Morgunblaðið - 05.01.1988, Síða 64
V^terkurog
hagkvæmur
auglýsingamiðill!
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Norðurárdalur:
Tvennt slas-
ast í bflveltu
TVENNT var flutt á sjúkrahús
■ftir bílveltu ofan við Sveina-
tungu efst í Norðurárdal í
Borgarfirði undir kvöld í gær.
Karlmaður var fluttur með
sjúkrabifreið á sjúkrahúsið á
Akranesi en þyrla Landhelgis-
gæsiunnar flaug með konu á
Borgarspítalann í Reykjavík.
Fólkið er ekki talið i lífshættu.
Bifreiðin, sem er af gerðinni Lada
Sport, var á norðurleið, upp á Holta-
vörðuheiði. Um klukkan 18.25 rann
bifreiðin út af í hálku í beygju og
valt. Konan meiddist á baki og að
sögn sjónarvotts var hún í um tvo
tíma í bílnum, í 13—15 stiga frosti,
en maðurinn eitthvað skemur.
Dagsbrún
ræðir verk-
faflsheimild
j&s
tun<
BOÐAÐ hefur verið til fundar
trúnaðarráðs verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar á fimmtu-
Eina málið á dagskrá
undarins er staðan og aðgerðir
í kjaramálum.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, sagði, í sam-
tali við Morgunblaðið, ekki ólíklegt
að niðurstaða fundarins yrði sú að
samþykkja að boða til félagsfund-
ar, þar sem leitað yrði eftir verk-
fallsheimild. í trúnaðarráði eiga
sæti 100 manns, einkum trúnaðar-
menn félagsins á vinnustöðum, auk
20 varamanna. Trúnaðarráðið fer
með æðsta vald í félaginu á milli
félagsfunda.
JEinkabíll í
staðstrætó
FARÞEGUM með Strætisvögn-
um Reykjavíkur hefur fækkað
verulega á undanförnum árum.
Helst sú þróun í hendur við auk-
inn innflutning á bifreiðum til
landsins, að sögn Sveins Björns-
sonar, forstjóra Strætisvagna
Reykjavíkur.
Þessi þróun hefur leitt til þess
að tekjur SVR af fargjöldum, sem
hæst hafa náð að greiða 83% af
rekstrarkostnaði, ná á þessu ári
60%. Áætlað er að útgjöld SVR
.^yerði 438,5 milljónir og að hlutur
■^kna af fargjöldum verði 240 millj-
ónir en borgarsjóður greiði það sem
á vantar með rekstri vagnanna.
Sjá nánar á blaðsíðu 62.
ísingbarinaf
Nú er veturinn kominn fyrir
alvöru sögðu einhverjir í gær-
morgnn þegar þeir lentu í
kuldanum á leið til vinnu. í
Reykjavík var bjart og fallegt
veður, en kaldi með 9 vindstiga
frosti. Mesta frostið var á
HveravöIIum, 18 stig og á
Grímsstöðum, 16 stig. Vetrar-
legt var að sjá Ólaf Bjarnason
SH 137 frá Ólafsvík í
Reykjavíkurhöfn. Stefán Egils-
Morgunblaðið/RAX
son vélstjóri var að berja af
ísingu sem hlaðist hafði á skip-
ið á tæpum klukkutíma á sigl-
ingu inn tU Reykjavíkur.
Stærri tívolíbomban
á bannlista yfirvalda
Lögreglu og eldvamaeftirliti ber ekki saman um framkvæmd á reglum um eftirlit
SAMKVÆMT lista, sem gefinn
var út árið 1984, eru tívolíbomb-
ur yfir tvær tommur í þvermál
bannaðar, en ein sprengjan er
olli alvarlegu slysi á gamlárs-
kvöld var 2,5 tommur. Bjarki
Elíasson, yfirlögregluþjónn,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að slíkar bombur væru einungis
leyfðar til sýninga, en ekki til
sölu til almennings og hefði öll-
um innflutningsaðilum verið
tilkynnt um það á sérstökum
fundi sem haldinn var þegar list-
inn var gefinn út.
„Þetta eru slys sem enginn mað-
ur getur látið fram hjá sér fara,“
sagði Jón Sigurðsson dómsmálaráð-
herra. Hann sagðist hafa haldið
fund í gærmorgun með viðkomandi
embættismönnum í framhaldi af
þessum slysum. Jón sagði að ákveð-
ið hefði verið að gera sem nákvæm-
asta skýrslu um þennan vaming og
slysin, meðal annars með viðtölum
við það fólk sem varð fyrir slysum.
Saltfiskur fyrír 9 milljarða
V erðmætaaukning- milli áranna 1986 og 1987 er 55%
Á SÍÐASTA ári flutti SÍF út rúm-
62.000 tonn af saltfiski og
hefur útflutningurinn aldrei ver-
ið meiri í tonnum talið. Verðmæti
þessa útflutnings nam rúmlega
233 milljónum dollara, eða rúm-
um 9 milljörðum króna. Aukning
í magni frá fyrra ári er 17%, en
í verðmætum 55%, talið í dollur-
um.
Árið 1986 voru flutt út rúm
53.000 tonn, að verðmæti 150
milljónir dollara.
Framleiðsla saltflsks varð í heild
um 63.500 tonn á árinu 1987 og
hefði svo til öll verið flutt utan fyr-
ir áramót, hefði ekki komið tii
strands Hvítanessins fyrir jólin.
Útflutningurinn hefur í tonnum ta-
lið aldrei verið meiri og framleiðsla
síðasta árs er með mestu ársfram-
leiðslu á saltfiski. Um 40% af
þorskaflanum á síðasta ári fóru til
söltunar og er það svipað hlutfall
og mörg undanfarin ár.
Helztu kaupendur saltfisks á
síðasta ári voru eins og jafnan áður
Portúgalir og Spánvetjar. Aðrir
stórir kaupendur eru ítalir, Grikkir,
Frakkar og Þjóðveijar, en að öðru
leyti dreifíst salan á mörg lönd í
öllum heimsálfum.
í framhaldi af því yrði metið hvort
ástæða væri til að banna innflutn-
ing og sölu á einhverjum tegundum
flugelda.
Að sögn Bjarka Elíassonar er
lögreglu og eldvamaeftirlitinu I
sameiningu gert að hafa eftirlit með
því að íslenskar leiðbeiningar séu á
öllum blysum og flugeldum, en að
sögn Gunnars Olasonar, forstöðu-
manns eldvamaeftirlitsins, er þar
litið svo á, að lögreglan eigi að
hafa eftirlit með leiðbeiningunum,
en eldvamaeftirlitið með ástandi og
aðstæðum á sölustöðum.
Lögreglan vinnur nú að rann-
sóknum á slysunum sem urðu í
Reykjavík og í Borgarfirði af völd-
um tívolíbomba, en alvarlegustu
slysin nú um áramótin urðu vegna
þeirra. Bjarki Elíasson vildi ekki tjá
sig um orsakir slysanna á þessu
stigi, enda væri skýrslutöku ekki
lokið. Lögregla var ekki kvödd á
staðinn í neinu tilvikanna og fór
því engin vettvangsrannsókn fram.
Skylt er að hafa íslenskar leið-
beiningar á öllum flugeldum, en
eins og fram hefur komið í fréttum
Morgunblaðsins voru vanhöld á að
þeim reglum væri framfylgt, þar á
meðal í slysatilvikum nú um ára-
mótin. Að sögn Gunnars Ólasonar,
Mputsmtute
SOMBUR
forstöðumanns eldvamaeftirlitsins,
voru sett ný lög um eftirlit og sölu
á flugeldum árið 1977, og sam-
kvæmt þeim væri litið svo á af
hálfu eldvamaeftirlitsins, að fram-
kvæmd regina um eftirlit með
leiðbeiningum væri í höndum lög-
reglu, en eftirlit með sölustöðum í
höndum eldvamaeftirlitsins. Bjarki
Elíasson taldi hins vegar að báðir
þessir aðilar hefðu með höndum
eftirlitið í sameiningu.
Sjá ennfremur á bls. 26.