Morgunblaðið - 10.11.1987, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
63
„Er ég ekki sætur?“, syngur Dollý Utur D’Arby hýru auga.
D’Arby.
SÖNGVARAR
Sveitakerling’in Dollý
féll fyrir poppgoðinu
Poppgoðið Terence Trent
D’Arby hefur eignast enn einn
aðdáendann, (hvað skyldu þeir nú
vera orðnir margir?). Það er sjálf
drottning sveitatónlistarinnar,
Dollý Parton, sem fyllir flokkinn.
Hún er komin með eigin sjónvarps-
þátt þar vestra og bauð honum að
koma fram í þættinum um daginn.
Það var ekki að sökum að spyija,
Dollý kerlingin féll með brauki og
bramli fyrir kyntröllinu Terence.
„Þú ert nú sá kynþokkafyllsti
söngvari sem ég hef á ævi minni
heyrt og séð og næst þegar þú
kemur til Bandaríkjanna er þér
meira en velkomið að dvelja heima
hjá mér,“ sagði sú góða kona að
söngnum loknum.
SIMPLY RED
Dansaðu, eða tak
bassa þinn og gakk
COSPER
Nú geta aðdáendur Simly Red
hafið grát og gnístran tanna
því þær harmafregnir hafa borist
að hinn lambærði rauðhöfða söngv-
ari hljómsveitarinnar hafi gefið
bassaleikaranum Sylvan Richards-
son reisupassann. Mick Hucknall,
en svo nefnist söngvarinn, tók sér
alræðisvald í hendur og tjáði bassa-
leikaranum að ef hann dansaði ekki
meira á sviðinu, fengi hann ekki
að vera með. Þetta kom að sjálf-
sögðu illa við Silvan þvi ekki hafði
slest neitt upp á vinskapinn fyrr
en með þessu leiðindamáli. Silvan
sá hag sínum best borgið með því
að yfírgefa félagana þar sem hann
er feiminn maður og auk þess Vott-
ur Jehóva. En þeir eru víst litt
gefnir fyrir að hoppa um og dansa
eins og apakettir. En Mick Hucknall
dansar nú um allt og leitar sér að
dansfélaga sem kann að spila á
bassa.
„Dansaðu maður, dansaðu," æpir
Mick Hucknall að bassaleikaran-
um.
— Það kyssir mig aldrei neinn.
ÍSLENSKA ÓPERAN
Sýnlngardagar:
Fimmtudag 12. nóv. kl. 21.00
Föstudag 13. nóv. kl. 21.00 og 23 30
Laugardag 14. nóv. kl. 211.00 °9 23.30
Sunnudag 15. nov. kl. 21.00
Aðgöngumiðasala í Gamla bíói
alla daga kl. 17-20.
ath. adeins sex sýningar
gildihf