Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 30
4 r o 30 or B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987 rokksíðan Umsjón: Andrés Magnússon Magnús Eiríksson: Sannarlega bestu lögin ☆ ☆ it ! I I l i ! i |" Grammið fór fyrst íslenskra fyr- irtækja að gefa út leysidiska með íslensku poppi, þegar það reið á vaðið og gaf Bubba út upp á von og óvon. Síðan hafa önnur út- gáfufyrirtæki fylgt á eftir og er það lofsvert framtak. Rokksíðan mun að sjálfsögðu fylgjast grannt með útgáfu þessari, enda herma fregnir að leysidiskar og spilarar ijúki út eins og heitar lummur. Taktur (Fálkinn) gaf fyrir skömmu út leysidisk með 20 bestu lögum Magnúsar Eiríks- sonar og var það þarft verk. Magnús er tvímælalaust í hópi snjöllustu lagasmiða okkar (og textasmiða líka!) og það virðist allt leika í höndunum á honum, ballöð- ur, popp, rokk og diskó. Og þegar maður les listann yfír þessi 20 bestu lög Magnúsar er eins og maður sé að lesa lista yfír það besta í íslensku poppi. Hvorki meira né minna. Hér er ekki verið að gera lítið úr öðrum tónlistarmönnum, Stuðmönnum, Björgvini Halldórssyni og Sykur- molum svo einungis séu nefndir nokkrir úr landsliðinu, heldur er hér á ferðinni stórgott safn tilgerða- lausrar popptónlistar. Á disknum er öll breiddin: Braggablús, Komdu í partý, Garún, Einhverstaðar einhvemtíman aftur, Draumaprinsinn og Gleðibankinn. Allt sígild lög, hvert á sinn veg. Þessi diskur á heima hjá hveijum unnanda íslensks gæðapopps. Þetta er kjaminn. Hvað diskútgáfuna sjálfa hrærir er þar vel að verki staðið. Þrátt fyrir að sumar upptökumar séu komnar til ára sinna er suð í lág- marki og tóngæði yfírleitt eins og best verður á kosið. Hið eina sem ég hef út á þessa útgáfu að setja er að á textablaði vantar upplýsing- ar eins og hvaða lag sé af hvaða plötu, hver syngi, jafnvel hinir ágætu textar Magnúsar og e.t.v. smá lífshlaupslýsing hans að auki. Þetta er smáatriði, en útgefendur ættu að gefa því gaum. (Reyndar er skylt að geta þess að á tveimur öðmm leysidiskum Takts er þetta til mikillar fyrirmyndar.) Bubbi kóngur Morgunblaðið/Sverrir Bubbi, útsetjarinn Tómas Tómasson og forleggjarinn Ásmundur Jónsson með gull- og platínuplöturnar. Hefur Bubbi mídasargáfu? Bee Gees: Allt í fína lagi með skarfana ÞRÁTT fyrir að Sykurmolamir séu að gera garðinn frægan á erlendri grundu er það samt sem áður Bubbi Morthens, sem óhik- að má eiga nafngiftina „kóngur“ þegar íslensk popptónlist er ann- ars vegar. Síðastliðinn miðvikudag var Bubba afhent tvöföld gullplata fyrir nýjustu afurð sína, „Dögun" — sama dag og skífan kom út. Þetta mun vera einsdæmi, að plata renni jafnört út fyrir útgáfudag. Sam- kvæmt nýjum reglum um gullplötu- afhendingu hefði Bubbi reyndar átt að fá platínuplötu í hendumar, en það var látið bfða þar til að platan i væri komin á götumar. í sárabætur fékk Bubbi hins vegar platínuplötu fyrir síðustu plötu sína, „Frelsi til sölu“. Sú hefur nú þegar selst í ríflega 17.000 eintökum og er því með alsöluhæstu poppskífum á ís- landi. Gramm hf. gaf plötuna út, en Tómas Tómasson útsetti. Plötur The Pretenders The Pretenders er rokksveit sem margir ættu að kannast við, enda hefur hún starfað frá 1978 . og átt fjöld laga á vinsældalist- um. Seint á síðasta ári kom út plata frá Pretenders með laginu Don’t Get Me Wrong meðal anarra og nú er komin út safnplata með sveit- inni. Á þeirri safnplötu er að fínna sextán lög sem spanna sögu Pret- enders vel, allt frá Stop Your Sobbing, sem var fyrsta lag sveitar- innar, til laga frá síðasta ári. Lagið sem Crissie Hynde (sem heitir víst Cristine Kerr í dag) söng með UB40, I Got You Babe, fylgir í kaupbæti. í Segja má að ekki sé veikur punktur á plötunni og hún er skemmtiiega heiisteypt þrátt fyrir að safnplata sé. Ekki er gott að fara að nefna bestu lög á plötunni, en lög eins og Stop Your Sobbing, I Go To Sleep, Back on the Chain Gang og Don’t Get Me Wrong standa vel fyrir sínu. Árni Matthíasson ☆ ☆ ☆*/2 GIBBAGIBB-bræðurnir þrír frá Ástralíu sendu nýverið frá sér plötu eftir nokkurt hlé. Flestir muna likast til eftir hinum gjall- andi og geldingslegu röddum bræðranna, en þrátt fyrir — eða líklega vegna — hinna gífurlegu vinsælda þeirra hér á árum áður (man einhver eftir Saturday Night Fever?) hafa þeir átt erf- iðar uppdráttar nú en fyrr. Sem er synd þvi platan sú arna er bara prýðileg. Það er sama hvað segja má um Gibb-bræður, það verður ekki af þeim skafið, að þeir eru lunknir við að semja pottþéttar og grípandi melódíur. Játað skal að þegar gagnrýnandi setti plötuna á fóninn óttaðist hann mest að Bee Gees væru enn á sömu villigötum og síðast, staðnaðir í meðalmennsku. Svo var ekki. Kappamir sýna það og sanna að þeir fylgiast með breyttum tímum og eru vel með á nótunum. Sumt er meira að segja frumlegt. Hver hefði nú trúað því að sá, sem þetta ritar, ætti eftir að mæra Bee Gees, sem hann nefndi eitt sinn vælukjóa og brigslaði um óeðli? Á skífunni er slatti af áheyri- legustu lögum og eitt þeirra, „You Win Again“ hefur þegar náð vin- sældum hér á landi. Það er synd og skömm, eins mikið drasl og Bee Gees sendu frá sér á árum áður og rokseldu, ef þeir uppskera svo ekki loksins þegar þeir sá af viti. Dave Lee Roth hygg- ur á hæstu hæðir Það er að frétta af Dave Lee Roth, gamla flagaranum úr Van Halen (þar tíl Sammy Hagar tók við starfanum), að næsta plata með honum er væntanleg á markað í janúar nk. Eins glöggir lesendur muna sjálf- sagt, skildu leiðir Dave og Van Halen ekki með friðsamlegasta hætti. í lg'ölfar þess stofnaði kauði síðan eigin hljómsveit og var al- mennt mál manna að annað eins snillingatal hefði ekki sést saman- komið í einni hljómsveit um langa hríð og bar platan svo sannarlega merki þess. Má benda á að gítarleik- arinn, Steve Vai, og bassaleikarinn, Billy Sheehan, urðu báðir langefstir í vali lesenda bandaríska blaðsins Guitar Player á bestu hljóðfæraleik- urum ársins, sem kunngert var nú í síðustu viku. (Að vísu var tilkynnt fyrir skömmu að Sheehan væri að hætta með sveitinni, en það var víst allt í bróðemi.) Nýja platan með Roth heitir „Skyscraper" — eða skýjakljúfur — og ber þeim, sem heyrt hafa, saman um að þama sé ótrúlegur gripur á ferðinni. A umslaginu verður mynd af Roth þar sem hann er að klífa þverhnípt bjarg, en Dave er víst alger dellukarl á sviði útivistar. Það verður spennandi að heyra hvort „Skyscraper“ verður jafnvillt og fyrri platan. Dave Lee Roth á leiðinni á toppinn. Nr. Flytjandi—titill Venjul.verð Afslverð 1. Bjartmar Guðlaugsson - i fylgd með fullorðnun 899 809 2. LaBamba-Úrmynd 799 719 3. Bubbi Morthens-Dögun 899 809 4. Megas-Loftmynd 899 809 5. GeorgeMichael-Faith 719 639 6. Sting - Nothing like the Sun 1.099 989 7. Rauðir fletir - Minn stærsti draumur 899 809 8. Ríó Tríó - Á þjóðlegum nótum 899 809 9. Grafík-Leyndarmál 899 809 10. George Harrison - Cloud nine 799 719 11. Bruce Springsteen -Tunnel of love 799 719 12. Eurithmics-Savage 799 719 13. HörðurTorfason - Hugflæði 899 809 14. ReynirJónasson - Leikiðtveim skjöldum 899 809 15. Hooters - One way home 799 709 16. Madonna - You can dance 799 709 17. BryanFerry-BeteNoire 799 709 18. MicaelJackson-BAD 799 709 19. Bee Gees-ESP 799 709 20. Bifly Joel—Consert 1.099 989 Þú gerir ekki betri kaup, Tilbod vikunnar: Cock Robin After here Through Midland í tilefni af (slands- heimsókn Cock Robin bjóðum við þessa stórkostlegu plötu á tilboðsverði í eina viku. Póstkröfuþjónusta. Rauðarárstíg 16 s. 11620 og 28316 Símsvari opinn allan sólarhringinn. Sími28316. Góð þjónusta. ÓDÝRASTA MÚSÍK1N í BÆNUM SKAL L4fijo ☆ STHNARHF ☆ Austurstraeti, Glæsibæ, Rauöarárstíg, Strandgötu og Hagkaup, Kringl- unni, Póstkröfusími 11620 og 28316 (símsvari). .4-+
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.