Morgunblaðið - 22.11.1987, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
B 3
Morgunblaðið/Rax
Davið Oddsson skýrír út
hvar væntanlegt ráÖhús mun rísa.
ekki verður um deilt, að ná-
lægð Tjamarinnar og sérstök
lega lóðarinnar kallaði fram
margar góðar hugmyndir, en
af þei”n þótti verðlaunatillagan
bera af.
HVERNIQ LÍST ÞÉR Á ÞÁ HUG-
MYND AÐ RÍFAIÐNÓ OG
M K>BÆJ ARBARNASKÓLAN N
OG BYGGJA ÞAR RÁÐHÚS?
ÉG held, að borgarbúar séu
mér sammála um, að þessi hús
megi ekki víkja. Þau séu ein-
mitt hluti þess umhverfís
Tjamarinnar, sem menn vilja
varðveita. Ég tel að öðru máli
gegni um bílastæðin á Báru-
lóðinni og næsta umhverfí
hennar, sem í dag er dapurleg-
asti bletturinn við Ijömina.
Ráðhúsið réttir hans hlut.
HVAD MEÐ ALLT ÞAO RASK
SEM VEROUR VEGNA BYGGING-
ARFRAMKVÆMDANNA, SEM
REIKNA MÁMEÐ AÐ TAKI
MINNST2ÁR?
ÞVÍ verður ekki móti mælt,
að töluvert rask og ónæði verð-
ur á meðan á byggingu hússins
stendur. Þess vegna m.a. tel
ég að hraða verði framkvæmd-
um sem kostur er.
HEFUR VERID SKOÐAÐ, HVERN-
IG QATNAMÓT VONARSTRÆT-
IS OG TJARNARGÖTU MUNI
LÍTA ÚT, ÞEQAR RÁÐHÚSIÐ ER
ANNARS VEQAR, ÞiNGHÚSK) Á
MÓTIOQ SVO VÆNTANLEG
NÝBYQGING HAPPDRÆTTTS
HÁSKÓLANS?
GERT er ráð fyrir, að Tjamar-
gata verði að mestu óbreytt
frá því sem er í dag. Hins
vegar er ætlunin að breikka
Vonarstræti um u.þ.b. 2,5 m
til norðurs milli Tjamargötu
og Suðurgötu til að skapa rými
fyrir beygjureinar.
ÁHVAÐASTTGIERÁKVÖRÐUN
UM VÆNTANLEQA BYGGINGU
ÞINGHÚSSINS OG HVERNIG
LÍTUR BORQARSTJÓRIOG
BORQARSTJÓRN Á ÞÁ FYRIR-
HUGUDU BYGGINGU?
ALÞINGI hefur ekki tekið
ákvörðun um bygginguna, en
veitt fé til forhönnunar. í deili-
skipulagi miðbæjarins, sem nú
er til staðfestingar hjá ráð-
herra, er gerður fyrirvari þess
efnis, að ekki er tekin afstaða
til fyrirliggjandi hugmynda um
nýbyggingar Alþingis.
Að öðru leyti hafa borgar-
yfirvöld ekki flallað um þessa
tillögu.
HVAÐMEÐ UMFERÐAÐOGFRÁ
RÁÐHÚSINU, SEM MARGIR
HAFAÁHYGGJUR AF7ÞOLA
AÐUGGJANDIGÖTUR UMFERÐ-
ARÞUNGANN?
í SAMBANDI við deiliskipulag
Kvosarinnar, sem við viljum
reyndar fremur kalla gamla
miðbæinn, var töluvert fjallað
um umferðarmál og töldu
umferðarsérfræðingar, að erf-
itt yrði að leysa umferðar-
skipulagið, ef jafnmikið væri
leyft að byggja eins og fyrstu
tillögur sögðu til um. Við af-
greiðslu skipulagsins var
dregið úr fyrirhuguðu bygg-
ingarmagni og með gerð
Geirsgötu og bflastæðum ná-
lægt gömlu höfninni, svo og
nýjum bflastæðahúsum, sem
minnka hringsól umferðar, og
öðrum endurbótum, komast
menn fyrir þá erfíðleika.
Ráðhúsið er einungis lítill
hluti þeirrar uppbyggingar,
sem gert er ráð fyrir í gamla
miðbænum. Ég hef því ekki
þungar áhyggjur af umferð í
Vonarstræti, þó því sé spáð,
að hún aukist úr 10.000 bflum
á dag, eins og nú er, í 12.000
bfla á dag, ef bæði húsin rísa,
ráðhúsið og nýbygging Al-
þingis. Að vísu eru nú tafir í
umferð þama á erfíðustu
tímum dagsins, en gert er ráð
fyrir að koma upp sérstökum
beygjureinum við gatnamót og
setja upp umferðarljós á mót-
um Vonarstrætis og Lækjar-
götu. Allt í allt er því gert ráð
fyrir betra ástandi umferðar í
Vonarstræti í framtíðinni, ró-
legri en tafalítilli umferð.
Umferð um Tjamargötu í
dag er ekki mikil. Sú hugmynd
hefur komið fram að hafa ein-
stefnu til norðurs á Ijamar-
götu sunnan ráðhúss, inn
götuna, til þess að umferð um
hana aukist sem minnst.
HEFUR LÍFRÍKITJARNARINNAR
VERIÐ KANNAÐ OG ÞÁ SÉR-
STAKLEQA, HVORT BYGGING
RÁÐHÚSS GETT HAFT ÁHRIF Á
ÞAÐ?
TALSVERÐAR heimildir em
til um fuglalíf á Tjöminni og
til er almenn vitneskja um
sambýli fuglanna við Tjömina
og þá fæðu, sem ungfuglinn
sérstaklega aflar sér í henni.
'Ijömin er í dag að meira
eða minna leyti gerð af manna
höndum, en það verður að
meta það með heilbrigðri skyn-
semi, hvort 1—2% skerðing á
yfírborði Tjamarinnar, sem
hlýst af byggingu ráðhússins,
hafí teljandi áhrif á lífríkið.
Ég held, að það liggi f augum
uppi, að svo sé ekki. Menn,
sem vitna til vísinda til að
gera ráðhúsið tortryggilegt,
eru þvf bersýnilega að nota
þau í annarlegum tilgangi.
FULLYRT HEFUR VERIÐ, AD
RÁÐHÚSIÐ HAFIEKKIVERIÐ
KYNNT SEM HLUTIAF MW-
BÆJARSKIPULAGINU?
ÞAÐ var einmitt gert. Bygg-
ingarreitur fyrir ráðhúsið var
merktur inn á gögnin, sem
fylgdu kynningu á tillögu að
deiliskipulagi miðbæjarins,
bæði á uppdrætti, Ifkani og f
greinaigerð. Þessi kynning fór
fram í jan,—mars 1987. í
júní—júlí 1987 var síðan sér-
stök kynning á verðlaunatil-
lögum í samkeppni um ráðhús.
Nýtt og endurskoðað aðal-
skipulag var síðan kynnt í
júní—sept. 1987 og þá var
skipulag miðbæjarins enn
kynnt með líkani, þar sem fyr-
irhuguð ráðhúsbygging var
felld inn.
Sennilega hefur skipulag og
bygging húss ekki verið betur
kynnt í annan tíma. Mér fínnst
það móðgandi í garð félags-
málaráðherra, þegar menn
hafa verið að gera því skóna,
að ráðherrann muni af
pólitískum ástæðum gera full-
yrðingar af því tagi, sem
spumingin vitnar til, að
ástæðu til að teija staðfestingu
Kvosarskipulagsins. Félags-
málaráðuneytið hefur ætíð
tekið málefnalega á málum
sveitarfélaganna og virt sjálfs-
ákvörðunarrétt þeirra.
KOMIÐ HEFUR FRAM ÓTTIUM,
AÐ SÍDAR MUNIREYNAST
NAUDSYNLEGT AÐ STÆKKA
HÚSND OG BYGGJA VK) ÞAÐ, OG
ÞVÍ SÉ ÞAÐ SKAMMSÝNIAÐ
BYQGJA Á STAÐ, SEM SLÍKT
KEMUR VARLA TTL GREINA.
ALVEG er ljóst, að við ráð-
húsið verður aldrei byggt.
Staðurinn og geið hússins úti-
lokar það.
Þurfí yfírstjóm borgarinnar
einhvem tíma á húsiými að
halda umfram það, sem bygg-
ingin býður upp á, verður það
leyst annars staðar. Þetta er
raunar það sem gerst hefur
t.d. í höfuðborgum hinna
Noiðurlandanna, þar sem eng-
um hefur dottið í hug að
byggja við áratugagömul ráð-
hús, þótt stjómsýslan hafí
þanist út. Slíkur ótti, sem
reynt hefur verið vísvitandi að
vekja upp, er því ástæðulaus.
ER HÆGT AÐBERA SAMAN
MÓTMÆU VEGNA RÁÐHÚSS-
INS OG MÓTMÆLIVEQNA
ANNARRA FRAMKVÆMDA, T.D.
TORFUNNAR VH> LÆKJAR-
GÖTU, HALLGRIMSKIRKJU,
ARNARHÓLS, ÞJÓÐLEIKHÚSS,
HÖFDABAKKABRÚ AR OG
HUÓMSKÁLANS?
ÉG vil, að ráðhúsið verði met-
ið af eigin verðleikum og tel
þvf ástæðulaust gera neinn
samanburð í þessum efnum. Á
hinn bóginn er þessi vantrú á
framtíðina dálftið sérkennileg.
Að vísu emm við ekki einir
um þetta. Þegar Eiffeltuminn
var reistur vom svo áköf mót-
mæli að lofað var að rífa hann
strax að heimssýningunni lok-
inni. Ekki var hamast meir
gegn nokkm húsi en ópem-
húsinu í Sidney. Það þykir ein
fegursta bygging í veröldinni.
ERT ÞÚ HLYNNTUR ÞVÍ AÐ
FRAM FARISKOÐANAKÖNNUN
UM, HVORT RÁÐHÚSK) SKUU
BYGGT VK> TJÖRNINA, SBR.
ÁLYKTUN, SEM SAMÞYKKT
VAR Á ÚTTFUNDINUM?
ÉG hef ekkert á móti skoðana-
könnunum. Þær geta verið
fróðlegar. En það er hlutverk
borgarstjómar að taka
ákvarðanir í málum sem þess-
um. Borgarfulltrúar em til
þess kjömir af borgarbúum og
óframkvæmanlegt er að hafa
slikar kannanir um öll þau
mál, sem ágreiningur kann að
vera um.
Skoðanakönnun, sem fram-
kvæmd var fyrir viku síðan,
eða þegar mótmælin gegn
staðsetningu ráðhússins stóðu
sem hæst, sýndi að nokkur
meirihluti var andvígur. Hins
vegar er ekki sama, hvemig
spurt er. Ég er þeirrar trúar,
að verði menn t.a.m. beðnir
um að velja einn stað, af t.d.
fjórum eða fímm mögulegum,
myndu langflestir velja hinn
fagra stað við 'Ijömina.
MIKK) HEFUR VERK) TALAÐ UM
ENDURNAR OG GRÍNAST MEÐ
ÞAÐ ORÐ, ENDURSKOÐUN,
ENDURMAT, O.S.FRV. MÖRG-
UM—OGÞÁEKKISÍSTSJÁLF-
STÆÐISFÓLKI — FINNST
MIKILVÆQAST, AD BORGAR-
STJÓRISJÁLFSTÆÐISFLOKKS-
INSVERMENDURKJÖRINN. ERT
ÞÚ AÐ SETJA PÓUTÍSKAN FER-
IL MNN OG HAGSMUNISJÁLF-
ÉG er borgarstjóri Reykjavík-
ur, ekki eingöngu sjálfetæðis-
manna.
Vel má vera, að ráðhús-
byggingin verði gerð að
kosningamáli og hef ég ekki á
móti því. En þá vil ég einnig,
að borgarbúar geti metið
bygginguna og umhverfi
hennar eins og það mun líta
út. Og menn verða að hafa í
huga, að bygging ráðhúss er
aðeins lítill hluti af þeim verk-
efnum, sem ég og mínir
félagar f borgarstjóminni hafa
verið að fást við á undanföm-
um rúmum fímm árum. Mér
sýnist, að meira hafí verið að
gerast í borgaruppbýgging-
unni á þessum fáu árum, en
mörgum ámm þar á undan.
ER RAUNVERULEG ÁSTÆÐA
FYRIR BYQGINGU RÁDHÚSS SÚ,
AÐ ÞÚ VILT REISA ÞÉR EIGIN
MINNISVARÐA?
ÞVÍ fer að sjálfsögðu fjarri.
Ég er ekki kominn á minnis-
varðaaldur.
Að baki ákvörðunar um
byggingu ráðhússins standa
10 borgarfulltrúar af 15, sem
allir eru sammála um ágæti
verðlaunatillögunnar. Ef hægt
er að tala um húsið sem
minnisvarða verður það minn-
isvarði borgarstjómar, fram-
takssamra og framsækinna
borgarbúa og ekki síst um
unga og snjalla arkitekta
byggingarinnar og list þeirra.