Morgunblaðið - 10.11.1987, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
félk í
fréttum
TRYGGVI GUNNAR HANSEN
Heiðni er að ná sambandi
við náttúruna
Tryggvi Gunnar Hansen hélt
rúnanámskeið í Ásmundarsal
um síðustu helgi. Morgunblaðinu
lék forvitni á að vita hvað hér
væri á ferðinni og ræddi við
Tryggva um námskeiðið.
Aðspurður sagði hann að til-
gangurinn með námskeiðinu væri
fyrst og fremst sá, að kynna fólki
ákveðnar leiðir til þess að komast
í nánari tengsl við umhverfi sitt
og náttúruna. Stuðst væri við
fomar aðferðir úr heiðnum sið til
að ná þessum markmiðum.
„Heiðni er í raun og veru það
að ná sambandi við náttúruna,
öðlast samkennd og renna saman
við umheiminn," sagði Tryggvi.
„Þetta tengist ekki heiðnum sið,
sem trúarbrögðum,. heldur sem
aðstoð við að ná settum markmið-
um. Dæmi um þetta eru hring-
dansamir gömlu, sem enn tíðkast
meðal annars í Færeyjum. Á nám-
skeiðinu læt ég fólk dansa eftir
einfaldri tónlist í þeim tilgangi að
komast í nokkurs konar trans eða
seið, og þá koma gjaman alls
konar myndir upp í hugann. Fólk
leitar þannig inn í sjálft sig, en
ég vil taka það fram að ég gef
aðeins leiðbeiningar, og það er
fólkið sjálft sem ræður ferðinni.
Ég sýni einnig hvemig nota má
rúnir, sem einbeitingarformúlu,
og jafnframt hvemig hægt er að
nota þær í sambandi við spá-
dóma.“
Tryggvi sagði ennfremur að í
dag væru til samsvarandi aðferðir
erlendis, sem kallaðar væru
„skapandi hugsýnir". Gefner
hefðu verið út snældur, sem inni-
héldu námskeið í slíkum fræðum,
og í Bandaríkjunum væri það orð-
ið algengt að menn færu í þannig
stýrða dagdrauma, þar sem þeir
sæju fyrir sér það sem þeir vilja
að verði að veruleika.
„Hugmyndin að þessu er sú,
að hugur mannsins sé miklu
sterkari en menn hafa gert sér
grein fyrir. Ef maður er opinn
fyrir því að einhveijir hlutir gangi
upp, þá eru miklu meiri líkur á
því að þeir geri það, heldur en ef
maður er neikvæður," sagði
Tryggvi að lokum.
Tryggvi leggur gjörva hönd á margt og hefur meðal annars
kennt torfhleðslu. Um helgina hélt hann rúnanámskeið á vegum
Þrídrangs.
HVÍTA TJALDIÐ
Ofurmennið
of djarft?
Leikarinn Kristófer „Ofurmenni" Reeve
sýnir afar óofurmennislega framkomu
þessa dagana, en hann yfirgaf nýverið eigin-
konu sína og tvö böm. Þess í stað hefur
hann sést æ oftar með ungu og laglegu
fljóði sem mun heita Dana og vera okkur
íslendingum alls ókunn. Til þeirra sást um
daginn á frumsýningunni á nýjustu mynd
Kristófers, „Banvænt aðdráttarafl" en
gagnrýnendur ku ekki vera par hrifnir af
henni þar sem hún sé alltof djörf. Menn
hafa ekki verið á einu máli um hvemig
honum hafi tekist að losa sig við
ofurmennisí-
myndina og varð fmmsýning myndarinnar
síst til að draga úr þeim deilum.
Kristófer ásamt Dönu sinni en eiginkon-
an situr heima með börn og buru og
engan eiginmann.
„Hættu að dufla við ljósmyndarann" sagði Jay við konu
sina þegar þau komu í afmælisveislu vinar síns fyrir
skömmu.
Ástleitna
Kathleen
á von á barni
Kathleen Tumer er kona eigi einsömul. Hún
á von á bami með manni sínum Jay Weiss
fasteignahöndlara og er sögð afar ástfangin
af honum. Það hindrar hana þó ekki í að dufla
við aðra menn og mun þetta hafa valdið nokkr-
um árekstmm í annars ágætu hjónabandi. Jay
segist ríghalda í eiginkonu sína þegar þau fari
saman út sökum þessa veikleika en Kathleen
mun ekki gera upp á milli eldri og yngri manna
þegar dufl og daður er annars vegar. „Mér
finnst dýrðlegt að dufla,“ segir hún, „og mér
ferst það einkar vel úr hendi. Ég hef því alls
ekki hugsað mér að hætta því.“
MICHAEL JACKSON
Ástralir eru letidýr
Michael Jackson hefur séð
sig tilneyddan að stytta
tónleikaför sína um Ástralíu. And-
stætt Japönum sem flykktust í
hundmða þúsundatali til að hlýða
á goðið, hefur Áströlum ekki
þóknast að mæta á tónleika hjá
kappanum og furðar víst margan
manninn á hegðun andfætlinga
vorra. Hefur tónleikum sem halda
átti í Perth og Adelaide verið af-
lýst vegna leti Ástrala og að
öðmm hefur verið dræm aðsókn.
Engin opinber skýring hefur verið
gefin á áhugaleysinu og sem fyrr
þegir Michael þunnu hljóði.
Ja, allt er í heiminum hverfúlt
sagði góðvinur Fólks í f réttum
þegar hann frétti um atburðina
í Ástralíu, eða ætti kannski frek-
ar að segja atburðaleysið?