Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 27
no^r CT'7<J"|ircr\Tf\1f no <JTTT» A rTTTTXTXrTQ /Ttrr A Tcn/TTTCT/^** MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987 QL ftO B 27 Spielbergssögur Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson LAUGARÁSBÍÓ: FURÐUSÖGUR - Amazing Stories ★ ★ V2 Þijár stuttmyndir úr sjónvarps- myndabálknum Amazing Stories. 1. Ferðin — The Mission: Leik- stjóri: Steven Spielberg. Handrit: Menna Heyjes. Aðalleikendur: Kevin Costner, Casey Siemaszko, Kiefer Sutherland. 2. Múmíufaðir — Mummy Daddy: Leikstjóri: Wiliiam Dear. Handrit: Earl Pomerantz. Aðal- leikendur: Tom Harrison, Bronson Pinchot. 3. Höfuð Bekkjarins — Go To The Head Of The Class. Leik- stjóri: Robert Zemeckis. Handrit: Mick Garris, Tom MacLoghlin og Bob Gaie. Aðalleikendur: Christopher Lloyd, Scott Coffey, Mary Stuart Masterson. Bandarísk. Universal 1987. Spielberg, sá undraverði þúsund- þjalasmiður kvikmyndakúnstarinn- ar, er hér kominn aftur á fomar slóðir, hóf einmitt sinn litríka leik- stjómarferil hjá Universal — MCA Television. Fyrst stýrði hann þátt- um eins og Columbo og útkoman þótti það góð hjá piltungnum, þá liðlega tvítugum, að hann var ráð- inn til að leikstýra nokkrum „kvik- myndum vikunnar" (m.a. Duel), mun metnaðarfyllra efni og fram- haldið er skráð stórum stöfum á blöð kvikmyndasögunnar. Fyrsta hluta þrennunnar, Ferð- inni, leikstýrir Spielberg sjálfur. Hann gerist mestmegnis um borð í B17 og er áhöfnin í sinni síðustu árásarferð þegar vélin verður fyrir aðför þýskra, með þeim afleiðingum að hjólaútbúnaðurin laskast og stél- skyttan, sem staðsett er undir vélinni, lokast inni! Nú eru góð ráð dýr og má segja að sú lausn sem Spielberg finnur, en hann átti einn- ig hugmyndina að baki handritsins, sé heldur billeg. Einkum þar sem þessi hluti er svo afbragðsgóður að flestu öðru leyti. Persónurnar eru skarpar, mótaðar með fáum en skýrum og fyndnum dráttum; at- burðarásin virkilega spennandi, kvikmyndatakan og leikstjómin hreinasta afbragð. Og ekki að spyija að töfrum tækninnar. Ferðin er langvandaðasti hluti myndarinn- ar og metnaðarfyllsti, en sá gallað- asti, því miður. Hann er oft vandfundinn, punkturinn yfir i-ið, jafnvel hjá snillingum! Múmíufaðirinn er hreint grín og hugmyndin og útfærslan hin smellnasta afþreying. Við erum stödd við kvikmyndatöku múmíu- myndar í einhverju krummaskuði þegar leikarinn í titilhlutverkinu fær tilkynningum að konan sé að fæða. Hann rýkur af stað til að vera viðstaddur, en gleymir að fara úr gerfinu og verður það honum næstum að fjörtjóni! Þetta er fyndn- asti þátturinn og býður uppá mörg kátbrosleg atriði. Mikill er máttur Spielbergs og lokakaflann lagði hann í hendur Zemeckis, sem sannað hefur ágæti sitt sem leikstjóri Romancing the Stone og Aftur til framtíðar. Þessi hluti nefnist Höfuð bekkjarins og segir frá hysknum strák sem ætíð mætir seint í tíma hjá hálfóðum enskukennaranum sem lætur hann gjalda þess. Strákur fær óbangna bekkjarsystur sína í lið með sér til að leggja bölvun á lærimeistarann og endar kuklið með ósköpum! Lloyd (Aftur til framtíðar) er hreint óborganlegur i hlutverki hins ærða lærimeistara. Hér er skopast að Lafði Macbeth og fleira sómafólki og handritið kiyddað mörgum bráðhnyttnum bröndurum og uppákomum. Þau Scott Coffey (Stand By Me) og Mary Stuart Masterson (At Close Range) fara prýðilega með hlutverk skólasystkinanna. Þættimir em ómengað léttmeti, ætlaðir til þess að drepa tíma sjón- varpsáhorfenda í Vesturheimi og það hefur tekist með ágætum. Hér er vitaskuld um fyrsta þáttinn að ræða og tvo aðra, útvalda og ekki illa til fundið að bjóða þá til sýnis á tjaldinu. Ferðin hefði getað orðið minnisstæð ef efnið hefði boðið uppá slíkt því handbragð Spielbergs bregst ekki frekar en fyrri daginn. Útkoman verður því ekkert annað og meira en snoturt stundargaman. Óður enskukennari — Christopher Lloyd í Amazing Stories. tis'í •.« v' - •• EFST Á BIAÐI HVERJU SINNI Húsnæöislánin eru hagstæö lán, eins og vera ber. En af þeim þarf aö greiöa, jafnt sem af öðrum lánum og dráttarvextir eru háir ef ekki er greitt á réttum tíma. Þegar innheimtukostnaður bætist viö að auki, fer greiðslubyröin óneitanlega aö þyngjast. Viö minnum á þetta núna vegna þess aö haustgjalddagi var 1. nóvember sl. og greiðsluseðlar hafa veriö sendir gjaldendum. Greióslur er aö sjálfsögðu hægt að inna af hendi í hvaða banka, bankaútibúi og sparisjóöi sem er. Dráttarvextir lögðust á lán með lánskjaravísitölu frá og með 16. nóvember s.l. Dráttarvextir leggjast á lán með byggingar- vísitölu frá og með 1. desember n.k. Við viljum auk þess benda á að þú getur greitt lánið upp.hafir þú tök á því. Þá greiðir þú eftirstöðvar þess, ásamt verðbótum, frá upphafi lánstímans til greiðsludags. Á síðustu 12 mánuðum hafa 12 þúsund lán verið greidd upp, áður en lánstíma lauk. Einnig getur þú lækkað höfuðstól lánsins, viljir þú greiða inn á hann. Það getur komið sér vel þegar til lengri tíma er litið. HAFÐU HÚSNÆÐISLÁNIÐ ÞITT EFST Á BLAÐl. ÞAÐ BORGAR SIG. #
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.