Morgunblaðið - 15.01.1988, Side 46

Morgunblaðið - 15.01.1988, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1988 *FOI_K ■ INTER Mílanó hefur meiri áhuga á að fá V-Þjóðveijann Lot- har Mattháus fráBayern MHchen til sín - heldur en Gary Lineker, sem leikur með Barcelona. Þetta sögðu forráðamenn félagfsins í gær. Þeir sögðu að það væri ekki satt sem hafí komið fram í enskum blöð- um, að félagið hafí ákveðið að borga 4.5 millj. sterlingspund fyrir Line- ker. „Við höfum áhuga á mörgum ^öðrum leikmönnum heldur en Line- ker,“ sögðu þeir hjá Inter Mílanó. Þess má geta að tveir útlendingar eru í herbúðum félagsins. Belgíu- maðurinn Enzo Scifo og Daniel Passarella frá Argentínu. ■ TVÆR rúmenskar hand- knattleiksstúlkur óskuðu í gær eftir hæli sem pólitískir flóttamenn í Frakklandi. Þær voru leikmenn með handknattleiksliðinu Brasov, sem var að leika Evrópuleik gegn Basanco. Onnur handknattleikskonan, sem er 27 ára, á eitt barn í Rúmeniu og hin er 19 ára gömul. Fyrir tveim- ur mánuðum flúðu þrír rúmenskir ^rugby-leikmenn - þegar þeir voru á keppnisferðalagi í Frakklandi. Einn af þeim er sonur varaform- anns rúmenska rugbysambandsins. H ENSKA knattspyrnusam- bandið hafnaði í í gær 20 millj. sterlingspunda tilboði frá Foster Lager um að enska bikarkeppnin (FA) yrði kölluð eftir fyrirtækinu. Forráðamenn enska knattspymu- sambandsins sögðust vilja halda nafni keppninnar án þess að auglýs- ingastimpill kæmi á hana. Enska bikarkeppnin FA Cup, Wimble- don-tenniskeppnin og Opna breska meistaramótið í golfi eru þau þrjú keppnismót í Englandi, sem hafa ekki á sér auglýsinga- stimpil. ■ EVERTON fær heimaleik í þriðju viðureign félagsins við Sheffield Wednesday í ensku bik- arkeppninni. Leikurinn verður á Goodison Park á mánudaginn kemur. ■ GRAEME Souness, fram- kvæmdastjóri Glasgow Rangers, er ekki af baki dottinn í sambandi við kaup á leikmönnum. Souness, sem hefur keypt sjö leikmenn til Rangers á rúmu ári, mun kaupa ^John Brown frá Dundee í dag, 'ef hann fær „grænt ljós“ í læknis- skoðun. Rangers mun greiða Dundee 350 þús. pund fyrir Brown, sem er 26 ára. Souness hefur einnig hug á að kaupa danska landsliðsmanninn Jan Batram, sem er bakvörður, frá Silkiborg, á 175 þús. pund. Batram, sem er 25 ára, kom í gær til Glasgow, þar sem hann verður í viku, sagði: „Ég er kominn hingað til að skoða mig um á Ibrox og um leið mun Souness fá tækifæri til að sjá mig á æfing- um.“ ■ EÐVARÐ Matthíasson frá Vestmannaeyjum komst í átta manna úrslit á knattborðsmóti í Mítiinada. Hann náði 116 stigum á stuði í mótinu og vann t.d. sigur Sir fyrrum Kanadameistara. SIGURDUR Guðmundsson blakmaður úr Víkingi er að flytja til Akureyrar og mun leika með KA. Hann leikur sem „smassari" og á að baki þtjá landsleiki. Sigurð- ur verður löglegur með KA-liðinu 20. febrúar. H LIVERPOOL hefur gert þriggja ára auglýsingasamning við ítalska stórfyrirtækið Candy. Samningur- inn hljóðar upp á 5,4 milljónir dollara eða um 200 milljónir íslen- skar krónur. H JOHN McEnroe bandaríski tennisleikarinn skapstóri verður meðal keppenda á Grand Prix- mótinu í Frkklandi í næsta mánuði. McEnroe hefu ekki tekið þátt í móti síðan hann fékk tveggja mán- aða bann á opna bandaríska mótinu í tennis í september. HANDKNATTLEIKUR / HEIMSBIKARKEPPNIN Allt á suðupunkti í Eskilstuna: Mark dæmt af Júgóslövum á síðustu sek. gegn A-Þjóðvevjum Mark sem hefði nægt íslendingum í efsta sæti Júgóslavar unnu Austur-Þjóð- vetja 23:21 í B-riðli í gærkvöldi. Jógóslavar skoruðu reyndar 24. mark sitt um leið og flautað var til leiksloka. Mikil rekistefna var hjá dómurunum og tímavörðum í leiks- lok um það hvort markið væri gilt eða ekki. Niðurstaðari var sú að markið, sem Veselin Vujovic gerði, var dæmt ógilt. Jógóslvar mót- mæltu óspart en það.dugði ekki og því fór sem fór. Ef markið hefði verið dæmt gilt hefði íslenska liðið sigraði í B-riðli. Það má því segja að tæpara gat það varla verið. Isakovic með sjö mörk Mile Isakovic skoraði sjö mörk fyrir Júgóslava og var þeirra besti mað- ur. Austur-Þjóðvejar leiddu með einu marki í hálfleik, 13:12. Ungverjar skoruöu aöeins þrjú mörk í fyrri hálfleik Ungverjar skouðu aðeins þijú mörk í fyrri hálfleik gegn 9 mörkum Spánveija í B-riðli í gærkvöldi. Sig- ur Spánveija var nokkuð öruggur eftir það, sigruðu 16:14. Þar gerðu Spánveijar út um vonir Ungveija að leika til úrslita í mótinu. „Ég er hreykinn af strákunum“ - sagði Jón Hjaltalín Magnússon Eg er hreykinn af strákunum. Bogdan hefur enn einu sinni sannað hæfileika sína sem þjálf- ari og enn einu sinni náð iiðinu í toppæfingu á réttum tíma. Ef allt liðið hefði tekið þátt í undirbún- ingnum í desember hefðum við leikið um gullið, en við lærum af þessu. En að leika um þriðja sæt- ið er gott og ég vil fá að nota tækifærið og þakka öllum, sem hafa stutt okkur og gera það áfram," sagði Jón Hjaltalín Magn- ússon, formaður HSÍ í samtali við Morgunblaðið eftir leikinn í gær. Pressens Bild Atll Hilmarsson sést hér gnæfa yfír vörn Dana og skora eitt af sjö mörkum slnum. „Qánægður með að hafa ekki sigrað í riðlinum" - sagði Bogdan Kowalczyk, landsliðsþjálfari Bogdan Kowalczyk Steinþór Guðbjartsson skrifar frá Svíþjóð „Ég er ánægður með stöðu okkar í riðlinum en ekki 100% ánægður, því við höfðum alla möguleika á að leika um gullið og ég er ekki viss um að slíkt tækifæri gefíst á stórmóti sem þessu á kom- andi árum. Ég sagði við þig fyrir keppn* ina að sjötta sætið væri gott, en miðað við hvemig mótið hefur þró- ast er ég óánægður með að hafa ekki sigrað í riðlinum. Við vorum aðeins einu marki frá því, sem sýn- ir hvað hvert mark er mikilvægt. Þessi leikur var ekki góður, en sig- urinn var engu að síður mikilvægur. Strákamir voru taugaóstyrkir og gerðu mörg mistök og þau kostuðu úrslitaleikinn. En nú er það keppni um þriðja sætið og ég vil helst fá Svía, því álagið yrði mikið á þeim — þeir yrðu að sigra okkur á heima- velli sínum. Erfíðast yrði að fá Ungveija, því þeir leika alltaf vel gegn liðum frá Norðurlöndum.“ Atli Hilmarsson „Það er leiðinlegt að árangur okkar I riðlinum nægir ekki í úrslit, en að leika um þriðja sætið er óneitan- lega gott. Ég er ánægður með minn þátt í þessum leik, en við gerðum of mörg mistök og sigruðum ekki með þeim mun, sem við þurftum, fyrir bragðið." Einar Þorvarðarson „Miðað við hvemig leikirnir hafa þróast, er ég ánægður með að leika um þriðja sætið. Við höfum enn einu sýnt á stórmóti að við höldum okkar striki og ég blæs á einn góð- ur leikur, næsti slakur, síðan aftur góður. Slíkt getur gerst í vináttu- leikjum, en ekki á stórmótum. Við spiluðum ekki vel núna, en þess ber að geta að við lögðum allt í leikinn gegn Júgóslövum og vomm ekki nema einu marki frá úrslitaleikn- um.“ Kristján Arason „Ég veit ekki hvort ég á að vera svekktur eða ánægður og það er fáránlegt. Það var gott að vinna þennan leik, en sárt að vera marki frá úrslitaleiknum. Leikurinn gegn Júgóslaví tók greinilega sinn toll.“ AlfreA Gíslason „Ég er svekktur út í sjálfan mig. Eg átti slakan leik, gerði mistök í byijun og komst ekki í samband við leikinn. Leikurinn í heild var ekki góður, en ég er ánægður með sigurinn og það kom sér vel, hvað Atli blómstraði." Þorgils Óttar Mathiesen „í raun er ekki hægt að vera svekkt- ur og við getum verið ánægðir með að leika um þriðja sætið í keppni átta sterkustu þjóða heims. Við vorum taugaóstyrkir og leikurinn bar þess merki, en þetta er eðlilegt — svona er handboltinn. Hvað vöm- ina varðar þá var Kristjáni tvisvar vikið af velli í fyrri hálfleik og gat því ekki beitt sér eftir það. Ég vil leika við Upgveija um bronsið og er alveg sama hvar.“ Kari Þráinsson „Ég er ánægður með annað sætið í riðlinum, en við áttum svo sannar- lega möguleika á að leika um gullið. Við vorum spenntir, en það var gott að sigra." Anders Dahl-Nielsen „Ég er óánægður með að ísland skuli ekki leika til úrslita, því liðið átti það skilið. En við börðumst vel, gáfum hvergi eftir og vöm okkar var að mörgu leyti góð. Reyndar gat sigurinn lent hvorum megin sem var, en íslenska liðið er betra og það er betur undirbúið. Ég er aldrei ánægður með tapleik, en við höfum staðið okkur vel mið- að við aðstæður. Við stóðum í íslenska liðinu.“ Þorbergur áhorfandi á heimavelli að vakti mikla athygli áhorfenda í Motala, þegar íslenska liðið mætti til leiks gegn Dönum, að Þorbergur Aðalsteinsson var ekki í fslenska liðinu. Leikið var á heimavelli SAAB-liðsins, sem Þorbergur leikur með. Bæjarblaðið var búið að segja frá því að Þorbergur myndi leika með. Það kom því mjög á óvart að Þorbergur var á meðal áhorfenda. Þor- bergur var myndaður bak og fyrir af ljósmyndurum, þar sem hann sat í áhorfendastúkunni. Eins og menn vita þá er Þorbergur lykilmaður SAAB-liðsins. Þurfa íslendingar að leika í Umeá? Ekki verður útséð um það hvar íslendingar leika um 3. sætið á sunnudaginn fyrr en eftir leik Svía og Vestur-Þjóðveija í kvöld. Ef íslenska liðið mætir Ungveijum verður leikið í Umeá sem nyrst í Svíþjóð um 800 km frá Stokkhólmi. Ef íslendingar leika við Svía eða Vestur-Þjóðveija verður leikið í Stokkhólmi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.