Morgunblaðið - 22.11.1987, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
B 15
Æ skulýðsstarf og frístundir u n g 1 i n g a á landsby ggðinni
Hvammstangi:
Fjórðungnr íbúanna
vinnur við skólann
Nemendur unnu að fræsöfnun
Hvammstanga.
NEMENDUR Grunnskóla
Hvammstanga eru 154 í vetur
og hafa aldrei verið fleiri.
Kennarnar eru 16, þar af 4
stundakennarar. Má þvi segja
að nœrri fjórðungur íbúa
Hvanunstanga, sem eru um
700, hafi skólann að vinnu-
stað.
Á undanfömum áram hefur
verið unnið að nýbyggingu við
skólann og vora teknar í notkun
tvær nýjar kennslustofur í haust.
Áformað er að ljúka þeirri fram-
kvæmd á næsta ári.
í byijun skólastarfs í haust
unnu nemendur og kennarar að
fræsöfnun fyrir Landgræðslu
ríkisins. Safnað var birkifræi,
meðal annars í skógarreit Ingi-
bjargar Pálsdóttur og Sigurðar
Eiríkssonar á Hvammstanga. Var
þetta mjög verðugt verkefni, enda
nemendur í sólskinsskapi.
Grannskóli Hvammstanga
starfar í 10 bekkjardeildum, for-
skóla og 1.—9. bekk. Skólastjóri
er Flemming Jessen.
Karl
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirason
Nemendur 6. og 7. bekkjar ásamt Flemming Jessen skólastjóra og Þorbimi Gislasyni kennara.
Heimahúsaböllín eru líka vinsæl
Krakkarnir á Höfn eru ánægð með félagslífið
Höfn, Hornafirði.
„AÐSTAÐAN er góð,“ segja krakkamir. Á Höfn má skipta æskuiýðs-
starfinu i það skipulagða og hið óskipulagða. íþróttir, tómstundastörf
í skólum og þess háttar er hið skipulagða starf. Það sem krökkunum
dettur í hug að gera hvetju sinni þess utan er hið óskipulagða starf.
Hjólreiðatúrar, skautaferðir, sjoppumas, parti ásamt öðm tilfallandi.
íþróttastarfið er að mestu í hönd:
um ungmennafélagsins Sindra. í
vetur býður félagið uppá um 40
stundir í viku í íþróttahúsinu. Þar
era fimleikar stúlkna, handbolti,
Opið hús í skólanum.
Sigurður Ólafsson.
Blakið & miklum vinsældum að fagna & Neskaupstað. Þessi mynd er tekin fyrir tveimur árum af keppn-
isflokkum Þróttara.
Tónlistarlíf er einnig nokkuð
meðal unglinga og ber þar hæst
skólahljómsveit Neskaupstaðar
sem kemur fram við ýmis tæki-
færi og setur þá töluverðan svip
á bæjarlífið. Ein unglingadans-
hljómsveit að minnstakosti er
starfandi á staðnum. Æskulýðs-
starf mætti að sjálfsögðu vera
mun meira hér. Unglingadansleik-
ir era til dæmis mjög fátíðir.
— Ágúst
fótbolti, badminton og fijálsar
íþróttir stundaðar. Skólasund
stendur enn yfír, auk fijálsra tíma
þar. Skólamir reyna svo að sinna
þörfum krakkana, og að mestu með
„opnu húsi“. En hvað segja ungling-
amir um æskulýðsstarfið?
Helgarnar verstar
Sigrún Sæmundsdóttir: „Ég fer
á opið hús í skólanum og stunda
íþróttir. Á sumrin vinn ég mikið,
stunda íþróttir og fer á böll. Horfi
ekki á sjónvarp á sumrin en svolítið
á veturna, horfi líka á myndbönd.
í skólanum eram við látin lesa bók-
menntir, svo við lesum ekki mikið
þar fyrir utan. Aðstaðan fyrir
íþróttir er góð, og hefur batnað
mikið. Verstar era helgamar. Þá
veltast krakkar bara um og hafa
lítið við að vera. Þá reyna allir að
fara í partí ef hægt er. Það er vin-
sælt að koma saman og horfa á
hasarmynd og kjafta saman fram
á rauða nótt.“
Les eitthvað aukalega
Sigurður Ólafsson: „Á sumrin
reynir maður að vinna sér inn eins
mikla vasapeninga og hægt er fyrir
veturinn. Svo reynir maður líka að
leika sér eins og hægt er í íþrótt-
um, fara í fjörðinn á silungaveiðar
og allskonar ragl. Íþróttunum fylgja
líka ferðalög. A vetuma fer mestur
tími í skólann. Þar er opið hús og
böli á þriggja vikna fresti. Þess
utan reynir maður að finna sér eitt-
hvað að gera. Ég horfí svolítið á
sjónvarp og les eitthvað aukalega.
Aðstaðan fyrir unglinga er góð. Við
höfum íþróttahús, grasvöll fyrir fót-
bolta og fijálsar. Aðstaða í skólan-
um er líka góð fyrir böll og opið
hús. Skólinn á hljómtæki, þijú borð-
tennisborð og tvö billiardborð og
fleira. Ég held því að aðstaðan hér
sé mikið betri en víða annars stað-
ar. Við fáum auðvitað bara að fara
á skólaböll og heimahúsaböll, en
þau era nú líka vinsæl. Þá má geta
þess að í skólanum er íþróttamót
vikulega."
Golf og tónlist
Kristján Heiðar Sigurðsson:
„Ég er mikið í tónlist, en á sumrin
spila ég golf. Les nú heldur lítið
en horfi eitthvað á sjónvarp. Mér
finnst vanta að krakkar komist á
böll, það er að segja þau sem ekki
fá að fara á almenn böll. Núna eram
við að byija að æfa í hljómsveit,
og spilum vonandi á skólaböllum.
Síðustu ár höfum við bara spilað á
þorrablótum í skólanum, en aldrei
á skólaböllum. Skólaböllin era bara
diskótek."
- JGG.
Sigrún Sæmundsdóttir.
Heimir Haraldsson bassaleikari.
Kristján Heiðar Sigurðsson.