Morgunblaðið - 10.11.1987, Page 72
ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Fyrsti fundur VMSÍ og VSÍ:
Flötur á samninga-
viðræðum kannaður
FYRSTI fundur Verkamanna-
sambands íslands og Vinnuveit-
endasambands íslands eftir þing
VMSÍ um stöðuna i kjaramálum
var hnldinn { gær. Annar fundur
hefur ekki verið boðaður, en
aðilar komu sér saman um að
setja á fót nefnd til þess að kanna
afkomuhorfur í útflutnings-
greinunum. Sú nefnd kemur
saman til fundar á morgun, mið-
vikudag.
„Við erum staðráðnir í því beggja
megin borðsins að kanna það til
nokkurrar þrautar, hvort sameigin-
legur flötur geti fundist á samn-
ingaviðræðum nú á næstunni. Eins
og mál standa nú er ekki ljóst hvort
efni eru til þess að ganga til form-
legra og aivarlegra samningavið-
ræðna. Við þurfum að kanna
aðstæður og viðhorf og munum
gera það á næstunni með þessum
hætti," sagði Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSÍ, í
gærkveldi í samtali við Morgun-
blaðið.
Þórarinn sagði að gott andrúms-
loft hefði ríkt á fundinum. Verka-
mannasambandið hefði lagt áherslu
á það í málflutningi sínum að ná
með einhveijum hætti upp launum
þeirra sem ekki hefðu notið launa-
skriðs eða launahækkana til jafns
við aðra, einkum fiskvinnslufólks.
Vinnuveitendur hefðu bent á að
þeir hefðu bága reynslu af því að
leysa vanda hinna lægstlaunuðu í
kjarasamningum og bentu á að
megináhersla hefði verið lögð á það
í síðustu samningum. Nú orkaði
tvímælis hvað eftir stæði. „Við
ræddum um að skoða fleiri mögu-
leika í þessu samhengi. Nú blasir
við umræða um skattamál að því
er boðað er, þannig að þau mál
koma sjálfsagt einnig til,“ sagði
Þórarinn V. Þórarinsson.
Maður fannst látinn í Sbúð á annarri hæð i vinstri stigagangi í þessu
húsi við Skipholt á laugardag. Nú hefur íbúðareigandinn játað að
hafa lent í átökum við hinn látna.
Maður lést eftir átök
MAÐUR um þrítugt hefur játað
að hafa lent í átökum við rúm-
lega fertugan mann, sem fannst
látinn á heimili þess fyrmefnda
á laugardag. Dánarorsök er ekki
ljós, en þó þykir fullvíst að mað-
urinn hefur látist í framhaldi af
átökunum.
Það var um kl. 18 á laugardag
sem maður hringdi til lögreglunnar
og tilkynnti að látinn maður væri
í herbergi í íbúð hans í Skipholti 40
í Reykjavík. Þegar lögreglan kom
á vettvang fann hún Jóhannes Hall-
dór Pétursson, 41 árs gamlan,
látinn. Húsráðandi, sem hafði
hringt í lögregluna, sagðist hafa
lent í átökum við hinn látna. Hann
gat litlar skýringar gefíð á atvikum
og var verulega undir áhrifum
áfengis og annarra fíkniefna. Talið
er að nokkrar stundir hafí liðið frá
því að maðurinn lést og þar til lög-
reglan var kölluð til.
Rannsóknarlögregla ríkisins hóf
yfírheyrslur yfír manninum á
sunnudag. Þá játaði hann átök við
hinn látna og talið er fullvíst að
maðurinn hafí látið lífíð í framhaldi
af því. Dánarorsök er þó ekki ljós
enn. Maðurinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 3. febrúar á
næsta ári og gert að sæta geðrann-
sókn. Hann hefur kært lengd
gæsluvarðhaldsins til Hæstaréttar.
Hinn látni hét sem fyrr sagði
Jóhannes Halldór Pétursson. Hann
var 41 árs gamall, fæddur 14.9.
1946, til heimilis í Iðufelli 12 í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Snorrí H. Jóhannesson bóndi á Augastöðum á ijúpnaveiðum á
Okinu á laugardaginn.
Mesta veiði 83 rjúpur og tófa
SNORRA H. Jóhannessyni bónda á Augastöðum í Borgarfirði
þótti ekki mikið að veiða 62 ijúpur á laugardaginn. Honum finnst
öll veiði vera lítil eftir að hann fékk 156 ijúpur á einum degi
árið 1975.
Mest hefur Snorri veitt 83 ijúpur á einum degi í haust, en þá fékk
hann tófu að auki.
Snorri sagði í samtali við Morgunblaðið að ijúpnaveiði hefði gengið
ágætlega í haust. Heldur meiri ijúpa væri en í fyrra og væri auðveld-
ara að ná í hana, enda jörð auð og hálfgerð sumartíð.
Fyrirtækium
erlenda fjár-
málaþjónustu
Fjárfestingarfélagið hf. og
Féfang hafa stofnað nýtt fyrir-
tæki, Islenska fjármögnunar-
leigu hf. eða Icelease ldt. og
er fyrirtækinu ætlað að starfa
að fjármálaþjónustu á erlend-
um vettvangi.
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði
að eftir að hafa skoðað markaðinn
teldu þeir, sem að fyrirtækinu
standa, það hafa góða möguleika
til að sækja á erlendan markað.
Fyrirtækið hefur þegar gert tilboð
erlendis og fengið jákvæð viðbrögð
að sögn Kjartans.
Breyttur
fundartími
Alþingis
ÞORVALDUR Garðar Krisijáns-
son, forseti sameinaðs þings,
tilkynnti á alþingi í gær um
breytingar sem gerðar hefðu
veríð á fundartíma og dagskrár-
gerð alþingis. Tóku þær gildi í
gær.
Helsta breytingin er að fundur
verður í sameinuðu þingi á mánu-
dögum en deildarfundir á þriðjudög-
um. Deildarfundir verða á
miðvikudögum eins og verið hefur
en miklar breytingar verða á fund-
um sameinaðs þings á fimmtudög-
Fyrirspumarfundir verða að
morgni fímmtudags og hefjast
klukkan 10. í framhaldi af þeim
verða venjulegir þingfundir samein-
aðs þings.
Sjá nánar á blaðsíðu 41.
Sex aðilar fá leyfi til fisksölu á Bandaríkjamarkaði:
Vinnubrögð viðskiptaráðheiTa
koma undarlega fyrir sjónir
- seg'ir Jón Ingvarsson, stjórnarformaður SH
Viðskiptaráðuneytið gaf í gær
út leyfi til sex aðila til sölu á
frystum fiski á Bandaríkjamark-
aði, en aðeins þrír aðilar hafa
haft leyfi til þess hingað til. Leyf-
ið er veitt til nokkurra mánaða.
Talsmenn Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og Sjávarafurða-
deildar SÍS eru óánægðir með
þessa ákvörðun. Jón Ingvarsson,
stjómarformaður SH, sagði að
vinnubrögð viðskiptaráðherra i
þessu máli kæmu undarlega fyrír
sjónir, því hann hefði ekki leitað
álits framleiðenda.
Fyrirtækin sex, sem nú hafa
fengið leyfí til að selja frystan físk
á Bandaríkjamarkaði, eru: G. Inga-
son, íslenskur gæðafískur, íslenska
útflutningsmiðstöðin, Marbakki hf.,
Stefnir hf., og Vogar hf. Áður höfðu
einungis þrír aðilar leyfí til físksölu
í Bandaríkjunum: íslenska umboðs-
salan, sjávarafurðadeild Sambands-
ins, og Sölumiðstöð hraðfrystihú-
sanna.
Jón Ingvarsson, stjómarformaður
SH segir að þessi ákvörðun hefði
komið sér mjög á óvart, ekki síst
fyrir þá sök að sölufyrirtækin í
Bandaríkjunum hefðu náð mjög
góðum árangri í gegnum árin. „Hinn
góði árangur núverandi söluaðila er
einkum að þakka þeirri samstöðu
framleiðenda um að standa ávallt
vörð um gæði framleiðslunriar,"
sagði Jón „en margir smáir aðilar
gætu tæpast tryggt kaupendum
stöðluð gæði og stöðugt framboð,
með sama hætti og heildarsamtök
framleiðenda." Hann sagði einnig
óttast að aukin verðsamkeppni á
þessum markaði myndi leiða til
lægra verðs á íslenskum fískafurð-
um.
„Eg er andvígur þessari ráðstöf-
un, ég tel hana vera ónauðsynlega
og óþarfa," sagði Sigurður Markús-
son, framkvæmdastjóri sjávaraf-
urðadeildar SÍS. Hann sagði að
sölufyrirtækin hefðu unnið mikið og
dýrt starf við að byggja upp Banda-
ríkjamarkað, og að vinna íslenskum
físki álit. „Eg efast um að þessir
nýju útflutningsaðilar hafí gæðaeft-
irlit sem jafnist á við það eftirlit sem
stóru sölusamtökin eru með," sagði
Sigurður. Hann nefndi einnig að
mikili fy’öldi seljenda á viðkvæmum
markaði, eins og Bandaríkjamark-
aður væri, gæti skapað glundroða,
og hann sagðist efa að þessi ákvörð-
un kæmi framleiðendum til góða.
„Við erum mjög ánægðir með
fijálslyndi þessarar ríkisstjómar,"
sagði Óttar Yngvason, fram-
kvæmdastjóri íslensku útflutnings-
miðstöðvarinnar. Óttar sagðist ekki
telja að mikil breyting yrði á sölu-
málunum fyrst í stað, t.d. vegna
veikrar stöðu dollarans, en þegar
fram í sækti myndi aukin sam-
keppni veita SH og SÍS aðhald, og
því myndi þessi ákvörðun styrkja
stöðu allra aðila.
Jón Guðlaugsson, framkvæmda-
stjóri Marbakka hf., sagðist fagna
þessari ákvörðun, því það hefði ver-
ið farið að há fyrirtækinu að fá
ekki leyfi til að selja frystan físk á
Bandaríkjamarkaði. „SH og SÍS
þurfa ekki að óttast okkur þessa
minni spámenn, þeir hafa staðið sig
á öðrum mörkuðum í samkeppni við
okkur, ég er ekkert hræddur fyrir
þeirra hönd,“ sagði Jón.