Morgunblaðið - 05.01.1988, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988
31
16 fórust í flugslysi í Tyrklandi:
Engin ummerki
um sprengingu
Frankfurt, Ankara. Reuter.
VESTUR-þýskir sérfræðingar,
sem rannsökuðu flak Boeing 737-
þotunnar, sem hrapaði í Tyrkl-
andi á laugardagskvöld, fundu
engin merki þess, að vélin hefði
sprungið í lofti. Áður höfðu tyrk-
neskir embættismenn getið sér
til, að skemmdarverk hefði valdið
Skakkítum-
inn í Písa
skekkist enn
Písa, Reuter.
SKAKKI turninn f Písa skekkt-
ist minna á síðasta ári en 1986.
Skekktist hann um 0,7 mm að
sögn yfirumsjónarmanns
tumsins.
Eftir að lærimeistarar við há-
skólann í Písa höfðu framkvæmt
hina árlegu mælingu tilkynnti
Giuseppe Toniolo, umsjónarmað-
ur tumsins, að með þessu
áframhaldi myndi tuminn fara á
hliðina eftir um það bil eina öld.
Árið 1986 hallaðist tuminn um
1,26 mm.
Um 800.000 manns fóru upp
í hinn 800 ára gamla marmara-
tum á síðasta ári, en hann var
reistur sem klukknaturfi við
kirkju, sem stendur steinsnar frá.
Á árinu, sem nú er að hefjast,
er ætlunin að kanna með hvaða
hætti hægt er að forða tuminum
frá falli.
slysinu en með vélinni fórust 16
manns.
Um borð í flugvélinni, sem var í
eigu Condor-flugfélagsins, dóttur-
fyrirtækis Lufthansa, voru 11 Tyrkir
og fimm manna vestur-þýsk áhöfn.
Hafði flugstjórinn fengið leyfi til að
lenda í Izmir en hrapaði til jarðar í
40 km fjarlægð frá borginni, rétt
við strönd Eyjahafsins.
Enn er leitað að svarta kassanum
en í honum em skráð samtöl og
annað, sem fram fer í flugvélum,
og getur hann hugsanlega gefið
skýringu á slysinu. V-þýsku sér-
fræðingamir sögðu, að af flakinu
mætti ráða, að lendingarhjólin hefðu
verið komin niður þegar slysið varð.
* *.
:
m
Leitað í flakinu. Vélin hrapaði í skógivöxnu fjalllendi skammt frá borginni Izmir.
Reuter
Filippseyjar:
Vitni segist hafa séð
hermann skjóta Aquino
Mn.t.ln Dn.aá na.
Manila. Reuter.
Starfsmaður á flugvellinum í
Manila, höfuðborg Filippseyja,
bar í gær fyrir rétti, að hann
hefði séð hermann skjóta Ben-
igno Aquino i höfuðið í ágúst
árið 1983. Kvaðst flugvallar-
Kauphöllin í Hong Kong:
Yfirmenn grun-
aðir um spillingu
Hong Kong. Reuter.
ÞRÍR háttsettir starfsmenn kauphallarinnar í Hong Kong voru hand-
teknir um helgina og eru þeir grunaðir um misferli og spillingu. Varð
handtaka þeirra til þess, að hlutabréf féllu í verði framan af degi i
gær en réttu svo aftur úr kútnum er á leið.
Mennimir þrír, Robert Li, fyrmrn innlendra og útlendra milligöngu-
stjómarformaður kauphallarinnar og
núverandi varaformaður, og Jeffrey
Sun og Donald Tsang vom hand-
teknir á laugardag en látnir lausir
samdægurs gegn tryggingu. Þeim
hefur ekki verið birt ákæra enn sem
komið.er en urðu að áfhenda vega-
bréf sín.
Robert Li var mjög umdeildur sem
stjórnarformaður og það var að hans
ráði að kauphöllinni var lokað í fjóra
daga eftir verðhmnið í október.
Halda margir því fram, að sú ákvörð-
un hafi valdið enn meira verðfalli en
ella hefði orðið í Hong Kong. Li hef-
ur einnig verið í sviðsljósinu í deilum
*
Astralía:
Tveggja alda
búsetuafmæli
hvítramanna
Sidney, Reuter.
UM áramótin hófst árslöng af-
mælishátíð tveggja alda búsetu
hvítra manna í Ástralíu. Ekki
hyggjast þó allir fagna jafnákaft,
því samtök frumbyggja hafa lýst
yfir að 1988 verði ár sorgar, helg-
að þeim, sem féllu fyrir hendi
innflytjenda.
Bob Hawke, forsætisráðherra
Ástralíu, sagði við setningarathöfn
hátíðahaldanna að „allir Ástralic
ættu að líta um öxl og tryggja að
fyrri mistök yrðu ekki endurtekin."
Meðal viðburða á árinu verður sigl-
ing 26 seglskipa til landsins og sigla
þau sömu leið og frumheijamir forð-
um daga. Áætlað er að skipin komi
til Ástralíu hinn 26. þessa mánaðar.
og
manna í kauphöllinni í Hong Kong
og hafa þeir fyrmefndu jafnan stutt
hann. Þá hefur oft verið að því fund-
ið, að Li á hlut í einum glæsilegasta
næturklúbbnum í Hong Kong en það
þykir ekki góð latína hjá embættis-
manni kauphallarinnar.
starfsmaðurinn ekki hafa þorað
að skýra frá þessari vitneskju
sinni fyrr.
Sprengjuhótun varð til að trufla
vitnisburð flugvallarstarfsmanns-
ins, sem heitir Jessie Barcelona
og ekur dráttarvél á flugvellinum,
en framburður hans styrkir þá
kenningu saksóknarans, að herinn
hafi skipulagt morðið á Benigno
Aquino. Olli það mikilli ólgu á
eyjunum og leiddi loks til, að
Corazon, ekkja Benignos Aquino,
var kjörin forseti.
„Ég sá hermann miða á hnakka
ljósklædda mannsins (Aquinos).
Síðan reið skotið af og maðurinn
í ljósu fötunum féll til jarðar,"
sagði Barcelona. Raul Gonzales
saksóknari kvaðst einnig vona, að
einn hermannanna 36, sem sakað-
ir eru um morðið, gerðist vitni
ákæruvaldsins en að auki eru á
sakbomingabekk fjórir óbreyttir
borgarar, þar af tveir fyrrum ráð-
herrar.
Barcelona kvaðst hafa verið á
dráttarvélinni í 15 metra fjarlægð
frá vettvangi en morðið átti sér
Reuter
Jessie Barcelona, flugvallar-
starfsmaður í Manila, skýrir frá
því, að hann hafi séð hermann
skjóta Benigno Aquino.
stað þegar Benigno Aquino var
að koma heim til Filippseyja úr
þriggja ára útlegð í Bandaríkjun-
um. Þegar hann gekk niður
landganginn leiddu hann tveir her-
menn en Barcelona segir, að þriðji
hermaðurinn, sem gekk á eftir
þeim, hafí skotið Aquino. Segir
Gonzales saksóknari, að hann heiti
Rogelio Moreno.
I réttarhöldunum, sem urðu eft-
ir morðið, voru sakbomingamir
sýknaðir og þar á meðal Fabian
Ver, yfírmaður hersins á tíma
Ferdinands Marcos, fyrmm for-
seta. Þegar Corazon Aquino tók
við var málið tekið upp aftur og
komst hæstiréttur landsins þá að
þeirri niðurstöðu, að sýknudóm-
amir væm ómerkir.
Gera varð hlé á vitnisburði
Barcelona í gær þegar hand-
sprengja fannst á skrifstofu
saksóknarans. Fylgdi henni svo-
hljóðandi orðsending: „Hættið
þessari vitleysu. Þetta er til að
minna ykkur á, að við höfum þau
tæki, sem til þarf.“ Var hún undir-
rituð „Avsecom“ en það er
skammstöfun fyrir leyniþjónustu
flughersins. Bar hún ábyrgð á ör-
yggi Aquinos þegar hann kom til
landsins.
Tveir nýir kennslustaðir: Dansstúdíó Sóleyjar, Engjateigi 1 og „HaIIarsel“
Þarabakka 3 í Mjóddinni. Ennfremur sem fyrr í Auðbrekku 17, Kópavogi.
Kennum alla samkvæmisdansa: suðurameríska, standard og gömlu dansana.
Einnig bamadansa fyrir yngstu kynslóðina - laugardagskennsla á öllum stöðum.
Nemendur skólans unnu 12 af 18 íslandsmeistaratitlum í samkvæmisdönsum
1987.
Innritun og upplýsingar dagana 4. - 9. janúar kl. 13-23 í síma 641111.
Kennsluönnin er 20 vikur og lýkur með lokaballi.
✓
FID Betri kennsla - betri árangur.
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar