Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 52
52 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987 , Bg \Jordb rcikna \poÁ út,<xb i/ié gðcfcum. kc-ypt 78oo pappadiska. fyrir werð upppvottave-lar." Ást er... ... að sigla draumafleyinu. TM Rag. U.S. Pat Off.—all rlghts reserved C1986 Los Angeles Tlmes Syndlcate Geturðu lánað mér svo sem eitt egg? Með morgnnkaffínu Láttu mig- bara fá 100 kall þangað til þú ert kominn aftur í gott skap. HÖGNI HREKKVlSI T Bólu-Hjálmar og ,Hvað heldurðu?“ Til Velvakanda „Kvæðaunnandi" skrifar í Vel- vakanda á fðstudaginn og segir "stjórnanda spumingaþáttarins „Hvað heldurðu?" hafa rangfeðrað hendingu eftir sr. Jón Þorláksson á Bægisá. Þetta er ekki rétt. Spum- ing stjómandans og svar Skagfirð- inga vom orðrétt svona: Ómar Ragnarsson: „Önnur vísbending. Snilld hans stendur enn í björtum ljóma og oft hafa menn hugleitt hverju hann hefði fengið áorkað ef fátæktin hefði ekki verið hans fylgikona.“ Skagfirðingur: „Já, það gæti verið Bólu-Hjálmar.“ Ómar: „Það er alveg hárrétt!" Eftir þessi orðaskipti sneri stjóm- andi sér að næstu spumingu. Það var aldrei spurt um höfund hend- inga í þessu sambandi. Orðalagið um fátæktina er þama notað á al- mennan og algengan hátt til þess að draga fram atriði sem svo marg- ir hafa velt fyrir sér eftir daga hins blásnauða afburðamanns - hvílík stórvirki hann hefði unnið umfram þau sem eftir hann liggja, ef honum hefði auðnast að njóta rýmri lífskjara og fengið þau tækifæri sem margir samtíðarmenn hans fengu. Mér finnst ekki ólíklegt að hinn ágæti „Kvæðaunnandi" hafi ofurlítið ruglast í ríminu vegna þess að í seinni hálfleik þessa sama þátt- ar var spurt. Ómar: „Á nafni hvaða merkis- sveitar endar þessi staka: Er hér sálin inni svelt, andinn þessu veldur tíðar, hættir era að geta gelt, gamlir seppar............ Húnvetningar svöruðu réttilega: Blönduhlíðar. Stjómandi hnýtti síðan við þeirri athugasemd að stakan væri eftir sjálfan Bólu-Hjálmar, enda er hún birt í ljóðmælum hans og eignuð honum einum. Ef „Kvæðaunnandi“ vill heyra fyrmefnd orðaskipti með eigin eyram, þá er mér sönn ánægja að leika þau fyrir hann af mynd- snældu, hvenær sem honum hentar. Það er vel skiljanlegt að „Kvæðaunnanda" hafi skjátlast um þetta atriði, enda er þátturinn hrað- ur og margt látið flúka í hita leiksins, en sannleikurinn er sá að fleiram getur slqátlast. Stundum bregðast þær heimildir sem traustar teljast og furðulega oft er það, að mikilsvirtum heimildaritum ber ekki saman. Til Velvakanda. í tilefni af mikilli elju frétta- stofu Ríkisútvarpsins og Þjóðvilj- ans um meint tengsl látinna stjórnmálamanna við ameríska aðila vil ég varpa fram tveimur spumingum: 1. Hvemig væri, að áðuraefnd fréttastofa tæki að sér, ásamt Þjóðviljanum, að afla skýrslna um viðræður hérlendra komma við Jósef Stalín og „samlede venner“? Ofdrykkjan teymir alla lesti Velvakandi góður. Ég var að glugga í gömlum skjöl- um nú nýverið og þar rakst ég á eftirfarandi vísur sem ég veit ekki hveijir höfundar era að. Tel að þær eigi erindi við ýmsa svona til um- hugsunar og athugunar. Kannski eiga þær vel við daginn í dag. Þær era svona: Eitt slíkt heimildaslys henti okk- ur um daginn, en sem betur fer var það næsta smávægilegt og hafði ekki áhrif á gang mála. En einmitt slík dæmi kenna okkur öllum þá lexíu, að aldrei verður nokkurt mál kannað til fullnustu og því er ekki nema vonlegt að ýmsir verði til að „deila á dómarana". Baldur Hermannsson 2. Hvemig væri, að fá fyrr- nefnda aðila til þess að afla skýrslna um viðræður Stefáns Jónssonar, fyrrverandi þing- manns Alþýðubandalagsins, við Ame Treholt, sem ekki alls fyrir löngu var vistaður til alUangrar dvalar á vísum stað í Noregi? Sigurður Jónsson Ofdrykkjan: Ofdrykkjan teymir alla lesti eitrar mannlífsins veganesti ofdrykkjan samúð enga fær. Ofdrykkjan vekur alla spilling ofdryklq'an veldur flestum hrylling djöfúllinn einn að henni hlær. Um áfengið: Allrahanda auðnuslys öruggt standa á fótum starfi andi áfengis eftir flandans nótum. Veit nokkur um höfunda? Árai Helgason Tvær spurningar Yíkveiji skrifar Kunnur breskur sjónvarpsmað- ur, sem starfaði um nokkurra ára skeið í Bandaríkjunum, segir að reynsla sín þar hafi sannfært sig um að fjölgun sjónvarpsstöðva og þar með aukin samkeppni sé síst til þess að bæta dagskrá þeirra. Raunar fullyrðir hann að henni hraki þvert á móti. Meginástæðan er að hann segir tilhneiging til eftiröpunar: þegar einn stöðin rambar á að framleiða „súpervinsæla" þáttaröð á borð við Dallas, þá era hinar umsvifalaust teknar til við að sjóða saman nán- ast nákvæmlega samskonar þætti í þeirri von um að þeir verði ekki lakari gullnámur. Hin margprísaða samkeppni ýtir með öðram orðum undir lágkúrana og færibanda- vinnubrögðin, því að það eru einmitt þessar sápuóperar sem „trekkja" best og era þar af leiðandi fysileg- asti auglýsingavettvangurinn fyrir peningamennina sem skipta sköp- um fyrir „ftjálsu" stöðvamar bandarísku. XXX Sá breski tíundar nokkur sjón- varpsafrek Bandaríkjamanna hér fyrr á áram, sem hann vill meina að hafi verið gullöld sjón- varpsins þeirra með fjölda ógleym- anlegra þátta af ýmsu tagi að ónefndum frábæram leikhúsverk- um eftir ágætustu höfunda sem þeir víluðu ekki fyrir sér að sýna á skjánum. Nú heyrir þetta sögunni til: Menn eins og Arthur Miller og Tennesy Williams fengu ekki nógu mörg stig á vinsældakvarðanum. Og þó að stöðvunum hafi fjölgað ein ósköp, er úrvalið síst meira ef grannt er skoðað. Sami grautur úr sömu skál og einungis umbúðimar sem segja mönnum hvort þeir era að horfa á Dallas eða Dynasty. Þessu er svona hreyft hér til umhugsunar. Menn geta síðan spurt sig til dæmis hver sé í raun- inni munurinn á Ríkissjónvarpinu og Stöð 2. XXX Ennfremur er ekki úr vegi að spyija hvert sé hlutverk út- varpsréttamefndar sem svo er kölluð. Er það einungis að úthluta þessum rekstrarleyfum og fá sér svo annan blund? Víkveiji hélt í einfeldni sinni að þetta væri ef til vill svipað og í Bretlandi, þar sem samskonar nefnd lítur ekki einasta eftir því að stöðvamar reyni að minnsta kosti annað slagið að sýna eitthvað bita- stætt heldur vakir að áuki yfir því að þær fari eftir þeim reglum sem þeim era settar. Fyrir endurtekin brot era þær einfaldlega sviptar kjóli og kalli. Nú var því til dæmis haldið fram í blaði um daginn að Getraunir borguðu Stöð 2 beinharða peninga fyrir sýningu tiltekins laugardags- þáttar þar sem farið er yfír úrslitin í ensku knattspymunni. Dulbúin auglýsing? Er það misskilningur hjá Víkveija að bannað sé að taka gjald fyrir umfjöllun af þessu tagi? Og svo virðast líka vera brögð að því að útsendingar séu rofnar með aug- lýsingum á ameríska vfsu og loks era á kreiki raddir um aragrúa ólög- legra skerma til móttöku á erlendu sjónvarpsefni. En kannski reglumar séu svo óljósar að enginn treysti sér til að vinna eftir þeim. Eða að enginn hirði bara um þótt þær séu brotnar eins og líka vill brenna við hjá okk- ur íslendingum. XXX Einn spekingurinn á einu dag- blaðanna okkar, sem var að §alla um stjómarherbúðimar í vik- unni leið, upplýsti okkur um að þar blési „ekki allt of billega". Kannski er óhætt að segja af þessu tilefni að það blási ekki held- ur allt of byrlega fyrir móðurmálinu okkar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.