Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 67
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
691100 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
★Austurstræti 22. Á~Rauðarárstig 16. Á'Glæsibæ, -ÁStandgötu Hf. ★Póstkröfusimi 11620. ★Simsvari 28316.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
Nýbýlavegi 4,200 Kópavogi. Sími 45800
Pað er ekki oft sem draumarnir rætast. En sem betur fer kemur það fyrir
og nú er einn sá stærsti orðinn að veruleika!
Hljómsveitin Rauðir Fletir vekja okkur með nýrri, þrumugóðri plötu
„Minn stærsti draumur".
Rauðir Fletir hafa undanfarið ár unnið sér sess sem ein besta
rokkhljómsveit landsins. Þá vantar ekki kraftinn og við megum vænta
mikils af þeim í framtíðinni.
Missið ekki af frumsýningu myndbandsins „Ég heyrði það frá útlöndum"
í Poppkorni Sjónvarpsins í kvöld kl. 19.30
Útgáfudagur 12. nóv.
H '
É: 4 í rí j ■'
” ,ir’*#
“ÆaSlf
jffmnl . J
Aukið ábyrgð öku-
manna
P.G. hringdi:
„Að undanfömu hefur mikið
verið skrifað um ökuhraða í Vel-
vakanda og því jafnvel haldið
fram að það væri allra meina bót
ef ökumenn myndu draga úr hrað-
anum. Þetta er sjónarmið útaf
fyrir sig en ég vil leyfa mér að
benda á að slysin verða einnig
þegar ekið er á löglegum hraða.
Ástæðan fyrir slysum er oft, og
ef til vill oftast, sú að ökumenn
hafa ekki athyglina við aksturinn
og eru að hugsa um eitthvað allt
annað. Nú er mönnum refsað fyr-
ir umferðarlagabrot og þeir látnir
greiða háar sektir. Ég tel að það
yrði til góðs að umbuna mönnum
fyrir að valda ekki umferðarslys-
um t.d. með því að þeir ökumenn
sem hafa ekið áfallalaust í tíu til
fímmtán ár þurfí ekki að greiða
bifreiðatryggingar eða bifreiða-
Hannes Ingibergsson, kennari
við Menntaskólann við Sund,
hringdi:
„I fréttum sem birtust fyrir
skömmu af golfmóti framhalds-
skólanna kom ekki fram hver gaf
verðlaunin sem sem veitt voru.
Að þessu sinni var það Mál og
menning
sem gaf 9 vandaðar bækur."
Gleraugu
Látil svört gleraugu fundust á
húströppum við Háteigsveg. Eig-
andi þeirra getur hringt í Jóhann
í síma 12547.
Budda
Blámunstruð pijónabudda tap-
aðist sunnudaginn 18. október,
sennilega við Þjóðleikhúsið.
Pinnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í Sigríði í síma 672603.
Prjónahúfur
Kona hringdi:
„Fyrir skömmu sá ég auglýstar
þijónaðar bamahúfur með nöfn-
um eftir vali en hef gleymt hvaða
fyrirtæki var með þær og væri
þakklát ef einhver gæti upplýst
mig um það.“
Þessir hringdu ..
skatt. Auka þarf ábyrgð öku-
manna á tjónum og slysum sem
þeir valda. Allt sem verður til að
auka ábyrgð ökumanna í um-
ferðinni er af hinu góða.“
Verðlaun
Umferðarhradiiui fyrr og nú
Til Velvakanda.
Það mun hafa verið árið 1837,
fyrir réttum 150 árum, að þáver-
andi yfirvald Reykjavíkur, Stefán
Gunnlaugsson, fýrirskipaði hesta-
mönnum að fara hægt eftir
Reykjavíkurgötum. En þá er talið
að 739 íbúar hafí verið búsettir í
Reykjavík. Ifyrirmælum Stefáns,
var það vel hlýtt, að engin tjón
né slys urðu í Reykjavík, meðan
hans fyrirmælum var hlýtt sem var
út hans stjómartíð. Nú er öldin
önnur, eftir þessi 150 ár, þar sem
okkur er fyrirskipað, með fárra ára
miliibili að fara hraðara, og hrað-
ara, bæði í höfuðborginni og úti á
þjóðvegum. En afleiðingar frá
þeim vaxandi hraða, eru fleiri tjón
og slys, þar sem sá vandi vex í
líkum hlutföllum, svo sem sjálfur
hraðinn, ásamt þeim ökutækja-
fjölda, sem hefur bæst í okkar
hendur síðustu ár. Nú er íbúatala
Reykjavíkurborgar orðin 91.497
og bílaeign allra landsmanna kom-
in uppí 126.126, hvort tveggja um
síðustu áramót.
Það hefur aðeins einu sinni ver-
ið framkvæmd í rétta átt af stjóm-
völdum, að mæla með hægari
akstri, og sérstakri varúð þá skipt
var í hægri handar aksturinn, þá
bar við ökumenn hlýddu því með
þeim góða árangri, þar sem tjónin
og slysin minnkuðu verulega.
Rétt á eftir var okkur enn á ný
skipað að fara miklu hraðara hér
í borg, þar sem bæjarbúar tóku til
þeirra ráða, að setja marga þver-
hiyggi yfír götumar, sérstaklega
við skóla, og fleiri staði, sem hafa
orðið til þess að ekki er farandi
yfir þá á meira en 30 kílómetra'
hraða. Þau fyrirmæli kveða svo á
að lækka hraðann niður um einn
þriðja. Því lejrfíst mér að spyija:
Hvemig stendur á þessari mót-
sögn. Að skipa okkur að aka á 45
kflómetra hraða, og setja svo með
miklum kostnaði þessar hindranir?
„Væri það ekki möguiegt fyrir lög-
reglustjórann hér í Reykjavík,
ásamt borgarstjóm, að fyrirskipa
nú þegar þann hraða sem þið telj-
ið mögulegan, samkvæmt þeim
hraðahindrunum, sem þið hafíð
sett upp, sem búnar em að standa
nokkum reynslutíma svo sem þið
hljótið að hafa skýrslur um hvem-
ig hafa reynst?
Borgarstjóm, og fjoldi manna
og kvenna í Reykjavík, og víðar,
hafa ætíð þá venju að minnast
margra merkra tímamóta, og
þeirra manna sem hafa afkastað
hinum bestu verkum. Leyfíst mér
að stinga uppá því hvort það væri
ekki ráðlegt að minnast þeirra
tímamóta, sem urðu fyrir réttum
150 áram þá Stefán Gunnlaugsson
fyrirskipaði hægari hestaferð um
bæinn, með góðum árangri, þá
íbúar Reykjavíkur vora aðeins 739
og hestafjöldi hefur varla verið
meiri en telja mætti á fíngram sér.
Þá hlýtur að vera tímabært á
þessu ári að fyrirskipa hægari
hraða, þá bílafjöldi landsmanna er
kominn uppí 126.126 og mestur
hluti þeirra er hér á ferð um borg-
ina, með vaxandi tjónum og
slysum, og íbúatalan er komin
uppí 91.497. Það væri góð veislu-
minning, á þessu 150 ára afmæli.
Þá mundi þróuninni e.t.v. verða
snúið við, og tjónum færi fækk-
andi ár frá ári, þar til allir gætu
ekið heilum vagni heilum heim.
Vona að allir foreldrar styðji þessa
hugmynd, og láti framkvæma
hana, til heilla fyrir framtíð bama
sinna.
Áratuga ökuþór.