um borð í skipum, kynnast af eigin raun sálarlífi sjómanna. Þau kynni held ég að hafi átt sinn Jiátt í að hann var mjög vinsæll meðal nemenda sinna. Við, sem kennt höfum við sérskóla eins og Stýrimannaskólann, þekkjum að mörgum nemendum þykir tíma- eyðsla að læra aðrar greinar en þær sem koma beint við starfi þeirra. Þeir gera sér í fyrstu ekki grein fyrir að sérmenntun og almenn menntun þurfa að fara saman. Mála- kunnátta er t.d. sérhveijum skip- stjómarmanni nauðsynleg, ekki hvað síst íslenskukunnátta. Oft þarf að skrifa mikilvægar skýrslur um atvik sem koma fyrir og kemur sér þá vel góð íslenskukunnátta. Nem- endur gera sér líka yfírleitt fljótlega ljóst að almenn menntun bætir upp sérmenntunina og er ekki síður gagnleg, þegar út í lífið er komið. Helgi glæddi áhuga nemenda á íslenskum bókmenntum fomum og nýjum og benti þeim á gildi þeirra. AJdrei varð ég var við að nemendur kvörtuðu undan kennslu hans, og veit ég að sérstaklega síðar meir voru þeir honum þakklátir fyrir handleiðslu hans ( heimi sfgildra bókmennta, og leiðsögn við samn- ingu ritgerða er gjama fjölluðu um sérsvið þeirra, sjómennskuna. Auk íslenskunnar kenndi Helgi einnig ensku og samdi 1954 enska lestrarbók handa sjómönnum, ætluð til kennslu á 2. og 3. stigi. Aukin og endurbætt útgáfa var prentuð 1981. Þetta er mjög vönduð kennslu- bók, sem auk þess að vera kennslu- bók er gagnleg sjómönnum almennt sem handbók í ensku sjómannamáli. Nú við leiðarlok viljum við hjónin þakka Helga samstarfið og honum og hans ágætu konu, Guðbjörgu, margar ánægjulegar samverustund- ir. Guðbjörgu, dætmm þeirra, bamabömum og öðmm aðstandend- um vottum við innilega samúð okkar. Guð blessi ykkur og styrki. Jónas Sigurðsson Kveðjuorð: Egill Gestsson tryggingamiðlari Fæddur 6. aprfl 1916 Dáinn 1. nóvember 1987 Egill, tengdafaðir minn, var son- ur Gests Ámasonar og Ragnheiðar Egilsdóttur og var heimili þeirra hjóna í Miðstræti 5 í Reykjavík. Egill og kona hans bjuggu þar þegar ég kynntist þeim hjónum fyrst. Við fyrstu kynni mín af Agli kom hann fyrir sem fastur á sínu, en eftir að hafa kynnst honum var hann það aðeins ef sannfæring hans og þekking sögðu svo að hann hélt um sitt, en annars var hann fljótur að hugsa sitt mál. Egill hóf nám við Verslunarskóla íslands, en varð fljótlega að hætta námi vegna berkla sem hann fékk í annan fót- inn. Oft er Egill talaði um vist sína á Landakoti kom í ljós hversu mik- ill húmoristi hann var, því það var t Eiginkona mín og dóttir, SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR frá Heliissandi, lést í Landspítalanum 8. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Guðmundur Ingi Bjarnason, Kristín Hjartardóttir. t Móðir okkar, tengdamóöir og amma, ARNBJÖRG SVERRISDÓTTIR, frá Seyðisfirði, Borgarholtsbraut 49, Kópavogi, sem andaðist 4. nóvember verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. nóvember kl. 15.00. Jenný Haraldsdóttir, Svandís Haraldsdóttir, Sverrir Haraldsson, Sigrún Haraldsdóttir, Pálína Haraldsdóttir, Sigurgeir Pótursson, Hjördfs Danfelsdóttir, ísleifur Guðleifsson, Árnl Jón Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MARGEIR S. SIGURJÓNSSON, sem andaðist sunnudaginn 1. nóvember, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni á morgun, miðvikudaginn 11. nóvember kl. 15.00. Laufey Ingólfsdóttir, Margrót Margeirsdóttir, Gissur Gissurarson, Lilja Margeirsdóttir, Flosi Ólafsson, Guðjón Margeirsson, Margrót Jónsdóttir, Ingólfur Margeirsson, Jóhanna Jónasdóttir, Óskar Margeirsson, Jóhanna Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, BJÖRGVIN FILIPPUSSON, Hjallavegi 23, Reykjavfk, sem andaðist 6. nóvember.verður jarðsunginn frá Áskirkju föstu- daginn 13. nóvember kl. 13.30. Börn hins látna. varla það til sem hann sá ekki eitt- hvað kímið við. Hann tengdapabbi var mjög fróðleiksfús maður og var hann sjálfmenntaður. Hann var mjög fær í þeim störfum, sem hann síðan vann, við því að þekkingar- þorstinn var mikill. Egill vann við ýmis skrifstofu- og stjómunarstörf hér í Reykjavík, en í febrúar árið 1970 stofnaði hann sitt eigið fyrir- tæki, Tryggingamiðlarann, sem hann rak til dauðadags. Egill varð aldrei ríkur eins og kallað er á veraldar vísu, en hann var ríkur af mörgu öðru sem meira máli skiptir. Hann var fjölfróður, mikill húmoristi og hrókur alls fagnaðar í vinahópi. í hjónabandi sínu var hann mikill auðnumaður og tók sér missi hennar Öllu afar sárt, en samvistum þeirra lauk fyr- ir tæpu ári síðan þegar hún lést í desember á sfðasta ári. í dagsins önn er dauðinn ætíð svo fjarri okk- ar hugsun, sem erum við fulla heilsu og á fullu við að lifa lífínu dag hvem. Það er ekkert skrítið, því að dauðinn er andstaðan við lífið. Við Egill áttum margar stundir saman og var hann ætíð reiðubúinn að hjálpa til ef hann gat orðið að liði. Fyrir rúmu ári stofnuðum við raf- verktakafyrirtækið RAF-ÓS og vom ekki fáar stundir sem við spjölluðum saman um það og svo margt annað, sem barst í tal er sest var að spjalli. Egill átti fallegt heimili í Klapparbergi 23 hér í borg og hann átti einnig góða nábúa, sem hann ræddi oft um; að maður tali nú ekki um bömin í götunni, sem þeim hjónum fannst vera eins og sín eigin bamaböm. Þau hjónin Egill og Amleif eign- uðust Qögur böm og em þau öll á lífi: Öm, Höskuldur, Ragnheiður og Margrét Þórdís, sem er konan mín. Ég vil að lokum biðja góðan guð að styrkja fjölskylduna á sorgar- stundu og biðja hana að leita á vit minninganna, en þær munu með straumþunga renna hjá, en um leið milda huga ykkar og lýsa hjörtum ykkar um ókomin ár. Óskar Smári Haraldsson ^Apglýsinga- síminn er22480

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.