Morgunblaðið - 16.01.1988, Page 1
64 SIÐUR OG LESBOK
12. tbl. 76. árg._____________________________________LAUGARDAGUR 16. JANIJAR 1988___________________________________Prentsmiðja Morgfunblaðsins
Suður-Kórea:
Hóta að hefna
hryðjuverksins
Seoul, Reutcr.
STJÓRNVÖLD i Suður-Kóreu hótuðu í gær Norður-Kóreumönnum
hefndum en þá háfði kona, sem grunuð var um að hafa komið fyr-
ir sprengjum í suður-kóreskri farþegaþotu, komið fram i sjónvarpi
og játað á sig verknaðinn. Kvaðst hún vera útsendari kommúnista-
stjórnarinnar í Norður-Kóreu og bera ásamt öðrum manni ábyrgð
á dauða 115 manna, farþega og áhafnar flugvélarinnar.
Kim Hyon-hui, sem er 26 ára
gömul, sagðist hafa komið tveimur
sprengjum fyrir í flugvélinni og
farið eftir beinum fyrirskipunum
Kims Jong-il, sonar og líklegs arf-
taka Kims Il-sung, leiðtoga Norð-
ur-Kóreu. Hefði það meðal annars
verið tilgangurinn með hryðjuverk-
inu að hræða aðrar þjóðir frá því
að taka þátt í Ólympíuleikunum í
Seoul í september.
Suður-Kóreustjóm skipaði í gær
heraum, sem telur 600.000 manns,
að vera á varðbergi og Lee Woong-
hee innanríkisráðherra sagði í
yfirlýsingu, að Norður-Kóreustjóm
slyppi „ekki við refsingu vegna
þessa grimmilega verknaðar“.
Kim Hyon-hui sagði á frétta-
mannafundi, sem var sjónvarpað,
að hún ætti skilið „að deyja hundr-
að sinnum. Ég veit, að ég get ekki
sefað sorg þeirra, sem eiga um sárt
að binda, en ég vil, áður en ég dey,
segja allan sannleikann um þennan
hræðilega glæp.“
Suður-kóreskir leyniþjónustu-
menn segja, að konan og karlmað-
ur, sem með henni var, hafi farið
um borð í þotuna í Bagdad og frá
borði í Abu Dhabi eftir að hafa
komið sprengjunum fyrir. Létust
þau vera feðgin og báru fölsuð,
japönsk vegabréf. Nokkmm stund-
um síðar hvarf þotan yfir Anda-
man-hafí undan Burmaströndum
og hafa engin lík fundist. Hryðju-
verkamennimir vom handteknir
tveimur dögum síðar í Bahrain en
tóku þá inn blásýmhylki, sem falin
vom í vindlingapakka. Lést karl-
maðurinn af eitrinu en konan hélt
lífí.
Bandaríkin:
Reuter
Viðskiptavinir í sjónvarpstækjaverslun í Seoul fylgjast með fréttamannafundinum þar sem Kim Hyon-
hui, 26 ára gömul kona, kvaðst vera útsendari Norður-Kóreu og hafa deytt 115 manns um borð í
suður-kóreskri farþegaþotu að fyrirskipun Kim Jong-il, sonar norður-kóreska leiðtogans.
Verulega dró úr við-
skiptahalla í nóvember
Gengi dollarans hækkaði í kjölfarið og uppgangur á verðbréfamörkuðum
Noregur:
Ræða deiluna
um Barents-
haf í Moskvu
GRO Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs, hefur
þegið boð um að heimsækja Sov-
étmenn og vonast til, að það geti
stuðlað að lausn deilu Norð-
manna og Sovétmanna um
Barentshaf.
Níkolaj Ryzhkov, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, kom í fýrradag
til Óslóar í.þriggja daga heimsókn
og vom hin svokölluðu gráu svæði
í .Barentshafi fyrsta málið á dag-
skrá í viðræðum hans og Bmndt-
lands. Varð enginn árangur af þeim
en Bmndtland kvaðst vonast til að
betur gengi í Moskvu; Ríkin hafa
deilt um Barentshaf í 13 ár en
skammt frá er helsta flotastöð Sov-
étmanna í Murmansk og talið er,
að þar megi finna olíu- og gaslindir.
Eins og kunnugt er kynnti Ryzh-
kov í gær tillögur Sovétmanna um
að banna öll hemaðammsvif í norð-
urhöfum en þeim hefur verið fálega
tekið á Vesturlöndum og af tals-
mönnum NATO. í viðtali, sem
Morgunblaðið átti við Steingrím
Hermannsson utanríkisráðherra,
sagði hann, að vert væri að skoða
þessar tillögur en þær mættu þó
ekki verða til að veikja samstöðu
NATO-ríkjanna.
Sjá forystugrein í miðopnu og
viðtalið við Steingrím á bls. 28.
Washington, London. Reuter.
HALLINN á viðskiptum Bandaríkjanna við útlönd var verulega minni
í nóvember en í október, 13,22 milljarðar dollara á móti 17,63 mill-
jörðum. Þá var einnig frá því skýrt, að heildsöluverð hefði lækkað
í desember um 0,3% og urðu þessar fréttir til þess að dollarinn
hækkaði verulega í verði og sömu sögu er að segja af hlutabréfum
í Wall Street og kauphöllum í Evrópu. Hafði almennt verið búist
við, að hallinn yrði ekki minni en 15 milljarðar dollara í nóvember
en nú er ljóst, að útflutningur hefur aukist meira en talið var og
innflutningur minnkað.
Segja má, að fjármálamarkaðirn-
ir hafí verið hálflamaðir meðan
beðið var eftir fréttum af viðskipta-
hallanum en þegar þær bárust var
þeim tekið með miklum fögnuði.
„Verðið rýkur upp, þetta eru ein-
staklega góðar fréttir," sagði
verðbréfasali í New York en í Wall
Street hækkaði Dow Jones-vísitalan
um 50 stig fyrsta stundarfjórðung-
inn eftir að tíðindin bárust. Veruleg
hækkun varð einnig í evrópskum
kauphöllum og dollarinn hækkaði
um rúmlega 3% gagnvart helstu
gjaldmiðlunum.
Pyrir Ronald Reagan forseta og
Reuter
Brotlent við brautarenda
Stundum er sagt, að fall sé fararheill en það átti ekki við í gær
þegar flugvél af gerðinni Falcon 20 hrapaði rétt eftir flugtak i
Lugano i Sviss. Brotnaði hún í tvennt við brautarendaiin en tveir
flugmenn, sem voru einir um borð, sluppu með minniháttar meiðsli.
ríkisstjómina voru fréttimar kær-
komnar og sagði talsmaður við-
skiptaráðuneytisins, að þótt tölur
eins mánaðar segðu ekki alla sög-
una, benti hallinn í nóvember til,
að methallinn í október hefði aðeins
verið frávik frá þeirri þróun, sem
nú ætti sér stað. Útflutningurinn
ykist stöðugt og því lítil ástæða
fyrir þingið að samþykkja lög um
vemdaraðgerðir.
Það var fleira, sem gladdi banda-
ríska frammámenn í gær, en þá var
frá því skýrt, að verðbólgan hefði
ekkert aukist í desember þrátt fyrir
aukna framleiðslu og að heildsölu-
verð lækkaði í mánuðinum um 0,3%.
Var heildsöluverðið næstum því það
saraa og í desember árið 1985.
í nóvember jókst hagnaðurinn
af útflutningi landbúnaðarvara
mjög verulega, úr 698,1 milljón
dollara í október í 954,2, og hallinn
í viðskiptunum við Japan var 4,85
milljarðar á móti 5,86 í október.
Sambærilegar tölur fyrir Vestur-
Evrópu eru 2,41 milljarður á móti
3,00 í október.
Um miðjan dag í gær fengust
1,67 vestur-þýsk mörk fyrir doll-
arann og 129,90 japönsk jen. Var
eftirspumin eftir dollurum svo mik-
il um tíma í gær, að erfitt var að
finna seljendur.
Svíþjóð:
Víðtæk verk-
föll eftir helgi
Stokkhólmi. Reuter.
HORFUR eru á, að verkfallsað-
gerðir skrifstofufólks hjá einka-
fyrirtækjum muni valda sænsku
efnahags- og atvinnulífi veruleg-
um vandræðum í næstu viku.
Krefst það meiri launahækkana
en nemur verðbólgunni þrátt fyr-
ir ákall stjórnvalda um hófsemi.
Efnahagssérfræðingar segjast
óttast, að launadeilan geti orðið
harðvítug og gert að engu þann
orðstír, sem farið hefur af Svíum
fyrir stöðugleika á vinnumarkaðin-
að leggja niður vinnu og er talið
að starfsemi stórfyrirtækja eins og
Volvos, Asea og Electrolux mun
lamast á fáum dögum.
Skrifstofumenn hjá hinu opinber;
gera sig einnig líklega til að fara
verkfall og krefjast 10% launahækk
unar þótt stjómin dragi mörkin vk
5%, sem er það sama og verðbólgar
á síðasta ári. Þá hafa flugfreyjui
og flugþjónar hjá SAS boðað verk
fall frá oer með nk. miðvikudeei.