Morgunblaðið - 15.01.1988, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988
15
Barnagæslublús
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Allir í stuði (A Night on the
Town). Sýnd i Bíóhöllinni.
Bandarísk. Leikstjóri: Chris
Columbus. Framleiðendur: Debra
HiU og Lynda Obst. Helstu hlut-
verk: Elisabeth Shue, Maia
Brewton, Keith Googan og Ant-
hony Rapp.
Besta atriðið í gamanmynd Bíó-
hallarinnar, Allir í stuði, er þegar
söguhetjan, 17 ára gömul bamapía,
sem Elisabeth Sue leikur, flýr undan
bófunum inná svertingjapöbb með
bömunum sem hún passar og lendir
uppá sviðinu þar sem hressilegt
svertingjaband er að leika blúsinn
góða og aðalmaðurinn segir að eng-
inn fari ekki af sviðinu fyrr en hann
hefur blúsað svolítið með þeim.
Þannig verður. „Barnagæslublúsinn"
til. Bamapían í nauðum stödd ræ-
skir sig og byijar að segja sögu sína
forviða áheyrendum og áður en
nokkur veit af er raunasaga bamapí-
unnar orðin dillandi flörlegur blúss-
mellur. Þetta er sprenghlægilegt
atriði og ekkert í myndinni fyrir eða
eftir það kemur eins viðkunnanlega
á óvart.
Annars má segja að myndin öll
sé óvæntur glaðningur. Allir í stuði
er sannkallaður bamagæslublús um
bamapíu og miklar hremmingar
hennar þegar hún fer með bömin sem
hún passar inní miðborg Chicago
seint um kvöld að ná í vinkonu sína
sem bíður ein og peningalaus á jám-
brautarstöð. Og það er ekki að spyija
að því, þessi snaggaralega gamanæf-
intýramynd Spielbergsungans Chris
Columbus gerir miðborgina að einum
hættulegasta frumskóg sem hvítur
maður getur villst' inní.
Persónumar eru bamapían, stóri
bróðir sem bálskotinn er í píunni, litla
systir sem hefur þann ágæta smekk
að dá þrumuguðinn Þór og tryllist
þegar stóri bróðir segir að hetjan
knáa sé hommi, og vinur bróðurins
sem stelur Playboy frá pabba sínum
og hefur eitt og aðeins eitt áhugamál.
Columbus hefur skrifað handritið
að a.m.k. tveimur Spielberg-myndum
sem krakkar hafa hreinlega átt (The
Goonies, The Adventures of Young
Sherlock Holmes) og hér ráða krakk-
ar líka ríkjum. Spielberg kemur
hvergi nálægt (Thouchstone fram-
leiðir) en auðvitað svífur andi hans
yfír Columbus. Og síðast en ekki síst
hefur hin nýja og unga leikkona El-
isabeth Sue lag á að heilla mann
uppúr sætinu og jafnvel kuldastígvél-
unum, látlaus en snöfurmannleg.
Það sem Columbus gerir best er
að mynda gott og spaugilegt sam-
band á milli persónanna og vera
a.m.k. tveimur skrefum á undan
manni þegar hann rekur frásögnina.
Við vitum aldrei hvað getur gerst
næst og þegar það gerist hvemig
það endar þótt auðvitað sé aldrei
hætta á að endalokin skilji mann
eftir gapandi af undrun.
Ef mér skjöplast ekki hét Allir í
stuði Æfintýri barnapíunnar (Ad-
ventures of a Babysitter) eða eitt-
hvað svoleiðis þegar hún var sýnd í
Bandaríkjunum á síðasta ári. Það er
ekki óalgengt að nöfnum Hollywo-
od-myndanna sé breytt áður en þeim
er hleypt til Evrópu en maður fær á
tilfínninguna að það sé gert af því
þeim hefur ekki vegnað sérlega vel
heimafyrir og því sé talið nauðsyn-
legt að kynna þær uppá nýtt. Þessi
mynd þurfti auðvitað að keppa við
margar stórmyndimar á árinu og
kannski farið fyrir ofan garð og neð-
an vestra. Hún á betra skilið.
-herm-
GARÐURINN
Aðalstræti 9 - Kringlunni