Morgunblaðið - 05.01.1988, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988
Kristín ÁR
staðin að
ólöglegum
togveiðum
FISKISKIPIÐ Kristín ÁR 101 var
í gærdag staðið að meintum ólög-
legum togveiðum, en skipið
hefur ekki leyfi til dragnóta-
veiða. Skipið er gert út frá
Þorlákshöfn og var því þegar í
stað vísað þangað til hafnar.
Að sögn Jóns Magnússonar hrl.,
lögmanns Landhelgisgæslunnar,
hafði sjávarútvegsráðuneytið til-
kynnt Landhelgisgæslunni að skipið
hefði ekki leyfi til dragnótaveiða
og um klukkan 15.00 í gær varð
þyrla Landhelgisgæslunnar, TF Sif,
vör við skipið þar sem það var við
togveiðar skammt suður af landinu.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF
Sif, stóð Kristínu AR að meintum
ólöglegum togveiðum.
Var skipstjóranum þegar í stað fyr-
irskipað að sigla skipinu til Þorláks-
hafnar og var það væntanlegt
þangað seint í gærkvöldi.
Landhelgisgæslan kærði málið
formlega til embættis sýslumanns-
ins á Selfossi í gærdag og fór fram
á að gerðar yrðu viðeigandi ráðstaf-
anir varðandi afla og veiðarfæri
þegar Kristín ÁR kæmi til hafnar
í Þorlákshöfn.
Fiskmarkaðirnir suðvestanlands:
Samtenging upp-
boða á döfinni
Grindavík.
HAFNAR eru viðræður milli
forráðamanna fiskmarkaðanna
í Reykjavík, Hafnarfirði og á
Suðurnesjum um hvort mögu-
leiki sé á að samtengja uppboðin
á öllum mörkuðunum þremur á
næstunni, auk þess sem áhugi
er fyrir því að koma á fót sam-
eiginlegum tölvuupplýsinga-
banka þar sem væntanlegir
kaupendur geta kallað til sín
upplýsingar um fyrirhugaðar
sölur í gegnum síma inn á tölv-
uskjá í viðkomandi fyrirtæki.
Kaupandi í Þorlákshöfn þarf því
ekki að fara til Reykjavíkur eða
Hafnarfjarðar til fiskkaupa ef af
þessu verður því nú er verið að
samtengja Þorlákshöfn við Fisk-
markað Suðuniesja.
Að sögn Ólafs Jóhannssonar
framkvæmdastjóra Fiskmarkaðs
Suðumesja hafa þegar verið
haldnir tveir fundir og sá þriðji
verður í dag. „Á þessum fundum
hafa þessi tvö mál verið efst á
baugi en þreifingar í gangd um
fleiri mál eins og sameiginlegt
fréttabréf og reglulega samráðs-
fundi. Samræming á umboðslaun-
um mætti hins vegar strax
andstöðu og var tekin af dagskrá.
Allir aðilar telja hins vegar æski-
legt að samtenging markaðanna
og upplýsingabanki verði að veru-
leika fljótt enda er hér í rauninni
um eitt markaðssvæði að ræða.
Meiningin er að sjá hvemig til
tekst með samtengd uppboð frá
þrem stöðum í kjölfar þess að
Þorlákshöfn tengist Suðumesja-
markaðnum, áður en farið verður
út í að bjóða upp á fímm stöðum
samtímis," sagði Ólafur að lokum.
Kr.Ben.
Viðræður um kjarasamninga á Vestfjörðum:
Tímabært að fá
fram skýrari límir
- segir Pétur Sigurðsson forseti Al-
þýðusambands Vestfjarða
EKKI varð af fyrirhuguðum
fundi samningsaðila á Vestfjörð-
um á laugardaginn var, en vænst
er óformlegs fundar nú í vik-
unni, þar sem ákvarðanir verða
teknar um framhaldið. Pétur
Sigurðsson, forseti Alþýðusam-
bands Vestfjarða, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að það væri
tímabært að fá fram skýrari
linur hvað varðaði almenn atriði
kjarasamnings.
Hann sagði að Alþýðusambands-
menn teldu næga reynslu komna á
þá tilraun að taka upp hópbónus í
frystihúsunum í stað einstaklings-
bónuss og það þyrfti nú að fara til
þess að semja um viðmiðunartölur
bónussins. Búið væri að taka upp
nýja kerfið í sex húsum af tólf og
hefði það reynst það vel að hann
sæi ekki að einstaklingsbónus yrði
tekinn þar upp aftur. Hin húsin
færu að taka upp hópbónuskerfíð.
Hins vegar þyrfti að vera í samning-
um ákvæði um endurskoðun, þegar
meiri reynsla fengist af hópbónusn-
um.
Pétur sagði að Alþýðusambandið
væri tilbúið til að ræða almenn at-
riði kjarasamnings. Vinnuveitendur
þyrftu að gera afstöðu sína ljósa
varðandi þann ramma sem þeir
teldu að samningar ættu að vera
í. Benti hann á að tölur hefðu verið
nefndar í viðræðum VSÍ og verka-
lýðshreyfingar í desember. Hann
sæi ekki ástæðu til þess að ríkis-
valdið kæmi inn í viðræður verka-
lýðshreyfingar og vinnuveitenda og
því væri ekki eftir neinu að bíða.
„Ég sé ekki flöt á þríhliða viðræð-
um. Það leysir ekki málið að ríkis-
valdið komi inn í viðræður, eins og
framkvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambands íslands hefur látið liggja
að. Ég sé ekki að kauphækkanir
verði meiri þó ríkisvaldið gefí eftir
söluskatt á þvottavélum og strau-
jámum, samkvæmt gömlu aðferð-
inni,“ sagði Pétur Sigurðsson að
lokum.
Líkast stríðsástandi
segir Guðmundur Viggósson augnlæknir um áramótaslysin
Morgunblaðið/Sverrir
Guðmundur Viggósson augnlæknir á Landakotsspítala.
UNDANFARIN 10 ár hafa að
jafnaði 56 manns verið lagðir
inn árlega hérlendis vegna
meiriháttar augnáverka, sam-
kvæmt könnun sem Guðmund-
ur Viggósson augnlæknir hefur
gert. Slysunum má skipta í
nokkra flokka: slys vegna leikja
barna og unglinga, vinnuslys,
algengust hjá smiðum og bif-
vélavirkjum; íþróttaslys,
umferðarslys, þar sem fólk
skerst á glerbrotum úr framr-
úðum; slys sem rekja má til
áfengisneyslu og skemmtana
og loks áramótaslys, flugelda-
slys. Vinnuslys og slys á
börnum og unglingum hafa
minnkað ár frá ári, segir Guð-
mundur, einnig áverkar af
völdum umferðarslysa, með
aukinni notkun öryggisbelta,
en slys vegna áfengisneyslu og
skemmtana aukast ár frá ári.
Loks eru áramótaslysin, „þau
hafa aldrei verið fleiri og alvar-
legri en nú, tíðnin er svo
geigvænleg að ætla mætti að
hér ríkti stríðsástand," segir
Guðmundur Viggósson.
Á gamlársdag og nýársdag
voru fímm sjúklingar lagðir inn
vegna áramótaslysa, það er tæpur
tíundi hluti þeirra sem gera má
ráð fyrir að hljóti alvarlega augná-
verka hér á þessu ári.
Tveir þessara fímm sjúklinga
eru 12 ára strákar, annar hafði
búið sér til blys sjálfur en hinn
fór gáleysislega með ýlurakettu.
Þeir fengu báðir talsverða áverka
á annað augað en eiga góða von
um fullan bata.
Hinir þrír eru fullorðnir menn
sem allir slösuðust við að skjóta
upp tívolíbombum. „Öll þessi slys
eru mjög alvarlegs eðlis, einkum
tívolíbombutilfellin. Við erum allt-
af að sjá það betur og betur,
fínnum nýja áverka,“ sagði Guð-
mundur Viggósson. „Auk augná-
verkanna eru mennirnir allir með
alvarlega andlitsáverka, höfuð-
kúpu- og kinnbeinsbrot. Einn
missir auga, annar mun þurfa að
leita frekari lækninga erlendis,
svo illa er augað farið og sá þriðji
hefur áverka í augnbotni sem
getur valdið varanlegri sjóndepru.
Það tókst að útrýma
„kínverjunum“
„Ég held að þessar bombur séu
mjög varasamar, allt of hættuleg-
ar, þótt svo að í flestum tilfellum
gangi þetta óhappalaust fyrir sig.
Á sínum tíma voru „kínveijarnir"
gerðir útlægir vegna þess hve
margir urðu fyrir heyrnar-
skemmdum vegna þeirra. Þá
beittu háls-, nef-, og eyrnalæknar
sér fyrir því að gera þá útlæga
og það tókst enda sá fólk að gjald-
ið var allt of hátt, áhættan of
mikil, fyrir tilgangslitla skemmt-
un. Nú þegar þessar tívolíbombur
hafa valdið þremur fullorðnum
mönnum, sem eru auk þess þekkt-
ir af vandvirkni og ráðvendni í
hvívetna, varanlegu heislsutjóni,
þá er tímabært að velta fyrir sér
hvort ekki sé rétt að stöðva sölu
þeirra og finna áramótagleðinni
annan og hættuminni farveg,
þetta er greinilega hættuleg vara
sem almenningi getur stafað
hætta af,“ sagði Guðmundur Vig-
gósson augnlæknir.
Fremsti hluti kveiks-
ins hefur dottið af
- segir Einar L. Gunnarsson
„BOMBAN sprakk um leið og
faðir minn setti eld að kveikn-
um,“ sagði Einar L. Gunnars-
son en faðir hans, Gunnar J.
Friðriksson iðnrekandi, slasað-
ist á andliti, meðal annars á
auga, þegar hann var að skjóta
upp tívolíbombu við sumarbú-
stað í Svignaskarði í Borgar-
firði á gamlárskvöld.
Einar sagði að einnig hefði leg-
ið við slysi hjá sér á gamlárskvöld
þegar hann var að slqota upp
tívolíbombu. Bomban hefði
sprungið um leið og hann setti
eld að kveiknum, á sama hátt og
hjá Gunnari, en hann hefði slopp-
ið með skrekkinn vegna þess
hversu langt hann stóð frá hólkn-
um. En hún hefði farið svo nálægt
sér að hatturinn hefði fokið af
höfðinu. Einar sagðist hafa skotið
upp 5 öðrum bombum og þær
farið upp með eðlilegum hætti.
Sagðist Einar hafa fundið ör-
yggishettuna af tívolíbombunni
sem fór of fljótt upp og vissi nú
hvað hefði farið úrskeiðis. Með
öryggishettunni hefði farið
fremsti hluti kveiks bombunnar,
án þess að hann tæki eftir, og
eftir hefði einungis verið sá hluti
hans sem brennur upp á örskots-
stundu. Taldi hann víst að það
sama hefði gerst hjá föður sínum.
Einar sagðist ekki hafa áttað
sig á þessu, enda hefði hann sko-
tið upp tívolíbombum á gamlárs-
kvöld undanfarin ár og talið sig
kunna til verka.
Líðan Gunnars er eftir atvikum,
að sögn Einars.
„Þetta er al-
gjört rugl“
— heimatilbúið
blys sprakk
í höndum 12
ára drengs
JÓHANNES Óskarsson er 12
ára Hafnfirðingur. Hann hefur,
eins og flestir jafnaldrar hans,
gaman af flugeldum og púður-
kerlingum og fékk á laugardag
uppskrift af heimatilbúnu blysi
hjá vini sínum og setti krónu í
blysið í von um að sprengingin
yrði kraftmeiri.
Blysið sprakk í höndunum á
Jóhannesi og krónan skaust í
vinstra auga hans. Jóhannes ligg-
ur nú á augnlækningadeiíd
Landakotsspítala.
„Við vorum tveir, vinur minn
og ég, að leika okkur að búa þetta
til. Þegar ég kveikti á blysinu
fuðraði það upp í höndunum á
mér og krónan skaust í augað.
Vinur minn slapp. Við hlupum upp
á slökkviliðsstöð sem er rétt hjá
staðnum þar sem við vorum og
slökkviliðsmennimir keyrðu mig á
spítalann."
Jóhannes fær að fara heim til
sín á miðvikudaginn og er ánægð-
ur með það. Hann segist vera
heppinn að ekki fór verr og lækn-
amir segja að hann muni jafna
sig að fullu. „En framvegis kaupi
ég tilbúna flugelda og fer eftir
leiðbeiningunum. Það er algjört
Morgunblaðið/Júlíus
„Ekki reyna að búa til rakettur
sjálf,“ er heilræði frá Jóhann-
esi Óskarssyni til jafnaldra
sinna.
rugl að vera að leika sér með
þetta og ég vona að aðrir krakkar
átti sig á því svo þeir lendi ekki
í einhveiju eins og ég eða slasist
kannski ennþá meira," sagði Jó-
hannes Óskarsson.