Morgunblaðið - 15.01.1988, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 15.01.1988, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988 © 1985 Universal Press Syndicate 2-I2- ,,Úg þarf cxb -fd eína. hur£ eins og þesso.,með tó'lunni 37-. • ViS erum cÁ -flytja'' Ast er n-H . .. að nýta gömlu af- gangana. TM Reg. U.S. Pat Otf.—all nghts raaarvad ® 1987 Los Angeias Timas Syndicatfl Með morgunkaffinu V/E^r'2'7 12:2 Hnerraði. Það var allt og sumt. HARNÖWSKI Er ég komin heim? HÖGNI HREKKVlSI Kattavinafélag íslands Tökum enn á Tii Velvakanda. Þegar við félagsmenn og aðrir samborgarar lítum yfir farinn veg hljótum við að minnast þeirra mætu hjóna, sem stofnuðu þetta félag, þeirra frú Svanlaugar Löve og eftir- lifandi manns hennar, Gunnars Péturssonar, sem nú er formaður Kattavinafélags fslands. Enn vantar á að húsið Kattholt sé orðið til, þótt nokkuð færist í þá átt. Tökum en á til að láta þann draum okkar allra rætast. Þetta hús verður fagur minnisvarði okkar allra sem þar stöndum að verki og fögur minning um atorku og stór- hug félagsmanna. Þegar maðurinn fer að virða dýrin mun heimurinn batna, því þau eru á margan hátt mönnum betri. Látum þau finna skjól. Nú er verið að tala um að við séum að týna móðurmálinu, en kisa mun halda áfram að segja mjá og hundurinn að gelta sem fyrr — það er okkar að hlusta og sinna. Svo vil ég þakka öllum sem styrkt hafa félagið á ýmsan hátt við bygg- ingu Kattholts, svo og þeim sem birt hafa í blöðum greinar um dýr. Að síðustu þakka ég félagsmönn- um öllum liðnu árin. Sigríður Lárusdóttir Erum við að týna raunveruleikanum? Til Velvakanda í síðustu Ijóðum Davíðs frá Fagraskógi eru þessi tvö erindi: Að sjá og elska ættland sitt er öllum sálubót. Þeir óku framhjá Esjunni og enginn sá þar gijót. Yfir Hvítá æddu þeir en enginn sá þar fljót. Svo var aftur haldið heim og höfðinglega veitt. Ferðin hafði farið vel og fólkið gerðist þreytt. Ættjörðin var yndisleg - þó enginn sæi neitt. Er ekki hollt að hugleiða þetta svolítið um áramótin. Hvernig er það með fólkið í landinu. Æðir það framhjá Esjunni, og enginn sér þar gijót? Erum við kannski að týna raunveruleikanum, fara framhjá því sem hefir verið sterkasta aflið í fari Islendingsins, sjá ekki það góða við tilveruna, en kæfa svo sam- viskuna í vímubaði? Eyða, spenna og fara illa með, en gæta ekki að umhverfínu, gleyma skuldadögun- um. Og hvemig stendur á því að nú gnæfa svo hátt í samfélaginu ómar sem víkja manninum af réttri leið. I ungdæmi mínu var talað um vættir sem ærðu manninn. Nú þarf ekki á þeim að halda. Við höfum nóg af slíku. Spurningar hrannast upp. Hvemig stendur á allri þessari skuldasöfnun í góðæri? Vísakortin þurfa að borgast. Og því sem við fáum að láni þurfum við að skila aftur. Þetta em sannindi allra tíma. En — við æðum bara yfir Hvítá — og enginn sér þar fljót. Það er verið að tala um reynslu. Hvenær tökum við mark á henni? Þarf ekki að fara langt, þegar rætt er um stjórnun auðlinda lands og sjávar. Það er talað um fræðslu, en um leið gleymt því að lífið er alltaf að benda okkur á hvað sé rétt og rangt, hollt og óhollt, hvað sé vit og ekki vit, en aka menn ekki framhjá Esjunni og sjá ekki gras eða gijót? Og svo blekkjum við okkur og segjum í lokin: Ætt- jörðin er yndisleg, þótt enginn sæi neitt. Og er ekki orðið nokkuð langt síðan við höfum heyrt sungið fullum h'álsi: Ég vil elska mitt land? Við höfum það gott, nóg til hnífs og skeiðar og að bíta og brenna. Sam- félagslega hluti. Hversvegna þurfum við þá að éta út á framtí- ðina og á kostnað komandi kyn- slóða? Er þetta ekki spurning dagsins? Verðum við ekki að fara að stijúka móðuna af glugga sálar vorrar, og kíkja út og vita hvort við sjáum ekki Esjuna og allt um kring? Árni Helgason PEeiFA FheiNUM Seg?LU/lA'A RÉTTA STAe>l, ttA?" Yíkverji Víkveiji þurfti á dögunum að reka erindi í opinberri stofnun. Slíkt er auðvitað ekki í frásögur færandi, en þó varð Víkvetja hugs- að til þess í ferðalok hvað starfsfólk getur gert viðskiptavinum stofnun- ar sinnar mislétt að reka erindi sín. í þessu tilviki var Víkveiji að fá aukaskattkort hjá skattstjóranum í Reykjavík. Ungur maður var við afgreiðslu og er ekki að orðlengja það, að lipurð hans og glaðlegt við- mót vakti athygli. Og ekki skipti hann skapi þótt í ljós kæmi að Víkveiji var ekki með allar nauð- synlegar upplýsingar meðferðis, heldur spurði hvort ekki væri hægt að afla þeirra í síma þarna við af- greiðsluborðið. Það var hægt með hans aðstoð og síðan fékkst auka- skattkortið, eins og hendi væri veifað. Þessi afgreiðsla gerði Víkveija létt í geði og er það senni- lega einsdæmi, þegar skattamál skrifar hans eru annars vegar. Þegar Víkveiji skýrði vinnufélög- um sínum frá þessu kom í ljós að fleiri höfðu sömu sögu að segja af skattstofunni. Til samanburðar rifj- uðu menn upp ýms viðskipti sín við afgreiðslufólk, sem kom þannig fram við viðskiptavinina, að þeir gengu blótandi á burt og hafa ekki mátt heyra á viðkomandi stofnanir minnzt án þess að fá gall í munn- inn. Afdrifaríkustu afleiðingamar, sem Víkveiji heyrði, voru þær, að viðkomandi varð svo heitt i hamsi, að þegar hann settist upp í bfl sinn fyrir utan,ók hann fyrirhyggjulaust út af stæðinu og beint á næsta bíl. XXX Víkveija hefur orðið tíðrætt um tunguna og varðveizlu hennar. Blaðamaðurinn býr við það, að skrif hans liggja frammi á hveijum degi og engu verður þar breytt eftir að Morgunblaðið er komið út. Allt sem þar er stendur svart á hvítu og minnir stöðugt á sig. Leiðréttingar breyta þar engu um í sjálfu sér. Þær lagfæra ekki mistökin sjálf. Og þrátt fyrir margs konar viðleitni til að koma í veg fyrir mistök kom- ast hrikalegir hlutir í gegn. Þeir eru kvíðvænlegir og þegar þeir birtast er erfitt að vera blaðamaður. Síðasta sunnudagsblað var Víkveija erfítt. Sumt sem þar stóð hefur verið leiðrétt. En eitt stendur þó óbreytt enn. I klausu um sjónvarps- þáttinn Dallas stóð meðal annars þetta: Velunnarar Ewing-fjölskyld- unnar þurfa þó ekki að kvíða þess. . . Það er ekki fyrirhafnarlaust að nota íslenzkt mái. Víkvetji vonar, að velunnarar Morgunblaðsins þurfi ekki að kvíða því að það komi út.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.