Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 ingatillögnr Birnu Þórðardótt- ur við verkalýðsmálaályktun landsfundarins. Ásmundur kvaðst mundu starfa af krafti innan flokksins hér eftir sem hingað til „annars hefði ég ekki gefíð kost á mér við kosningu í framkvæmdastjóm og ég vona eindregið að nýkjörin fram- kvæmdastjóm starfí betur en forveri hennar." Aðspurður kvaðst Ásmundur ekki telja að staða hans hefði veikst þótt í verkalýðsmálaá- lyktun væri farið hörðum orðum um störf verkalýðshreyfíngarinn- ar. „Samþykkt þessarar ályktunar er einföld mistök," sagði Ásmund- ur Stefánsson forseti ASÍ, sem greiddi atkvæði gegn endanlegri útgáfu verkalýðsmálaályktunar landsfundar Alþýðubandalagsins. Steingrímur Hermannsson, utanríkisráð- herra: Kallar ekki á sérstök við- brögð „Ég hef engin afskipti af því sem geríst i Alþýðubandalaginu og þetta kallar ekki á sérstök viðbrögð hjá mér,“ sagði Steingrímur Hermannsson, ut- anríkisráðherra, aðspurður um viðbrögð hans við niðurstöðu á landsfundi Alþýðubandalagsins. „Ég óska Ólafí Ragnari til ham- ingju og vona að honum takist að leiða Alþýðubandalagið til betri vegar,“ sagði Steingrímur. Að- spurður hvort þessi forystuskipti í Alþýðubandalaginu ykju eða minnkuðu líkumar á samstarfi Pramsóknarflokks og Alþýðu- bandalags, sagði Steingrímur að ómögulegt væri að meta það á þessari stundu. Þorsteinn Pálsson, forsætis- ráðherra: Óska nýjum formanni til hamingju „Ég óska nýjum formanni til hamingju með erfitt hlutverk og vandasamt," sagði Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, er Morgunblaðið innti hann áÚts á úrslitum landsfundar Alþýðu- bandalagsins, sem haldinn var um helgina. „Það hefur ekki verið neinn grundvöllur til samstarfs við Al- þýðubandalagið um langan tíma og könnunarviðræður vegna ríkis- stjómarmyndunar í vor sem leið leiddu það mjög skýrt í ljós,“ sagði Þorsteinn aðspurður hvort þessi niðurstaða yki líkur á samstarfi Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- bandalags. „Hugmyndafræðilega hefur Alþýðubandalagið glatað pólitiskum tilgangi sínum. Það er að reyna að vera regnhlífasamtök ólíkra hagsmunahópa. Ég held að það verði engin breyting á Al- þýðubandalaginu að þessu leyti og ný forysta breyti þar engu um,“ sagði Þorsteinn Pálsson, forsætis- ráðherra ennfremur. 71 KVÖRTUN hefur borizt frá ítölskum skreiðarkaupendum vegna skreiðar, sem þeir hafa keypt héðan á þessu ári. Kvörtunin beinist fjrst og fremst gegn gæðum skreiðar verkaðri sunnanlands, en fulltrúar Skreiðardeildar Sambandsins og Ríkismats sjávarafurða telja kvartanirnar ekki eiga við rök að styðjast. Máhð er nú í hönd- um sjávarútvegsráðuneytisins. ítalir telja skreið verkaða norðan- lands betri en sunnanskreiðina og stafar það fyrst og fremst af því, að veðurfar var hagstæðara norð- anlands á verkunartímanum. Meðal annars þess vegna hefur aðeins skreið að norðan náð fyrsta gæða- flokki. Ragnar Siguijónsson, sölustjóri skreiðardeildarinnar, sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að vegna þessara kvartana hefðu tveir menn frá deildinni og einn frá ríkismatinu farið til Ítalíu til að kynna sér mál- in. Niðurstaða þeirra væri sú, að kvartanir ítala ættu ekki við rök að styðjast. Svo virtist sem þeir væru að reyna að fá verðlækkun á skreiðina. Þeir hefðu verið hér heima í júlí til að skoða skreið og þá hefði norðanskreiðin verið betur verkuð. Hins vegar hefði náðst að verka sunnanskreiðina vel líka, þó hún hefði verið seinna á ferðinni og því væri ekki ástæða til kvart- ana að hans mati. Ragnar sagði, að verð hefði verið hækkað nokkuð í vor og síðan aftur um 5% síðar í sumar. Þrátt fyrir það væri verð á íslenzku skreiðinni heldur lægra en á skreið frá Nor- egi, en íslendingar væru með um 25% af þessum markaði. Alþjóðlegt skákmót í Stapa: Fimm skákmenn stefna að áfanga að alþjóðlegum titli Keflavík. ALÞJÓÐLEGT skákmót hófst í Stapa síðastliðinn sunnudag og leiða þar saman hesta sína 12 skákmenn, 8 íslendingar og 4 útlendingar. Tveir stórmeistarar taka þátt í mótinu þeir Helgi Ólafsson og Guðmundur Sigur- jónsson. Af keppendum á mótinu stefna 4 íslendinganna að því að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli og sömuleiðis einn útlendinganna. Keppendur búa í Hótel Kristínu í Njarðvík og þar eru jafnframt bið- skákir tefldar. Vegleg verðlaun eru í boði og eru 1. verðlaun 1.200 Bandaríkjadollarar, 2. verðlaun 600 dollarar, 3. verðlaun 400 dollarar auk þess sem fleiri keppendur fá Djúpivogur fékk sjúkrabílinn ÞAÐ voru Djúpavogsmenn sem fengu afhenta sjúkraflutninga- bifreið á föstudag, en ekki Dalvikingar, eins og stóð i frétt Morgunblaðsins á laugardag. í inngangi fréttarinnar var Djúp- víkingum eignaður bíllinn, en síðar er talað um Dalvíkinga. Hvorugt er rétt og ieiðréttist þetta hér með, bíllin fór til Djúpavogs. verðlaun. Mótið er haldið í sam- vinnu tímaritsins Skákar, Njarðvík- urbæjar og Keflavíkurbæjar. B.B. Uppskipun á tunnum úr Grimsey. Morgunblaðið/Jón G. Gunnarsson Höfn: Tunnurnar komnar Höfn, Homafirði. FLUTNINGASKIPIÐ Grímsey er komið til Hafnar, fullhlaðið eftirsóttum sUdartunnum. Stöðvarnar á Höfn fá þó ekki þann fjölda sem dugar þeim tíl að klára kvóta sinn. Nú er búið að salta í 18.000— 19.000 tunnur hjá Skinney hf. og Fiskimjölsverksmiðju Homaijarð- ar hf., þar af um 11.000 hjá FH. Þeim hefur verið úthlutað kvóta sem hljóðar upp á um 3000 tunn- ur hjá FH og 2500 tunnur hjá Skinney. En þessar stöðvar af- kasta léttilega um 5000 tunnum á sólarhring. Staðfestu Sovétríkin viðbótarsamning um 50.000 tunn- ur til viðbótar þeim 150.000, sem þegar er samið um, munu Hafnar- stöðvamar fá einhveija viðbót við ofangreindan kvóta. - JGG SKYLINE“ ■if ♦ ♦♦ WILKENS--------- BSF Fundað um geisla- mengnn í hafinu VIKUNA 9.-15. nóvember standa samtök visindamanna um heim allan fyrir fundum um fríðar- mál. Af þessu tilefni halda Samtök íslenskra eðlisfræðinga gegn kjarnorkuvá fræðslufund nm geislamengun i hafinu mið- vikudaginn 11. nóvember. Á fundinum em tvö erindi. Páll Theodórsson eðlisfræðingur flytur erindi sem nefnist Endurvinnsla kjameldneytis og Dounray og Tóm- as Jóhannesson jarðeðlisfræðingur flytur erindi sem nefnist Hætta á geislamengun frá kjamorkuknún- um skipum og kafbátum. Á eftir eríndunum svara fyrirles- arar spumingum frá fundargestum. Fundurinn er haldinn í Skólabæ, Suðurgötu 26 og hefst kl. 20.30. Fundurinn er öllum opinn og eru félagar samtakanna, blaðamenn og aðrir sem áhuga hafa á umræðuefn- inu hvattir til að mæta. (Fréttatílkynniiig) Jj ‘ffiý'rÍrí 'iS^mSSÍá SILFUR KRINGLUNNI—REYKJAVÍK SÍMI 689066 Er norðlenzka skreiðin betri en sú að sunnan?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.