Morgunblaðið - 10.11.1987, Side 70

Morgunblaðið - 10.11.1987, Side 70
70 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 LANDSFUNDUR ALÞYÐUBANDALAGSINS: Morgunblaðið/Sverrir Nýkjörin stjórn Alþýðubandalagsins. Frá vinstri eru Bjargey Einarsdóttir gjaldkeri, Björn Grétar Sveinsson ritari, Svanfríður Jónasdóttir varaformaður og Ólafur Ragnar Grimsson formaður. Svanfríður Jónas- dóttir varaformaður SVANFRÍÐUR Jónasdóttir bæj- arfulltrúi á Dalvík var kjörinn varaformaður Alþýðubandalags- ins á landsfundi flokksins um helgina, Björn Grétar Sveinsson — y fonnaður verkalýðsfélagsins Jök- uls á Hornafirði var kjörinn ritari, og Bjargey Einarsdóttir fiskverk- andi í Keflavík var kjörinn gjaldkeri flokksins. Engin mót- framboð komu í stjórnarkjörinu. Á fyrsta stjómarfundinum sem haldinn var í gær var ákveðið að Svanfríður skuli sérstaklega sinna byggðamálum og sveitarstjómar- málum flokksins, Bjöm Grétar sinni launamálum, kjaramalum og mál- efnum samtaka launafólks, og Bjargey sjái um atvinnumál og þá séretaklega innan sjávarútvegsins. í framkvæmdastjóm voru eftirtal- in kosin á þinginu: Óttar Proppé , með 266 atkvæðum, Ásmundur Stefánsson með 236 atkvæðum, Álf- heiður Ingvadóttir með 231 atkvæði, Guðrún Ágústsdóttir með 215 at- kvæðum, Sigurjón Pétureson með 214 atkvæðum, Kristín Á. Ólafs- STYTTING vinnutímans er aðal- verkefni Alþýðubandaiagsins og verkalýðshreyfingarinnar sam- kvæmt stjóramálaályktun flokks- ins sem samþykkt var á landsfundinum um helgina. Segir þar að vinnuþrældómurinn sé einn Ijótasti bletturinn á sam- félagi okkar enda skeri íslending- ar sig úr öðrum þróuðum þjóðum að þessu leyti. í stjómmálaályktuninni em einnig talin upp 13 verkefni sem sögð eru vera meginatriði íslenskra stjóm- mála. Það fyrsta er að afnema matarskattinn en leggja í staðinn skatta á stóreignir, auðfyrirtæki og vaxtagróða. Einnig er talið brýnt að ógilda ákvörðun ríkisstjómarinn- ar um að skera niður framlög til ^menningarmála. Þá er ma. hvatt til eflingar nýrra atvinnugreina, fram- dottir með 200 atkvæðum, Stefanía Traustadóttir með 199 atkvæðum, Armann Ægir Magnússon með 199 atkvæðum og Bima Þórðardóttir með 194 atkvæðum. í næstu sætum vom Þröstur Ólafsson, Bergljót Kristjánsdóttir, Kristinn H. Einars- son, Margrét S. Bjömdsóttir og Össur Skarphéðinsson. í fram- kvæmdanefndina var Guðmundur Auðunsson sjálfkjörinn fulltrúi Æskulýðsfylkingar Alþýðubanda- lagsins. í verkalýðsmálaályktun lands- fundar Alþýðubandalagsins er talið brýnt að skipulag samtaka launafólks verði tekið til gagn- gerrar endurskoðunar. Markmið slíkrar endurskoðunar eigi að haldsmenntunar og að framlög til bamaheimila séu aukin. Að auki er talið brýnt að hrinda í framkvæmd nýrri byggðastefnu sem byggist á því að fólkið í byggð- arlögunum fái sjálft að ráðstafa stærri hluta verðmætanna en nú er, og að byggja upp húsnæðiskerfí sem miðar við það gmndvallaratriði að enginn þurfi að veija meim en fimmtungi dagvinnutekna sinna til að tryggja sér húsnæði. Síðasta áhersluatriði stjómmálaá- lyktunarinnar er á nýja og sjálfstæða utanríkisstefnu sem sé samboðin íslendingum sem fullvalda og friðel- skandi þjóð. Þessi stefna þurfi að hagnýta þá fersku vinda sjálfstæðr- ar friðarbaráttu sem nú biási í alþjóðamálum og brýnasta verkefnið sé enn sem fyrr að koma íslandi út úr hemaðarbandalaginu og hemum úr landi. í varastjóm vom kosin í þessari röð: Heiðrún Sverrisdóttir, Bergljót Kristjánsdóttir, Kristinn H. Einars- son, Þröstur Ólafsson, Amar Jóns- dóttir og Margrét S. Bjömsdóttir. Alls em 17 í framkvæmdastjóm flokksins, þe. formaður, varaformað- ur, ritari og gjaldkeri, 9 aðalmenn kjömir á landsfundi, 1 fulltrúi Æskulýðsfylkingarinnar og 3 full- trúar þingflokksins. Varamenn eiga einnig seturétt á fundum fram- kvæmdastjómarinnar. vera að auka samstöðu í samtök- um launafólks og þvi markmiði verði best náð með þvi að skipu- leggja verkalýðshreyfingina á grundvelli atvinnugreina en ekki starfstétta, þannig að allir al- mennir launamenn á sama vinnu- stað séu i sama verkalýðsfélagi. í samtali við Morgunblaðið sagði Bjöm Grétar Sveinsson varaformað- ur flokksins, að spennan innan verkalýðshreyfingarinnar kæmi upp vegna úrelts skipulags og því væri endurskipulagning þess nauðsynleg. Fyrsta skrefið í átt til þessara breyt- inga hefði verið stigið á verka- mannasambandsþinginu á Akureyri og það væri þýðingarmikið, þótt ljóst væri að mjög þungt gæti reynst að breyta skipulagi svona stórra sam- taka og ýmsar valdastofnanir innan þeirra væm fastar fyrir sem gerði breytingar enn erfiðari. Ályktað gegn hvalveiðunum SÉRSTÖK ályktun gegn hvalveið- um íslendinga var samþykkt á landsfundi Alþýðubandalagsins. Tillagan fékkst ekki samþykkt sem hluti af umhverfismálatillögu flokksins og var hún því borin upp sér. í tillögunni segir að landsfundur- inn telji að hvalveiðar hér við land skuli stöðvaðar hið fyrsta þar til sýnt hefur verið fram á, á óyggjandi hátt, að hvalastofnamir séu ekki í útrýmingarhættu. Afgerandi stuðningur auðveldar uppbygg- ingu - segirÖssur Skarphéðinsson „ÉG TEL að vel hafi tekist til með skipti á forystunni. Ég studdi Olaf Ragnar Grímsson og held að sá afgerandi stuðn- ingur sem hann fékk í form- anns- og miðstjóraarkjöri muni styrkja flokkinn og auðvelda Ólafi starfið á næstunni," sagði Össur Skarphéðinsson ritstjóri Þjóðviljans og efsti maður í kjöri til miðstjómar Alþýðu- bandalagsins. „Það hefði verið erfiðara ef úrslitin hefðu ekki orðið jafnafdráttarlaus og raun bar vitni. Þá kvaðst Össur telja að Sigríð- ur Stefánsdóttir hefði styrkt stöðu sína á fundinum. „Hún tók úrslit- unum vel og virðulega, ég held að hún sé sterkari eftir fundinn en áður og að flokksmenn kunni að meta hennar framlag til að endurreisa flokkinn. Fyrir þennan landsfund var Alþýðubandalagið ekki annað en hræ en nú er gott lag fyrir flokkinn til að hefja nýja sókn og endurheimta fomstuhlut- verk sitt á vinstri vængnum. Annars er ekki annað að gera en loka sjoppunni," sagði Össur Skarphéðinsson. Óska ný- kjömum formanni velfamaðar - segir Hjörleifur Guttormsson „ÉG HEFÐI talið sterkara og betra fyrir Alþýðubandalagið að fá Sigríði fyrir formann vegna þess sem hún augljóslega stendur fyrir, hún er með rætur á landsbyggðinni og auk þess kona með ríka tilfinningu fyrir kvenfrelsismálum sem þörf er á að ýta undir á öllum sviðum,“ sagði Hjörleifur Guttormsson þegar Morgunblaðið leitaði álits hans á niðurstöðum landsfund- ar Alþýðubandalagsins. „Það voru mér vonbrigði að meiri- hluti fundarmanna sá sér ekki fært að taka undir þessi sjónar- mið en ég óska nýkjörnum formanni að sjálfsögðu velfam- aðar í hans vandasama starfi.“ „Þessi fundur var athyglisverð- ur um margt," sagði Hjörleifur. „Ánægjuleg breidd kom fram í kjöri í stofnanir flokksins miðað við þá skoðanahópa sem tekist hafa á innan Alþýðubandalagsins að undanfömu og margar ályktan- - ir komu fram og voru samþykktar, sem geta orðið flokknum gagnlegt veganesti." Aðspurður kvaðst Hjörleifur hér eiga einkum við stjómmálaályktunina og ályktun um umhverfísmál. Hann kvaðst ekki vilja leggja mat á ályktun um verkalýðsmál, „ég hef ekki kynnt mér hana þannig að ég vilji leggja dóm á hana en það er ljóst að áhersla á skyldur Alþýðubanda- lagsins við öll samtök launamanna endurspeglast í ályktunum fundar- ins sem snúa að verkalýðsmálum." „Það má sjálfsagt túlka það á ýmsa vegu,“ sagði Hjörleifur þeg- ar hann var spurður um skýringar á því hvers vegna hann. hafí ekki setið landsfundinn að afloknu for- mannskjöri á laugardag. „Ég notaði þann tíma til að fara yfír Gunnlaðar-sögu Svövu Jakobs- dóttur, mér til mikillar ánægju. Ég tel að þeim tíma hafí verið vel varið en ég leyni því ekki að ég hefði viljað sjá aðrar áherslur í fremstu forystu flokksins. Ég vænti þess að Alþýðubandalaginu takist að bæta úr því sem þama hallar á en til þess þarf vilja frá öllum þeim sem eru í ábyrgðar- stöðum fyrir flokkinn og stuðning frá almennum flokksmönnum." Hjörleifur Guttormsson kvaðst ekki óttast það að einangrast í flokknum vegna andstöðu við nú- verandi forystumenn. „Ég fylgi áfram minni sannfæringu og síðan verður að reyna á hvaða stuðnings mín sjónarmið njóta. Ég mun eftir sem áður leitast við að verða að gagni á mínum aðalstarfsvett- vangi, sem er Alþingi og Austur- landskjördæmi." —Þýðir þetta að þú munir ein- beita þér að starfí í kjördæmi og á Alþingi frekar en innanflokks- starfí? „Alls ekki, ég hef skyld- um að gegna þar líka, það hefur ekkert breyst í þeim efnum,“ sagði Hjörleifur Guttormsson að lokum. Aukið vægi lands- byggðar í stjórn - segir Svanfríð- ur Jónasdóttir „ÉG TRÚI því að við séum búin að kjósa forustu sem bæði getur og viU vinna saman. Það held ég að sé meginmálið," sagði Svanfríður Jónasdóttir bæjar- fulltrúi og varaþingmaður á Dalvik sem kjörin var vara- formaður Alþýðubandalagsins á landsfundi flokksins um helg- ina. Svanfríður vildi ekki túlka breytingamar á forustu flokksins sem hallarbyitingu þar sem nokk- uð víðtæk samstaða væri um forustuna. Hún sagðist helst líta á sig sem fulltrúa landsbyggðar- innar og raunar væri verið að svara vilja mjög margra með þessu stjómarkjöri, það er að 'segja þeirra sem vilja fá aukið vægi landsbyggðarinnar inn í stjóm flokksins. Verkalýðsmála- ályktun Abl: Einföld mistök - segir Asmundur Stefánsson „REYNSLAN verður að skera úr um hvernig ný forysta reyn- ist Alþýðubandalaginu," sagði Asmundur Stefánsson er Morg- unblaðið hafði tal af honum í Alþingishúsinu í gær, „annáð get ég ekki sagt um það að svo stöddu.“ Ásmundur sagði einnig að það hefðu verið „einföld mistök“ að samþykkja breyt- Stytting vinnutím- ans aðalverkefnið - segir í stj órnmálaályktun lands- fundar Alþýðubandalagsins Verkalýðsmálaályktun landsfundarins: Endurskipulagning verka- lýðshreyfingarinnar brýn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.