Morgunblaðið - 15.01.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988
27
Nesskip hf. stuðlar að fækk-
un í íslenskri farmannastétt
- segir formaður Sjómannafélags Reykjavíkur
GUÐMUNDUR Hallvarðsson formaður Sjómannafélags Reykjavíkur
hafði samband við Morgunblaðið vegna fréttar á bls. 31 hér í blað-
inu þann 6. janúar sl. þar sem haft er eftir Guðmundi Asgeirssyni
framkvæmdastjóra Nesskips hf. að engum íslendingi hafi verið sagt
upp störfum á ms. Hvítanesi þegar pólskir sjómenn voru ráðnir um
borð. Hafði hann eftirfarandi athugasemd fram að færa:
Enn fer einn af leiðandi mönnum
í íslenskri kaupskipaútgerð með
rangt mál og það sem verra er að
það skuli vera vísvitandi gert.
Samkvæmt samningi Sjómanna-
félagsins við útgerðir kaupskipa eru
sjómenn ráðnir á viðkomandi skip
en ekki hjá útgerðinni, þ.e. flutning-
ur á sjómönnum milli skipa er ekki
og getur ekki verið einhliða ákvörð-
un útgerðar.
Nokkru áður en Hvítanesið kom
til Hafnarfjarðar hafði fulltrúi Guð-
mundar Ásgeirssonar hjá Nesskip
hf. (Manni) símasamband um borð
og tilkynnti umbjóðendum SR að
þeir ættu að fara á önnur skip út-
gerðarinnar.
Hvítanesið er í reglubundnum
siglingum að og frá landinu og því
voru sjómenn á því skipi oftar hér
í könnun SKÁÍS voru 776 spurð-
ir hovrt þeir styddu ríkissjómina.
280 sögðu já (44,4%) en 351 sagði
nei, (55,6%). 15 svöruðu ekki þess-
ari spumingu og 130 sögðust
óákveðnir. Stuðningur er nú minni
við ríkisstjórnina en komjð hefur
fram í fyrri skoðanakönnunum
Helgarpóstsins.
Hlutfallslegt fylgi stjórnmála-
flokkanna er nú þannig, samkvæmt
skoðanakönnuninni, fylgi þeirra við
síðustu kosningar er sýnt innan
sviga: Alþýðuflokkur 12,9%
(15,2%), Framsóknarflokkur 19,6%
(18,9%), Sjálfstæðisflokkur 26,9%
(27,2%), Alþýðubandalag 12,3%
(13,4%), Samtök um jafnrétti og
félagshyggju 0,6% (1,2%), Flokkur
mannsins 1,2% (1,6%), Borgara-
flokkur 7,3% (10,9%) Iívennalisti
15,6% (10,1%), Þjóðarflokkur 2%
(1,3%) og aðrir flokkar 1,6% (0,2%).
Spurt var: Ef kosið væri til Al-
þingis núna, hvaða flokk myndir
þú þá kjósa? Alls vom 776 spurðir.
Þar af svaraði 51 ekki spuming-
unni, óákveðnir vom 157 og 63
sögðust ekki ætla að lcjósa eða
myndu skila auðu. Þeir sem tóku
Bráða-
Mrgðatolur
VEGNA fréttar Morgunblaðsins
í gær, fimmtudag, um fiskafla
landsmanna á síðasta ári, er rétt
að taka það fram til að koma í
veg fyrir misskilning, að þar var
um bráðbirgðatölur að ræða.
Fiskifélag íslands gefur að jafn-
aði út bráðabirgðatölur um fiskaf-
lann fyrri hluta hvers mánaðar.
Frávik frá þeim hefur undanfarið
verið lítið. í þessum tölum var þors-
kaflinn sagður 375.940 lestir.
Endanlegar tölur liggja ekki fyrir,
en talið er að heildin verði rúmlega
380.000 lestir.
heima en þeir sem á öðmm skipum
útgerðarinnar sigla, m.a. vegna
leigusiglinga erlendis. Með þessari
röskun á högum sjómanna af ms.
Hvítanesi verður fjarveran meiri
jafnframt sem tekjur manna lækka,
síðast en ekki síst þá fækkar í
íslenskri farmannastétt.
Annars er það umhugsunarvert
hvort yfir'höfuð sé ástæða til þeirrar
tímasóunar að standa í deilum við
framkvæmdastjóra Nesskips hf. og
fyrrverandi formann Sambands
íslenskra kaupskipaútgerða sem er
orðinn sjálfum sér svo ósamkvæmur
þegar eftirfarandi tilvitnun úr við-
tali er höfð í huga en það birtist í
Dagblaðinu 11. nóvembersl.: „Guð-
mundur Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri skipafélagsins Nesskips og
fyrrum formaður Sambands
afstöðu til flokkanna voru því 65,1%
aðspurðra.
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi frá stjórn Sambands
íslenzkra bankamanna:
Stjórn Sambands íslenskra
bankamanna samþykkti eftirfar-
andi ályktun á fundi sínum í dag
og sendi bankaráði Landsbanka ís-
iands:
„Stjórn Sambands íslenskra
bankamanna minnir bankaráð
Landsbanka íslands á hlutverk
bankaráða ríkisviðskiptabanka og
skorar á bankaráðsmenn að fara
að sannf'æringu sinni við val banka-
stjóra, en láta ekki utanaðkomandi
pólitískan þrýsting ráða ákvörðun-
um sínum.
Jafnframt ítrekar stjóm SÍB
samþykkt sína frá 29. október
1987, þar sem tekið er undir þá
kröfu starfsmanna Landsbanka Is-
lands, að bankastjórar verði ráðnir
úr röðum starfsmanna. Stjórn SÍB
telur eðlilegt að starfsmenn bank-
anna sitji að öðru jöfnu fyrir við
Leiðrétting
í grein eftir Ævar Kvaran um
bækur í blaðinu á miðvikudag mis-
ritaðist ártal. Breska sálarrann-
sóknarfélagið var stofnað árið
1882.
íslenskra kaupskipaútgerða, telur
það óæskilegt hve mörg leiguskip
eru í áætlunarsiglingum íslensku
skipafélaganna. Hann bendir jafn-
framt á að Eimskip og Sambandið,
langstærstu skipafélögin í áætlun-
arsiglingum, séu samtals aðeins
með fjögur eigin skip í þessum sigl-
ingum en meginuppistaðan séu
útlend leiguskip þar sem áhafnir
eru að stórum hluta einnig útlend-
HÉR fara á eftir bókanir, sem
Eyjólfur K. Sigurjónsson og
Lúðvík Jósefsson létu færa i
fundargerðarbók bankaráðs
Landsbanka íslands á fundinum
í gær:
Bókun Eyjólfs:„Á fundi bankar-
áðs Landsbanka íslands 29. des. sl.
komu fram tvær tillögur um ráðn-
ingu í bankastjórastöðu þá er losnar
þegar Jónas Haralz lætur af störf-
um, væntanlega um miðjan maí
næstkomandi. Önnur tillagan var
um Sverri Hermannsson, alþingis-
mann, borin fram af formanni
bankaráðsins, Pétri Sigurðssyni,
öðrum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins
í bankaráðinu. Hin tillagan var um
Tryggva Pálsson framkvæmda-
stjóra fjármálasviðs bankans, borin
fram af Árna Vilhjálmssyni prófess-
or, en hann var hinn fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í bankaráðinu.
Báðar þessar tillögur voru ræddar,
en ákvörðun um ráðningu banka-
stjóra var frestað þegar ósk kom
ráðningar í stöður innan banka-
stofnana."
Á aðalfundi fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík í
fyrrakvöld sagði Eyjólfur Iíonráð
Jónsson að formaður Sjálfstæðis-
flokksins eða aðrir ráðherrar hans
hefðu ekkert umboð haft frá þing-
flokki sjálfstæðismanna til þess að
semja um eitt né neitt hvað banka-
stjóramál Landsbankans varðar.
Eyjólfur sagðist telja sig hafa vissu
fyrir því að samkomulag Hefði verið
gert um að framsóknarmenn fengju
bankastjóra við bankann í stað
Burt Reynolds og Liza Minnelli
eru í aðalhlutverkum í myndinni
Lögga til leigu sem Bíóborgin
hefur hafið sýningar á.
frá Lúðvík Jósefssyni fulltrúa Al-
þýðubandalagsins um dags frest,
sem var samþykktur og þar af leið-
andi fór engin formleg atkvæða-
greiðsla fram. Eyjólfur lýsti því
yfir að hann styddi tillögu Árna en
bókun var ekki gerð. Næsta dag,
þ.e. 30. desember sl., var annar
bankaráðsfundur haldinn, þá lýsti
formaður bankaráðsins, Pétur Sig-
urðsson, því yfir að hann myndi
ekki taka ráðningu bankastjóra aft-
ur á dagskrá fyrr en hann kæmi
til baka úr. veikindafríi, um miðjan
febrúar nk.
Á bankaráðsfundi 29. des. sl.
lýsti Eyjólfur því yfir eins og áður
er fram komið að hann styddi til-
lögu Árna um Tryggva Pálsson í
nefnda stöðu bankastjóra og byggði
hann ákvörðun sína eingöngu á
faglegu mati.
I 11. gr. laga um viðskiptabanka
nr. 86/1985 segir m.a. að bankaráð
ráði bankastjóra og segi þeim upp
starfl: Hér fer ekkert á milli mála,
að hluti af skyldum bankaráðs er
að ráða bankastjóra. Nú hefur það
gerst að Ámi Vilhjálmsson hefur
sagt starfi sínu í bankaráði Lands-
bankans lausu eftir 15 ára setu í
því. Ástæða fýrir uppsögninni er
samkv. hans yfirlýsingu skoðana-
ágreiningur milli hans og forystu-
manna Sjálfstæðisflokksins, sem
telja að það sé í verkahring sínum
að ráða bankastjóra ríkisbankanna.
Ég harma þau óvenjulegu vinnu-
brögð, sem urðu þess valdandi að
jafn hæfur maður og Árni Vil-
Helga Bergs, og að þrýst hefði ver-
ið á Helga að hætta í því skyni.
Eyjólfur sagði að framsóknar-
menn færu ekki dult með það hver
ætti að fá umrædda bankastjóra-
stöðu, það væri Valur Amþórsson,
stjómarformaður SÍS. „Ef fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins í bankaráði
verða neyddir til að styðja hann,
er heldur farið að syrta í álinn,“
sagði hann.
Eyjólfur Konráð sagði að banka-
stjóramál Landsbankans hefðu
Spennumynd
sýnd í Bíó-
borginni
BÍÓBORGIN hefur hafið sýning-
ar á spennumyndinni Lögga til
leigu með leikurunum Burt
Reynolds og Lizu Minnelli í aðal-
hlutverkum.
Leikstjóri myndarinnar er Jerry
London sem leikstýrði þáttaröðun- g
um „Ellis Island", „Shogun" og
„Chiefs“. Tónlist er eftir Jerry
Goldsmith.
Lögga til leigu er ný kvikmynd !
og er Island annað landið þar sem
hún er fmmsýnd.
hjálmsson hverfur úr bankaráði
Landsbanka íslands.
í ljósi þessarar atburðarásar hef-
ur Tryggvi Pálsson lýst opinberlega
yflr að hann muni ekki vera í kjöri
í bankastjórastöðu Landsbanka ís-
lands sem losnar þegar Jónas
Haralz lætur af störfum.
í mótmælaskyni við öll þau
vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið
frá upphafí þessa máls, hef ég
ákveðið að sitja hjá þegar kosning
fer fram um ráðningu í margnefnda
bankastjórastöðu."
Bókun Lúðvíks: „Samkvæmt lög-
um um viðskiptabanka er það
verkefni bankaráðs að ráða banka-
stjóra. Nú hefur komið í ljós að
núverandi ríkisstjómarflokkar hafa
samið um að skipta með sér banka-
stjórastörfum í ríkisviðskiptabönk-
um og beinlínis ákveðið hvaða menn
skuli ráðnir í störfin. Þessi ólögle-
ögu og ósæmilegu afskipti af
ráðningu bankastjóra Landsbank-
ans hafa þegar leitt til þess að annar
af tveimur fulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins í bankaráði Landsbankans
hefur sagt sig úr bankaráðinu. Auk
þess hefur annar tveggja manna,
sem tillögur höfðu komið fram um
að ráða sem bankastjóra, talið sig
knúinn til að draga sig í hlé og
gefa ekki kost á sér. Þannig hafa
öll eðlileg störf bankaráðs við ráðn-
ingu bankastjóra verið hindruð með
ofríki ríkisstjómar. Ég mótmæli
þessum vinnubröðgum með því að
neita að taka þátt f þeirri formaf-
greiðslu sem hér fer fram.“
fram til þessa ekki verið rædd í
þingflokki sjálfstæðismanna. Nú
myndi hann hins vegar taka málið
upp, meðal annars vegna þess að
Ámi Vilhjálmsson, fulltrúi Sjálf-
stæðismanna í bankaráði, hefði
neyðst til þess að segja af sér, sem
væri meira en lítið annarlegt.
Eyjólfur sagðist hafa vitað af
afsögn Árna á mánudagskvöld, að
loknum þingflokksfundi sjálfstæðis-
manna fyrr um daginn, og að þá
hefði hann gert kröfu um að þing-
flokksfundur yrði haldinn þegar í
stað, þar sem afsögn Áma hefði
tekið gildi á þriðjudag og enn hefði
verið hægt að bjarga málunum fyr-
ir miðnætti. Þessa kröfu hefði hann
hins vegar dregið til baka, er ljóst
var að ákvörðun Áma varð ekki
haggað.
Eyjólfur Konráð sagðist á fundin-
um myndu gera athugasemd við
þessi vinnubrögð og annan fram-
gang bankastjóramálsins á þing-
flokksfundi sjálfstæðismanna, sem
haldinn var síðdegis í gær.
Skoðanakönnim SKÁÍS og Helgarpóstsins:
Minnihluti aðspurðra
styður ríkisstjórnina
Kvennalistinn eykur fylgi sitt, en Borg-
araf lokkur og Alþýðuf lokkur tapa
KVENNALISTINN myndi auka fylgi sitt, en Borgaraflokkur og
Alþýðuflokkur tapa ef kosið væri til Alþingis nú, samkvæmt skoðana-
könnun SKÁÍS sem Helgarpósturinn birti í gær. Fylgi annarra flokka
hefur breyst minna frá síðustu kosningum. Rúmlega 44% sögðust
styðja ríkisstjórnina, eða innan við helmingur þeirra sem afstöðu
tóku í skoðanakönnuninni.
Samband bankamanna:
Starfsmeirn banka sitji
fyrir að öðru jöfnu
Bankaráð Landsbankans:
Mótmæltu vinnubrögð-
um með því að sitja hjá
Bankastjóramál Landsbankans:
Þingflokkurimi hefur
ekkert umboð veitt
- segir Eyjólfur Konráð Jósisson
RAÐNING bankastjóra að Landsbankanum var rædd á þingflokks-
fundi Sjálfstæðisflokksins i gær að ósk Ejjólfs Konráðs Jónssonar,
en að hans sögn hefur það mál ekki verið i-ætt fyrr á þeim vett-
vangi. Eyjólfur vildi eftir þingflokksfundinn i gær ekki tjá sig um
umræðumar. Halldór Blöndal varaformaður þingflokksins sagði við
Morgunblaðið að engin efnisleg afstaða hefði verið fcekin til þess
hver skuli verða bankastióri Landsbankans, enda heyrði það ekki
undir þingflokkinn, en á fundinum hefði komið fram að þingflokkur-
inn bæri fullt traust til þeirra Jóns Þorgilssonar sem aðalmanns í
bankaráði Landsbankans og Árdísar Þórðardóttur varamanns sjálf-
otæðismanna í ráðinu.