Morgunblaðið - 10.11.1987, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
61
Bergur Andrés-
son — Kveðjuorð
Fæddur 6.júní 1916
Dáinn 1. september 1984
Ástkær föðurbróðir minn, hann
Bergur, lést þann L september
1984. Þó nokkuð sé um liðið langar
mig að minnast hans nú, þar sem
ekki var tækifæri til þess þá.
Bergur var fæddur í Bæ í Kjós.
6. júní 1916. Foreldrar hans voru
Andrés Ólafsson, hreppstjóri frá
Bæ, og Ólöf Gestsdóttir frá Kiða-
felli í Kjós.
Bergur ólst upp í stórum systk-
inahópi, en alls eignuðust Andrés
og piöf 14 böm.
Árið 1922 fluttist fjölskyldan að
Neðra-Hálsi. Þar tók Bergur virkan
þátt í bústörfum og var þar sama
að hveiju hann gekk, því hann var
einkar lagtækur til allra verka.
Andrés, faðir Bergs, andaðist
1931 og reið þá á samheldni bama
og móður að halda búrekstrinum
gangandi.
Bergur naut almennrar bama-
fræðslu í æsku svo sem þá var í
boði, en síðan aflaði hann sér
víðtækrar þekkingar með bóklestri
og nákvæmri eftirtekt. Hann var
ætíð vakandi yfir nýjungum og
mundi vel það sem hann heyrði eða
sá. Til marks um þetta var að hann
fylgdist alla tíð með námi bama
sinna og tileinkaði sér námsefni
þeirra af áhuga.
Um 1940 hóf Bergur að stunda
flutninga á vömm fyrir sveitunga
sína. Var þar um að ræða mjólk,
fóður, matvöru og annað það er til
búskaparins heyrði. Þessa flutninga
stundaði hann allt til 1958, en þá
tók við sérstakt flutningafélag. í
þessu starfi sýndi Bergur einstaka
lipurð og greiðasemi sem honum
var í blóð borinn og var hann vin-
sæll og vel látinn. Þær em mér
sérstaklega minnisstæðar stundim-
ar frá þessum ámm þegar við
krakkamir fengum að sitja í bílnum
hjá Bergi er hann var að losa vömr
eða sælq'a mjólk á bæina í kring.
Hann var alltaf fús að gera bömum
gott enda framúrskarandi bamgóð-
ur maður, því bámm við óblandaða
virðingu fyrir honum. M.a. nefndum
við íbúðarherbergi hans á Neðra-
Hálsi „Bergsherbergi" og hefur það
verið nefnt svo fram á þennan dag.
Við rekstur bílanna nýttist vel
fjölhæfni Bergs, því bæði þurfti að
sinna viðhaldi og að byggja yfir
nýja bíla. Naut Bergur þá oft að-
stoðar, Karls bróður síns.
Bergur var góður smiður. Eftir
að hann eignaðist fjölskyldu og
flutti til Reykjavíkur byggði hann
sér m.a. sumarhús í landi Neðra-
Háls, þar sem hann dvaldi oft í ríki
náttúmnnar og ræktaði jurtir og
skóg. Þangað sóttum við krakkam-
ir á sunnudögum í hlýtt viðmót
þeirra og gestrisni sem gleymist
seint.
Bergur kvæntist Ingibjörgu Lár-
usdóttur árið 1958 og eignuðust
þau tvö böm, Sigurbjörgu "Ólöfu,
dýralækninema, og Bjöm Láms,
laganema.
Fjölskyldan var Bergi guðs gjöf,
enda naut hann þess að vera í faðmi
hennar. Þar fékk hann ríkulega
umhyggju og umönnun þegar veik-
indi steðjuðu að, en hann átti lengi
við vanheilsu að stríða.
Eftir að Bergur flutti til Reykja-
víkur starfaði hann fyrst hjá
Mjólkurfélagi Reykjavíkur og síðan
í verslun tengdaföður síns, Lámsar
á Freyjugötu, og síðast hjá Lands-
pítalanum. Alls staðar var hann
rómaður starfsmaður og dáður af
þeim sem hann umgekkst.
Bergur var góður söngmaður og
söng í karlakómm. Það var mikið
sungið á Neðra-Háisi, enda segir
frá því í Æviminningum Ólafs
Thors, að böm Andrésar hafí sung-
ið í tvöföldum kvartett á samkomu.
Ljósmyndun var áhugamál Bergs
og átti hann gott safn mynda, bæði
kvikmynda og ljósmynda.
Sumarið 1982 þurfti Bergur að
gangast undir erfíðan hjartaupp-
skurð í London og var honum vart
hugað líf eftir það. En lífskrafturinn
var sterkur og heim komst hann
aftur.
Mér er minnisstæð ánægjan og
kærleikurinn í svip hans þegar ég
heimsótti hann á Landspítalæann
nokkm eftir að hann kom heim.
Það var eins og hann vildi segja
að eigi þýddi að æðrast. Eftir upp-
skurðinn náði Bergur aldrei fullri
heilsu.
Guð blessi minningu hans.
Guðmundur Gíslason
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir,
JÓHANNES HALLDÓR PÉTURSSON,
Iðufelli 12,
lést laugardaginn 7. nóvember. Fyrir hönd vandamanna,
Þóra Kristjánsdóttir,
börn og systur hins látna.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SVEINSÍNA ÁGÚSTSDÓTTIR
frá Kjós í Árneshreppi,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. nóvem-
ber kl. 13.30.
Sigurbjörg Alexandersdóttir, Eyjóifur Valgeirsson,
Kristfn Guðmundsdóttir,
Skúli Alexandersson, Hrefna Magnúsdóttir,
Alda Alexandersdóttir, Stefán Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Blóma- og gjafavöruverslun
Kransar, kistuskreytingar, hvers
konar skreytingar og gjafir.
Gæfan fylgir blómum og gjöfum
úr Stráinu. Opið um helgar.
Sími 16650.
Blómastofa
Fnöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavtk. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
t
Sonur okkar og bróðir,
FRIÐRIK HÁKANSSON,
Skálatúni, Mosfellsbæ,
Álfheimum 66,
lést í Landakotsspítala 30. október. Útför hans verður gerð frá
nyju kapellunni í Fossvogi fimmtudaginn 12. nóvember kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Styrktarfélag vangefn-
inna eða Skálatún.
Margrót Ó. Hókansson, Vilhelm H&kansson,
Ólafur M. H&kansson, Sigríður í. H&kansson.
Lokað
Lokað verður þriðjudaginn 10. nóvember kl. 13.00 til
15.00 vegna jarðarfarar ÓSKARS SIGURGEIRSSONAR.
Flugmálastjórn.
Legsteinar
MARGAR GERÐIR
Mamorex/Gmit 'v
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
Guðmundur Egils-
son - símritari
Guðmundur frændi er dáinn.
Þótt það sé það eina, sem er
öruggt í þessum heimi, að við deyj-
um öll einhvem tíma, verður maður
alltaf jafnsleginn.
Þrátt fyrir að Guðmundur hafí
verið orðinri fullorðinn og þrekið
farið að minnka, er maður nú svo
eigingjarn að vilja hafa þá hjá sér,
sem manni þykir vænt um.
Þegar ég hugsa um Guðmund
sé ég hann fyrir mér skellihlæj-
andi, nýbúinn að lauma út úr sér
einni góðri sögu af Lása kokki eða
öðrum þjóðfrægum persónum.
Það sem Guðmundur sagði þurfti
ekkert endilega að vera mjög fynd-
ið, hann hafði sérstakt lag á að
hrífa fólk með sér.
Guðmundur átti 4 böm, þau
Ágústu, Egil, Böðvar og Einar.
Hann elskaði þau og dáði mikið.
Svo var einnig um fíðluna hans.
Hann var mikill söngmaður og
músíkant. Hann söng og spilaði á
fíðluna af gífurlegri innlifun og til-
fínningu. Tilfínningin var oft svo
mikil í söng og spili, að maður fann
ótal strengi titra innra með honum.
Ég kveð Guðmund frænda minn
með virðingu og þökk fyrir allt lið-
ið og bið góðan Guð að gæta hans.
Tóta
t
Þökkum auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför systur
okkar,
SESSEUU EYSTEINSDÓTTUR,
Ingólfsstræti 16.
Ólafur Eysteinsson, Kristín Eysteinsdóttir,
Einar Eysteinsson, Arnbjörg Eysteinsdóttir.
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug viö andlát og útför móöur
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGVELDAR ÁRNADÓTTUR,
Efra-Hvoll,
Mosfellsbæ.
Pálmar Vígmundsson, Ragnheiður Jónasdóttir,
Ingunn Vigmundsdóttir, Aðalsteinn Vigmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir veitta samúð, hjálp og vináttu við fráfall og
jaröarför móður minnar og systur okkar,
KRISTÍNAR SÆBJARGAR FINNSDÓTTUR.
Guð fylgi ykkur öllum.
Leifur Kr. Ólafsson, Otto Finnsson,
Guðný S. Finnsdóttir, Elísabet Finnsdóttir.
t
Þökkum innilega hlýju og samúð við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
BRAGA GUÐMUNDSSONAR,
Austumesl,
Skerjaflrði
Elfsabet Einarsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og útför
KORNELfUSAR HANNESSONAR
bifvélavirkja.
Ástbjörg Geirsdóttir,
Ágúst G. Kornelfusson, Gullý B. Kristbjörnsdóttir,
Ólafur H. Kornelfusson, Guöný J. Kjartansdóttir,
Ástbjörg Kornelíusdóttir, Ómar Þórsson,
Sigurður Kornelfusson, Geirlaug Ingólfsdóttir.
t
Þökkum innilega hlýhug og samúð við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
BJARNA PÁLSSONAR,
Reynivöllum 4, Selfossi.
Margrót Helgadóttir,
Ragnhildur Bjarnadóttir, Friðbjörn Hólm,
Ingibjörg Bjarnadóttir, Sigurjón Jakobsson
Helgi Bjarnason, Páll Bjarnason,
og barnabörn.